DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 170-15
DROPS Design: Mynstur nr e-237
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

BIKINITOPPUR:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
100-100-100-100-100-150 g litur nr 11, skærgulur

BIKINIBUXUR
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
100-150-150-150-150 g litur nr 11, skær gulur

ATH: Efnismagn er gefið upp fyrir hvort stykki. Ef bæði bikinítoppurinn og bikiníbuxurnar er heklað þá þarf 200-200-200-250-250-250 g Safran.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 28 t x 16 umf og 28 fl x 35 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Meira svona:
Dömur Bikinigatamynstur
DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (bikinítoppur):
Í fyrstu umf í stykki er heklaður fyrsti st í 5. ll frá heklunálinni (= 2 st).
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.

HEKLLEIÐBEININGAR (bikiníbuxur):
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.

ÚRTAKA Í FL-UMFERÐ (bikiníbuxur):
Fækkið um 1 fl í hvorri hlið í einni umf þannig:
Heklið 1 fl ,* stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-*, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 3 l eru eftir í umf, endurtakið úrtöku í næstu 2 l, 1 fl í síðustu l.

ÚTAUKNING (bikiníbuxur):
Aukið út um 1 fl í hvorri hlið í einni umf þannig:
Heklið 2 fl í fyrstu fl, heklið 1 l í hverja fl þar til 1 fl er eftir, heklið 2 fl í síðustu fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BIKINÍTOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðar 2 stakar brjóstaskálar. Síðan eru skálarnar heklaðar saman.

SKÁL:
Heklið 21-24-27-27-32-38 ll með Safran með heklunál nr 2,5.
Heklið fram og til baka þannig (1 umf = rétta): Heklið 1 st í 5. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 st í hverja af næstu 15-18-21-21-26-32 ll, heklið (2 st, 1 ll, 2 st) í síðustu ll í umf, snúið við, hoppið yfir síðustu ll (þ.e.a.s. ll sem nýlega hefur verið heklað í) og haldið áfram með 1 st í hverja af þeim 17-20-23-23-28-34 ll sem eftir eru hinum megin við ll-umferð = 38-44-50-50-60-72 st + 1 ll. Snúið við og haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st í hvorri hlið á ll-umferð og heklið (2 st, 1 ll, 2 st) um ll á toppi á hverri umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram þar til heklaða hafa verið alls 11-12-13-14-14-15 umf með st, en í síðustu umf er lykkjufjöldinn jafnaður til þannig að það verða 40-44-48-52-56-64 st hvoru megin við ll á toppi (= alls 80-88-96-104-112-128 st). Stykkið mælist 7-7½-8-9-9-9½ cm frá ll-umferð og út. ATH: Næsta umf er hekluð frá réttu. Þ.e.a.s. í stærð S, L og XXXL verður að klippa frá áður en haldið er áfram.
Heklið nú kant þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið * 1 st, 1 ll, hoppið yfir næsta st *, endurtakið frá *-*, þar til 2 st eru eftir á undan ll á toppí á brjóstaskálinni, heklið 1 st í næsta st, 1 ll, 1 st í næsta st (= síðasta st á undan ll á toppi), heklið (1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll) um ll, heklið síðan alveg eins nema spegilmynd niður yfir í gagnstæða hlið á brjóstaskálinni þannig: Heklið 1 st í fyrsta st á eftir ll á toppi, 1 ll, 1 st í næsta st, haldið síðan áfram með * 1 ll, hoppið yfir næsta st, 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 2: Snúið við og heklið 1 fl í fyrstu st, * heklið 3 ll, hoppið yfir (1 ll, 1 st, 1 ll), 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* upp til ll á toppi á brjóstaskálinni, en síðasta fl er hekluð um miðju ll frá toppi á brjóstaskálinni. Heklið síðan ll fyrir snúru /band með því að hekla ll 85-90-90-95-100-100 cm (mælt frá toppi á brjóstaskál). Snúið við og heklið 1 kl í hverja ll. ATH: Passið uppá að kl herði ekki ll-umferðina! Heklið nú spegilmynd niður yfir hina hliðina á brjóstaskálinni þannig: 1 fl um ll-boga á toppi á brjóstaskálinni (þ.e.a.s. það verða 2 fl um sama ll-boga), * heklið 3 ll, hoppið yfir (1 ll, 1 st, 1 ll), 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* niður meðfram öllum kantinum. Klippið frá.
Heklið aðra brjóstaskál alveg eins.

