DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1144.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 178-74
DROPS Design: Mynstur r-708
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

BIKINITOPPUR:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-150-150-150-150 g litur 29, bleikfjólublár

BUXUR:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 29, bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1144.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um bikinítopp):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 5 loftlykkjur til að snúa við með. Þessar 5 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um buxur):
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar.

ÚTAUKNING (á við um buxur):
Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla) og 2 stuðlar í næsta stuðul (= 2 stuðlar fleiri). Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 stuðlar fleiri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BIKINÍTOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður.

BIKINÍTOPPUR:
Heklið 48-52-52-53-54-57 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 4 með Muskat. Snúið við og heklið þannig: Heklið 1 fastalykkju í aðra loftlykkju frá heklunálinni (= 1 loftlykkja til að snúa við með + 1 fastalykkja), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 1-0-0-1-2-0 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 8-9-9-9-9-10 sinnum til viðbótar = 38-41-41-42-43-45 fastalykkjur. Snúið við og heklið mynstur þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 5 fastalykkjur, A.2 yfir næstu 29-32-32-33-34-36 fastalykkjur, A.3 yfir þær 4 fastalykkjur sem eftir eru – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er haldið áfram með stuðla og útaukningu alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 11-12-12-13-14-15 umferðir með stuðlum (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð). Nú eru 71-77-77-81-85-90 stuðlar í umferð. Klippið frá.

Heklið 22-26-33-39-44-52 lausar loftlykkjur. Haldið áfram með stuðla eins og áður yfir 71-77-77-81-85-90 stuðla, heklið síðan 27-31-38-44-49-57 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) í lok umferðar. Snúið við og heklið þannig: Heklið 1 stuðul í 6. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 3-1-2-2-1-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 2-3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, haldið áfram með stuðla eins og áður yfir 71-77-77-81-85-90 stuðla, heklið síðan yfir loftlykkjur í lok umferðar þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-2-3-3-2-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 2-3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar = 109-121-133-147-159-178 stuðlar.

Heklið 6-7-9-10-10-11 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul, í næst síðustu umferð með stuðlum er fækkað um 0-3-6-2-5-6 lykkjur jafnt yfir = 109-118-127-145-154-172 stuðlar. Heklið síðan þannig: A.4 yfir fyrstu 7 stuðlana, A.5 yfir næstu 90-99-108-126-135-153 stuðla (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar 9 lykkjur), endið með A.6 yfir síðustu 12 stuðlana. Heklið A.4, A.5 og A.6 einu sinni á hæðina. Síðasta umferðin er hekluð frá réttu á stykki. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum bikinítoppinn þannig: Byrjið frá röngu á stykki – byrjið með aðra skammhliðina að aftan, heklið upp aðra skásettu hliðina, yfir loftlykkjuumferðina uppi að framan, niður yfir hina skásettu hliðina og yfir síðari skammhliðina (ekki er heklað yfir kant að aftan og sólfjaðrakant að neðan):

UMFERÐ 1: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, hoppið fram ca 1-1½ cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-*, passið uppá að fjöldi loftlykkjuboga sé deilanlegur með 2.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, 1 fastalykkja um næsta boga, endurtakið frá *-*. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Brjótið ystu 2 cm á hvorri hlið að aftan að röngu á bikinítoppnum og saumið niður með smáu spori í gegnum bæði lögin þannig að það myndast göng til að þræða snúruna í gegn.

SNÚRA:
Heklið 1 lausa snúru þannig: Heklið loftlykkjur með Muskat með heklunál 4 þar til þú hefur snúru sem mælist 140-150-160-170-180-190 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju, en passið uppá að keðjulykkjurnar séu ekki heklaðar fastar en loftlykkjurnar! Klippið frá og festið enda. Heklið aðra snúru á sama hátt.

Byrjið frá réttu og þræðið einn af endunum á snúrunni í gegnum ysta gatið upp fram, í kringum stuðla og út í gegnum næsta gat (= 2 endar á snúru út að réttu). Jafnið snúruna til svo að endarnir verði jafn langir, þræðið síðan 2 enda undir snúruna að röngu og herðið að. Endurtakið í hinni hliðinni með hinni snúrunni. Leggið síðan snúrurnar í kross á baki áður en þær eru þræddar í gegnum göngin – sjá mynd! Toppnum er lokað með því að hnýta hnút.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

BUXUR:
Heklið 163-182-196-220-244-268 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 0-1-1-1-1-1 stuðul í hverja af næstu 0-1-3-3-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 26-29-31-35-39-43 sinnum til viðbótar = 136-152-164-184-204-224 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið nú gataumferð þannig: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 stuðul, * 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul/um hverja loftlykkju.

