Stavanger |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Peysu úr DROPS Alpaca prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Húfu úr DROPS Alpaca með marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 173-51 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hversu oft eigi að fella af/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 120 l) og deilið með fjölda úrtöku/útaukningar sem á að gera (t.d. 25) = 4,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi á að prjóna 4. og 5. hverja l slétt saman þegar l er fækkað. Ef auka á út þá er það gert eftir ca 5. hverja l. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það verður of stíft. LEIÐBEININGAR-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og miðju undir ermi): Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 120-128-136-144-148-148 l á stutta hringprjóna nr 2,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 25-28-26-24-23-23 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-/ÚTAUKNING = 95-100-110-120-125-125 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Til að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan við hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum dökk bleikur og prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 9-10-11-11-12-12 l fram hjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-22-24-24 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-33-36-36 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-40-44-44-48-48 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 45-50-55-55-60-60 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 54-60-66-66-72-72 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 63-70-77-77-84-84 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-80-88-88-96-96 l br til baka. Snúið við og prjónið sl að miðju að aftan. Prjónið nú mynstur í hring eftir A.1 (= 19-20-22-24-25-25 mynstureiningar 5 l. ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð - í stærð XXL + XXXL er fyrst prjónað eftir mynsturteikningu A.1A og eftir það A.1B). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör í mynstri er aukið út um 2-4-0-0-10-13 l jafnt yfir (aukið út í mynstureiningu með litnum ljós beige). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 344-364-396-432-460-488 l í umf og stykkið mælist ca 18-19-20-22-24-26 cm (mælt frá miðju að framan án stroffs í hálsi). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið sl með litnum ljós beige yfir fyrstu 50-52-56-63-69-75 l (= ½ bakstykki), setjið næstu 72-78-86-90-92-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-8-10-10-14-16 nýjar l á prjóninn (= hlið undir ermi), prjónið sl yfir næstu 100-104-112-126-138-150 l (= framstykki), setjið næstu 72-78-86-90-92-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-8-10-10-14-16 nýjar l á prjóninn (= hlið undir ermi) og prjónið sl yfir þær 50-52-56-63-69-75 l sem eftir eru (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónaðar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-224-244-272-304-332 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 106-112-122-136-152-166 l á milli prjónamerkja). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn með litnum ljós beige og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-4 cm fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Fækkið svona með 2½-2½-2½-3-3-4 cm millibili alls 5-5-5-4-4-3 sinnum í hvorri hlið = 192-204-224-256-288-320 l. Þegar stykkið mælist 16-17-18-18-18-18 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri). Aukið svona út með 3-3-3-4-4-5 cm millibili alls 5-5-5-4-4-3 sinnum í hvorri hlið = 212-224-244-272-304-332 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 29-30-31-31-31-31 cm (peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl). Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 60-72-76-80-80-84 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-/ÚTAUKNING = 272-296-320-352-384-416 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 6 cm (peysan mælist nú ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl) aukið út um 1 l í hverri skiptingu á milli 2 l sl og 2 l br með því að slá uppá prjóninn (= 68-74-80-88-96-104 l fleiri) = 340-370-400-440-480-520 l í umf (þessi útaukning er gerð til að kanturinn verði ekki of stífur þegar fellt er af). Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br (uppslátturinn er prjónaður snúinn áður en hann er felldur af eins og venjuleg l). ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið l af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna nr 3 og prjónið að auki upp 1 l í hverja og eina af 6-8-10-10-14-16 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-96-100-106-110 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-14-16 l undir ermi (= byrjun umf). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með ljós beige. Þegar ermin mælist 1-1-3-3-1-3 cm fækkið um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið l svona með 3-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-15-19-20-22-23 sinnum = 52-56-58-60-62-64 l. Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-32 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 l jafnt yfir = 68-72-76-80-84-88 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 8 cm (eða að óskaðri lengd) er aukið út um 1 l í hverri skiptingu á milli 2 l sl og 2 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 17-18-19-20-21-22 l fleiri) = 85-90-95-100-105-110 l. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br (uppslátturinn er prjónaður snúinn áður en fellt er af eins og venjuleg l). Stykkið mælist ca 46-45-44-42-41-40 cm. Prjónið hina ermina alveg eins. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp, á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 140-152 l á stuttan hringprjón nr 2,5 með litnum ljós beige. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 3 og prjónið 1-4 umf sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 0-2 l jafnt yfir = 140-150 l. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.2 (= 14-15 mynstureiningar 10 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 22-23 cm á hæðina og það eru 42-45 l eftir á prjóni. Haldið áfram með litnum dökk bleikur og prjónið 1 umf slétt þar til allar l hafa verið prjónaðar saman 2 og 2. Prjónið 1 umf slétt. Í næstu umf er eru aftur allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11-12 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Sylvie Guibaud wrote:
Bonjour. Je voudrais tricoter ce pull pour ma fille mais elle est très menue. Est-ce qu’il est possible de l’adapter en taille XS?\r\nEn vous remerciant
28.11.2023 - 08:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Guilbaud, probablement, mais nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; merci pour votre compréhension. N'hésitez pas à demander de l'aide à votre magasin (par mail ou téléphone) ou à vous adresser à un forum tricot. Bon tricot!
