DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull |
946.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull 946.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, bruðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Adrien |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir með áferðamynstri, v-hálsmáli og klauf á hliðum úr DROPS Cotton Merino. Stærð fyrir börn 0-6 ára.
DROPS Children 28-4 |
|||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 – veljið rétta mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá réttu, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 1/3 mánaða: 4, 9, 14 og 19 cm. 6/9 mánaða: 5, 10, 15 og 20 cm. 12/18 mánaða: 5, 11, 17 och 23 cm. 2 år: 5, 10, 15, 20 og 25 cm. 3/4 år: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. 5/6 år: 5, 12, 19, 26 og 33 cm. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). ---------------------------------------------------------- PEYSA: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum hvort fyrir sig. Ermarna eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 51-55-59 (65-69-73) lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 13-15-17 (18-20-22) lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 19-19-19 (23-23-23) lykkjur), 13-15-17 (18-20-22) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-21 (23-26-29) cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir síðustu 6 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið eru felldar af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 45-49-53 (59-63-67) lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 10-12-14 (15-17-19) lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 19-19-19 (23-23-23) lykkjur, 10-12-14 (15-17-19) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (34-38-42) cm fellið af miðju 13-13-13 (17-17-17) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 15-17-19 (20-22-24) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 28-30-33 (36-40-44) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu! Prjónið hina öxlina alveg eins. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 30-32-34 (37-39-41) lykkjur á hringprjón 3 (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan). Prjónið 4 umferðir í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 9-9-9 (11-11-11) lykkjur), 13-15-17 (18-20-22) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju í hlið. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (23-26-29) cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6 lykkjur í hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hlið eru felldar af 3 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá hlið fyrir handveg = 27-29-31 (34-36-38) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 yfir næstu 9-9-9 (11-11-11) lykkjur, 10-12-14 (15-17-19) lykkjur í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð frá röngu á eftir síðasta hnappagati (stykkið mælist ca 20-21-24 (26-30-34) cm), prjónið 5 kantlykkjur að framan sléttar, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 5 kantlykkjur að framan (þ.e.a.s. aðrar lykkjur á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið síðan eins og áður aftur yfir allar lykkjur (þetta er gert til að kantur að framan falli vel um hálsinn). JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fellið af 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum í öllum stærðum, eftir það í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-3-3 (5-5-5) sinnum = 20-22-24 (25-27-29) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 28-30-33 (36-40-44) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu, prjónið 5 kantlykkjur slétt og fellið af þær 15-17-19 (20-22-24) lykkjur sem eftir eru á öxl. Klippið frá. HÁLSMÁL: Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 5 kantlykkjur að framan þar til kantur í hálsi mælist ca 5-5-5 (6-6-6) cm frá öxl, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og hægra, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið A.3 í stað A.2 (ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan). Í fyrstu umferð frá röngu þegar stykkið mælist 20-21-24 (26-30-34) cm) prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 5 kantlykkjur að framan (aðrar lykkjur á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið síðan eins og áður aftur yfir allar lykkjur (þetta er get til að kantur að framan falli vel að hálsi). JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir til loka – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 15-17-19 (20-22-24) lykkjur og prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir 5 kantlykkjur að framan þar til kantur í hálsi mælist 5-5-5 (6-6-6) cm frá öxl, fellið af. ERMI: Fitjið upp 32-32-34 (36-38-38) lykkjur á sokkaprjóna 3. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4-4-5 (6-7-8) cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5½-3½-3 (3-3-3) cm millibili alls 3-5-6 (7-8-10) sinnum = 38-42-46 (50-54-58) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-23 (27-31-35) cm skiptist stykkið mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki, prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman kant í hálsi við miðju að aftan – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið kant í hálsi við hálsmál aftan við hnakka. Saumið hliðarsauma kant í kant yst í lykkjuboga frá handveg og niður, en endið þegar eftir eru ca 6 cm neðst niðri í hvorri hlið (= klauf). Saumið ermar í – prjónamerki mitt undir ermi á að passa við hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (23)
Pirkko wrote:
I am knitting size 5/6. When you start the 1st button hole and how much there are between them. Where is the last button hole. The instructions say start when piece is 29 cm long.?????
25.09.2023 - 00:04DROPS Design answered:
Dear Pirkko, please see answer below. You don't start when piece is 29cm long. You start in the sentence right before that one, where you continue the pattern + buttonholes. After working the pattern and some buttonholes the piece measures 29cm. Happy knitting!
25.09.2023 - 00:37Pirkko wrote:
I was wondering when you start the first button hole and how much apart they are from each other.. The instructions say you have one one ( first) When piece measures29 cm. That cannot be right? I am knitting size5/6 Please tell me when I start the button holes and what is the distance between them and when to make the last one.Thank you
25.09.2023 - 00:00DROPS Design answered:
Dear Pirkko, you can see BUTTONHOLES in the explanations before the pattern instructions. For size 5/6, decrease when the piece measures: 5, 12, 19, 26 and 33 cm. As you can see in the pattern, right after the initial ridges in the right front piece it says: . Continue the pattern in this way – remember BUTTONHOLES on the band – see description above. That means that you will be working the buttonholes as indicated above in the BUTTONHOLES tip, at the lengths indicated for your size. These will continue even as you change the pattern in the next sentence (when the piece measures 29cm). Happy knitting!
