DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vanilla Kiss

Peysa með gatamynstri á öxlum og ermum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Puna eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-16
DROPS Design: Mynstur pu-010
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS SKY fra Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-300-350 g litur 01, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni - eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÖXL:
ATH: Öll útaukning er gerð frá réttu! Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Nú er aukið út um 2 lykkjur þannig:
AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á UNDAN 1. OG 3. PRJÓNAMERKI: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, (= 2 lykkjur fleiri).
AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á EFTIR 2. OG 4. PRJÓNAMERKI: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Aukið út um 1 lykkju þannig:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN 1. OG 3. PRJÓNAMERKI: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 1 lykkja fleiri).
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR 2. OG 4. PRJÓNAMERKI: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).

ERMAKÚPA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (passið uppá að uppslátturinn sé ekki gerður of laust).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat – Fyrstu 21 lykkjur sem auknar hafa verið út eru prjónaðar slétt síðan eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat - allar útauknar lykkjur fyrir ermakúpu eru prjónaðar brugðið.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út innan við 4 síðustu lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 kantlykkjur í garðaprjóni + 1 lykkja sléttprjón). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir ermi, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður undir ermar, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka, ermar eru prjónaðar í hring.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 102-102-106-106-110-110 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Puna eða Sky.
Umferðin byrjar við miðju að aftan. Setjið eitt prjónamerki hér sem fylgir í stykkinu. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið þannig (án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið 1. prjónamerki á eftir fyrstu 19-19-20-20-21-21 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 2. prjónamerki á eftir næstu 13 lykkjur (= öxl/ermi), setjið 3. prjónamerki á eftir næstu 38-38-40-40-42-42 lykkjur (= framstykki), setjið 4. prjónamerki á eftir næstu 13 lykkjur (= öxl/ermi), nú eru 19-19-20-20-21-21 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4.

Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir lykkjur í hnakka til að flíkin passi betur, JAFNFRAMT er aukið út um lykkjur fyrir öxl og mynstur er prjónað á öxlum/ermum (= 13 lykkjur) þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 1. prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir ÖXL – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A (= 7 lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið A.1A, prjónið brugðnar lykkjur fram að 4. prjónamerki, A.1B (= 7 lykkjur – hér er mynsturteikning lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið A.1B, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 1. prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið A.2 (= 13 lykkjur), 2. prjónamerki er hér, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið A.2, prjónið brugðnar lykkjur fram að 4. prjónamerki, prjónið A.2 – byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu, 3. prjónamerki er hér, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið sléttar lykkjur fram að 3 prjónamerki á undan 1. prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl á framstykki, (þ.e.a.s. prjónað er á eftir 2. prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn), 1 lykkja slétt (= 4 lykkjur + 2 uppslættir á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið brugðnar lykkjur fram að 2. prjónamerki (= 6 brugðnar lykkjur á framstykki), haldið áfram með A.2, prjónið brugðnar lykkjur fram að 4. prjónamerki, haldið áfram með A.2, prjónið 4 lykkjur brugðnar á framstykki (= 4 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki) snúið stykkinu og herðið á þræði. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 7: 1 lykkja slétt, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl (= 4 lykkjur + 2 uppslættir á framstykki), haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið sléttar lykkjur fram að 3 lykkjum á undan 1. prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl á framstykki og prjónið sléttar lykkjur yfir 2 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á framstykki (= 8 lykkjur + 2 uppslættir á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 8: Prjónið brugðnar lykkjur fram að 2. prjónamerki (= 10 lykkjur brugðnar á framstykki), haldið áfram með A.2, prjónið brugðnar lykkjur fram að 4. prjónamerki, haldið áfram með A.2 og prjónið brugðnar lykkjur yfir 2 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á framstykki (= 8 lykkjur á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 9: Prjónið sléttar lykkjur fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl (= 8 lykkjur slétt + 2 uppslættir á framstykki), haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið sléttar lykkjur fram að 3 lykkjum á undan 1. prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl á framstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir 2 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á framstykki (= 12 lykkjur + 2 uppslættir á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 10: Prjónið brugðnar lykkjur fram að 2.prjónamerki (= 14 lykkjur brugðnar á framstykki), haldið áfram með A.2, prjónið brugðnar lykkjur fram að 4. prjónamerki, haldið áfram með A.2 og prjónið brugðnar lykkjur yfir 2 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á framstykki (= 12 lykkjur á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 11: Prjónið sléttar lykkjur fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl (= 12 lykkjur slétt + 2 uppslættir á framstykki), haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið sléttar lykkjur fram að 3 lykkjum á undan 1. prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl á framstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir 2 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á framstykki (= 16 lykkjur + 2 uppslættir á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 12: Prjónið brugðnar lykkjur fram að 2. prjónamerki (= 18 lykkjur brugðnar á framstykki), haldið áfram með A.2, prjónið brugðnar lykkjur fram að 4. prjónamerki, haldið áfram með A.2 og prjónið brugðnar lykkjur yfir 2 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á framstykki (= 16 lykkjur á framstykki), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 13: Prjónið sléttar lykkjur fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl (= 18 lykkjur á undan prjónamerki), haldið áfram með A.2, aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl, prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan (= byrjun á umferð). Haldið áfram með mynstur, en án útaukningar fram að 2. prjónamerki. Nú er 11. umferð í A.2 prjónuð. Klippið frá.

