DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 168-12
DROPS Design: Mynstur nr cm-047
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
500-600-700 g nr 09, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.6.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st um næsta ll-boga (ekki eru heklaðar 3 ll á milli st), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi):
Eftir síðasta st í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 st um næsta ll-boga (= fyrsti ll-boginn í næstu umf). ATH: Merkið byrjun umf með 1 prjónamerki á milli síðustu ll í umf og fyrsta st í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ATH: PASSIÐ UPPÁ AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI TIL!

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er hekluð í hring frá miðju og út.

HRINGPEYSA:
Heklið 4 ll með Cotton Merino með heklunál nr 4 og tengið saman í hring með 1 kl.
Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 6 mynstureiningar á breiddina) ATH: A.x sýnir hvernig umf byrjar og endar og kemur sem viðbót við mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar allt A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina (= 132 st), haldið svona áfram: Heklið * A.2 (= 11 st), A.3 (= 11 st) *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum. Heklið upp til og með ör í mynstri – sjá ör fyrir rétta stærð, nú eru 228-252-264 l í umf. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið síðan yfir fyrstu 34-36-38 l, heklið 36-40-44 ll og hoppið yfir næstu 36-40-44 l (= handvegur), heklið þar til eftir eru 70-76-82 l, heklið 36-40-44 ll og hoppið yfir næstu 36-40-44 l (= handvegur), heklið síðan yfir síðustu 34-36-38 l. Í næstu umf er haldið áfram eftir mynstri, heklið mynstur eins og í mynstureiningu um ll-bogana í hvorri hlið. Þegar A.2 og A.3 hafa verið heklaðir eru 312 st í umf. Haldið áfram með A.4 (= 39 endurtekningar í umf). Fyrsta umf í A.4 er síðasta umf í A.2/A.3 og er ekki hekluð, heldur sýnir byrjun á A.4. Heklið nú þannig: Heklið * A.5 (= 26 st), A.6 (= 26 st) * endurtakið frá *-* alls 6 sinnum. Þegar A.5/A.6 hefur verið heklað til loka eru 600 l í umf (150 st með 3 ll á milli hverra). Stærð S/M endar hér.

Stærð M/L -XXL/XXXL: Heklið 2-4 umf til viðbótar um síðustu umf í A.5/A.6 = 162-174 st með 3 ll á milli.

ALLAR STÆRÐIR:
Stykkið mælist ca 46-49-52 cm frá miðju (alls 92-98-104 cm).

FRAMSTYKKI:
Heklið fram og til baka í aðra hliðina með stuttum umferðum.
Klippið frá, hoppið yfir fyrstu 13-16-19 st í umf, heklið síðan yfir næstu 49 st + ll-bogar þannig (setjið eitt prjónamerki hér):
Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll (ekki er lengur heklað yfir þessa 2 ll-boga), 1 st um næsta ll-boga, heklið mynstur eins og áður þar til 2 ll-bogar eru eftir (þ.e.a.s. ll-bogarnir á milli st, ekki er lengur heklað yfir þessa 2 ll-boga), snúið við. Haldið svona áfram með stuttar umf, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st + 3 l í miðju ll-bogann í hverri umf (heklið 1 st + 3 ll + 1 st í þennan boga). Haldið áfram með útaukningar og úrtöku í hverri umf þar til stykkið mælist 15 cm frá prjónamerki. Klippið frá, hoppið yfir næstu 26-32-38 st frá hring. Heklið nú stuttar umf yfir næstu 49 st (nú eru eftir 13-16-19 st í umf). Heklið alveg eins og í hinni hliðinni.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant allan hringinn þannig: 1 fl um fyrsta ll-bogann, * 3 ll, 1 fl um næsta boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið mitt undir öðrum handveg, heklið 1 fl um fyrsta ll-bogann, 6 ll (= 1 st + 3 ll), hoppið yfir fyrsta st og heklið 1 st um næsta ll-boga, * 3 ll, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn (heklið 1 st + 3 ll um st í horni), endið umf með 1 st um fyrstu 6 ll, haldið síðan áfram að hekla hringinn án þess að enda umf – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR = 21-23-25 st + 21-23-25 ll-bogar.

