DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Riley

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Cotton Merino í áferðamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 174-22
DROPS Design: Mynstur nr cm-055
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
600-650-750-800-900-950 g litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA Í HANDVEG:
Fækkið l innan við 7 l í hvorri hlið. Fækkið l í byrjun umf þannig:
Prjónið 7 l eins og áður, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, prjónið næstu l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l í lok umf þannig: Prjónið þar til 9 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu 7 l eins og áður.

ÚRTAKA Í HÁLSI:
Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið l innan við 11 l.
Fækkið l á undan kant að framan (vinstra framstykki) þannig: Prjónið þar til 13 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu 11 l eins og áður.
Fækkið l á eftir kant að framan (hægra framstykki) þannig:
Prjónið 11 l eins og áður (= kantur að framan + 6 l mynstur), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og saumaðar á stykkið í lokin.

PEYSA:
Fitjið upp 198-222-234-258-282-306 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er prjónað stroff yfir allar l þannig: 1 l br, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 l sl og 1 l br. Prjónið stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið nú A.1 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 3-3-3-6-6-6 l í umf, prjónið 93-105-111-117-129-141 l, fellið af næstu 6-6-6-12-12-12 l, prjónið 93-105-111-117-129-141 l, fellið af síðustu 3-3-3-6-6-6 l. Framstykki og bakstykki eru nú prjónuð til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 93-105-111-117-129-141 l. Haldið áfram með A.1 eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu heldur úrtaka áfram fyrir handveg í hvorri hlið – fækkið um 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 6-12-12-15-18-24 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA Í HANDVEG = 81-81-87-87-93-93 l. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 35-35-41-41-47-47 l, þær l sem eftir eru halda áfram í mynstri. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 25-25-31-31-37-37 l fyrir hálsmáli = 28 l eftir á hvorri öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

FRAMSTYKKI:
= 93-105-111-117-129-141 l. Setjið eitt prjónamerki mitt í miðju-l. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 54-56-55-55-57-59 cm haldið eftir l á prjóni fram að prjónamerki, l með prjónamerki og 2 l eftir prjónamerki á prjóni, aðrar l eru settar á band.
Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 5 l við miðju að framan (= kantur að framan), haldið áfram með A.1 yfir þær l sem eftir eru eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli þannig – LESIÐ ÚRTAKA Í HÁLSI! Fellið af í annarri hverri umf alls 15-15-18-18-21-21 sinnum. Eftir alla úrtöku í hálsi og fyrir handveg eru 28 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af bandi á prjóninn og prjónið upp 5 l garðaprjón á bakhlið á kanti að framan á vinstra framstykki. Prjónið eins og vinstra framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 54-57-60-60-63-66 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (1 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4, haldið áfram í sléttprjón, í 1. umf hringinn í sléttprjóni er fækkað um 4-5-6-4-5-6 l jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 l í umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með 4½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-11-12-18-20-22 sinnum, síðan er aukið út með 2 cm millibili 5-5-5-0-0-0 sinnum = 76-84-88-92-98-104 l. Þegar stykkið mælist 54-53-53-51-51-50 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l mitt undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) og ermin er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna.
Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: Fellið af 2 l 5 sinnum og 1 l 2-3-5-6-9-10 sinnum, fellið síðan af 2 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 63-63-64-64-65-65 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 64-64-65-65-66-66 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.02.2017
FRAMSTYKKI: Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, yfir 5 l við miðju að framan (= kantur að framan), haldið áfram með A.1 yfir þær l sem eftir eru eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli þannig – LESIÐ ÚRTAKA Í HÁLSI! Fellið af í annarri hverri umf alls 15-15-18-18-21-21 sinnum. Eftir alla úrtöku í hálsi og fyrir handveg eru 28 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Vigi wrote:

Bonjour et merci pour votre réponse. J'ai à nouveau un petit souci. Je ne sais comment relever les 5 mailles pour le devant gauche. Sur quoi je me base ?? Un grand merci.

19.06.2017 - 19:46

DROPS Design answered:

Bonjour Vigi, on va relever les 5 mailles sur l'envers comme on le fait dans cette vidéo. Bon tricot!