Heklið síðan buxurnar hærra að aftan en að framan, það er gert þannig – MEÐ FASTALYKKJUM: Heklið 8 fastalykkjur fram hjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, síðan 1 fastalykkja í hverja af næstu 15 fastalykkjum, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 23 lykkjum (einnig er heklað í keðjulykkjurnar). Haldið svona áfram með að hekla yfir 8 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til hekla hefur verið yfir alls 96-96-96-112-112-128 lykkjur. Snúið aftur við og heklið fram að prjónamerki við miðju að aftan. Stykkið mælist ca 11-11-11-12-12-13 cm við miðju að aftan.

Setjið 2 ný prjónamerki í stykkið, (haldið eftir prjónamerkinu við miðju að aftan), setjið 2. prjónamerki eftir 34-38-41-46-51-56 lykkjur (= hlið), 3. prjónamerki eftir 68-76-82-92-102-112 nýjar lykkjur (= hlið). Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í 2-3-4-4-5-6 hverri umferð alls 5-4-4-4-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið 4-3-2-2-2-2 umferðir er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-6-7-8-9-10 sinnum.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 166-180-194-216-238-260 stuðlar í umferð. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-28 cm við miðju að framan og 27-28-29-32-34-37 cm við miðju að aftan.

Nú skiptist stykkið upp fyrir skálmar þannig: Heklið 1 fastalykkju í hvern af fyrstu 3-3-4-4-4-5 stuðlum í umferð, snúið við og heklið til baka yfir 6-6-8-8-8-10 fyrstu stuðla (þ.e.a.s. 3-3-4-4-4-5 stuðlar hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan). Þessir 6-6-8-8-8-10 stuðlar = klof. Heklið stuðla fram og til baka yfir þessa 10-11-12-13-14-15 cm, klippið frá. Saumið klofbótina saman kant í kant 6-6-8-8-8-10 miðjulykkjur við miðju að framan. Heklið síðan skálmar.

SKÁLM:
Heklið 1 stuðul í hvern af 77-84-89-100-111-120 stuðlum hringinn á annarri skálminni, að auki eru heklaðir 14-16-20-18-25-25 stuðlar meðfram klofbót = 91-100-109-118-136-145 stuðlar.
Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til skálmin mælist 4-4-5-5-6-6 cm.
Heklið nú kant neðst niðri á skálm þannig:

Heklið A.7 (= 3 stuðlar), A.8 (= 9 stuðlar) yfir næstu 81-90-99-108-126-135 stuðla, endið með A.9 (= 7 stuðlar). Heklið mynsturteikningu A.7. A.8 og A.9 einu sinni á hæðina. Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Heklið 120-140-150-160-170-180 cm með LAUSUM loftlykkjum, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka. Þræðið snúruna í gataumferðina efst á buxunum – byrjið við miðju að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.08.2017
Leiðrétting á bikinitopp (5 loftlykkjur í stað 5 stuðla).

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðul í stuðul/fastalykkju
symbols = 1 stuðul um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 5 loftlykkjur - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
symbols = mynd sýnir bakstykki á toppnum og hvernig þræða á snúrurnar í
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-74

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Chiara Lutzenberger wrote:

Hallo, Ich habe Probleme das Bikinilberteil nachzuarbeiten. Die 5 Luftmaschen zum Wenden passen bei den Zunahmen ganz gut, aber an der hinteren Seite stehen dadurch Schlaufen ab. Auch der Häkelrand ergibt durch diese Schlaufen und den zusätzlichen Luftmaschen große Löcher und sieht nicht aus wie das Ergebnis in der Anleitung. Ich bin schon seit Monaten am Verzweifeln deswegen.

30.12.2019 - 13:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lutzenberger, ich bin nicht sicher, Ihre Frage zu verstehen, am besten zeigen Sie Ihr Arbeit dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben (auch ein Foto per E-Mail ist gut), so kann man Ihnen am besten helfen. Viel Spaß beim häkeln!

02.01.2020 - 13:38

country flag Jennifer wrote:

Vielen Dank für diese wunderbare und fehlerfreie Anleitung! Habe mir die Shorts gehäkelt und dank der genauen Maßangaben und der Maschenprobe auch mit einem anderen Baumwollgarn ein tolles Ergebnis erzielt. Die Anleitung ist sehr leicht zu verstehen.

