DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6380.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 174-2
DROPS Design: Mynstur nr vs-030
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 g litur nr 06, silfurgrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6380.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið l frá réttu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-216-240-264-288-312 l á hringprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er prjónað A.1 (= 12 l) yfir allar l (= 16-18-20-22-24-26 mynstureiningar). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með A.2 yfir A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 87-99-111-123-135-147 l (= framstykki), fellið af næstu 9 l (= 2 l br + 5 l sl + 2 l br), prjónið næstu 87-99-111-123-135-147 l (= bakstykki), fellið af síðustu 9 l. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 52-52-56-56-60-60 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Belle. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan þannig:
Stærð S + M + XXL + XXXL:
1 l sl * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20-20 l, A.3 (= 18 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20-20 l, endið með 1 l sl.
Stærð L + XL:
1 l br, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16 l, A.3 (= 18 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16 l, endið með 2 l sl og 1 l br.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 53-53-57-57-61-61 l í umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið síðan þannig: Sléttprjón yfir fyrstu 17-17-19-19-21-21 l, JAFNFRAMT er fækkað um 1-0-1-0-1-0 l jafnt yfir, A.4 yfir A.3, sléttprjón yfir næstu 17-17-19-19-21-21 l, JAFNFRAMT er fækkað um 1-0-1-0-1-0 l jafnt yfir = 51-53-55-57-59-61 l. Haldið áfram í sléttprjóni og A.4. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 10-12-13-14-20-21 sinnum, síðan með 2 cm millibili 5-5-5-5-0-0 sinnum = 81-87-91-95-99-103 l. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 55-55-54-53-52-52 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og víðara hálsmáli) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerki = 73-79-83-87-91-95 l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 320-356-388-420-452-484 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur yfir l á fram- og bakstykki og mynstur og sléttprjón eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 21-21-22-23-24-25 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf 2-5-6-7-8-9 sinnum. Eftir alla úrtöku í laskalínu eru 128-140-156-172-188-204 l eftir í umf. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 12-20-32-44-56-68 l jafnt yfir = 116-120-124-128-132-136. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br, fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 3 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2016
Leiðrétting: Mynstur A.2 og A.4 hefur verið leiðrétt. Það vantaði tákn fyrir enga lykkju

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = engin lykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sentinel

Paulinette, United States

Sentinel

Agnes Kis, United Kingdom

Sentinel

Joanna, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Ann-Christin Stockfors wrote:

Sista varvet på A1 och A3 ska väl inte förskjutas så att rät maska stickas över avig maska? Man får ju extramaskan mellan 2 räka maskor.

28.04.2024 - 10:05

DROPS Design answered:

Hej Ann-Christin, ja det stemmer, du får 3 rät, 2 avig, 5 rät 2 avig, så ja avig är fortfarande över avig :)

02.05.2024 - 12:10

country flag Baida wrote:

Bonjour, je vous remercie pour votre réponse, est ce que vous avez un autre modèle à me conseiller pour que je puisse m'inspirer de son col? Je précise que je tricote ce modèle avec le cotton merino. Je vous remercie.

20.04.2024 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baida, nous n'avons pas de filtres pour les modèles avec ou sans réhausseur, il va vous falloir consulter les différents modèles avec raglan/empiècement arrondi dans la même tension pour trouver un exemple. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

22.04.2024 - 07:50

country flag Baida wrote:

Bonjour, je suis en cours de tricoter le raglan et je me pose des questions concernant le col. Si on suit les explications ce sera un col pareil devant et dos alors que sur le patron dessiné, on voit que le devant est plus creusé et c'est ce que je voudrais. Comment faire du coup? Je vous remercie. Cdt

18.04.2024 - 07:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baida, effectivement, dans ce modèle, l'encolure devant et l'encolure dos sont identiques, si vous voulez une encolure devant un peu plus profonde, vous pouvez tricoter quelques rangs raccourcis dans le dos pour former une réhausse. Bon tricot!

18.04.2024 - 08:21

country flag Louisa wrote:

Drops 174-2 A1 is 12st en komt precies uit met 16 herhalingen voor maat S. Dan begin ik aan A.2, daar is 1 hokje zwart en he. Ik maar 11st, ik kom niet uit. Ik houd steken over aan het einde van die regel met het zwarte hokje. Wat doe ik verkeerd?

