DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Berry Ripple

Heklað pils úr DROPS Cotton Merino með röndum og sólfjaðramynstri. Heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-22
DROPS Design: Mynstur nr cm-050
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
100-100-100-150-150-150 g nr 13, kórall
100-100-100-100-150-150 g nr 14, kirsuber
50-50-100-100-100-100 g nr 07, vínrauður
100-100-100-100-100-100 g nr 05, púðurbleikur
100-100-100-100-100-100 g nr 01, natur

ATH: Ef pilsið er heklað með einum lit þá þarf 350-400-450-450-500-550 g Cotton Merino.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Hringlaga (ljós bleik) NR 618: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.2 sýnir hvernig hver röð/umf byrjar og hvernig hver umf endar (þ.e.a.s. þegar heklað er fram og til baka er ekki hekluð 1 kl í ll í byrjun á umferð).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.

RENDUR-1:
A.1a er heklað þannig:
UMFERÐ 1: litur kórall
Endurtakið síðan A.1b í röndum þannig:
UMFERÐ 1: litur púðurbleikur – ATH: Aukið er út í þessari umf.
UMFERÐ 2: litur kirsuber
UMFERÐ 3: litur vínrauður
UMFERÐ 4: litur púðurbleikur – ATH: Aukið er út í þessari umf
UMFERÐ 5: litur kirsuber
UMFERÐ 6: litur natur
UMFERÐ 7: litur vínrauður – ATH: Aukið er út í þessari umf
UMFERÐ 8: litur kórall
UMFERÐ 9: litur natur
UMFERÐ 10: litur natur
UMFERÐ 11: litur kirsuber – ATH: Aukið er út í þessari umf
UMFERÐ 12: litur púðurbleikur – ATH: Aukið er út í þessari umf.
UMFERÐ 13: litur kirsuber
UMFERÐ 14: litur natur
UMFERÐ 15: litur kórall

ÚTAUKNING:
Aukið er út í umf 1,4,7,11 og 12 í mynstri A.1b (þ.e.a.s. aukið út um 6 l jafnt yfir alls 5 sinnum hver endurtekning af A.1b).
Aukið út með því að hekla 2 st í/um sömu l. Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið lykkjufjölda í umf (t.d. 132 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 22. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 st í 22. hverri l.

RENDUR-2:
Haldið áfram að hekla A.1b, nema litir kórall og natur skipta um stað. Þ.e.a.s. Þær umf sem stendur litur kórall eru núna heklaðar með litur natur og gagnstætt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrst er heklað fram og til baka þar til klauf í hlið hefur verið hekluð til loka, síðan er heklað í hring.

PILS:
Heklið 141-155-169-183-211-232 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4 með litnum natur. Fyrsta umf er heklað þannig: Heklið 1 stí 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 120-132-144-156-180-198 st. Stykkið er heklað í RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Heklið A.1a alls 20-22-24-26-30-33 sinnum á breiddina. Þegar A.1a hefur verið heklað, heklið A.1b yfir A.1a (fyrsta umf í A.1b er frá röngu). Haldið áfram með rendur.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Endurtakið A.1b á hæðina og aukið út þannig:
Aukið út um 6 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING – alls 16-16-17-18-18-20 sinnum = 216-228-246-264-288-318 l. Í hvert skipti sem aukið er út, heklið 1 mynstureiningu meira af A.1b á breiddina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm endar klauf í hlið og stykkið er síðan heklað í hring með byrjun umf í hlið. Þegar A.1b hefur verið endurtekið 2 sinnum á hæðina er stykkið heklað áfram í RENDUR-2- sjá útskýringu að ofan. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, endið fallega og miðið við A.1b

KANTUR AÐ OFAN:
Heklið kant með st frá fyrstu umf á pilsi með litnum kórall. Heklið 1 umf með 1 fl í hvern st og heklið síðan 2 umf með 1 fl í hverja fl 120-132-144-156-180-198 fl.

HNESLA:
Meðfram hlið á opi sem er staðsett á framstykki eru heklaðar hneslur/lykkjur með litnum kórall þannig (byrjið neðst niðri): 2 fl (umf hverja st-umf og 1 fl um hverja fl-umf), 3 ll, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 fl um næsta st/fl-umf, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið á 2 fl um síðustu st-umf efst uppi, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga. Klippið frá og festið enda.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram hinni hliðinni á opi eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka með litnum kórall (í 1. umf eru heklaðar 2 fl um hverja st-umf og 1 fl um hverja fl-umf), klippið frá. Saumið tölur í kant.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl í aftari lykkjubogann frá réttu og í fremri lykkjubogann frá röngu
symbols = fl um ll
symbols = st í l
symbols = st um l á milli 2 st
symbols = st um ll
symbols = hoppið yfir 1 l, 1 st í/umf næsta st/ll, 1 st í l sem var hoppað yfir
symbols = st-hópur: Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st í sama st alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni
symbols = í fyrstu umf hekluð 1 ll, í næstu umf er heklaður 1 tbst um ll og niður til fl í 2 umf á undan
symbols = í þessari umf er aukið út jafnt yfir - sjá uppskrift
symbols = fyrsta umf er ekki hekluð, umferðin hefur verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar
symbols = keðjulykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Kristine wrote:

Hej Jeg har lidt svært ved at forstå hvad det nøjagtig er, der skal gøres med dbl-st, der skal om lm og ned til fm på 2. omgang før. En almindelig dobbelstangmaske er jeg med på. ... men ned til fm. hvordan gør man det?

30.04.2019 - 23:24

DROPS Design answered:

Hej Kristine, jo hvis du ser på billedet af mønsteret, så er det de lange rosa dobbelt-stangmasker som stikker ned i de hvide fastmasker fra forrige række. God fornøjelse!