Heklið nú báðar brjóstaskálar saman í einn efripart. ATH: Passið uppá að heklað sé yfir báðar brjóstaskálarnar séð frá réttu!
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 47-56-65-75-84-98 laustar ll og setjið eitt prjónamerki í fyrstu ll sem var hekluð (síðar í stykkinu er heklaður kantur með byrjun frá þessu prjónamerki). Síðan eru heklaðar 48-50-53-56-59-62 fl jafnt yfir um síðustu sl/fl (þ.e.a.s. meðfram kanti neðst niðri á annarri brjóstaskálinni), heklið 1 ll (= á milli 2 brjóstaskála), heklið 48-50-53-56-59-62 fl jafnt yfir um síðustu sl/fl (þ.e.a.s. meðfram kanti neðst niðri á hinni brjóstaskálinni), síðan eru heklaðar 47-56-65-75-84-98 lausar ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) í lok umf = 191-213-237-263-287-321 l.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), heklið 1 fl í hverja af næstu 3-5-7-3-5-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 5-6-7-9-10-12 sinnum til viðbótar (= 41-49-57-65-73-85 fl), heklið nú 1 fl í hverja af næstu 97-101-107-113-119-125 fl/ll, * heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* 5-6-7-9-10-12 sinnum til viðbótar, heklið 1 fl í hverja af síðustu 5-7-9-5-7-7 ll (= 41-49-57-65-73-85 fl) = alls 179-199-221-243-265-295 fl í umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 fl, * heklið 1 fl, hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til 4 fl eru eftir, heklið 1 st í hverja af síðustu 4 fl.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvern st og um hverja ll.
Endurtakið umf 3 og 4 2-2-2-3-3-3 sinnum til viðbótar.

Heklið síðan þannig:
Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5-8-5-6-6-6 fl, * heklið 1 fl í hvora af 2 næstu fl, heklið 3 ll, heklið 1 kl í síðustu fl sem var hekluð (= picot), 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 6-8-6-6-7-7 fl, heklið 1 fl í hverja af síðustu 6-8-6-6-7-7 fl. Klippið frá og festið enda.

KANTUR:
Heklið nú kant með byrjun frá prjónamerki. ATH: Þær ll sem ekki er heklaðar í er hoppað yfir!
Heklið frá réttu þannig:
Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 ll, * heklið 1 fl í næstu ll, 3 ll, 1 kl í síðustu fl sem var hekluð (= picot), heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 1-4-2-0-3-0 ll á undan skálinni, heklið 1 fl í hverja af næstu 1-4-2-0-3-0 ll og 1 fl í hornið á skiptingunni við skál. Heklið nú * 1 fl um fyrsta ll-boga á brjóstaskálinni, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga, heklið 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* upp að axlabandi á brjóstaskálinni. Heklið nú kl-umferð: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 kl, 3 ll, 1 kl í síðustu fl sem var hekluð *, endurtakið frá *-* 3-3-4-4-5-5 sinnum til viðbótar, heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 kl í næstu kl.
Nú er ekki heklað áfram upp og yfir meðfram axlabandi, heldur er snúið við og heklað aftur niður að brjóstaskálinni: Heklið 1 kl í gegnum 1 ll á bakhlið á axlabandi og haldið áfram með kant alveg eins, nema spegilmynd í ll-umf á axlabandi, síðan meðfram gagnstæðri hlið á brjóstaskál, heklið 1 fl í ll á milli 2 brjóstaskálanna. Haldið áfram með kant alveg eins og á fyrri brjóstaskál og axlabandi og síðan meðfram þeim ll sem eftir eru sem fitjaðar voru upp. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið fald fyrir snúrur / bönd í hvorri hlið við efra stykki þannig: Brjótið 1. st/fl inn að röngu þannig að faldurinn mætist 5. st/fl og saumið fallega í gegnum bæði stykkin. Leggið snúrur / bönd í kross á baki og þræðið endana á snúru í gegnum faldinn – sjá A.1.

