DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

From my Angle

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca með marglitu mynstri, prjónuð í vinkil ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-24
DROPS Design: Mynstur nr z-749
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 g nr 3800, bleikfjólublár
150-200-200-200-250-250 g nr 9020, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Þegar mynstur er prjónað fram og til baka er prjónað þannig: Ef þráðurinn sem prjóna á með er öfugu megin við stykkið, færið l til baka og prjónið 2 umf frá sömu hlið eða klippið frá ef það er nauðsynlegt.

LASKALÍNA:
Aukið er út mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki. Aukið út með því að slá uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður SNÚINN slétt jafnóðum inn í mynstur, það eiga ekki að myndast göt – LESIÐ LEIÐBEININGAR!
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (sem staðsett eru í l) þannig: Aukið út í hverri umf alls 6-12-10-22-18-32 sinnum og aukið út í annarri hverri umf alls 28-28-30-28-34-30 sinnum (= alls 34-40-40-50-52-62 sinnum).
ERMI:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2. og 5. prjónamerki og á undan 3. og 6. prjónamerki (sem staðsett eru á milli l) þannig:
Aukið út í hverri umf alls 0-4-6-4-0-0 sinnum og aukið út í annarri hverri umf alls 31-32-32-37-43-46 sinnum (= alls 31-36-38-41-43-46 sinnum).

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri = alls 4 l færri).

Fækkið um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki, * 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 2 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 4 l færri = alls 8 l færri).

LEIÐBEININGAR:
Uppslátturinn er prjónaður með sama lit og síðasta/fyrsta l á undan/á eftir uppslætti.

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur þá er fellt af með ½ nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 124-124-132-132-148-148 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 3. og 5. umf (umf með sl) er aukið út um 12-12-20-20-24-24 l jafnt yfir í hverri umf (= 24-24-40-40-48-48 l fleiri alls) = 148-148-172-172-196-196 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3.

Næsta umf er prjónuð þannig: Í þessari umf eru sett 4 prjónamerki á milli l í stykki og 2 prjónamerki í l (= alls 6 prjónamerki).
Bakstykki:
Prjónið A.1 yfir fyrstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 1. prjónamerki í næstu l og prjónið l eins og A.2 (= miðja að aftan), prjónið A.3 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 2. prjónamerki.
Hægri ermi:
Prjónið A.3 yfir næstu 12 l (= 2 sinnum á breidd), A.4 yfir næstu l (þetta er gert til að mynstrið verði eins í báðum hliðum á ermi), setjið 3. prjónamerki.
Framstykki:
Prjónið A.1 yfir fyrstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 4. prjónamerki í næstu l og prjónið l eins og A.2 (= miðja að framan) prjónið A.3 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 5. prjónamerki.
Vinstri ermi:
Prjónið A.3 yfir næstu 12 l (= 2 sinnum á breidd), A.4 yfir næstu l (þetta er gert til að mynstrið verði eins á báðum hliðum á ermi), setjið 6. prjónamerki.

Aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið A.1 til A.4 á hæðina til loka.

ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið mælist stykkið ca 20-22-23-25-28-30 cm þar sem það er styst. Nú eru 64-70-76-86-94-104 l hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki á fram- og bakstykki (= alls 129-141-153-173-189-209 l á hvoru framstykki og bakstykki) og 75-85-89-95-99-105 l á hvorri ermi = alls 408-452-484-536-576-628 l.

Næsta umf er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið mynstur eins og áður að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki eins og áður (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 75-85-89-95-99-105 l (l á milli 2. og 3. prjónamerkis) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-16 l undir ermi með sama lit og síðasta l sem prjónað var í, (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra l), 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að l með 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki eins og áður (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan 5. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 75-85-89-95-99-105 l (l á milli 5. og 6. prjónamerkis) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-16 l undir ermi með sama lit og síðasta l sem prjónuð var í, (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja) = 274-298-330-370-402-450 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Færið til umf þannig að hún byrjar mitt undir ermi (þ.e.a.s. færið næstu l yfir á vinstri prjón án þess að prjóna þær, að prjónamerki undir hægri ermi).

Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerki sitja í stykkinu. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt jafnóðum inn í mynstur, svo ekki myndist gat!

Nýjar l undir ermi eru prjónaðar inn í mynstur, passið að mynstrið speglist undir ermi (þ.e.a.s. hvoru megin við prjónamerkin). Í annarri hverri umf er aukið út um 1 l hvoru megin við miðju-l við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. með 1. og 4. prjónamerki) og fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir hvorri ermi – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri og 4 l fleiri í annarri hverri umf). Það verða jafn margar l í umf, aukið er út við miðju að framan og við miðju að aftan í hliðum.

Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki undir ermi, passið að næsta umf sé 1 útauknings/úrtöku umf. Prjónið mynstur og aukið út eins og áður, en fækkið nú um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki undir ermi (í stað 1 l) í næstu umf. Þ.e.a.s. fækkað er alls um 8 l og aukið út alls 4 l (= 2 l færri við hvert prjónamerki = alls 4 l færri í umf). Fækkið l svona með 2½-7-6-1½-2-2 cm millibili alls 4-2-2-6-4-4 sinnum = 258-290-322-346-386-434 l. Þær umf sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður, þ.e.a.s. fækkið l og aukið út 4 l í annarri hverri umf.

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 46-50-50-54-58-63 cm mælt meðfram miðju-l (þ.e.a.s. l við 1. eða 4. prjónamerki). Stykkið mælist alls ca 56-60-61-65-69-74 cm mælt frá öxl þar sem það er lengst.

Passið uppá að næsta umf sé 1 útauknings/úrtöku umf. Klippið frá. Setjið fyrstu 65-73-81-87-97-109 l (hálft bakstykki, meðtaldar l með 1. prjónamerki) á þráð og síðustu 64-72-80-86-96-108 l á þráð (= hálft framstykki). Prjónið nú yfir þær 129-145-161-173-193-217 l sem eftir eru á prjóni (þ.e.a.s. eftir 1. prjónamerki og fram til og með l með 4. prjónamerki = hægri hlið á peysu, frá miðju að aftan og að miðju að framan).

Stykkið er síðan prjónað fram og til baka þannig:
Haldið áfram með mynstur eins og áður til loka.
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 l, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki eins og áður (= 2 l færri), prjónið mynstur út umf eins og áður = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan og 2 l færri á hlið á stykki (= alls 4 l færri).
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Fellið af fyrstu 2 l, prjónið mynstur út umf eins og áður = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 l, prjónið mynstur út umf eins og áður = 2 l færri í byrjun við miðju að aftan.
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan.
UMFERÐ 5 (= frá réttu): Prjónið eins og 3. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan.
UMFERÐ 6 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan.
UMFERÐ 7 (= frá röngu): Prjónið eins og 1. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan og 2 l færri í hlið á stykki (= alls 4 l færri).
UMFERÐ 8 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan.
UMFERÐ 9 (= frá réttu): Prjónið eins og 3. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan.
UMFERÐ 10 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan.

Endurtakið umf 1 til 10 þar til eftir eru 5 l á prjóni. Fellið af. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið alveg eins (= vinstri hlið á peysu, frá miðju að framan að miðju að aftan).

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3 = 75-85-89-95-99-105 l. Takið upp 8-8-12-12-12-16 l sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 83-93-101-107-111-121 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. mynstrið speglast við prjónamerki. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerkið sitja í stykkinu. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri). Fækkið l svona með 1 cm millibili alls 8-8-8-8-12-25 sinnum = 67-77-85-91-87-71 l. Síðan með 3½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-12-15-17-13-4 sinnum = 51-53-55-57-61-63 l. Þegar stykkið mælist 45-44-43-42-39-38 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, með bleikfjólublár. Fellið af. Stykkið mælist ca 46-45-44-43-40-39 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR AÐ NEÐAN:
Prjónið upp kant innan við 1 l meðfram öllum neðri kantinum á peysunni. Prjónið upp ca 240-260-290-332-364-406 l jafnt yfir með litnum bleikfjólublár frá réttu á hringprjóna nr 2,5. Passið uppá að kanturinn dragist ekki saman á fram- og bakstykki! Ef það gerist þá þarf að taka upp fleiri l. Prjónið 6 umf garðaprjón hringinn. Fellið af með hringprjónum nr 3 – LESIÐ AFFELLING!

Mynstur

symbols = ljós perlugrár
symbols = bleikfjólublár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Leigh Olsen wrote:

Hello, I just wanted to check that when you bind off stitches at the bottom edge of the sweater you stop increasing stitches after the center marker #1, #4 increase stitches are bound off. I am referring to the part of the pattern that begins with: "Now work back and forth as follows: Continue with pattern as before until finished measurements." Thank you so much! Leigh

31.07.2021 - 04:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Olsen, you don't increase anymore since the increases were worked on mid front and on mid back and you will now work the sides = from mid front to mid back (and reversed for the other side of jumper), this means you cast off 2 sts at the beg each row from row 1 to row 10 (= from RS + from WS) and at the same time decrease on mid under sleeve as before on row 1 and 7 . Happy knitting!

02.08.2021 - 07:10

country flag AnnaKarin wrote:

Hej Jag förstår inte vilken färg jag ska använda vid de olika omslagen så att mönsterstickningen ska bli rätt. Stick tipset ” omslaget görs med samma färg som sista/första m före/efter omslaget är inte helt tydligt. När ska jag gå efter maskan innan och när ska jag gå efter maskan efter?

