Astoria |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með hringlaga berustykki og gatamynstri, heklaður ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-15 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. Í byrjun á hverri umferð með þríbrugðnum stuðlum er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,5. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.1a og A.2a útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Byrjið með heklunál 5 og Paris, heklið 100-103-109-115-121-124 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan. Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 3-0-0-0-0-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 15-16-17-18-19-19 sinnum til viðbótar = 84-86-91-96-101-104 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum og aukið út um 24-30-29-32-31-40 tvíbrugðnum stuðlum jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 108-116-120-128-132-144 tvíbrugðnir stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8-9-10-11-11-13 nýja tvíbrugðna stuðla. Setjið 2. prjónamerki eftir 38-40-40-42- 44-46 nýja tvíbrugðna stuðla, 3. prjónamerki eftir 16-18-20-22-22-26 nýja tvíbrugðna stuðla og 4. prjónamerki eftir 38-40-40-42-44-46 nýja tvíbrugðna stuðla. Nú eru 8-9-10-11-11-13 tvíbrugðnir stuðlar eftir við miðju að aftan. Heklið mynstur A.1b (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. A.1 útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar). JAFNFRAMT er aukið út um tvíbrugðna stuðla jafnt yfir 38-40-40-42-44-46 lykkjur í hvorri hlið. Lykkjufjöldinn á milli 2 prjónamerkja fyrir miðju að framan og við miðju að aftan við háls er stöðugur (= 16-18-20-22-22-26 lykkjur). Aukið út mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S og M: Aukið út 14-17 lykkjur hvoru megin við 2. og 5. umferð í A.1b, síðan er aukið út um 16-18 lykkjur í 6.-8. hverri umferð = 196-220 lykkjur. ATH: Sjá umferð merkta með ör þegar berustykki er lokið mismunandi eftir stærðum. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Aukið út 14-16-18-19 lykkjur hvoru megin við 2., 5. og 8. hverri umferð í A.1b, síðan er aukið út um 16-16-20-21 lykkjur hvoru megin við 9.-9.-11.-11. umferð í A.1b = 236-256-280-300 lykkjur. ATH: Sjá umferð merkta með ör þegar berustykki er lokið mismunandi eftir stærðum. Heklið næstu umferð í öllum stærðum þannig: ATH: Í stærð S og XL er heklað um loftlykkjur í stað í loftlykkjur. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af fyrstu 27-30-32-35-39-43 lykkjum, heklið 4-4-6-6-6-8 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 44-50-54-58-62-64 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 54-60-64-70-78-86 lykkjum, heklið 4-4-6-6-6-8 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 44-50-54-58-62-64 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 27-30-32-35-39-43 lykkjum sem eftir eru í umferð. Stykkið mælist ca 17-18-20-21-23-25 cm mælt frá kanti í hálsmáli og niður á hæðina. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-128-140-152-168-188 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 þríbrugðinn stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 4-12-0-8-12-12 þríbrugðna stuðla jafnt yfir = 120-140-140-160-180-200 þríbrugðnir stuðlar. Klippið frá. Til að mynstrið verði staðsett samhverft við miðju að framan og við miðju að aftan á toppnum er byrjunin á umferðinni færð til þannig: Hoppið yfir fyrstu 15-5-5-15-5-15 þríbrugðnu stuðlana í umferð og festið endann með 1 fastalykkju í næsta þríbrugðna stuðul. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar). Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um stuðla. Til að mynstrið verði samhverft við miðju framan og aftan á stykkinu, verður að auka út um jafn marga stuðla í hvorri hlið. Aukið út um 20 stuðla í hvorri hlið jafnt yfir á milli miðju að aftan og sólfjöður í mynstri við miðju framan á toppnum. Aukið út um 40 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 160-180-180-200-220-240 stuðlar. Heklið síðan 2. umferð í A.2a og A.2b (= 8-9-9-10-11-12 mynstureiningar í umferð). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er hekluð 2. og 3. umferð 1 sinni til viðbótar. Stykkið mælist ca 62-63-65-66-68-69 cm frá kanti í hálsi við miðju að framan og niður. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að aftan í hnakka og festið enda með 1 fastalykkju. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju, en heklið bara í loftlykkjur sem þar sem stuðlar eru heklaðir í = 84-86-91-96-101-104 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið við miðju undir handvegi og heklið 4 loftlykkjur (= tvíbrugðinn stuðull). Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um ystu lykkju í skiptingunni á milli berustykkis og fram- og bakstykkis JAFNFRAMT er fækkað um 13-15-16-14-12-11 tvíbrugðna stuðlar jafnt yfir í umferð – LESIÐ ÚRTAKA = 41-45-50-56-62-67 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (54)
Regina wrote:
Vielseitiges Modell: in rosa niedlich, in dunkleren Farben elegant. Das mag ich gerne.
30.12.2016 - 00:02Amyah wrote:
Un autre ravissant modèle!
20.12.2016 - 17:11Betina wrote:
Super Modell
16.12.2016 - 21:53Lauren McRoberts wrote:
One of my favorites. Please include
14.12.2016 - 14:47