Haldið áfram með 1 st + 3 ll um hvern boga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 ll-boga á undan prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4½.cm millibili 7 sinnum til viðbótar, fækkið til skiptis á undan og á eftir prjónamerki = 13-15-17 st + 13-15-17 ll-bogar. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-43-44 cm.

KANTUR ERMI:
Heklið kant neðst á ermi þannig: 1 fl um fyrsta ll-bogann, * 3 ll, 1 fl um næsta boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.
Heklið kant neðst á hinni erminni á sama hátt.

Mynstur

symbols = heklið 4 ll og tengið í hring með 1 kl
symbols = 1 ll
symbols = 1 st um l
symbols = 1 st í st
symbols = heklið 3 st í 1 st þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sama st alveg eins (= 4 l á heklunálinni) en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni
symbols = heklið 2 st í 1 st þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið eftir það næsta st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni
symbols = umf byrjar á 3 ll og endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
symbols = heklið kl fram að fyrstu ll/ll-boga. Fyrsta st í þessari umf er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf á 1 kl í 3 ll í byrjun umf
symbols = heklið ermakúpu eftir þessa umf
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (89)

country flag Vivi Pedersen wrote:

Jeg synes jeg mangler en diagrmforklaring på det omvendte v der første gang er i mønster A2

23.05.2018 - 22:42

DROPS Design answered:

Hei Vivi. Du har helt rett i at det ser ut som det mangler - dette fordi symbolet var ganske forskjellig fra sånn det ser ut i diagrammet. Dette har nå blitt endret på, så nå er symbolene identiske. Definisjonen er som følger: Hekle 2 st til 1 st slik: Hekle 1 st, men vent med siste gjennomtrekning (= 2 m på nålen), hekle deretter neste st, men ved siste gjennomtrekning trekkes tråden gjennom alle m på nålen. Takk for beskjed og god fornøyelse.

25.05.2018 - 14:51

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, je suis arrivée aux emmanchures en taille XXL. J'ai bien 264 m à la fin du tour avec la flèche. Quand je crochète le tour suivant donc des emmanchures, il me reste 20 m et en comptant : crocheter 38m, sauter 44m, crocheter 82m, sauter 44m et crocheter 38m = 246 m et non 264. Pourriez-vous m'aider? Où est mon erreur? Je suppose également que le tour des émanchures se crochète avec le dessin du diagramme. Ce n'est pas très clair. Merci pour votre réponse.

08.05.2018 - 06:51

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, avant la 2ème emmanchure vous devez crocheter jusqu'à ce qu'il reste 82 m avant la fin du tour (= et pas 82 m entre les 2 emmanchures), et terminer en sautant 44 m, crochetez 44 ml et les 38 dernières mailles du tour. Bon crochet!

08.05.2018 - 09:02

country flag Parvathi Natarajan wrote:

In L/XL size, when I start the left Front piece and I skip 16 dcs from the beg of previous rnds, it seems to be at Armhole level. I think its because the beginning of the round has shifted with the slip sts in the prior rnds. Is this normal?A lso, when I skip 32 dcs for the right front side, its not at the same level as the left front side. Only when I skip around 38 dcs and start the right front, it matches, but I have less dcs on the bottom. Is that okay?

22.03.2018 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Natarajan, make sure both front pieces are mirrored, you should have 16 dc unworked for collar (top of jacket) and 32 dc unworked for bottom edge of jacket. Fold the jacket double in the middle, check that armholes matching and ajust if necessary. Happy crocheting!

26.03.2018 - 10:07

country flag Mette Hansen wrote:

Jeg hækler jakken I str. L/XL...alt passer til og med ærmegab. Men hvordan skal man komme fra 252m til 312m når der ingen udtagninger er? Jeg er lige ved at opgive :-( Hvad forskel er der på a2 og a3? Hvor skal a3 laves ift a2?

