Yesterday |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með hringlaga rúnuðu hálsmáli, gatamynstri og kraga. S - XXXL.
DROPS 156-18 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipti út fyrir 3 ll. Hver umf með st endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Fyrstu fl í hverri umf er skipt út fyrir 1 ll. Allar umf með fl enda á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að hekla 2 st í 1 st, fyrst öðru megin við öll prjónamerkin í umf, næsta skipti hinum megin við öll prjónamerki í umf, haldið svona áfram með útaukningu. ÚRTAKA: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 93-98-103-113-118-128 ll með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine og tengi í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu ll, 1 fl í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-*= 76-80-84-92-96-104 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan upphækkun að aftan við hnakka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið við miðju að aftan, heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* í kringum hálsmál JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki eftir 38-40-42-46-48-52 l (= miðja að framan), snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 28-30-32-36-38-42 l eru eftir að prjónamerki, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl að framan þar til 28-30-32-36-38-42 l eru eftir að prjónamerki, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 22-24-26-30-32-36 l eru eftir að prjónamerki, snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 22-24-26-30-32-36 l eru eftir að prjónamerki, snúið við. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl í kringum hálsmál að framan þar til 16-18-20-24-26-30 l eru eftir að prjónamerki, snúið við. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl að framan þar til 16-18-20-24-26-30 l eru eftir að prjónamerki, snúið við og heklið til baka að miðju að aftan. Heklið síðan í hring með st JAFNFRAMT í 1. umf eru sett 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan), setjið síðan 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 st millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 4 st. Heklið í hring með st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st við öll prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf 5-6-6-5-5-6 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 209-240-252-276-288-338 st. Heklið eina umf þar sem aukið er út um 14-7-7-7-19-5 st jafnt yfir = 223-247-259-283-307-343 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf er heklað frá miðju að aftan þannig: 30-34-37-41-45-52 st, 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (á að nota síðar fyrir ermi), 60-68-74-82-90-104 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (á að nota síðar fyrir ermi) og 29-33-36-40-44-51 st = 135-151-163-179-195-223 st/ll. Setjið eitt prjónamerki, héðan er nú mælt. Heklið 1 st í hvern st/ll JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-8-12-12-12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 127-143-155-167-183-211 st. Heklið nú þannig: Heklið A.1, A.2 alls 30-34-37-40-44-51 mynstureiningar á breiddina, endið á A.3. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 14-14-14-15-15-15 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé síðasta umf í A.4, aukið út um 1 mynstureiningu í A.2 í 8.-9.-9.-10.-11.-13. mynstureiningu um ll-boga þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um ll-bogann, 2 ll, 1 st um sama ll-boga, 2 ll, 1 fl um sama ll-boga. Heklið 14-16-19-20-22-25 mynstureiningar af A.2, í næstu mynstureiningu af A.2 er aukið út alveg eins. Heklið síðan áfram eins og áður = 32-36-39-42-46-53 mynstureiningar af A.2 á breiddina. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 34-34-36-35-37-37 cm frá prjónamerki, stillið af að endað er í næst síðustu umf í A.4, stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Setjið prjónamerki, héðan er nú mælt. Byrjið á að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki, 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 st í hvern st yfir ermi, áður en 1 st er heklaður í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 60-64-64-68-72-76 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi. Heklið nú þannig: 1 st í hvern af fyrstu 11-11-11-13-13-15 st JAFNFRAMT er fækkað um 1 st (= 10-10-10-12-12-14 st), A.1, A.2 8-9-9-9-10-10 sinnum á breiddina, A.3, heklið 1 st í hvern af síðustu 10-10-10-12-12-14 st. Haldið áfram með 1 st í hvern af þeim 20-20-20-24-24-28 st við miðju undir ermi og A.1-A.3 yfir ermi. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 endurtekið á hæðina til loka mælingar. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili 9-9-9-11-11-13 sinnum til viðbótar. Heklið nú bara A.1-A.3 yfir ermi. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 43½-42½-42½-39½-40-38 cm, passið að enda í næst síðustu umf í A.4 – ATH – styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla. Heklið hina ermina á sama hátt. LAUS KRAGI: Stykkið er heklað í hring. Heklið 99 ll með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan 3. umf í A.1, 3. umf í A.2 23 sinnum og 3. umf í A.3. Endurtakið A.4 á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm, stillið af að næsta umf sé síðasta umf í A.4, aukið út um 1 mynstureiningu í A.2 í hvorri hlið á stykki þannig: Heklið A.1, heklið síðan fyrstu A.2 þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um ll-bogann, 2 ll, 1 st um sama ll-boga, 2 ll, 1 fl um sama ll-boga. Heklið eins og áður þar til 1 mynstureining af A.2 er eftir á undan A.3, í næstu mynstureiningu af A.2 er aukið út á sama hátt. Heklið nú áfram eins og áður (= 25 mynstureiningar af A.2 á breiddina) þar til stykkið mælist ca 20 cm, stillið af þannig að endað sé í næst síðustu umf í A.4. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (68)
Helen Lindblad wrote:
Va snygg!! Vill ha!!
05.06.2014 - 20:41Lise wrote:
Broche droite non circulaire merci
04.06.2014 - 22:01Bertina. wrote:
Leuke trui, is de moeite waard om te haken.
04.06.2014 - 11:58Cc wrote:
Beau modèle. Exemple de crochet moderne.
04.06.2014 - 09:33Dorothee wrote:
Zeker een vest om na te maken
03.06.2014 - 22:18Emmanovembre wrote:
Particolare e semplice insieme!!!
03.06.2014 - 21:14Lauren McRoberts wrote:
I love this sweater. Please include this year!
03.06.2014 - 13:55Christel wrote:
J'aime beaucoup le col boule et le mélange point fantaisie et brides, très joli modèle
03.06.2014 - 08:46