DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 156-42
DROPS Design: Mynstur nr db-035
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL – XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
400-500-500-600-600-700 gr litur nr 02, sumarengi

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að fá ca 3 x (1 st + 3 ll) á breiddina x 7 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 mynstureiningu (= 1 st + 3 ll) með því að hekla ekki ll, en heklið 2 st í 1 st þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni), heklið síðan næsta st en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju aftan á baki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 6 ll með Big Delight með heklunál nr 5 og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
Heklið eftir A.1, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, 13 st um hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, * 2 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 2 ll = 12 st + 2 ll.
UMFERÐ 3: Heklið nú hringinn í ferhyrning, þ.e.a.s. heklið þannig: Heklið 3 st + 3 ll + 3 st (= horn) um fyrsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, * 3 st + 3 ll + 3 st (= horn) um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 st um næsta ll-boga (= síðustu 2 ll frá fyrri umf), 3 ll.
UMFERÐ 4: Heklið 3 st + 3 ll + 3 st (= horn) um fyrsta ll-boga, * 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st + 3 ll + 3 st (= horn) um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Endurtakið umf 4 með útaukningu, þ.e.a.s. heklið 1 st + 3 ll á milli allra horna í hverri umf (= 4 útaukningar í hverri umf) JAFNFRAMT í 6. hverri umf er aukið út um 1 st + 3 ll aukalega í hvorri hlið í hverju horni – sjá stjörnu í mynsturteikningu (= 8 auka útaukningar í umf). Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-387-40-42-44-46 cm.

Heklið nú fyrir handveg þannig: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í horni. Heklið nú ll fram að miðju í næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 1. og 2. horni) þannig:
Heklið 1 ll í hverja ll/st sem hoppað er yfir. Heklið nú mynstur eins og áður fram að miðju 3. og 4. horni. Heklið nú ll fram að byrjun á umf þannig: Heklið 1 ll fyrir hverja ll/st sem hoppað er yfir. Í næstu umf er heklað mynstur og aukið út eins og áður yfir allar l, einnig ll fyrir handveg.
Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist 78-80-82-84-86-88 cm x 78-80-82-84-86-88 cm (þ.e.a.s. 21 cm í öllum stærðum frá handveg). Klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Heklið nú fram og til baka á milli fyrsta og öðru horni.
ATH: Framstykkið er heklað án útaukninga.
UMFERÐ 1: Heklið frá fyrsta horni þannig: Heklið 3 st um ll-boga í horni, * 3 ll, 1 st um ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið á 3 ll og 3 st um ll-boga í horni.
UMFERÐ 2: Snúið við og heklið til baka þannig: 1 st í hvern og af fyrstu 3 st, * 1 st um ll-boga, 3 ll * endurtakið frá *-* og endið á 1 st um síðasta ll-boga og 1 st í hver af síðustu 3 st.
UMFERÐ 3: Snúið við og heklið til baka þannig: 1 st í hvern af fyrstu 3 st, * 3 ll, 1 st um ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið á 3 ll og 1 st í hvern af síðustu 3 st.
Endurtakið umf 2 og 3 áfram.
Haldið svona áfram þar til heklað hefur verið fram og til baka í 19-20-21-22-23-24 cm, klippið frá. Endurtakið alveg eins í hinni hliðinni, heklið nú fram og til baka frá þriðja til fjórða horni. Að lokum er hekluð ein umferð í kringum allan ferninginn, heklið mynstur eins og áður en í ll-boga í hverju horni eru heklaðir 6 st. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður frá handveg með byrjun frá miðju undir ermi, frá réttu.
UMFERÐ 1: Heklið 6 ll (= 1 st + 3 ll), * 1 st um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 16-17-18-19-20-21 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll, * 1 st um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 16-17-18-19-20-21 sinnum, heklið 1 ll, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
Endurtakið umf 1 og 2 – JAFNFRAMT er fækkað um 1 st + 3 ll í byrjun á 4.-6.-6.-8.-8.-6. hverri umf með því að hekla 2 st saman – LESIÐ ÚRTAKA – fyrir miðju undir ermi. Endurtakið úrtöku í 6.-6.-6.-4.-4.-4. hverri umf = 12-12-13-13-14-14 st. Haldið áfram með umf án úrtöku þar til ermin mælist ca 56 cm í öllum stærðum. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.10.2014
FRAMSTYKKI: Heklið nú fram og til baka á milli fyrsta og annars horns. ATH: Framstykkið er heklað án útaukninga.
UMFERÐ 1: Heklið frá fyrsta horni þannig: Heklið 3 st í ll-bogann í horni, * 3 ll, 1 st í ll-bogann *, endurtakið frá *-* og endið á 3 ll og 3 st í ll-bogann í horni.
UMFERÐ 2: Snúið við og heklið til baka þannig: 1 st í hvern og einn af 3 fyrstu sl, * 1 st í ll-bogann, 3 ll * endurtakið frá *-* og endið á 1 st í síðasta ll-bogann og 1 st í hver og einn af 3 síðustu st.
UMFERÐ 3: Snúið við og heklið til baka þannig: 1 st í hvern og einn af 3 fyrstu st, * 3 ll, 1 st í ll-bogann *, endurtakið frá *-* og endið á 3 ll og 1 st í hvern og einn af 3 síðustu st. Endurtakið umf 2 og 3 áfram.