03.06.2021 - 15:15

DROPS Design answered:

Hej AnnaKarin, det betyder samma färg som sista m före omslaget och som första m efter omslaget. Tror du kan se på närbilden att det är finast om det inte är mönster i mittm mellan ökningarna :)

04.06.2021 - 14:28

country flag Margaretha Westlund wrote:

Vilken storlek ska man välja om bystmåttets omkrets är 134 cm

10.08.2020 - 22:25

DROPS Design answered:

Hej Margaretha Bystmåttet på den största storleken är 132 cm, så om du tycker att det är ok att den blir lite tight så får det bli den storleken. Lycka till!

13.08.2020 - 11:29

country flag Ellen wrote:

Ik krijg de onderkant met de ribbelsteken niet goed. De ribbelrand slaat dubbel. Hoe kan ik dit voorkomen?

10.07.2020 - 22:35

DROPS Design answered:

Dag Ellen,

Dit is een bekend probleem met een rand in ribbelsteek en kun je oplossen door, als het kledingstuk helemaal klaar is, het op te persen met een natte doek. Je legt het kledingstuk op een strijkplank, je legt een natte theedoek erover en dan de je erover heen met een heet strijkijzer. Doe dit wel heel voorzichtig (niet te lang en hard drukken met strijkijzer) anders kun je de breistructuur vernielen

12.07.2020 - 14:33

country flag Ioana wrote:

Hello! I dec 8 sts and inc 4 sts in total on round. Next decrease/increase is after 2,5 cm or I must continue as before?(dec/inc 4 sts on round until I knit 2,5 cm) Thanks

17.11.2019 - 05:50

DROPS Design answered:

Dear Iona, when you start to dec 8 sts and inc 4 sts, you continue in pattern as before (=dec/inc 4 sts every other round) and at the same time dec 8 sts/inc 4 sts in every 2,5 cm, there should be 2,5 cm between each round with dec 8 sts/inc 4 sts. Happy knitting!

18.11.2019 - 10:04

country flag Ioana wrote:

Hello! This jumper has no seams? I read the entire pattern and I'm not sure I fully understood Thanks, Ioana

03.11.2019 - 07:51

DROPS Design answered:

Hello Iona! Yes, this jumper is worked simple way top down in the rounds. No need to sew seams afterwards! Happy knitting!

03.11.2019 - 15:49

country flag Francesca Pellencin wrote:

Bonjour, j'aimerais savoir si le dos de ce pull comporte la forme en chevron dans le dos comme devant (à cause de l'échancrure en V à l'encolure...je trouve que pour un pull en laine, c'est mieux d'avoir chaud en haut du dos !) et si oui, pensez-vous qu'il soit possible de ne pas faire le chevron et de tricoter droit derrière tout en rnéalisant la forme en chevron devant ?

09.05.2019 - 11:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pellencin, l'encolure dos et devant sont ici identique, autrement dit, elles seront toutes les 2 en V. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, n'hésitez pas à contacter un forum tricot ou votre magasin DROPS pour toute assistance complémentaire. Bon tricot!

09.05.2019 - 14:07

country flag LACOMBLEZ Odile wrote:

Bonjour Vous serait-il possible de modifier les explications pour que je puisse tricoter ce modèle de BAS en HAUT MERCI

13.06.2018 - 22:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacomblez, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance personnalisée, vous pouvez volontiers contacter le magasin où vous avez acheté votre laine. Bon tricot!

14.06.2018 - 08:30

country flag Nicola wrote:

Eine Rückfrage zur Anleitung: Die Anleitung erwähnt zunächst nur die Raglanzunahmen. Stimmt es wirklich, dass erst danach mit den Abnahmen in der Mitte des Vorder- und Rückenteils begonnen wird? Damit die optische Diagonale erreicht wird müsste doch sofort mit den Abnahmen begonnen werden? Ich fände es hilfreich, wenn noch in einem Satz darauf hingewiesen würde, wann die ABNAHME tatsächlich beginnt. DANKE!

31.12.2017 - 12:35

DROPS Design answered:

Liebe Nicola, die Raglanzunahme bei Vorder- und Rückenteil werden in der Mitte Vorder- und Rückenteil gestrickt, dh beidseitig der 1. und der 4. Markierer. Die Raglanzunahmen bei den Ärmeln werden nach den 2./vor den 3. + nach den 5./vor den 6. Markierer gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2018 - 11:14

country flag Leena Mannsåker wrote:

Jeg forstår ikke meningen med denne setningen: "Kastet kastes med samme farge som siste/første m før/etter kastet". På en pinne med kun en farge er det jo naturlig å kaste med pinnens farge, mens der hvor det er to farger, er det naturlig å følge mønsteret med kastet, eller? Hva er det jeg misforstår?

10.04.2017 - 14:23