Nú hefur verið aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl í hvorri hið á framstykki 4 sinnum og 2 lykkjur fyrir öxl í hvorri hlið á bakstykki 6 sinnum = 142-142-146-146-150-150 lykkjur (= 54-54-56-56-58-58 lykkjur á framstykki og 62-62-64-64-66-66 lykkjur á bakstykki)
Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og nú er prjónað í hring á hringprjóna.
Byrjið við prjónamerki við miðju að aftan.

Í næstu umferð halda útaukningar áfram fyrir öxl (= prjónið útauknar lykkjur á fram- og bakstykki í sléttprjóni) og prjónið mynstur A.2 eins og áður, JAFNFRAMT í umferð með ör í A.2 (þ.e.a.s. áður en útaukning fyrir öxl er lokið) byrjar útaukning fyrir ermakúpu (= prjónið útauknu lykkjurnar brugðið og síðan eru þær prjónaðar inn í A.2 eftir því sem mynstrið eykst út). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er endurtekið A.3 yfir A.2 til loka.
Aukið út fyrir öxl og ermakúpu eins og útskýrt er að neðan þannig:

AUKIÐ ÚT FYRIR ÖXL ÞANNIG:
ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og í umferð á eftir útaukningu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat – Munið eftir ÖXL!
ÚTAUKNING Á BAKSTYKKI (= á milli 4. og 1. prjónamerkis):
Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-3-5-7-8-10 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 9-11-12-14-16-18 sinnum.
ÚTAUKNING Á FRAMSTYKKI (= á milli 2. og 3. prjónamerkis):
Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 6-7-9-11-12-14 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 5-7-8-10-12-14 sinnum.
Eftir alla útaukningu fyrir öxl eru 88-96-108-120-130-142 lykkjur bæði á framstykki og á bakstykki.

AUKIÐ ÚT FYRIR ERMAKÚPU ÞANNIG:
Í umferð með ör í mynsturteikningu A.2 byrjar útaukning fyrir ERMAKÚPU – sjá útskýringu að ofan. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 á hvorri öxl/ermi (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í hverri umferð alls 1-4-6-4-4-2 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 25-26-28-32-34-38 sinnum. Það eiga alltaf að vera minnst 2 lykkjur brugðið hvoru megin við gatamynstur A.2 á ermum. Þegar öll útaukning fyrir ermakúpu hefur verið gerð til loka eru 65-73-81-85-89-93 lykkjur á hvorri ermi.