Mynstur

symbols = ll
symbols = kl
symbols = st í lykkju fyrir neðan
symbols = st um ll-bogann fyrir neðan
symbols = 4. umf
symbols = númer á horni
symbols = hér er aukið út um 1 auka st + 3 ll um ll-bogann í 6. hverri umf
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (128)

country flag Barbara wrote:

Moet je na de armsgaten als je verder haakt in het patroon ook elke zesde toer extra blijven meerderen?

26.10.2015 - 17:18

DROPS Design answered:

Hoi Barbara. Ja, jeg gaat door met de vierkant tot het vierkantje 21 cm meet vanaf het armsgat. Pas bij het haken van de voorpanden maak je geen meerderingen meer.

27.10.2015 - 14:40

country flag Barbara wrote:

Ik heb een vraag over de toer ná de armsgaten. Je moet volgens het patroon haken, ook over de losse van de armsgaten. Dus drie lossen en een stokje neem ik aan. Als ik op de losse haak, om de hoeveel steken komt dan mijn stokje?

23.10.2015 - 13:08

DROPS Design answered:

Hoi Barbara. Je haakt om de lossen, je hoeft ze niet te tellen en in te haken.

23.10.2015 - 13:47

Theresa Lambert wrote:

I'm not understanding what to do on row 4 would you please help me says something and adding another dc? Please help me out.

20.10.2015 - 00:23

DROPS Design answered:

Dear Theresa, it is just to clear, that there is 1 dc + 3 ch more between each corner on every round. Just follow previous instructions.

18.12.2015 - 11:53

country flag Lorraine De Maria wrote:

I think this is my last question on the armholes- thank you for all your help - I understand I am counting the side of the pattern and then chaining that many for the hole in the sleeve- do I attach it in the middle between both corners on the side of this or do I attached it to the other corner before doing my pattern again??

19.10.2015 - 13:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Maria, when you have crocheted the chain for armhole and skipped the number of sts matching between first (1st armhole) corner and mid between 1st and 2nd corner, crochet as before from middle between 1st and 2nd corner to the 2nd corner. For 2nd armhole, crochet as before from 3rd corner to middle side before 4th corner, crochet a chain skipping the matching number of sts to the 4th corner. Happy crocheting!

19.10.2015 - 14:10

Lorraine De Maria wrote:

Thank you so much - I think I understand now- I will get back to you if I have any questions in the future - Love your site!!

16.10.2015 - 19:38

country flag Lorraine De Maria wrote:

Maybe this is a better way to ask- I will follow for the armhole on the answer that says to chain as many chains as it would take to reach the middle of the square - then do I attach it with a chain where I counted 1/2 before the corner?? or do I attach it in the corner I am working on? and how many sets of double crochets and chains do I put in the corner before doing this long chain??

15.10.2015 - 22:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Maria, after you have skipped half the side (from the corner to middle between both corners), continue in pattern as before to next corner. Number of chains will depend of number of sts you will skip - count the number of sts skipped to the middle between both corners and chain this number. Happy crocheting!

16.10.2015 - 09:28

country flag Lorraine De Maria wrote:

I sent a question early about the sleeves (armholes) and I see others have wrote for help on the same subject and I have been crocheting for years and I am still confused- one answer is saying to decrease - the other is saying count the stitches half way to the next corner and chain that amount - then attach it where? and which one is it?

15.10.2015 - 22:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Maria, when working armhole, work as before until first corner, then work 3 dc+3 ch+ 3 dc in corner (as before), then crochet a ch to create armhole (number of ch = number of sts skipped from 1st corner to the middle of the side between 1st and 2nd corner), and continue as before and repeat armhole between 3rd and 4th corner: work from 3rd corner as before to middle of side between both corners, ch same number of ch as for 1st armhole and 3dc,3ch,3dc in 4th corner, then work as before to the beg of round. Happy crocheting!

16.10.2015 - 09:24

country flag Lorraine De Maria wrote:

I bought the yarn for the drops Pattern (around the world) I had no trouble with it until I got to the Sleeves - I don't understand - do I just do a DC and then ch 3 in each of the corners on the square of the Pattern instead of the 3dc, ch3 and 3dc??

15.10.2015 - 21:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Maria, on 1st round of sleeve, work around armhole, ie in last row on square (skipped sts when working armhole) + in the ch/1st row after armhole and work around 1 dc in each ch-space with 3 ch between each dc. Happy crocheting!

16.10.2015 - 09:14

country flag Helen wrote:

Please can to tell me where I can find instructions on how to do a crochet tension square. In relation to this pattern. As I can only find how too do Knitted ones.

14.10.2015 - 14:20

DROPS Design answered:

Dear Helen, you can work the first 7 rounds to check your tension as stated on the tab "materials" at the right side of the picture. Happy crocheting!

14.10.2015 - 16:42

Kathie wrote:

This is the most confusing pattern I have ever tried to follow. No matter how many times I start over I end up with an extra DC and Ch 3 space on the final side of the A-1 Diagram. It does not matter if I follow the written pattern or the chart. If this is so easily written I would think that you would just make a video of how to do the actual pattern instead of videos just showing the stitches that are used.

01.10.2015 - 02:35