Autumn Delight |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð ferningspeysa úr DROPS Delight. Stærð S - XXXL
DROPS 166-22 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. 3 ST HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN Á UMF: 3 ll, heklið næsta st um sömu ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en dragið nú þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. 3 ST HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 st um ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðasta st um sömu ll, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. ÚRTAKA: Heklið 1 st, en bíðið með að bregða þræðinumum heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni = 2 st heklaðir saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í ferning frá miðju að aftan, síðan eru framstykkin hekluð og í lokin ermar. PEYSA: Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með Delight og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan eftir mynstri A.1, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), * 1 st um ll-hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 12 st með 1 ll á milli hverra st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 2: 1 kl umf fyrstu ll, heklið 3 ST HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN UMF – sjá útskýringu að ofan, * 3 ll, 3 ST SAMAN um næstu ll- sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið á 3 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hóp = 12 st-hópar með 3 ll á milli hverra st-hópa. UMFERÐ 3: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). UMFERÐ 4: Heklið 1 kl um fyrsta ll-bogann, 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, um næsta ll-boga (ll-bogi með 6 ll) heklið 5 st + 3 ll + 5 st (= horn), 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). UMFERÐ 5: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga (ll-bogi með 5 ll), heklið 5 ll (jafngilda 1 hst + 3 ll), * 1 fl um ll á undan st-hóp, 5 ll, 1 fl um ll-bogann í horni, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga, 5 ll, 1 fl um ll-bogann á eftir næsta st-hóp, 3 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf (í stað 1 hst um næsta ll-boga, 3 ll). Klippið frá. Umf byrjar nú um ll-boga í fyrsta horni. UMFERÐ 6: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern og einn af 2 fyrstu ll-bogum, 3 st í hst, 3 st um hvern og einn af 2 næstu ll-bogum, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 st um hvern ll-boga og 3 st í hvern hst fram að horni og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið kl fram að ll-boga í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), heklið 1 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * (2 ll, hoppið yfir 1 st-hóp, 1 st á undan næsta st-hóp = á milli 2 st-hópa), endurtakið frá (-) alls 6 sinnum, 2 ll, 2 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endurtakið frá (-) alls 6 sinnum og endið á 2 ll og 1 kl í 4. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 8: Heklið kl mitt á milli 2 miðju tbst í horni, 3 ll (jafngilda 1 fl + 2 ll), 1 fl á milli sama miðju tbst í horni, * 3 fl um bogann, 1 fl á milli næstu 2 tbst, síðan eru heklaðar 3 fl um hvern ll-boga fram að tbst í horni, 1 fl á milli 2 fyrstu tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl + 2 ll + 1 fl á milli 2 miðju tbst í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 fl um ll-bogann, 1 fl á milli næstu 2 tbst, síðan eru heklaðar 3 fl um hvern ll-boga fram að tbst í horni, 1 fl á milli 2 fyrstu tbst, 3 fl um ll-bogann og endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 9: Heklið 1 kl um ll-bogann í horni, 6 ll (jafngilda 1 st + 3 ll), 1 st um sama ll-boga, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, (3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í næstu fl), endurtakið frá (-) alls 6 sinnum, 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, 1 st + 3 ll + 1 st um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað 1 st + 3 ll + 1 st í horni). UMFERÐ 10: 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern af 3 fyrstu ll-bogum, 1 ll, 3 st um hvern af 3 næstu ll-bogum, 1 ll, 3 st um hvern af 3 næstu ll-bogum, í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað 3 st + 3 ll + 3 st í horni). UMFERÐ 11: Heklið kl fram að ll-boga í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), heklið 1 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * 2 ll, hoppið yfir 2 st-hópa, 1 tbst á undan næsta st-hóp, 2 ll, hoppið yfir 2 st-hópa, um ll á undan næsta st-hóp er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst, hoppið yfir 1 st-hóp, 1 tbst í miðju næsta st í næsta st-hóp, hoppið yfir 1 st-hóp, um ll á undan næsta st-hóp er heklað 2 tbst + 3 ll +2 tbst + 3 ll + 2 tbst, 2 ll, hoppið yfir 2 st-hópa, 1 tbst á undan næsta st-hóp, 2 ll, um ll-boga í horni er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf (í stað tbst-hópa í horni). UMFERÐ 12: Heklið kl að miðju á milli 2 miðju tbst í horni, 3 ll (jafngilda 1 fl + 2 ll), 1 fl á milli sömu miðju tbst í horni, * 3 fl um ll-bogann, 1 fl á milli næstu 2 tbst, 3 fl um hvorn af 2 næstu ll-bogum, 1 fl á milli næstu 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli næstu 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í hvorn af 2 næstu