28.11.2023 - 08:58Franç wrote:
Une erreur sur le diagramme A 2 pour le bonnet : si l\'on fait les augmentations indiquées aux 2e et 4e rangs, soit 1 fois toutes les 10m puis 1 fois toutes les 11 m., le motif se décale entièrement et devient incohérent
04.08.2023 - 19:45DROPS Design answered:
Bonjour Franç, vos motifs ne doivent pas être décalés mais se présenter exactement comme le diagramme: au 2ème tour, vous augmentez au début de chaque motif, et, au 5ème tour, vous augmentez à la fin de chaque motif, les nouvelles mailles vont se tricoter comme indiqué dans le diagramme (la 1ère augmentation comme la 1ère maile du diagramme et la 2ème augmentation comme la dernière maile du diagramme). Pensez à ajouter des marqueurs entre chaque motif, c'est souvent bien pratique pour ne pas se perdre. Bon tricot!
07.08.2023 - 11:29Monika wrote:
Hello - I’m not sure what color to do the YO in on the yoke pattern line 31 (large) - it’s the line where you do one stitch in coral and then one in rust. Thank you!
01.04.2023 - 02:27DROPS Design answered:
Dear Monika, the YO is worked in rust in that round. Happy knitting!
02.04.2023 - 22:22Nathalie Desforges wrote:
Hello, I am struggling with the hat pattern. I see the YO on the pattern but YO are to increase by one stitch. Where are the decreases? I am using pattern A.1 for small Thank you
18.04.2022 - 14:38DROPS Design answered:
Dear Nathalie, all of the decreases for the hat are already included in A.2 (A.1 is for the sweater, A.2 for the hat), which is used equally for all sizes. Happy knitting!
18.04.2022 - 19:28Nathalie Desforges wrote:
Hi, In the hat pattern it states to follow pattern A2. Where is it? Thank you, Nathalie
11.04.2022 - 04:59DROPS Design answered:
Hi Nathalie, The diagrams and measurement chart are at the bottom of the pattern. Happy knitting!
11.04.2022 - 07:12Sonja wrote:
Hallo! Ich stricke diesen Pullover aktuell in Größe S und bin im Rumpfteil. Nach den Abnahmen soll man bis auf 16 cm weiterstricken, eine Zunahme machen und danach fünfmal alle 3 cm zunehmen. Somit würde ich auf etwa 16 cm+5*3 cm = 31 cm kommen. Danach soll ich bis 29 cm weiterstricken, habe diese Länge aber bei den Zunahmen schon überschritten. Ein ähnliches Problem gibt es auch nochmals bei den Ärmeln. Stimmt eine der Maßangaben nicht? Vielen Dank im Voraus!
23.02.2022 - 14:26DROPS Design answered:
Liebe Sonja, die 1. Zunahmen stricken Sie nach 16 cm, dann die 2. nach 19 cm (16+3), die 3. nach 22 cm, die 4. bei 25 cm und die 5. nach 28 cm - das gleiche ist sicher bei den Ärmeln. Also die 1. Abnahme wird ab 1 cm gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
23.02.2022 - 15:45Anna Paulsson wrote:
Hej. Jag har helt fastnat! Hur gör jag för att öka från 100m, storlek m, till 364? Det finns inga ökningspilar i diagrammet? Tacksam för hjälp Anna
08.07.2021 - 13:10DROPS Design answered:
Hej Anna. Om du ser på diagram A.1 i din storlek så ser du att det är ökningar (omslag) inritade i diagrammet. När du stickat sista varvet i A.1 så är varje rapport 18 m. 18 m X 20 rapporter= 360m + de 4 maskor du ska öka på varvet med pil. Mvh DROPS Design
08.07.2021 - 13:21Manon wrote:
Bonjour J'aimerais faire ce modèle uni sans jacquard combien de balles aurais-je besoin en taille small et médium. Merci
20.03.2021 - 18:18DROPS Design answered:
Bonjour Manon, comme ce modèle a été tricoté avec un motif jacquard, nous n'avons pas la quantité nécessaire en uni - vous pouvez additionner toutes les couleurs, il vous en faudra probablement un peu moins, n'hésitez pas à contacter votre magasin - même par mail ou téléphone, on saura vous conseiller. Bon tricot!
22.03.2021 - 07:53Majbritt M wrote:
Jeg mangler udtagningspile i diagram A1
28.10.2020 - 15:15DROPS Design answered:
Hej Majbritt, udtagningerne er tegnet ind i diagrammet, det er de små ovale sorte prikker som er udtagninger. God fornøjelse!
28.10.2020 - 15:47Helle Andreassen wrote:
Kan man købe garn til stavanger sweater ? evt hvordan gør man ?
17.10.2020 - 13:31DROPS Design answered:
Hei Helle. Ta en oversikt over våre butikker og du kan derfra bestille garn. God Fornøyelse!
19.10.2020 - 13:11