Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt | |
= brugðið | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat | |
= prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju. Þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju | |
= prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um 2 síðustu lykkjur á hægri prjóni (= 1 lykkjur færri). | |
= þessi lykkja hefur verið felld af |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Josephine |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Karisma með laskalínu og köðlum, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 172-14 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út á undan A.1a þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan A.1a, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. Aukið út á eftir A.1a þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (ermi): Fækkið l á undan A.1b þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan A.1b, prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið l á eftir A.1b þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA (fram- og bakstykki): Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 4 l sl. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 4 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur þá er hægt að fella af með ½ nr grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Byrjun umf = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 124-124-132-140-148-148 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan 6 umf stroff (2 l sl 2 l br). Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið fyrstu umf er prjónuð þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 16-16-18-18-20-20 l og aukið út um 1-2-2-2-2-2 l jafnt yfir (= hálft bakstykki), prjónið A.1a (= 6 l í fyrstu umf), prjónið sl yfir næstu 18-18-18-22-22-22 l og aukið út um 2-2-2-2-4-4 l jafnt yfir (= hægri ermi), prjónið A.1a yfir næstu 6 l, prjónið sl yfir næstu 32-32-36-36-40-40 l og aukið út um 2-4-4-4-4-4 l jafnt yfir (= framstykki), prjónið A.1a yfir næstu 6 l, prjónið sl yfir næstu 18-18-18-22-22-22 l og aukið út um 2-2-2-2-4-4 l jafnt yfir (= vinstri ermi), prjónið A.1a yfir næstu 6 l, prjónið sl yfir þær 16-16-18-18-20-20 l sem eftir eru og aukið út um 1-2-2-2-2-2 l jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 132-136-144-152-164-164 l (+ 1 l sem aukin er út í hverri mynstureiningu A.1a í umf = 4 l í umf9. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf er mynstrið prjónað og aukið út fyrir laskalínu. LESIÐ ALLAN KAFLANNN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og A.1a í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Þegar A.1a hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.1b endurtekið yfir A.1a – ATH: Í síðasta skipti sem A.1b er prjónað á hæðina í berustykki er ekki aukið út með uppslætti (þ.e.a.s. það eru 6 l fleiri í hverri mynstureiningu A.1b þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið). JAFNFRAMT í 2. umf í A.1a byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við A.1a/A.1b. ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið svona út í hverri umf 0-0-0-7-9-12 sinnum, í annarri hverri umf 19-22-23-23-24-26 sinnum og í 4. hverri umf 1-1-1-0-0-0 sinnum (= alls 20-23-24-30-33-38 sinnum). LASKALÍNA Á ERMUM: Aukið svona út í annarri hverri umf 13-18-23-22-20-18 sinnum og í 4. hverri umf 4-3-1-2-4-7 sinnum (= alls 17-21-24-24-24-25 sinnum). Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 280-312-336-368-392-416 l í umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-47-53-58-63 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið næstu 80-88-94-106-116-126 l (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið síðustu 40-44-47-53-58-63 l (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 176-192-208-232-256-280 l fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 l sem fitjuð var upp undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA (fram- og bakstykki). Fækkið l svona í 6. hverri umf alls 2 sinnum = 168-184-200-224-248-272 l. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 25-30-35-37-39-41 l jafnt yfir = 143-154-165-187-209-231 l. ATH: Þetta er gert til að bæta upp 26-28-30-34-38-42 l sem auknar eru út í 1. umf í mynstri A.2a. Prjónið 1 umf til viðbótar sem endar þegar 2 l eru eftir í umf. Þetta er nú byrjun umf! Þetta er gert til að mynstrið verði samhverft. Nú er mynstrið prjónað þannig: * A.2a (= 3 l í 1. umf), 8 l sl * endurtakið frá *-* 12-13-14-16-18-20 sinnum til viðbótar í umf (= 13-14-15-17-19-21 mynstureiningar) = 169-182-195-221-247-273 l. Haldið síðan svona áfram með mynstur hringinn. Þegar allt A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 195-210-225-255-285-315 l í umf. Prjónið síðan A.2b yfir A.2a til loka JAFNFRAMT er aukið út í br mynstureiningunum og mynstureiningum með sléttprjóni þannig: ÚTAUKNING Í MYNSTUREININGU MEÐ SLÉTTUM LYKKJUM: Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 2 l í hverri mynstureiningu í sléttprjóni með því að slá uppá prjóninn innan við 1 l sl hvoru megin við mynstureiningu – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 26-28-30-34-38-42 l fleiri í umf). Aukið út um 8 cm millibili alls 3 sinnum. ÚTAUKNING Í MYNSTUREININGU MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM: Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 l br í hverri mynstureiningu með br – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 26-28-30-34-38-42 l fleiri í umf). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 351-378-405-459-513-567 l í umf. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 83-86-89-92-95-97 cm mælt frá öxl – stillið af að síðasta umf sem er prjónuð sé umf 2 í A.2b. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING! ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4, prjónið upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýjar l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Nú er haldið áfram í sléttprjóni og A.1a mitt undir ermi (þ.e.a.s. það eru 3 l í A.1a hvoru megin við prjónamerki). Þegar A.1a hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.1b yfir A.1a. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við A.1b undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA (ermi). Fækkið l svona í 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umf alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 l. Þegar ermin mælist 38-37-36-35-34-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – Stillið af að næsta umf sem er prjónuð sé umf 2 í A.2b, aukið út um 8-6-8-6-8-6 l jafnt yfir l í sléttprjóni = 52-52-56-56-60-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið nú stroff (2 l sl, 2 l br) – Passið uppá að prjónað sé sl yfir sl og br yfir br yfir 6 l yfir A.2b. Þegar stykkið mælist 6 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (104)
Tina wrote:
Hi, it's me again. Thank you so much for your help. I have one more question regarding this project. Can I machine wash this dress for blocking please, since Karisma is machine washable. The spin cycle will make it less wet for blocking which I think is easier?
20.01.2022 - 09:06DROPS Design answered:
Dear Tina, sure always follow the instructions of the label and read more about washing yarns including superwashed yarns here. Happy knitting!
20.01.2022 - 09:43Tina wrote:
Hi, I've just completed this dress and tried it on. Karisma feels prickly and itchy when worn. Will it be better after washing? Washing instructions say not to use fabric softeners but it feels like it really need softening. Pls advice because I was looking to make another dress Highland Heather which also uses Karisma. But if it's not comfortable to wear, I won't make it.
16.01.2022 - 10:25DROPS Design answered:
Dear Tina, Karisma is 100% natural wool so it's normal that some people which are more sensitive to yarn may feel that it's a bit itchy. In these cases, we recommend using superwash yarns, such as Merino Extra Fine, which is of the same Yarn Group as Karisma but is more recommended for sensitive skin. We don't recommend using fabric softeners; you could use a yarn detergent.
16.01.2022 - 21:10Monika Behr wrote:
Please excuse my confusion but do you read charts A.1 and A.2 from the bottom or the top? If from the bottom, then does the black square (has been decreased) refer to the stitch that was passed over the other 2? If from the top, then I do not understand what the black square is.
04.01.2022 - 00:20DROPS Design answered:
Dear Mrs Behr, read diagrams bottom up - Correct, the black square refers to the stitch decreased below (ex. on 3rd row in A.1a/1st row in A.1b). Happy knitting!
04.01.2022 - 07:31Tina wrote:
1) Increase for the Raglan - Size L increase for A.1a every other row as well as the 4th row. So do I increase on 1st, 3rd, 4th and 5th row etc ... OR...Increase on 1st, 3rd, 4th and 6th row etc? 2)"On last repeat of A.1b in height on yoke do not inc with YO " - ON last repeat refers to the 24 increases for L size? So I skip the YO for the hole on 3rd row of A.1b diagram on my last A.1b when close to complete the 24 increases, is that what it means please? Thank you :))
01.12.2021 - 07:34DROPS Design answered:
Dear Tina, in size L (= 3rd size) you will increase on every other round a total of 23 times on both body and sleeves (= 1 round with increase, 1 round without increase) then on every 4th round (3 rounds after last increase, then 1 round with inc) 1 time (a total of 24 times) - increase 8 sts on every increase round. The increase should be worked on either side of each A.1b - when all increases are done, work the last A.1b on yoke (just before dividing piece without the yarn over to keep the number of sts correct). Happy knitting!