-------------------------------------------------------

BIKINÍBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað með fl með kant á fram- og bakstykki og snúrum / böndum í hliðum. Byrjað er efst á framstykki og heklað er í eitt við bakstykki.

BIKINÍBUXUR:
Heklið 80-90-95-105-110-120 ll með heklunál nr 2,5 með Safran.
Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fl í hverja af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* 14-17-18-20-21-23 sinnum til viðbótar = 65-73-77-85-89-97 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl og í næstu umf er fækkað um 1 fl í hvorri hlið þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið í 3. hverri umf 13-13-14-14-16-16 sinnum, í annarri hverri umf 6-9-9-10-10-13 sinnum, í hverri umf 2-2-2-4-3-3 sinnum og að lokum í annarri hverri umf 2 sinnum í öllum stærðum = 19-21-23-25-27-29 fl. Stykkið mælist 16-18-19-20-21-23 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Haldið síðan áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið þannig: Aukið út í annarri hverri umf 2 sinnum í öllum stærðum, í hverri umf 0-2-3-5-8-13 sinnum og í annarri hverri umf 31-32-32-31-31-29 sinnum = 85-93-97-101-109-117 fl. Haldið síðan áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-55 cm. Klippið frá. Heklið nú kant fyrir snúrur / bönd þannig:

KANTUR OG SNÚRUR / BÖND:
Heklið kant á bakstykki þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í fyrstu fl, * heklið 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá.
UMFERÐ 2: Heklið lausar ll í ca 29-30-31-32-33-34 cm, síðan er haldið áfram yfir kant að aftan þannig: * 1 fl í fyrsta/næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, heklið síðan ll í 29-30-31-32-33-34 cm.
UMFERÐ 3: Snúið við og heklið 1 kl í hverja ll á snúru (passið uppá að kl verði ekki of stífar), haldið síðan áfram yfir kant að aftan þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl um ll-bogann, 3 ll, 1 kl í síðustu fl sem var hekluð, 1 fl um sama ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf og haldið áfram með 1 kl í hverja ll sem var hekluð fyrir snúru á hlið. Klippið frá og festið enda.

Heklið kant á framstykki þannig:
Heklið 1 fl í hverja fl. ATH: Hoppið yfir þær ll sem ekki var heklað í = 65-73-77-85-89-97 fl. Heklið síðan kant og snúru eins og á bakstykki.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Susanne wrote:

Hallo bin mit den cups dran.was meinen sie das der faden ab geschnitten werden muss und neu an setzten.wo muss ich den Faden wieder neu ansetzten? Gruß Susanne

14.06.2021 - 10:21

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, in die Größen S, L und XXXL wurde die letzte Reihe eine Hinreihe, und die nächste Reihe muss wieder eine Hinreihe, deshalb muss man den Faden abschneiden (= am Ende der Hinreihe) und am Anfang einer neue Rückreihe einsetzen (so haben Sie 2 Hin-reihen hintereinander). Viel Spaß beim häkeln!

14.06.2021 - 16:24

country flag Jo wrote:

What are the finished measurements for each of the sizes?

11.06.2021 - 00:15

DROPS Design answered:

Dear Jo, the measurements of the finished piece are given (in cm-s) on the shcematic drawing at the bottom of the pattern. Happy Stitching!

11.06.2021 - 01:44

country flag Eivor Alvim wrote:

Går det an å bade med denne uten at den mister passformen?