05.06.2023 - 14:36

DROPS Design answered:

Dag Louisa,

Het zwarte hokje is geen steek. Als je het telpatroon met de schaar uit zou knippen, dan zou je het zwarte hokje er ook uit moeten knippen. Dus de naalden waarin je omslagen maakt in A.2 beginnen met 1 recht, 1 omslag, 1 recht, 2 averecht.

07.06.2023 - 11:31

country flag Trine Valland wrote:

Hei, jeg nærmer meg avslutningen av senteniel-genseren og har spørsmål til dette. Målskissen viser at ryggen er lengre enn forran (5 cm), men jeg greier ikke finne at det er beskrevet i teksten. Overser jeg noe? Setter stor pris på avklaring. :-)

26.05.2023 - 23:24

DROPS Design answered:

Hej Trine, nej ryggen er samme længde som forstykket. De 5 cm viser stykket mellem der hvor raglanen slutter og øverst på skulderen :)

29.05.2023 - 14:05

country flag Helga Tong wrote:

Habe jetzt gesehen, grundsätzlich fehlt die Anleitung für die Abnahmen beim Halsausschnitt, Vorder - und Rückenteil. Bitte um Hilfe

23.01.2023 - 13:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Tong, wie vorher beanwortet gibt es hier keine besondere Abkette für den Halsausschnitt, der wird vorne und hinten gleich (Maßskizze war da standard). Viel Spaß beim stricken!

23.01.2023 - 14:59

country flag Helga Tong wrote:

Bei dem Modell Sentinel 174-2 fehlt in der Anleitung beim Stricken der Halspasse die Beschreibung für die Abnahme des vorderen Halsaussschnites (Gr. XL). Laut Schnittzeichnung ist dieser auch, wie üblich, im Voderteil 5 cm tiefer als im Rückenteil. Komme jetzt nicht weiter, weil mir die Anleitung dazu fehlt. Bitte um baldige Hilfe.

23.01.2023 - 11:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Tong, die 5 cm bei der Schulter in der Maßskizze ist die Höhe für den Schulter, nicht für die Erhöhung, bei diesem Modell gibt es keine Erhöhug, so sind beide Halsausschnitte vorne und hinten gleich. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2023 - 14:53

country flag Ria wrote:

You say (Repeat dec on every other round 22 more times and then on every round 6 times). What do you mean? Do we make the dec on round 1,2,3,4, etc for 22 rounds or on round 2,4,6, etc?

06.01.2023 - 02:03

DROPS Design answered:

Hi Ria, You decrease every other round (rounds 3,5,7,9 etc.) 22 more times after the first decrease on round 1, then every round for 6 rounds after that. Happy knitting!

06.01.2023 - 08:27

country flag Charlotte Wesselhoff wrote:

Jag har kommit till mönsterdel A2 När jag har stickat 1:a raden "ta 1 m löst av stickan som skulle stickas rät, sticka 2 rm, dra den lyfta m över. " då har jag minskat 2 m. Andra raden svart ruta ska vara ingen maska. Om jag tänker ingen maska så får jag bara två räta maskor men behöver 3. Hur ska jag sticka för att få tillbaka de 2 m som jag har minskat och därmed få 3 m r?

19.08.2022 - 17:58

DROPS Design answered:

Hei Charlotte. Det står: "ta 1 m löst av stickan som den skulle stickas rät, sticka 2 rm, dra den lyfta m över" = 1 felt maske, ikke 2. Du strikker ikke 2 rett sammen, men 2 rett masker. Da vil mønstret/maskeantallet stemme. mvh DROPS Design

22.08.2022 - 11:48

country flag Rosie wrote:

Que significa “aquí no hay punto “ No sé qué hacer ahí

01.07.2022 - 01:05

DROPS Design answered:

Hola Rosie, este cuadrado se refiere a la posición de un punto disminuido en la fila/ vuelta anterior. Como la representación del diagrama intenta ser 3d (indicando la posición de los puntos), usamos este símbolo para enseñar que no debería haber ningún punto ahí. A la hora de trabajar, simplemente ignora este símbolo y sigue trabajando con el siguiente símbolo en el diagrama (sin saltar nada).

02.07.2022 - 15:53