tbst, hoppið yfir 1 tbst, 1 fl í hvorn af 2 næstu tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli 2 tbst, 3 fl um hvorn af 2 næstu ll-bogum, 1 fl á milli 2 tbst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl + 2 ll + 1 fl á milli 2 miðju tbst í horni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í fyrstu ll í umf (í stað 1 fl + 2 ll + 1 fl í horni). UMFERÐ 13: Heklið 1 kl um ll-boga í horni, 7 ll (jafngilda 1 tbst + 3 ll), 1 tbst um sama ll-boga, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 st í næstu l, 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 hst í næstu l, 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl, hoppið yfir 2 fl, 1 st í næstu fl, 2 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 hst í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 hst í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 st í næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 3 fl og heklið 1 tbst + 3 ll + 1 tbst um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf (í stað 1 tbst + 3 ll + 1 tbst um ll-boga í horni). UMFERÐ 14: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern af 6 fyrstu ll-bogum, 1 st um 2 ll-boga, 1 st í st, 1 st um 2 ll-boga, heklið 3 st um hvern af 6 næstu ll-bogum, í hornið er heklað 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, enn endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað 3 st + 3 ll + 3 st í horni). UMFERÐ 15: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * ( 2 ll, 1 st á undan næsta st-hóp), endurtakið frá (-) fram að horni, 2 ll, um ll-bogann í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (í stað st-hóp í horni). UMFERÐ 16: 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * heklið 3 st um hvern ll-boga fram að horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 st um hvern ll-boga fram að horni og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Endurtakið umf 15 og 16 þar til ferningurinn mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm. Heklið nú handveg þannig: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í horni. Heklið nú ll fram að miðju í næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 1. og 2. horns) þannig: Heklið 1 ll fyrir hvern ll/st sem hoppað er yfir. Síða er mynstur heklað eins og áður framað miðju mitt á milli 3. og 4. horns. Heklið nú ll fram að byrjun umf þannig: Heklið 1 ll fyrir hvern ll/st sem hoppað er yfir. Í næstu umf er heklað mynstur og aukið út eins og áður yfir allar l; einnig um ll fyrir handveg. Haldið áfram að endurtaka umf 15 og 16 þar til fjöldi ll-boga á milli horna verður deilanlegur með 3. Síðan er heklað þannig: UMFERÐ 1: 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (meðtalin 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * (heklið 3 st um hvern af 3 fyrstu ll-bogum, 1 ll), endurtakið frá (-) þar til 3 ll-bogar eru eftir á undan horni, heklið 3 st um hvern af næstu ll-boga, í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (í stað 3 st + 3 ll + 3 st í horni). UMFERÐ 2-4: Heklið eins og umf 11-13 (heklaður er 1 st-hópur um hverja ll frá fyrri umf). UMFERÐ 5-18: Heklið eins og umf 15 og 16. Endurtakið þessar 2 umf alls 7 sinnum. Endurtakið þessar 18 umf þar til ferningurinn mælist 78-80-82-84-86-88 cm x 78-80-82-84-86-88 cm (þ.e.a.s. 21 cm í öllum stærðum frá handveg). Klippið frá. FRAMSTYKKI: Heklið nú fram og til baka á milli fyrsta og annars horns. ATH! Framstykkið er heklað án útaukninga. UMFERÐ 1: Heklið eftir A.2 þannig: Heklið kl fram að miðju fyrsta horni. 5 ll, * hoppið yfir 3 st, 1 st á milli 2 st-hópa, 2 ll *, endurtakið frá *-* hoppið yfir 3 st og endið á 1 st um ll-bogann í öðru horni. UMFERÐ 2: Snúið við og heklið til baka þannig: 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, síðan eru heklaðir 3 st um hvern ll-boga, síðasta skiptið endar á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf. Endurtakið umf 1 og 2 í 19-20-21-22-23-24 cm, klippið frá. Endurtakið á hinni hliðinni, heklið nú fram og til baka frá þriðja og fjórða horni. Að lokum er hekluð ein umf í kringum allan ferhyrninginn, heklið mynstur eins og áður en um ll-bogann í hverju horni eru heklaðir 6 st. Klippið frá og festið enda. ERMI: Stykkið er heklað í hring frá handveg og niður, hver umf er hekluð saman með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, mitt undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið á að hekla 81-84-87-93-96-99 st jafnt yfir í kringum op fyrir ermi, byrjun á umf á að vera undir ermi. Haldið áfram með A.2 – þegar stykkið mælist 4 cm er lykkjum fækkað undir ermi þannig: Fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.3/A.4 – LESIÐ ÚRTAKA til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerki. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umf 10-11-11-6-6-7 sinnum, síðan í annarri hveri umf 0-0-0-7-7-7 sinnum = 51-51-54-54-57-57 st. Heklið A.2 þar til ermin mælist ca 47 cm í öllum stærðum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (73)
C.p. wrote:
Schöne Farben, schönes Design...Ist was für mich mich mich!!!
28.05.2015 - 20:01Martine Peeters wrote:
Prachtige kleurencombinatie...Ideaal voor de herfst
28.05.2015 - 18:52Blandine Schwetta wrote:
Belle coupe. Gilet qui doit être agréable en inter saison ou pour les soirées plus fraiches.
27.05.2015 - 18:37