DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Adrien

Prjónuð peysa fyrir með áferðamynstri, v-hálsmáli og klauf á hliðum úr DROPS Cotton Merino. Stærð fyrir börn 0-6 ára.

DROPS Children 28-4
DROPS Design: Mynstur cm-012-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116)
Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-200 (250-250-300) g litur 29, sægrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – fyrir kanta með garðaprjóni.
DROPS TRÉTALA, (kókóshneta) NR 516: 4-4-4 (5-5-5) st.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 – veljið rétta mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá réttu, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
1/3 mánaða: 4, 9, 14 og 19 cm.
6/9 mánaða: 5, 10, 15 og 20 cm.
12/18 mánaða: 5, 11, 17 och 23 cm.
2 år: 5, 10, 15, 20 og 25 cm.
3/4 år: 5, 11, 17, 23 og 29 cm.
5/6 år: 5, 12, 19, 26 og 33 cm.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= 1 lykkja færri).
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum hvort fyrir sig. Ermarna eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 51-55-59 (65-69-73) lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 13-15-17 (18-20-22) lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 19-19-19 (23-23-23) lykkjur), 13-15-17 (18-20-22) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-21 (23-26-29) cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir síðustu 6 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið eru felldar af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 45-49-53 (59-63-67) lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 10-12-14 (15-17-19) lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 19-19-19 (23-23-23) lykkjur, 10-12-14 (15-17-19) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (34-38-42) cm fellið af miðju 13-13-13 (17-17-17) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 15-17-19 (20-22-24) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 28-30-33 (36-40-44) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu! Prjónið hina öxlina alveg eins.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 30-32-34 (37-39-41) lykkjur á hringprjón 3 (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan). Prjónið 4 umferðir í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 9-9-9 (11-11-11) lykkjur), 13-15-17 (18-20-22) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju í hlið. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (23-26-29) cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6 lykkjur í hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hlið eru felldar af 3 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá hlið fyrir handveg = 27-29-31 (34-36-38) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 yfir næstu 9-9-9 (11-11-11) lykkjur, 10-12-14 (15-17-19) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð frá röngu á eftir síðasta hnappagati (stykkið mælist ca 20-21-24 (26-30-34) cm), prjónið 5 kantlykkjur að framan sléttar, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 5 kantlykkjur að framan (þ.e.a.s. aðrar lykkjur á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið síðan eins og áður aftur yfir allar lykkjur (þetta er gert til að kantur að framan falli vel um hálsinn). JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fellið af 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum í öllum stærðum, eftir það í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-3-3 (5-5-5) sinnum = 20-22-24 (25-27-29) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 28-30-33 (36-40-44) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu, prjónið 5 kantlykkjur slétt og fellið af þær 15-17-19 (20-22-24) lykkjur sem eftir eru á öxl. Klippið frá.

HÁLSMÁL:
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 5 kantlykkjur að framan þar til kantur í hálsi mælist ca 5-5-5 (6-6-6) cm frá öxl, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið A.3 í stað A.2 (ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan). Í fyrstu umferð frá röngu þegar stykkið mælist 20-21-24 (26-30-34) cm) prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 5 kantlykkjur að framan (aðrar lykkjur á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið síðan eins og áður aftur yfir allar lykkjur (þetta er get til að kantur að framan falli vel að hálsi). JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir til loka – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 15-17-19 (20-22-24) lykkjur og prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir 5 kantlykkjur að framan þar til kantur í hálsi mælist 5-5-5 (6-6-6) cm frá öxl, fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-34 (36-38-38) lykkjur á sokkaprjóna 3. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4-4-5 (6-7-8) cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5½-3½-3 (3-3-3) cm millibili alls 3-5-6 (7-8-10) sinnum = 38-42-46 (50-54-58) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-23 (27-31-35) cm skiptist stykkið mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki, prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman kant í hálsi við miðju að aftan – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið kant í hálsi við hálsmál aftan við hnakka. Saumið hliðarsauma kant í kant yst í lykkjuboga frá handveg og niður, en endið þegar eftir eru ca 6 cm neðst niðri í hvorri hlið (= klauf).
Saumið ermar í – prjónamerki mitt undir ermi á að passa við hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.10.2017
Leiðrétting á úrtöku í hálsi á bakstykki og á báðum framstykkjum
Yfirfarið á vefsvæði: 21.10.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð í stærð 2 - 3/4 - 5/6 ára.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, bruðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Kaddy wrote:

Da ist ein Fehler im Schema A2 für 2jährige. Fünfte Reihe von unten. Hat mich sehr verwirrt. There is an error in pattern A2 for 2years old. Fifth line from the bottom. Very confusing.