11.03.2018 - 18:33

DROPS Design answered:

Hej Mette, jo når du fortsætter med A.2 og A.3 så tager du automatisk ud ifølge diagrammerne. Udtagningerne er tegnet ind i diagrammerne. God fornøjelse!

20.03.2018 - 10:44

country flag Valeria Medero wrote:

Hola! Terminé A5 y A6. Me quedaron los 600 puntos de mi talla S/M Cómo debo continuar con el frente? No entiendo a qué se refiere cuando dice "Trabajar hileras cortas, de ida y vuelta, a lo largo de un lado." Qué son "hileras cortas?" Gracias, Valeria

22.01.2018 - 21:36

DROPS Design answered:

Hola Valeria. En este caso, trabajar las hileras cortas quiere decir que estamos trabajando solamente sobre los puntos de un delantero, no la vuelta completa. En el texto, se explican como trabajar estas filas bajo FRENTES. Al terminar un delantero, el otro delantero se trabaja de la misma manera.

28.01.2018 - 16:29

country flag Laura Wilkinson wrote:

Hi, could you please clarify something for me, when working a2 and a3 at the point of the diamond according to the pattern you do a row with 1 treble at the tip of the points and then do the row with the 3 trb into 1 trb at the tip? From what I can see on the pics it looks like you go straight onto the 3 in 1 trb row Thanks

25.11.2017 - 12:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wilkinson, on row 10 in A.2 and A.3 you start with 1 tr and finish each repeat with 3 tr tog. Happy crocheting!

27.11.2017 - 09:05

Caroline wrote:

Voor de maat L/XL kom ik op 252 alvorens aan de mouwen te beginnen. Als ik over de eerste 36 steken moet haken, kom ik uit tussen 2 stokjes, moet ik dan eigenlijk niet op een stokje uitkomen om de 40 lussen te haken en 40 steken over te slaan? Ik kom er niet uit.. graag uw tegenberichtje, met dank!

13.09.2017 - 21:22

country flag Cindi wrote:

How do you go from a1 to a2? Do you just dc in each dc? Won't that create a pucker?

11.09.2017 - 09:54

DROPS Design answered:

Dear Cindy, on first round in A.2 and A.3 as shown in diagram, ie on 1st row, work 1 dc in each dc. Happy crocheting!

11.09.2017 - 11:20

country flag Roberta wrote:

Buonasera,nella spiegazione ed anche nel diagramma del cardigan 168-12 c'è qualcosa che non quadra perché il cerchio non è piatto eppure i punti sono giusti,inoltre nella spiegazione scritta parla di ferri accorciati ma il cardigan è fatto ad uncinetto. È possibile avere una spiegazione corretta ? Grazie

01.09.2017 - 19:35

DROPS Design answered:

Buonasera Roberta. Le spiegazioni del modello sono corrette. Per ulteriore aiuto può scrivere qui specificando il problema oppure rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia (n quest'ultimo caso allegando eventualmente una foto del suo lavoro). Buon lavoro!

01.09.2017 - 21:13

country flag LOREDANA CECCHINATO wrote:

Buongiorno, in relazione al modello 168-12, avrei bisogno di alcuni chiarimenti: nel diagramma il simbolo * come si deve lavorare ? sarebbe utile vedere una fotografia del lavoro in quella zona, dietro il collo. spero sia possibile . Grazie.Loredana

29.08.2017 - 18:00

DROPS Design answered:

Buonasera Loredana, i giri che iniziano con * si lavorano in questo modo: deve lavorare a maglie bassissime fino alla 1° catenella/arco di catenelle, sostituendo la 1° maglia alta su questo giro con 3 catenelle. Finire il giro con 1 maglia bassissima nella 3° catenella dall’inizio del giro. Le foto disponibili sono quelle sul sito, provi eventualmente a guardare tra i progetti di ravelry se qualcuna ha fatto foto più ravvicinate. Buon lavoro!

29.08.2017 - 21:45