25.09.2023 - 00:06Renette wrote:
Guten Tag, bei mir stimmt die Maschenprobe mit der Wolle, die ich verwenden möchte leider in der Höhe nicht (ich erhalte 21x24M). Die Angaben in der Anleitung sind ja aber sowieso in cm für die Höhe also kann ich trotzdem so stricken? Ich möchte die größte Größe stricken. Viele Grüße!
05.03.2023 - 21:47DROPS Design answered:
Liebe Renette, ja genau, nun bei dem V-Halsausschnitt können Sie die Abnahmen umrechnen oder so lassen, die werden bei Ihnen früher fertig. Viel Spaß beim stricken!
06.03.2023 - 10:21Rita wrote:
Udtagning på ærme størrelse 5-6 år synes ikke at passe. Første udtag efter 8 cm. Derefter 9 yderligere med 3 cm imellem er 27 cm. I alt 35 cm, som er hele ærmelængden ved deling. For øvrige størrelser er der 3 cm efter sidste udtagning til deling. Skal udtag starte ved 5 cm eller skal der være 9 udtag i alt?
19.02.2022 - 19:23DROPS Design answered:
Hei Rita. I den største størrelsen øker man siste gang når arbeidet mål ca 35 cm, det samme målet som når man deler arbeidet midt under ermet og strikker 3 pinner glattstrikk frem og tilbake. Om du syns det blir penest å begynne med økningene tidligere kan du fint gjøre det. mvh DROPS Design
21.02.2022 - 12:49Laura Rocha wrote:
Buenas tardes. 1. Por favor me explica como cerrar los hombros. Las instrucciones para finalizar los hombros indican que se debe realizar una hilera de derecho por el lado revés lo que dificulta el cierre de hombros. 2. Cuál es el objetivo de terminar los hombros con esas instrucciones? Gracias
24.01.2022 - 22:46DROPS Design answered:
Hola Laura, se cierra en la fila después a la de derecho por el lado revés, como siempre. Se remata flojo de derecho por el lado derecho.
31.01.2022 - 00:14Gisela Stehno wrote:
Ich finde kein Braun von drops cotton merino mehr. Warum nicht? Liebe Grüße Gisela
02.11.2021 - 10:34DROPS Design answered:
Liebe Frau Stehno, danke für Ihren Vorschlag, schöne Braun finden Sie auch z.B. beim Merino Extra Fine oder Karisma. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2021 - 08:02Laura Rocha wrote:
La respuesta que ustedes me dan sobre mis inquietudes es muy vaga e irrespetuosa, me parece que no le dan la importancia que merece un cliente que ha gastado mucho dinero haciendo traer la lanas desde Noruega. No se tomaron el tiempo para resolver mi inquietud en este modelo, las disminuciones no resultan. También me dieron una respuesta sin importancia cuando pregunte sobre el modelo Autumn Smile Cardigan. Quede muy decepcionada.
17.08.2021 - 18:43DROPS Design answered:
Hola Laura, resulta díficil dar una información más detallada sin poder ver la labor. En principio, no debería de haber problemas según el patrón, lo único que puede influir a que la disminución salga diferente a la imagen es una diferencia en la tensión del tejido o alguna dificultad al realizar las disminuciones, por lo que es lo único que se puede recomendar sin poder ver la labor. En este caso, quizás sería mejor contactar con los grupos de DROPS en Facebook, donde se pueden adjuntar imágenes y obtener ayuda más concreta para el problema comentado. Buena suerte!
20.08.2021 - 20:59Laura Rocha wrote:
He encontrado las siguientes dificultades: si disminuyo el primer punto después de la puntada musgo se ve fatal pues se pierde el punto derecho que separa el musgo del adorno. Si tomo el segundo punto podría funcional pero el punto que separa el musgo del adorno queda muy disparejo. Cómo lo debería hacer. Gracia Laura Rocha desde Colombia
09.08.2021 - 22:31DROPS Design answered:
Hola Laura. Tienes que trabajar las disminuciones para el escote según el tip para disminuir (para el escote). Es importante controlar la tensión del tejido para que los puntos queden más iguales.
11.08.2021 - 17:47Patricia wrote:
J'aime ce modèle seulement en France on utilise peu les aiguilles circulaires c'est dommage la plupart de vos modèles sont faits avec des aiguilles circulaires...
22.02.2021 - 18:15DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, la plupart de nos modèles tricotés sur aiguille circulaire sont facilement adaptables sur aiguilles droites - cette leçon vous en dira plus. Pour les autres modèles, n'hésitez pas à essayer les aiguilles circulaires, beaucoup les ont finalement adoptées après avoir osé essayer. Bon tricot!
23.02.2021 - 09:22Monica wrote:
Är det verkligen meningen att man ska växla mellan stickor nr 3 och 4 när man stickar kanten? Med vänlig hälsning, Monica
17.02.2021 - 17:33DROPS Design answered:
Hej Monica, du starter med pind nr 3 og skifter til nr 4 efter de 4 pinde retstrik. God fornøjelse!
18.02.2021 - 08:40