17.11.2019 - 01:04

country flag Janssens wrote:

Bonjour petite question pour les augmentations sur les côtés en taille xxl c'est bien tout les 5 tours ? 4 fois car alors je n'optien pas 238 brides

17.09.2019 - 15:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Janssens, on augmente sur les côtés tous les 5 rangs: 4 fois 1 bride de chaque côté du 2ème et du 3ème marqueur = 4 augmentations x 4 fois au total = 16 augmentations + on augmente 1 bride de chaque côté du 1er marqueur (milieu dos) x 9 tous les 2 tours = 18 augmentations - on avait 204 brides + 16 + 18 = 238 brides. Bon crochet!

17.09.2019 - 16:28

country flag Laura wrote:

êtes-vous sure que c'est un crochet numero 4 car j'ai effectué une grande partie du travail mais c'est bien trop grand !

24.07.2019 - 01:07

DROPS Design answered:

Bonjour Laura! La taille du crochet est uniquement à titre indicatif. Si vous avez trop de mailles pour 10 cm, essayez avec un crochet plus gros. Si vous n'avez pas assez de mailles pour 10 cm, essayez avec un crochet plus fin. Bon crochet!

24.07.2019 - 08:02

country flag Murphy wrote:

I want to make this for a friend and her hips are 42" what size should I make?

14.05.2019 - 03:37

DROPS Design answered:

Dear Murphy, you will find the measurement chart for each size at the bottom of the pattern - measure a garment she likes the shape and compare to the measurements in chart to find out the matching size. Read more about sizing and convert into cm/inch here. Happy crocheting!

14.05.2019 - 08:30

country flag DE PIETRI MARIA TERESA wrote:

Scusi ancora , ma perche' mi dice tagliare il filo quando e' finita la parte superiore del top e devo iniziare a montare le catenelle da ambo le parti per la parte del fascione sotto...non si puo' fare come nel modello Mandarina che le monta automaticamente senza tagliare il filo ma prosegue con la lavorazione?..grazie ancora forse ci saltero' fuori...aiuto...

28.04.2019 - 17:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Teresa. Viene tagliato il filo perché in questo modo, su quella riga, ci sono le nuove catenelle da entrambe le parti. Nel modello Mandarina, avvia le catenelle da una parte, gira il lavoro, e avrà una riga di m.a su queste catenelle e sulle maglie del corpo; la riga finisce con l’avvio delle ultime catenelle (quindi da una parte m.alte e dall’altra catenelle). Se preferisce non tagliare il filo, può seguire le indicazioni del modello Mandarina: la differenza nella lavorazione non sarà evidente. Buon lavoro!

28.04.2019 - 23:46

country flag DE PIETRI MARIA TERESA wrote:

Scusi ancora ..forse sono un po' tonta... vorrei avere una spiegazione riguardo il paragrafo dove dice avviare ora 22 ecc catenelle..fino alla fine ..leggendo la spiegazione le due parti non vengono uguali .grazie

28.04.2019 - 16:28

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Teresa. Le due parti sono lavorate in modo uguale, ma non sono speculari rispetto al corpino. Può eventualmente lavorare a specchio sulle ultime catenelle. Buon lavoro!

28.04.2019 - 23:37

country flag DE PIETRI MARIA TERESA wrote:

Non riesco a capire dove e' stata fatta la correzzione...grazie

28.04.2019 - 12:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Teresa. La correzione è già inserita nel testo delle spiegazioni. In precedenza, era stato scritto maglie alte al posto di catenelle, ma il testo ora è corretto. Buon lavoro!

28.04.2019 - 12:49

country flag Graziella wrote:

Oui, j'ai bien compris comment crocheter des brides en rond. Mais cette méthode n'empêche pas le décalage de la couture au fur et à mesure que l'ouvrage monte. Ce qui est dommage, car la couture au lieu de se trouver au milieu comme sur le modèle, se retrouve sur une fesse :((

08.06.2018 - 13:23

DROPS Design answered:

Bonjour Graziella, n'hésitez pas à montrer votre ouvrage à votre magasin - envoyez une photo par mail si vous avez acheté votre laine en ligne, on pourra plus facilement vous aider et vous conseiller en voyant votre ouvrage. Bon crochet!

08.06.2018 - 15:14

country flag Graziella wrote:

Bonjour, J'ai un souci au niveau de la couture du short qui n'est pas droite. En effet, la couture se décale de plus en plus vers la droite au fur et à mesure que l'ouvrage monte. Auriez vous une astuce pour que celle-ci reste bien au centre ? Merci à vous.

08.06.2018 - 11:50

DROPS Design answered:

Bonjour Graziella, cette vidéo montre comment crocheter des brides en rond: remplacez la 1ère bride du tour par 3 ml et terminez le tour par 1 mc dans la 3ème de ces mailles en l'air. Bon crochet!

08.06.2018 - 13:15