Eftir alla útaukningu fyrir ermakúpu eru 306-338-378-410-438-470 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 31-33-35-37-38-41 cm (mælt frá öxl og niður). Nú eru 4-8-12-14-16-18 lykkjur brugðið hvoru megin við gatamynstur (meðtaldar 2 lykkjur hvoru megin við A.2).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 44-48-54-60-65-71 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 65-73-81-85-89-93 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 88-96-108-120-130-142 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 65-73-81-85-89-93 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 44-48-54-60-65-71 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-224-248-268-292 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Nú skiptist stykkið mitt í 4 nýjum lykkjum undir hvorri ermi og framstykki og bakstykki er prjónað á hringprjóna fram og til baka til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 92-100-112-124-134-146 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 14.-14.-14.-14.-14.-14. hverri umferð alls 4 sinnum í hvorri hlið = 100-108-120-132-142-154 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-24-24-25-24 cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 6 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið laust af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efst á öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
= 92-100-112-124-134-146 lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki.

ERMI:
Setjið 65-73-81-85-89-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-77-85-89-93-97 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4 nýjar lykkjur mitt undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu þegar það er prjónað. Haldið áfram með A.3 eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt hvoru megin við prjónamerki undir ermi og prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð brugðið.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-7-7-6-6 cm = 65-73-81-85-89-93 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 14-12-11-11-11-12 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið þegar ca 6 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.10.2017
Þessi uppskrift hefur verið endurskrifuð í heild sinni
Yfirfarið á vefsvæði: 28.08.2018
Leiðrétting hefur verið gerð á ermakúpu: Nýjar lykkjur eru prjónaðar slétt (áður brugðnar) áður en þær eru prjónaðar inn í mynstur A.2

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Ewa wrote:

Dzień dobry, nie mogę rozgryźć, jak ma być przerabiane zaokrąglenie rękawów .. od rzędu oznaczonego strzałką w schemacie A.2 dodawać po jednym oczku za dwoma lewymi oczkami czy przed nimi?

16.09.2021 - 11:31

DROPS Design answered:

Witaj Ewo, dodajesz po 1 oczku przed i za schematem A.2, czyli przed schematem A.2 to będzie przed 2 oczkami lewymi, a za schematem A.2 będzie to za 2 oczkami lewymi. Pozdrawiamy!

16.09.2021 - 12:51

country flag Nicola wrote:

Da ich den Pullover optisch mag, habe ich mir die Arbeit gemacht und die Charts alle auf DIN A3 gedruckt und jeden Schritt der Anleitung einzuzeichnen. Die Mühe hat sich wirklich gelohnt, aber ich muss sagen, dass die Anleitung selbst nicht wirklich so geschrieben ist, dass man den Pulli so runterstricken kann und Anfänger werden sicherlich die Haare raufen - trotzdem wühle ich mich bis zum Ende durch. Die Größen scheinen zu stimmen. Bin kurz vor Beginn der Ärmel. Habe 1x alles geribbelt.

04.08.2021 - 15:52

country flag Ewa wrote:

Ten sweterek dziergam niestety z innej włóczki. Ale uważam, że instrukcje na stronie Dropsa są bardzo dobre, wzory piękne, dzięki Dropsowi nauczyłam się dziergać i z włóczkami też jestem na bieżąco, mam wydziergane co najmniej cztery swetry, skarpetki i czapki z waszych włóczek i powoli dochodzę do perfekcji, w czytaniu przepisów też. Dziękuję :)

30.01.2021 - 11:37

country flag Ewa wrote:

Chyba już wiem jak dodawać oczka na ramionach po zakończeniu rzędów skróconych. Chodzi o ten akapit: DODAWANIE OCZEK NA TYLE (= między markerami 4 i 1): Dodawać w sumie 2-3-5-7-8-10 razy 2 oczka co 2 okrążenia i 9-11-12-14-16-18 razy 1 oczko co 2 okrążenia. DODAWANIE OCZEK NA PRZODZIE (= między markerami 2 i 3): Dodawać w sumie 6-7-9-11-12-14 razy 2 oczka co 2 okrążenia i 5-7-8-10-12-14 razy 1 oczko co 2 okrążenia.

