Seashore Bliss Top |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat með gatamynstri og hringlaga berustykki. Heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-26 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.4 sýnir hvernig hver umf byrjar og endar. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVEG: Í stærð S, M og XL: Í síðustu mynstureiningu af A.1 á undan prjónamerki 1 og prjónamerki 3 (= byrjun á handveg) er fyrstu loftlykkju í mynsturteikningu skipt út fyrir stuðul í lykkju að neðan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. ATH: Mikilvægt er að halda heklfestunni á hæðina svo að lengdin á berustykkinu passi. BERUSTYKKI: Heklið 108-108-117-117-124-124 ll með heklunál nr með Muskat og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið fyrstu umf þannig: Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-3-5-5-5-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 94-94-102-102-108-108 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og aukið út um 18-18-22-22-28-40 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 112-112-124-124-136-148 st. Heklið næstu umf og setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf, heklið A.2 yfir fyrstu 4 st, setjið 2. prjónamerki, A.1 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 3. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 4. prjónamerki, heklið A.1 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), setjið 5. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 6. prjónamerki, A.1 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 7. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 8. prjónamerki, A.1 yfir síðustu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! STÆRÐ XXL-XXXL: Í umf 5 (umf með st frá réttu) í A.1 er aukið jafnt út þannig: Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út 6-6 st. Nú hefur verið aukið út um 12-12 st alls í umf (= 18-18 st á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis). A.1 er þá endurtekið 3-3 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 7. prjónamerkis. ALLAR STÆRÐIR: Í umf 6 (umf með st frá röngu) í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig: Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út um 0-0-6-6-6-6 st (= 12-12-18-18-24-24 st á milli þessa prjónamerkja). Á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis: Aukið út um 0-6-6-6-6-6 st (= 36-42-48-48-54-60 st á milli hverra prjónamerkja). Mynstur A.1 er endurtekið 2-2-3-3-4-4 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis, 6-7-8-8-9-10 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis, 2-2-3-3-4-4 sinnum á milli 6. og 7. prjónamerkis og 6-7-8-8-9-10 sinnum á milli 8. og 1. prjónamerkis. A.2 er síðan heklað eins og áður. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Í umf 8 (umf með st frá röngu) í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig: Á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis: Aukið út um 6-6-6 st (= 54-60-66 st á milli hverra prjónamerkja). Aukið út um 12-12-12 st alls í umf. A.1 er endurtakið 9-10-11 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis. Endurtakið útaukningu í umf 10 í A.1(= 60-66-72 st á milli hverra prjónamerkja). Mynstur A.1 er endurtekið 10-11-12 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis. ALLAR STÆRÐIR: Í síðustu umf í A.2 setjið 1 nýtt prjónamerki mitt í hvert mynstur A.2 (þ.e.a.s. 18 st hvoru megin við prjónamerki í A.2 = 4 prjónamerki). Takið frá eldri prjónamerki (= 4 prjónamerki eftir í stykki). Lykkjur á milli prjónamerkja merkja ermar (= 48-48-54-54-60-60 st á hvorri ermi). Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-276-300-324-336 st í umf. Berustykkið er nú tilbúið í stærð S. STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL: Haldið áfram með mynstur A.1 eins og áður, en yfir st í A.2 (= 36 st) er heklað A.3 alls 2 sinnum á breiddina (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa endurtekninga). Heklið 1-2-3-4-5 umf af A.3 (sjá ör í mynstri fyrir rétta stærð). Stykkið mælist nú 17-18-19-20-21-22 cm á hæðina. ALLAR STÆRÐIR: Heklið A.1a (sjá ör hvar mynstrið byrjar í mismunandi stærðum) alls 3 sinnum á breiddina fram að fyrsta prjónamerki - sjá LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVEG, heklið 8-8-8-10-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið A.1a alls 12-13-14-16-17-18 sinnum á breiddina fram að næsta prjónamerki (= framstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið A.1a alls 9-10-11-13-14-15 sinnum á breiddina (= 160-172-184-212-224-236 l). Klippið frá og festið enda. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið umf mitt undir ermi þannig: STÆRÐ S-L: Heklið 1 kl í 5. ll, 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 3-3 ll, heklið A.1a eins og áður fram að ll undir 2. ermi, 1 fl í hverja af 8-8 ll undir ermi, heklið A.1a eins og áður út umf. Þær 8-8 l undir hvorri ermi eru heklaðar eins og í 1. l í A.1a. STÆRÐ M-XL-XXL-XXXL: Heklið 1 kl í 5. ll, 3 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 3-5-5-5 ll, heklið A.1a eins og áður fram að ll undir 2. ermi, 1 st í hverja af 8-10-10 ll undir ermi, heklið A.1a eins og áður. Þær 8-10-10-10 l undir hvorri ermi er heklað eins og 1. l í A.1a. ALLAR STÆRÐIR: Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í fyrstu umf með st er fækkað um 4-4-4-2-2-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 156-168-180-210-222-234 st. A.1a er endurtekið 26-28-30-35-37-39 sinnum á breiddina. Endurtakið A.1a á hæðina. Þegar stykkið mælist 12 cm, passið uppá að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir = 150-162-174-204-216-228 st. A.1a er endurtekið 25-27-29-34-36-38 sinnum á breiddina. STÆRÐ XL: Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki = 198 st. A.1a er nú endurtekið 33 sinnum á breiddina. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé með st, aukið út um 6 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með 2-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili 5-5-7-7-7-7 sinnum til viðbótar = 186-198-222-246-264-276 st. A.1a er endurtekið 1 sinni til viðbótar fyrir hvert skipti sem aukið er út. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er endurtekið A.1a 31-33-37-41-44-46 sinnum á breiddina. Heklið þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm frá prjónamerki, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda. KANTUR ERMI: STÆRÐ S: Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Heklið síðan 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.3 yfir næstu 18 st, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 2 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3 yfir næstu 18 st, endið á 1 fl í hverja af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8 l undir ermi. Í síðustu umf í A.3 er fækkað um 10 l jafnt yfir = 46 st. STÆRÐ M-XL-XXL: Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8-10-10-10 ll sem voru heklaðar í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja af næstu 4-6-6-6 ll, heklið A.3 eins og áður, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 2-3-4 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3, endið á 1 st í hverja af 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8-10-10-10 st undir ermi. Í síðustu umf í A.3 er fækkað um 10 st jafnt yfir = 46-54-60 st. STÆRÐ L: Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.3 eins og áður, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 3 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3, endið á 1 fl í hverja af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8 st undir ermi. Í síðustu umf í A.3 er fækkað um 10 st jafnt yfir = 52 st. STÆRÐ XXXL: Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af 10 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið síðan 1 st í hverja af næstu 6 ll, heklið 1 st í hvern og einn af 60 st, endið með 1 st í hverja af síðustu 3 ll. Heklið 1 st í hvern st og fækkið um 10 st jafnt yfir = 60 st. ALLAR STÆRÐIR: Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið fyrir miðju að aftan. Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið uppá að hálsmálið verði ekki of stíft, passið einnig uppá að endað sé með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (131)
Raffaella wrote:
Elegantissimo
10.12.2015 - 17:23