03.05.2019 - 10:46

country flag Sandy wrote:

I love this skirt but not a huge pink wearning girl. Can I please get some help picking earth tones. This type of pattern is a first for me. I am challenging myself to learn how to change colours. I have never had to purchase a collection of colours. Any hep and suggestions would be great. A l9ve fall type colours.

10.02.2019 - 15:18

DROPS Design answered:

Dear Sandy! You can always look at other multicolored patterns, to see which color combination look pleasing for you. Also ou can use the colorcharts of each yarn. If I would do ths skirt, I eould probably use the brown, the beige and the rusty orange for the mai colors, and the cream, and one of teh lighter greens for contrast, but that is just one possibility. You can also copy the pictures from the corocharts and put them beside eachother and see if you like a particular combinationor not. Happy Coloring!

11.02.2019 - 03:16

Mary Selvi wrote:

Hi thank you for your free pattern....if u could explained the pattern in little more detail it would have been great for especially for beginners and intermediate.

16.12.2018 - 07:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Selvi, each symbol in diagram represents one stitch/group of stitch - see diagram key. Start reading the diagram at the bottom corner on the right side towards the left on every RS row (and every round when working in the round) - work the WS row reading from the left towards the right. Happy crocheting!

17.12.2018 - 10:36

country flag Marie wrote:

Volgens de beschrijving moet er 16 keer in totaal gemeerderd worden. Maar volgens het telpatroon en TIP VOOR HET MEERDEREN wordt er 5 keer gemeerderd per herhaling van A.1b. Dus bij 3 herhalingen van A.1b in de hoogte is er al 15 keer gemeerderd. Betekent dat dan dat er bij de vierde herhaling van A.1b nog één keer gemeerderd wordt op de 1e toer en daarna, op de 4e, 7e, 11e en 12e toer niet meer, ook al zegt het telpatroon van wel?

28.11.2018 - 12:43

DROPS Design answered:

Dag Marie

Per herhaling in de hoogte van A.1b meerder je 5 keer, maar je meerdert in totaal 16-16-17-18-18-20 keer, daarna stop je met meerderen. Dat betekent dus bijvoorbeeld in de kleinste maat dat je met 3 herhalingen van A.1b in de hoogte nog niet klaar bent met de meerderingen, want je hebt dan 15 keer gemeerderd, je meerdert dan nog 1 keer in de 1e toer van de volgende herhaling van A.1b in de hoogte.

Hopelijk heb ik het zo goed uitgelegd :). Je mindert dus daarna inderdaad niet meer.

12.12.2018 - 18:23

country flag Christine wrote:

I'm stuck on row 11 of A.1b - on first row/round work ch1, on next row/round work 1 tr around ch and down to sc on 2 rows/rounds before. Is there a video to demonstrate this?

30.07.2018 - 01:11

DROPS Design answered:

Dear Christine, on row/round 10, you will crochet 1 chain, on row/round 11 you will crochet 1 tr around the chain and down to sc 2 rows/rounds before (= in the sc from row/round 9). Happy crocheting!

31.07.2018 - 09:32

country flag Lisa wrote:

HELP! I would love to make the skirt but the pattern is unclear to me. I can't find how many chains to start with or skeins of yarn. From the diagram, it looks like the waist on a small is 33 inches, is that right? I'd like to try an XS. If you could please help me I'd appreciate it!

26.07.2018 - 09:05

DROPS Design answered:

Dear Lisa, you will find the number of sts to cast on and colours etc.. under written pattern (starting first with some explanations for the pattern then pattern starts under SKIRT). All measurements in diagram are taken flat from side to side and are given in cm - convert into inches here. Happy crocheting!

26.07.2018 - 10:16

country flag Alexandra wrote:

Thank you for a beautiful skirt! In the defined rows, do you always increase by 6 sts? Or is the number of inc always different ?

18.05.2018 - 10:50

DROPS Design answered:

Dear Alexandra, that's right you will increase 6 sts every increase row = 1 repeat so that you will have enought sts to work A.1 one more time in width after each increase row. Happy crocheting!

18.05.2018 - 13:28

country flag Ruby Huigen wrote:

Ook ik heb moeite met toer 11 in het strepenpatroon. Ik heb het idee dat ik hem nu snap maar wil het zeker weten. Naar mijn idee werkt hij zo: in toer 9 haak je de vasten om het waaiertje. In toer 10 worden vervolgens stokjes en lossen gehaakt. Als ik het goed begrijp, ga je in toer 11 over de lossen van toer 10 heen en steek je in in de vasten van toer 9. Nu dus de vraag: heb ik hem zo goed begrepen of moet ik nog even extra haaklessen gaan volgen, hihi? Alvast bedankt!!!

11.04.2018 - 11:31

country flag Reix wrote:

Bonjour, je souhaiterais annuler ma commande n° 224562. Je la recommanderais plus tard (finance oblige) en enlevant les aiguilles circulaires. Merci

24.03.2018 - 12:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Reix, pour toute aide sur votre commande, merci de bien vouloir contacter le magasin où vous l'avez passée, retrouvez ses coordonnées dans la liste des magasins DROPS. Bon tricot!

26.03.2018 - 10:57

country flag Reix wrote:

Bonjour, combien de pelotes me faut il pour une taille 40 (l). Merci

23.03.2018 - 14:16

DROPS Design answered:

Bonjour Reix! Il vous faut: 2 pelotes coloris n° 13, corail; 2 pelotes coloris n° 14, cerise; 2 pelotes coloris n° 07, bordeaux; 2 pelotes Coloris n° 05, rose poudré; 2 pelotes Coloris n° 01, naturel. Au total 10 pelotes. Pour une jupe unie 450 g = 9 pelotes de la couleur choisie. Bon travail!

23.03.2018 - 14:50