29.01.2021 - 13:34

DROPS Design answered:

Dokładnie tak :)

29.01.2021 - 18:05

country flag Ewa wrote:

Po ile oczek dodawać na ramionach po zakończeniu przerabiania rzędów skróconych (wtedy dodawać należy po 2 oczka z każdej strony każdego ramienia- 8 oczek w co drugim rzędzie). Nie mogę znaleźć informacji czy dodawać po jednym oczku czy dalej po dwa. Bardzo dziękuję za odpowiedź.

29.01.2021 - 13:10

DROPS Design answered:

Widzę Ewo, że sobie już doskonale poradziłaś. Można się pogubić z tym dodawaniem oczek, sama robiłam ten sweterek z przyjaciółką na zmianę. Ale wart był zachodu. Umieść zdjęcie gotowego swetra w galerii dropsfan na naszej stronie, albo na naszej grupie na facebooku DROPS Workshop. Pozdrawiamy!

29.01.2021 - 18:05

country flag Antonella Gorza wrote:

Grazie per precedente risposta e suggerimento. Non mi è ancora chiaro come si integrano aumento punti spalle e aumento arrotondamento spalla. Sembrano indicazioni separate. Leggo” aumenti spalle -diversi dav e dietro ma per un tot di 14 volte (34 p dietro 42 dietro) Allo stesso tempo sul giro con freccia in A2, quindi prima che gli aumenti per la manica siano finiti- iniziare arrotondamento maniche...” ma allora abbandono il conteggio aumenti maniche? E dove metto le maglie a rovescio?

13.01.2021 - 22:04

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, deve lavorare contemporaneamente gli aumenti per a spalla e per le maniche, come indicato nei suggerimenti e all'altezza della freccia inizi gli aumenti per le maniche. Le conviene scriversi i vari giri in modo da visualizzare meglio gli aumenti. Buon lavoro!

13.01.2021 - 22:38

country flag Antonella Gorza wrote:

Sto realizzando il maglione mod 178-16. Sono bloccata al punto in cui inizio aumenti per arrotondamento maniche. Dove li aumento rispetto allo schema A1? Dopo aver aumentato 21 punti per le maniche? Potete chiamarmi al +393396197076?

13.01.2021 - 18:18

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, gli aumenti per l'arrotondamento della manica vanno lavorati a entrambi i lati del diagramma A.2 come indicato nel suggerimento all'inizio del lavoro. Faccia attenzione però a NON divulgare MAI il suo numero di cellulare su internet o sui social media. Buon lavoro!

13.01.2021 - 20:20

country flag Jeanette Leander Payberg wrote:

Jeg skal strikke 60 masker, sætte 85 i str xl på hjælpe pind, strikke 120 masker og sætte 85 masker på hjælpepind. Jeg starter ærmekuppel med 13 masker som a2 også viser. Så tager jeg 4*2 masker ud som er = 8 masker det vil sige så har jeg 21 masker så tages der ud på hver anden omgang 21 gange =21*2=42+21=63, som godt nok ikke er det jeg har, men jeg har 61 masker

26.10.2020 - 18:30

country flag Jeanette Leander Payberg wrote:

Nu har jeg pillet op 6 gange kan lige meget hvad ikke få det til at gå op, strikker str xl og får aldrig 16 masker vrang på hver side af mønstret nå a2 er færdigt og jeg når heller aldrig op på 85 masker når alle udtagninger er færdige, hvad gør jeg forkert

18.10.2020 - 17:48

DROPS Design answered:

Hej Jeanette, hvor er du i opskriften, jeg kan ikke finde de 85 masker du refererer til i opskriften....

22.10.2020 - 12:27

country flag Martine wrote:

Bonjour les mailles que l'on augmente pour l'arrondi des manches sont elles dessinées sur le diagramme A2 ou sont elles en plus? Merci

11.10.2020 - 08:01

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, pour l'arrondi des manches vous augmentez 1 m de chaque côté de chaque A.2, les augmentations ne figurent pas dans le diagramme mailes mais ces mailles vont progressivement se tricoter comme le montre A.2. Bon tricot!

12.10.2020 - 08:21