06.07.2020 - 10:16

DROPS Design answered:

Hei Eivor. Om du får tatt den av deg rett etter du har badet, klemt ut mestparten av vannet og legger den flatt til tørk, skal den beholde passformen. Men den egner seg best til en solbikini. mvh DROPS design

06.07.2020 - 14:44

country flag Nina Smedegaad Christensen wrote:

Har jeg misforstået opskriften eller er der en fejl?? Jeg synes det ser ud som om at hver anden række skal være fastmasker.... men det står da ikke i opskriften... Eller skal det forstås sådan at man hækler en række fastmasker efter hver række stangmasker... Vh Nina

21.06.2020 - 16:28

DROPS Design answered:

Hei Nina. Nei, det er bare rekker med staver. Når det hekles staver frem og tilbake slik det gjøres i denne oppskriften, kan det kanskje se ut for noen at det er en fastmaske rekke mellom stavene. mvh DROPS design

22.06.2020 - 13:45

country flag Franca Bruno wrote:

NEL BORDO PEZZO SUPERIORE QUANDO DICE "INSERIRE UN SEGNAPUNTI" NELL 1A CATENELLA LAVORATA, INTENDE LA PRIMA CATENELLA DELLA COPPA?QUINDI LA PARTE ANTERIORE E' PIù ALTA RISPETTO AL PRIMO BORDO CHE ARRIVA SUL DIETRO?. dAL DISEGNO NON CAPISCO. GRAZIE FRANCA

25.05.2020 - 16:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Franca. Deve inserire il segnapunti nella prima catenella delle 47-56-65-75-84-98 catenelle che avvia quando unisce le due coppe. Più avanti, inizierà a lavorare il bordo da questo segnapunti. Buon lavoro!

26.05.2020 - 12:20

country flag Lucila wrote:

Me encantó ,por la forma bien esplicado de sus patrones y el paso a paso que dan a seguir. , Felicitaciones,que tengan un buen día.

01.04.2020 - 16:23

country flag Lucy wrote:

Me encantó esta página ,muy bien esplicado ,, gracias y muchas bendiciones.

01.04.2020 - 16:14

country flag Romy De Waal wrote:

Is deze bikini ook geschikt voor in het water?

24.02.2020 - 08:18

DROPS Design answered:

Dag Romy,

Je kan er natuurlijk wel mee in het water, maar het is van katoen en neemt nogal vocht op, waardoor het zwaarder wordt. Dus niet echt een sportbikini ;)

24.02.2020 - 08:39

country flag Lene wrote:

Jeg har heklet toppen, og den ble utrolig fin! Nå hekler jeg trusa, og jeg synes at det blir litt lite fellinger på fremsiden? Jeg hekler i str M, og med 73 masker øverst, og kun felling av 2 masker hver 3. rad er den altfor vid foran til å bli truse. Har jeg lest feil i oppskriften når jeg feller en maske på hver side hver 3. rad 13 ganger?

01.08.2019 - 14:34

DROPS Design answered:

Hej Lene, jo og efter fellingerne på hver 3.rad, feller du på hver 2.rad 9 gange og sidst på hver rad 2 gange i begge sider. God fornøjelse!

02.08.2019 - 10:11

country flag Helena Kastbjerg wrote:

Hej. Jeg er meget ny i hele hækle verdenen, og har lidt svært ved at få startet på overdelen. Når der i hækleinfoen står "1 st i d. 5. lm (=2 st)", hvad betyder det der står i parentesen så? Jeg skal lave en i small og starter derfor med 21 lm, men efter den første st, har jeg 16 masker tilbage og ikke 15, som der står i opskriften. Ved ikke hvad det er jeg gør forkert.

11.07.2019 - 21:03

DROPS Design answered:

Hei Helena. Den 1. stav som telles er de 4 siste luftmaskene (på "oppleggsraden") og den 2. staven er den du hekler i 5. maske fra nålen, deretter hekler du 1 stav i hver av de 15 neste stavene = 17 staver. Du har nå 1 maske igjen på raden. I denne masken hekler du 2 staver, 1 luftmaske og 2 staver. Roter arbeidet og følg oppskriften. Se gjerne på videoene som ligger under oppskriften, de kan være til god hjelp. God Førnøyelse!

26.08.2019 - 10:48