01.07.2020 - 13:13

country flag Judy wrote:

Thanks for the quick reply. But... 110cm? For a child? That's an adult M/L. If you look at the schematic 35x 2=70. That's reasonable. Now to start! 😛

26.01.2020 - 21:59

DROPS Design answered:

Dear Judy, 110 cm is the height of the child. The measurements in Kids' patterns are based on the height of the children (up to 170 cm). For example, 110 is for 5 years and 140 for 10 years old. Happy knitting!

26.01.2020 - 22:54

country flag Judy wrote:

The measurements given in sizing don't seem right. 110 for a size 5? Could you confirm please? Sizes in cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116)

25.01.2020 - 20:58

DROPS Design answered:

Dear Judy. the measurements are correct, 110 cm is for size 5. The size name may vary depending on the country; to pick the right size you should compare the measurements of the person to the measurements below the pattern in the diagram.

26.01.2020 - 20:36

country flag Eileen Popplewell wrote:

In the english version of the pattern, directions say to bind off middle 13 stitches when piece measures 12.25 inches. Continue to bind off 1 stitch at neck edge every row until pie measures 12 inches. How can I continue to knit binding off and stop shorter than the original middle bind off? Please help.

02.10.2019 - 21:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Popplewell, when piece measures 12.20" (= 31 cm) you bind off the middle 13 stitches = 20 sts remain for each shoulder, work each shoulder separately binding off 1 stitch towards neck = 19 sts remain and continue over these 19 sts until piece measures 12.99 " (= 33 cm) US-measurement will be here eidted. Happy knitting!

03.10.2019 - 09:16

country flag Nanou57 wrote:

Merci de votre réponse - je n'avais pas pensé à me servir du traducteur…. je le ferai !

18.02.2019 - 20:14

country flag Nanou57 wrote:

Bonsoir, quel dommage que les commentaires ne soient pas traduits en Français également ! ils paraissent forts intéressants et je ne comprends pas…. serait-il possible qu'ils y soient un jour ? merci de votre réponse et belle soirée !

16.02.2019 - 21:09

DROPS Design answered:

Bonjour Nanou57, vous pouvez volontiers utiliser un traducteur en ligne, même si les traductions paraissent parfois fantaisistes, on arrive ainsi à saisir le sens de la question/réponse. Si vous avez vous même une question, n'hésitez pas à utiliser cet espace pour la poser. Bon tricot!

18.02.2019 - 09:49

country flag Jeanine Stevens wrote:

Waar kan ik de correcties vinden? Al ik op de rode letters klik gebeurt er niets

18.02.2018 - 12:40

DROPS Design answered:

Hoi Jeanine, Misschien is het nodig om even je browser te verversen met F5 (of de cache te legen met Ctrl + F5) Dit zijn de correcties: Correcties op zowel voor- als achterpand. Gewijzigd online: 31.10.2017 De correcties zijn reeds doorgevoerd op de online versie van het patroon.

18.02.2018 - 13:54

country flag Linda wrote:

Voor dit patroon (maat 2 jaar) heb ik minder dan 4 bollen gebruikt. Niet de aanbevolen 5.

23.01.2018 - 13:20

country flag Sandra wrote:

Hoi, Bij het minderen op de voorpanden, staat in het online-patroon een andere instructie dan op de printversie!

16.11.2017 - 11:39

DROPS Design answered:

Hallo Annelies, Helaas komt het soms voor dat er een fout staat in het patroon, terwijl de breiboeken al uit zijn gekomen. In dat geval kun je correcties vinden in het tabblad 'correcties' rechts van de foto van het patroon online. Bij dit patroon is er op 31 oktober een correctie geweest.

17.11.2017 - 11:58

Corine wrote:

Hi i would really like to finish this sweater but i am waiting for your answer. How is it possible that the pictures shows that the pattern continues on the front up till the top of the shoulder? when i follow the instructions i have to take 1 off after the first 5 stiches 11 times, which means that the 11 pattern stiches are finished...

20.10.2017 - 12:23

DROPS Design answered:

Dear Corine, thanks for your feedback, pattern has now been edited - see also under tab "corrections". Happy knitting!

20.10.2017 - 14:18