Blue Danube |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu og basker / alpahúfu úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-34 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GATAMYNSTUR: Prjónið 1 umf frá réttu þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 10 umf garðaprjón. Endurtakið þessar 12 umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju og út. Stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN og GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 68-68-66-64-64-64 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Delight og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 14 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram skammhlið og prjónið upp 1 l í hverja l frá uppfitjunarkanti = 143-143-139-135-135-135 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 68-68-66-64-64-64 l sl. Prjónið 3 umf slétt yfir allar l (uppslátturinn er prjónaður slétt svo ekki myndist göt). Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 68-68-66-64-64-64 l sl. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l (uppslátturinn er prjónaður slétt svo ekki myndist göt). Prjónið síðan GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATH! Ekki er prjónað gatamynstur yfir þær 2 l sem prjónaðar voru slétt á milli uppslátta – þær eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 2 fyrstu umf í gatamynstri, aukið síðan út eins og áður, nú eru 5 l á milli uppslátta – þessi fjöldi eykst eftir því sem útaukning heldur áfram, aukið er út í 4. hverri umf 11-13-15-17-19-21 sinnum til viðbótar (= 6 útaukningar hvert skipti). Uppslátturinn er prjónaður slétt – það eiga að myndast göt. Haldið áfram með gatamynstur og útaukningar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningueru 227-239-247-255-267-279 l í umf. Prjónið nú frá réttu – þannig: Setjið fyrstu 68-68-66-64-64-64 l á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 91-103-115-127-139-151 l = 68-68-66-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir þessar l. Fellið af. Setjið til baka 68-68-66-64-64-64 l af þræði á prjóninn, prjónið 6 umf garðaprjón yfir þessar l. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 68-68-66-64-64-64 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 18 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, prjónið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjón meðfram skammhlið = 77-77-75-73-73-73 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 5 l sl (= kantur að framan). Prjónið 3 umf slétt yfir allar l (uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat). Prjónið síðan GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATH! Ekki er prjónað gatamynstur yfir þær 2 l sem prjónaðar voru slétt á milli uppslátta eða 5 síðustu l í umf – þær eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 2 fyrstu umf í gatamynstri, síðan er aukið út eins og áður, nú eru 5 l fleiri á milli 2 fyrstu uppslátta og 3 l á milli síðasta uppsláttar og kant að framan – þessi fjöldi eykst eftir því sem útaukning heldur áfram, aukið er út í 4. hverri umf 11-13-15-17-19-21 sinnum til viðbótar (= 3 útaukningar hvert skipti). Uppslátturinn er prjónaður slétt – það eiga að myndast göt. Haldið áfram með gatamynstur og útaukningar. Eftir alla útaukningu eru 119-125-129-133-139-145 l á prjóni. Prjónið nú frá röngu – þannig: Setjið fyrstu 22-24-26-28-30-32 l á þráð, fellið af næstu 29-33-37-41-45-49 l = 68-68-66-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir þessar l. Fellið af. Setjið til baka 22-24-26-28-30-32 l af þræði á prjóninn. Haldið áfram í garðaprjóni og stuttum umferðum yfir kraga þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón yfir síðustu 11-12-13-14-15-16 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 12-14-15-16-17-18 cm þar sem hann er minnstur. Fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 68-68-66-64-64-64 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf garðaprjón. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig: Prjónið 6 umf sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 l sl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, prjónið 24-24-22-20-20 20 l sl. Haldið áfram með garðaprjón þar til prjónaðar hafa verið 18 umf garðaprjón. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, prjónið síðan næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 68-68-66-64-64-64 l, prjónið upp 1 l í hverri rönd með garðaprjóni meðfram skammhlið = 77-77-75-73-73-73 l. Næsta umf er prjónið frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 68-68-66-64-64-64 l. Haldið áfram eins og á vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l á sokkaprjóna 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili 11-11-12-13-14-14 sinnum til viðbótar = 60-62-66-70-74-76 l. Þegar stykkið mælist 49-47-44-40-38-36 cm fellið af 6 l mitt undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 54-56-60-64-68-70 l. Nú er fækkað um 1 l í hvorri hlið þannig: Fellið af í 4. hverri umf 0-0-0-2-3-4 sinnum, í annarri hverri umf 16-19-23-23-24-24 sinnum, síðan í hverri umf 4-2-0-0-0-0 sinnum = 14 l. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma. Saumið ermarnar í, þær eru saumaðar eins og laskalína við skáhallandi hliðar á framstykki og bakstykki. Saumið saman op undir ermum. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ALPAHÚFA: GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Stykkið er fyrst prjónað á sokkaprjóna, síðan á hringprjóna. ALPAHÚFA: Fitjið upp 18 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið eftir mynstri A.1 (= 6 mynstureiningar á breiddina). Skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 90 l í umf. Skiptið yfir á hringprjón nr 4. Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l þar til stykkið mælist 21 cm. Fellið af. Notið nál og þráð, saumið saman gatið efst á húfunni. Herðið á þræði og festið vel. Til þess að fá fallegra form þá er húfan bleytt þegar hún er tilbúin og spennt yfir disk. Látið húfuna þorna á disknum. Endurtakið þetta í hvert sinn sem húfan er þvegin. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (29)
Elisabeth Lindner wrote:
Gefällt mir besonders gut.
20.07.2015 - 15:30Zandra wrote:
Den här ser ut att vara både rolig att göra och något jag faktiskt passar i, vill väldigt gärna se mönstret.
02.07.2015 - 20:28Bonnie Robinson wrote:
Beautiful!
30.05.2015 - 20:18Carmen Vallée wrote:
Belles lignes dorsales
30.05.2015 - 16:14Kerstin Lundqvist wrote:
Som vanligt många fina mönster.
28.05.2015 - 17:21Marianne Diehl wrote:
Sehr schönes Model auch wenn man nicht mehr 20 ist. Werde ich sehr gerne nachstricken. Wirkung auch durch den schönen Farbverlauf
28.05.2015 - 15:16Dagmar Dow wrote:
I like the pattern, but I would make it into a sweater.
28.05.2015 - 05:45Elisabeth Dyndale wrote:
Flotte farger og artig fasong. Lekker.
27.05.2015 - 21:33Eva Pihlgrne wrote:
Nått nytt , KUL
27.05.2015 - 14:03