20.06.2017 - 08:21

country flag Vigi wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment faire pour le devant à partir de 54 cm. Le devant droit est le côté droit quand on porte le pull ou quand on le regarde en face ? De plus les diminutions emmanchures sont finies depuis longtemps...!? Merci d'avance

16.06.2017 - 08:41

DROPS Design answered:

Bonjour Vigi, à 54 cm gardez sur l'aiguille uniquement les mailles du devant gauche (= quand on le porte = sur le côté droit, vu sur l'endroit): les mailles jusqu'au marqueur + celle avec le marqueur et 1 m après le marqueur et tricote ces mailles avec 5 m point mousse côté encolure et A.1 comme avant sur les autres mailles. Il est possible que dans votre taille les emmanchures soient terminées, diminuez alors simplement pour l'encolure comme indiqué. Pour le devant droit, glissez les mailles en attente (= à gauche, vu sur l'endroit), relevez 5 m derrière la bordure du devant gauche et tricotez les mailles restantes. Bon tricot!

16.06.2017 - 09:06

country flag Nina Wiebe wrote:

Armausschnitte besser erklärt laut Fachgeschäft: am Anfang jeder Reihe 2 M abketten, dann bis zur letzten M normal stricken, umdrehen, wieder 2M abketten usw - 2x5 = 10x. Neue Frage. Im Muster sind viel mehr Reihen zu stricken um auf auf gleiche Höhe zu kommen wie in glatt re. Trotzdem werden die Abnahmen beim Pullover u Ärmel gleich gemacht. Warum?

16.05.2017 - 19:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wiebe, beim Armausschnitt (Rücken- und Vorderteil) wird keine Masche abgekettet sondern wie unter ABNAHMETIPP ARMAUSSCHNITT abgenommen (= 1 M insgesamt 6x in der 1. Größe) - Nur bei dem Armkugel werden Sie Maschen abketten. Viel Spaß beim stricken!

17.05.2017 - 08:50

country flag Nina Wiebe wrote:

Immer noch das Problem mit den Armausschnitten. Ich habe die Abnahmen am Ärmel mit denen am Vorder- und Rückenteil verglichen und kann mir auch nicht vorstellen wie das passen soll. Kann ich den Pullover auf isländische Art fertig stricken d.h. ab unter Arm Höhe alles auf 1 Nadel und mit "Raglan"Abnahmen 4x jede zweite Runde hoch stricken? Mein Mann ist der V-Ausschnitt sowieso zu weit, ich mache einen Rundhalsausschnitt. Lg

06.05.2017 - 10:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wiebe, Sie dürfen immer die Anleitung anpassen, wie Sie lieber haben. Unten finden Sie wie man die Abnahmen für die Ärmel stricken soll. Für einen Raglan werden Sie mit Hilfe von einem anderen Modell anpassen. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2017 - 10:23

country flag Nina Wiebe wrote:

Hallo, ich bin dabei den ersten Ärmel zu stricken und bin an dem Punkt wo 6M an der unteren Ärmelmitte abgekettet werden und nun hin und zurück gestrickt wird. Ich verstehe nicht wie die Annahmen zu machen sind. Ich stricke Größe​ S. Können Sie das detaillierter erklären?

05.05.2017 - 19:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wiebe, wenn die 6M an der unteren Ärmelmitte abgekettet sind, stricken Sie in Hin- und Rück-R weiter, gleichzeitig am Anfang jeder Reihe auf beiden Seiten so abketten: 2 M 5x, 1 M 2 x, dann 2 M beidseitig abketten, bis die Ärmel 63 cm misst, dann 3 M 1 x beidseitig und dann die restlichen Maschen abketten. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2017 - 09:46

country flag Britta wrote:

Die Anleitung für den Kragen ist falsch. Wenn Sie für das linke Vorderteil 4 Maschen vom rechten dazu nehmen, fehlen diese beim rechten Vorderteil. Somit sind entweder 4 Abnahmen weniger möglich oder es bleiben für die Schulter 4 Maschen weniger. Es muss heißen: 2 Maschen nach dem Markierer . Wenn dann 5 Maschen für das rechte Vorderteil aufgenommen werden, stimmt es wieder. Alles eine Frage der Logik... :) Insgesamt ein wunderschöner Pullover.

20.02.2017 - 09:25

DROPS Design answered:

Liebe Britta, eine Korrektur wird gemacht, es wird nur 2 M nach dem Markierer gestrickt, und die Abnahmen für Neck werden auch korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2017 - 09:50

country flag Jeanette Matzau wrote:

Hei - har du et problem med denne oppskrift så bare si ifra :) alt ser helt ok ut

29.12.2016 - 20:30

Anny wrote:

Please check that the pattern for knitting. Thank you.

06.12.2016 - 08:18