Loch Ness |
|
|
|
Hekluð peysa með tvíbrugðnum stuðlum og fastalykkjum úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fastalykkju er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkja kemur ekki í stað fastalykkju. Í byrjun á hverri umf með tbst er skipt út fyrsta tbst fyrir 4 ll. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 l á heklunálinni = 1 fl færri. MYNSTUR: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið 1 fl í fremri lykkjubogann í hverja l frá fyrri umf. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann í hverja l frá fyrri umf. Endurtakið umf 1 og 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er hekluð fram og til baka í stykkjum og saumuð saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 49-52-55-60-66-71 ll með heklunál nr 9 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Heklið síðan frá réttu þannig: 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (= 2 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 0-3-6-0-6-0 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 10 ll *, endurtakið frá *-* 3-3-3-4-4-5 sinnum til viðbótar = 42-45-48-52-58-62 tbst, - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af að síðasta umf sem er hekluð sé umf 2 í mynstri, setjið eitt prjónamerki í síðustu l í hvorri hlið á stykki. Heklið 7-7-6-6-5-5 nýjar ll í lok umf = 49-52-54-58-63-67 l. Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið umf 1 í mynstri yfir nýjar 7-7-6-6-5-5 ll og haldið áfram yfir bakstykki, heklið 7-7-6-6-5-5 nýjar ll í lok umf = 56-59-60-64-68-72 l. UMFERÐ 2: (Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR). Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3-3-2-2-1-1 ll (nú eru 4 ll eftir á undan l með prjónamerki í), heklið 1 hst í hvora af næstu 2 ll, heklið síðan 1 st í hvora af næstu 2 ll. Haldið áfram með umf 2 í mynstri yfir bakstykki fram að næsta prjónamerki. Heklið 1 st í hvora af næstu 2 fl, heklið síðan 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af 3-3-2-2-1-1 fl sem eftir eru í umf, heklið 4-4-4-3-3-2 nýjar ll í lok umf = 60-63-64-67-71-74 l. UMFERÐ 3: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l á bakstykki, heklið 4-4-4-3-3-2 nýjar l í lok umf = 64-67-68-70-74-76 l. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7-7-6-5-4-3 l (= 4 l eftir á undan l með prjónamerki í), heklið 1 hst í hvora af næstu 2 fl, síðan 1 st í hvora af næstu 2 fl, haldið áfram með umf 2 í mynstri yfir bakstykki að næsta prjónamerki, heklið 1 st í hvora af næstu 2 fl, síðan 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af 7-7-6-5-4-3 fl sem eftir eru í umf, heklið 5-4-4-4-3-3 nýjar ll í lok umf = 69-71-72-74-77-79 l. UMFERÐ 5: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l á bakstykki, heklið 5-4-4-4-3-3 nýjar l í lok umf = 74-75-76-78-80-82 l í umf. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður (þ.e.a.s. heklið tbst frá réttu og fl frá röngu). Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm – stillið af að næsta umf sé umf 2 í mynstri, heklið þannig: Heklið fyrstu 31-31-31-32-33-34 l. Klippið frá. Hoppið yfir næstu 12-13-14-14-14-14 fl frá fyrri umf (= hálsmál), heklið 31-31-31-32-33-34 l sem eftir eru. Klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 41-43-45-47-51-53 ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 9 með Cloud. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (= 2 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 3-5-7-9-2-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af 10 ll *, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar = 35-37-39-41-44-46 tbst. Haldið áfram með mynstur eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af eftir bakstykki og að síðasta umf sem hekluð er sé umf 2 í mynstri! Setjið eitt prjónamerki í síðustu l séð frá réttu, heklið 7-7-6-6-5-5 nýjar ll í lok umf = 42-44-45-47-49-51 l. UMFERÐ 1 (= ranga): Haldið áfram með umf 1 í mynstri yfir 7-7-6-6-5-5 nýjar ll, haldið síðan áfram yfir þær l sem eftir eru. UMFERÐ 2: Heklið umf 2 í mynstri fram að l með prjónamerki í, 1 st í hvora af næstu 2 ll, 1 hst í hvora af næstu 2 ll, 1 fl í hverja af 3-3-2-2-1-1 ll sem eftir eru í um, heklið 4-4-4-3-3-2 nýjar ll í lok umf = 46-48-49-50-52-53 l. UMFERÐ 3: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l. UMFERÐ 