01.12.2021 - 07:45Tina wrote:
Hi, I'm looking through the pattern while waiting for my yarn to arrive, and found something I do not understand - It's the explanation of a symbol in the A1 diagram - K 2 sts in 1 st I.e. work in front and back loop of st. What is the 'l.e ' please? Thanks :))
29.11.2021 - 19:19DROPS Design answered:
Hello Tina! The abbreviation “i.e.” stands for id est, which is Latin for “that is.” Here it says how to knit 2 stitches in 1 stitch by working in front and back loop of that stitch. Happy knitting!
29.11.2021 - 20:16Jette Melsen wrote:
Der er fejl i første linie i diagram a1a, der mangler en ret maske efter omslag
02.11.2021 - 12:52Melanie Coleman wrote:
Bonjour je voudrais faire ce tuto mais je ne suis pas capable de voir les grilles pour pouvoir le faire. es ce qu'il a une facon que je pourrais avoir les grilles svp merci
25.09.2021 - 18:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Coleman, vous trouverez les diagrammes A.1a/A.1b et A.2a/A.2b juste à droite du schéma des mesures. Si besoin, cette leçon explique comment tricoter un diagramme. Bon tricot!
27.09.2021 - 08:10Eulalie wrote:
Bonjour, je tricote en taille S et je n'ai pas le même compte de mailles que vous après les augmentations en raglan. J'arrive à 284 mailles au lieu de 280. Il me semble que l'erreur vient du patron qui indique avant le raglan 132 mailles + 4 augmentées dans les motifs = 136. Si on ajoute les mailles du raglan (taille S) (20x4)+(17x4)=148 et 136+148=284 Qu'en pensez-vous ? Merci beaucoup pour tous vos patrons très agréables à tricoter. Eulalie
30.08.2021 - 16:10DROPS Design answered:
Bonjour Eulalie, après les augmentations du 1er tour après les côtes, vous avez bien 132 m (+ 1 m augmentée dans chacun des A.1a), lorsque toutes les augmentations des raglans sont terminées, vous avez 280 m (et, en fonction du rang de A.1b, 1 m en plus dans chaque A.1b si vous avez 7 m soit 284 m au total ou bien juste 280 m si vous êtes après le 2ème ou le 3ème rang de A.1b. Bon tricot!
31.08.2021 - 07:59Dagmar wrote:
Ganz herzlichen Dank. Jetzt hat sich der Knoten in meinem Kopf gelöst.
25.08.2021 - 11:14Dagmar wrote:
Wenn ich die Passe mit 124 Maschen auf der Nadel beginne, wie komme ich nach den Zunahmen auf 136 (+4) Maschen? Irgendwie rechne ich falsch. Ich habe die Zunahmemaschen addiert und komme auf 76 Maschen. Aber wenn ich von 124 Maschen auf 136 Maschen kommen soll, dann darf ich eigentlich nur 12 Maschen zunehmen. Bitte helfen Sie mir, meinen Denkfehler zu finden. Danke.
24.08.2021 - 18:14DROPS Design answered:
Liebe Dagmar, so stricken Sie in M: 16 M re str und 2 M gleichmäßig verteilt zunehmen (= halbes Rückenteil = 18 M.), A.1a (= 6 M in der 1. Rd), 18 M re str und 2 M zunehmen (= rechter Ärmel = 20 M), A.1a (6 M), 32 M re str und 4 M gleichmäßig verteilt zunehmen (= Vorderteil) (36 M), A.1a (6 M), 18 M re str und 2 M gleichmäßig verteilt zunehmen (= linker Ärmel = 20 M), A.1a (6 M), 16 M re str und 2 M zunehmen (= halbes Rückenteil = 18 M.) = 18+6+20+6+36+6+20+6+18= 136 M (+ 1 M die in jedem Rapport von A.1a in der Rd zugenommen wird = 4 M zugenommen). Viel Spaß beim stricken!
25.08.2021 - 07:15