Tahiti |
|
|
|
Heklað bikiní úr DROPS Safran með gatamynstri og böndum. Stærð S- XXXL.
DROPS 170-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (bikinítoppur): Í fyrstu umf í stykki er heklaður fyrsti st í 5. ll frá heklunálinni (= 2 st). Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. HEKLLEIÐBEININGAR (bikiníbuxur): Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. ÚRTAKA Í FL-UMFERÐ (bikiníbuxur): Fækkið um 1 fl í hvorri hlið í einni umf þannig: Heklið 1 fl ,* stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-*, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 3 l eru eftir í umf, endurtakið úrtöku í næstu 2 l, 1 fl í síðustu l. ÚTAUKNING (bikiníbuxur): Aukið út um 1 fl í hvorri hlið í einni umf þannig: Heklið 2 fl í fyrstu fl, heklið 1 l í hverja fl þar til 1 fl er eftir, heklið 2 fl í síðustu fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BIKINÍTOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru heklaðar 2 stakar brjóstaskálar. Síðan eru skálarnar heklaðar saman. SKÁL: Heklið 21-24-27-27-32-38 ll með Safran með heklunál nr 2,5. Heklið fram og til baka þannig (1 umf = rétta): Heklið 1 st í 5. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 st í hverja af næstu 15-18-21-21-26-32 ll, heklið (2 st, 1 ll, 2 st) í síðustu ll í umf, snúið við, hoppið yfir síðustu ll (þ.e.a.s. ll sem nýlega hefur verið heklað í) og haldið áfram með 1 st í hverja af þeim 17-20-23-23-28-34 ll sem eftir eru hinum megin við ll-umferð = 38-44-50-50-60-72 st + 1 ll. Snúið við og haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st í hvorri hlið á ll-umferð og heklið (2 st, 1 ll, 2 st) um ll á toppi á hverri umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram þar til heklaða hafa verið alls 11-12-13-14-14-15 umf með st, en í síðustu umf er lykkjufjöldinn jafnaður til þannig að það verða 40-44-48-52-56-64 st hvoru megin við ll á toppi (= alls 80-88-96-104-112-128 st). Stykkið mælist 7-7½-8-9-9-9½ cm frá ll-umferð og út. ATH: Næsta umf er hekluð frá réttu. Þ.e.a.s. í stærð S, L og XXXL verður að klippa frá áður en haldið er áfram. Heklið nú kant þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið * 1 st, 1 ll, hoppið yfir næsta st *, endurtakið frá *-*, þar til 2 st eru eftir á undan ll á toppí á brjóstaskálinni, heklið 1 st í næsta st, 1 ll, 1 st í næsta st (= síðasta st á undan ll á toppi), heklið (1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll) um ll, heklið síðan alveg eins nema spegilmynd niður yfir í gagnstæða hlið á brjóstaskálinni þannig: Heklið 1 st í fyrsta st á eftir ll á toppi, 1 ll, 1 st í næsta st, haldið síðan áfram með * 1 ll, hoppið yfir næsta st, 1 st *, endurtakið frá *-* út umf. UMFERÐ 2: Snúið við og heklið 1 fl í fyrstu st, * heklið 3 ll, hoppið yfir (1 ll, 1 st, 1 ll), 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* upp til ll á toppi á brjóstaskálinni, en síðasta fl er hekluð um miðju ll frá toppi á brjóstaskálinni. Heklið síðan ll fyrir snúru /band með því að hekla ll 85-90-90-95-100-100 cm (mælt frá toppi á brjóstaskál). Snúið við og heklið 1 kl í hverja ll. ATH: Passið uppá að kl herði ekki ll-umferðina! Heklið nú spegilmynd niður yfir hina hliðina á brjóstaskálinni þannig: 1 fl um ll-boga á toppi á brjóstaskálinni (þ.e.a.s. það verða 2 fl um sama ll-boga), * heklið 3 ll, hoppið yfir (1 ll, 1 st, 1 ll), 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* niður meðfram öllum kantinum. Klippið frá. Heklið aðra brjóstaskál alveg eins. Heklið nú báðar brjóstaskálar saman í einn efripart. ATH: Passið uppá að heklað sé yfir báðar brjóstaskálarnar séð frá réttu! UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 47-56-65-75-84-98 laustar ll og setjið eitt prjónamerki í fyrstu ll sem var hekluð (síðar í stykkinu er heklaður kantur með byrjun frá þessu prjónamerki). Síðan eru heklaðar 48-50-53-56-59-62 fl jafnt yfir um síðustu sl/fl (þ.e.a.s. meðfram kanti neðst niðri á annarri brjóstaskálinni), heklið 1 ll (= á milli 2 brjóstaskála), heklið 48-50-53-56-59-62 fl jafnt yfir um síðustu sl/fl (þ.e.a.s. meðfram kanti neðst niðri á hinni brjóstaskálinni), síðan eru heklaðar 47-56-65-75-84-98 lausar ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) í lok umf = 191-213-237-263-287-321 l. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), heklið 1 fl í hverja af næstu 3-5-7-3-5-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 5-6-7-9-10-12 sinnum til viðbótar (= 41-49-57-65-73-85 fl), heklið nú 1 fl í hverja af næstu 97-101-107-113-119-125 fl/ll, * heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* 5-6-7-9-10-12 sinnum til viðbótar, heklið 1 fl í hverja af síðustu 5-7-9-5-7-7 ll (= 41-49-57-65-73-85 fl) = alls 179-199-221-243-265-295 fl í umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 fl, * heklið 1 fl, hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til 4 fl eru eftir, heklið 1 st í hverja af síðustu 4 fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvern st og um hverja ll. Endurtakið umf 3 og 4 2-2-2-3-3-3 sinnum til viðbótar. Heklið síðan þannig: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5-8-5-6-6-6 fl, * heklið 1 fl í hvora af 2 næstu fl, heklið 3 ll, heklið 1 kl í síðustu fl sem var hekluð (= picot), 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 6-8-6-6-7-7 fl, heklið 1 fl í hverja af síðustu 6-8-6-6-7-7 fl. Klippið frá og festið enda. KANTUR: Heklið nú kant með byrjun frá prjónamerki. ATH: Þær ll sem ekki er heklaðar í er hoppað yfir! Heklið frá réttu þannig: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 ll, * heklið 1 fl í næstu ll, 3 ll, 1 kl í síðustu fl sem var hekluð (= picot), heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 1-4-2-0-3-0 ll á undan skálinni, heklið 1 fl í hverja af næstu 1-4-2-0-3-0 ll og 1 fl í hornið á skiptingunni við skál. Heklið nú * 1 fl um fyrsta ll-boga á brjóstaskálinni, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga, heklið 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* upp að axlabandi á brjóstaskálinni. Heklið nú kl-umferð: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 kl, 3 ll, 1 kl í síðustu fl sem var hekluð *, endurtakið frá *-* 3-3-4-4-5-5 sinnum til viðbótar, heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 kl í næstu kl. Nú er ekki heklað áfram upp og yfir meðfram axlabandi, heldur er snúið við og heklað aftur niður að brjóstaskálinni: Heklið 1 kl í gegnum 1 ll á bakhlið á axlabandi og haldið áfram með kant alveg eins, nema spegilmynd í ll-umf á axlabandi, síðan meðfram gagnstæðri hlið á brjóstaskál, heklið 1 fl í ll á milli 2 brjóstaskálanna. Haldið áfram með kant alveg eins og á fyrri brjóstaskál og axlabandi og síðan meðfram þeim ll sem eftir eru sem fitjaðar voru upp. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið fald fyrir snúrur / bönd í hvorri hlið við efra stykki þannig: Brjótið 1. st/fl inn að röngu þannig að faldurinn mætist 5. st/fl og saumið fallega í gegnum bæði stykkin. Leggið snúrur / bönd í kross á baki og þræðið endana á snúru í gegnum faldinn – sjá A.1. ------------------------------------------------------- BIKINÍBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað með fl með kant á fram- og bakstykki og snúrum / böndum í hliðum. Byrjað er efst á framstykki og heklað er í eitt við bakstykki. BIKINÍBUXUR: Heklið 80-90-95-105-110-120 ll með heklunál nr 2,5 með Safran. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fl í hverja af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* 14-17-18-20-21-23 sinnum til viðbótar = 65-73-77-85-89-97 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl og í næstu umf er fækkað um 1 fl í hvorri hlið þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið í 3. hverri umf 13-13-14-14-16-16 sinnum, í annarri hverri umf 6-9-9-10-10-13 sinnum, í hverri umf 2-2-2-4-3-3 sinnum og að lokum í annarri hverri umf 2 sinnum í öllum stærðum = 19-21-23-25-27-29 fl. Stykkið mælist 16-18-19-20-21-23 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Haldið síðan áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið þannig: Aukið út í annarri hverri umf 2 sinnum í öllum stærðum, í hverri umf 0-2-3-5-8-13 sinnum og í annarri hverri umf 31-32-32-31-31-29 sinnum = 85-93-97-101-109-117 fl. Haldið síðan áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-55 cm. Klippið frá. Heklið nú kant fyrir snúrur / bönd þannig: KANTUR OG SNÚRUR / BÖND: Heklið kant á bakstykki þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í fyrstu fl, * heklið 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá. UMFERÐ 2: Heklið lausar ll í ca 29-30-31-32-33-34 cm, síðan er haldið áfram yfir kant að aftan þannig: * 1 fl í fyrsta/næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, heklið síðan ll í 29-30-31-32-33-34 cm. UMFERÐ 3: Snúið við og heklið 1 kl í hverja ll á snúru (passið uppá að kl verði ekki of stífar), haldið síðan áfram yfir kant að aftan þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl um ll-bogann, 3 ll, 1 kl í síðustu fl sem var hekluð, 1 fl um sama ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf og haldið áfram með 1 kl í hverja ll sem var hekluð fyrir snúru á hlið. Klippið frá og festið enda. Heklið kant á framstykki þannig: Heklið 1 fl í hverja fl. ATH: Hoppið yfir þær ll sem ekki var heklað í = 65-73-77-85-89-97 fl. Heklið síðan kant og snúru eins og á bakstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (58)
Claudia Jakrlin wrote:
Hallo, also, ich bin gerade bei der Bikinihose und habe dasselbe Problem wie die Marrit oben. Mit der 2,5-er-Nadel haut es mal gar nicht hin, obwohl ich mich streng an die Anleitung gehalten und die passende Drops-Wolle genommen habe. Bin jetz mit den Abnahmen an der Hose im Schritt fertig und sie ist jetzt schon 5 cm länger als sie laut Anleitung sein sollte. Dann passt es nämlich auch mit der Maschenprobe. Vielleicht solltet ihr Eure Anleitung noch mal korrigieren...Viele Grüße, Claudia
04.03.2016 - 12:54DROPS Design answered:
Liebe Claudia, ich habe den Anfang der Bikinohose nochmals durchgerechnet und mit der korrekten Maschenprobe stimmen die Angaben. Haben Sie evtl statt festen Maschen Stäbchen gehäkelt? Maschenprobe: 35 R in der Höhe = 10 cm. Mit allen Reihenangaben (1+39 (13x3)+12 (6x2)+2+4 (2x2) = 58 Reihen und der Höhe pro Reihe 0.28 cm (=10 cm /35 Reihen) ergibt das 16 cm für Grösse S.
06.03.2016 - 07:57Marit H Jacobsson wrote:
Hej Jag virkar nu bikiniöverdelen 170-15 storlek M. Efter 12 varv med virknål 2,5 mäter mitt arbete 9 cm drygt från lm-varvet och jag anser mig själv virka fast. Jag gick ner till virknål 2,0 ch efter 12 varv mäter arbetet 9 cm. F Enligt mönster skall det mäta 7,5 i st M efter 12 varv. Vad gör jag för fel? Eller kan det möjligtvis vara lite snäva mått i beskrivningen? Med vänlig hälsning Marit H Jacobsson
18.02.2016 - 20:21DROPS Design answered:
Hej Marit, Har du kollat så du har: DROPS VIRKNÅL NR 2,5 – eller det nålnr du måste använda för att få 28 st x 16 v och 28 fm x 35 v på 10 x 10 cm.
25.02.2016 - 16:17SophieM wrote:
Magnifique! Je le commence tout de suite pour ma fille!
13.02.2016 - 16:38Ellen wrote:
Terug naar de 70-er jaren? Gaat altijd lubberen door het zeewater en wie draagt dit tegenwoordig nou nog?
14.01.2016 - 20:00Maartje wrote:
Niet plaatsen lelijk
13.01.2016 - 12:57Linda McPherson wrote:
I would like to crochet this - when will the pattern be available?
11.01.2016 - 13:27Roswitha wrote:
Tolle Idee! Schöne Form!
18.12.2015 - 14:01Elisabeth Hellsten wrote:
Nostalgi!!
14.12.2015 - 10:50