4: Heklið umf 2 í mynstri yfir allar l fram að l með prjónamerki í, 1 st í hvora af næstu 2 fl, 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af 7-7-6-5-4-3 fl sem eftir eru, heklið 5-4-4-4-3-3 nýjar ll í lok umf = 51-52-53-54-55-56 l. UMFERÐ 5: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l í umf. Haldið síðan áfram með mynstur yfir allar l þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af að síðasta umf sem er hekluð sé umf 2 í mynstri. Klippið frá. SJALKRAGI: Heklið nú sjalkraga í fl yfir síðustu 20-21-22-22-22-22 l við miðju að framan á peysu. ATH: Heklið í fremri lykkjubogann frá röngu og í aftari lykkjubogann frá réttu! Byrjið frá röngu. Heklið 1 kl í 20.-21.-22.-22.-22.-22. tbst frá miðju að framan, 1 ll, 1 fl í sömu l, 1 fl í hverja af l sem eftir eru í umf, * snúið við og heklið 1 fl í hverja af fyrstu 10-10-11-11-11-11 fl, snúið við og heklið til baka, snúið við og heklið yfir allar 20-21-22-22-22-22 fl, snúið við og heklið til baka *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 8-8-9-9-9-9 cm meðfram stystu hliðinni. Klippið frá. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af eftir hægra framstykki og að síðasta umf sem er hekluð sé umf 2 í mynstri. UMFERÐ 1: Snúið við og heklið umf 1 í mynstri yfir allar l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l í umf (séð frá röngu), heklið 7-7-6-6-5-5 nýjarll. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3-3-2-2-1-1 ll (nú eru 4 fl eftir á undan l með prjónamerki í), heklið 1 st í hvora af næstu 2 ll, 1 hst í hvora af næstu 2 ll, haldið áfram með umf 2 með mynstri yfir þær l sem eftir eru. Haldið síðan áfram með útaukningu fyrir ermi í hverri umf frá röngu alveg eins og á hægra framstykki. Stillið af eftir hægra framstykki og heklið sjalkragann gagnstætti, þ.e.a.s. með byrjun frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 tbst/fl, en skiljið eftir 20 cm fyrir klauf í hvorri hlið. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Saumið 2 sjalkragana saman fyrir miðju að aftan, saumið kraga við hálsmál. KANTUR NEÐST Á PEYSU: Byrjið í fyrstu l (séð frá réttu) á bakstykki og heklið þannig: Festið bandið með 1 kl, heklið 1 fl í hvern st, klippið frá. Heklið nú eina umf til viðbótar með fl frá réttu en nú er heklað í aftari lykkjubogann. Endurtakið á báðum framstykkjum. KANTUR MEÐFRAM KANTI AÐ FRAMAN: Festið endann með 1 kl í horni neðst á hægri kant að framan og heklið frá réttu þannig: Heklið 2 ll, hoppið fram að fyrstu fl-umf og heklið (1 st, 1 hst, 1 ll, 1 hst, 1 st) umf fl-umf, 1 ll, * hoppið fram að næstu fl-umf og heklið (1 st, 1 hst, 1 ll, 1 hst, 1 st) um næstu fl-umf *, endurtakið frá *-* í kringum allan kant að framan og kraga, en þegar heklað er yfir kraga, hoppið fram ca 4 cm áður en heklaður er nýr st-hópur. Þ.e.a.s. að það verði ca 10 st-hópar yfir kraga. STROFF/KANTUR Á ERMUM: UMFERÐ 1: Festið enda með 1 kl í saum á ermi og heklið 4 ll (= 1 tbst), heklið 30 tbst í kringum op á ermi (þ.e.a.s. ca 1 tbst um hverja fl-umf og 3 tbst um hverja umf með tbst). Endið umf með 1 kl í 4. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, haldið síðan áfram með 1 fl í hvern tbst. ATH: Heklið í aftari lykkjubogann í st að neðan! Klippið frá og festið enda. Endurtakið í kringum hina ermina. ---------------------------------------------------------- Húfa og hálsklútur: Sjá DROPS 166-07. ---------------------------------------------------------- |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (80)
Luisella wrote:
Trovo tutto il completo originale, giovane, elegante come solo questo colore può renderlo
28.05.2015 - 17:50Ernesta wrote:
Baie snoesig vir d koue dae!
28.05.2015 - 10:25Anna Maria Xerra wrote:
Modello semplice ma non per questo banale, anzi molto elegante
28.05.2015 - 09:40Anja Müller wrote:
Schlicht und ergreifend
28.05.2015 - 07:45Loubier wrote:
Je l'ai trouvé enveloppant.
28.05.2015 - 00:20Veronik wrote:
Simple et authentique.
27.05.2015 - 22:24Suzhan wrote:
Love the slouchy, unconstructed look about it.
27.05.2015 - 21:23Cristina wrote:
Espectacular.
27.05.2015 - 18:57SCHWETTA Blandine wrote:
Ce modèle long doit être bien sympathique lors des journées très fraiches.
27.05.2015 - 18:32Gaby Düppengießer wrote:
Cool und lässig
27.05.2015 - 14:54