DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5423.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Beloved Cardigan

Prjónuð peysa með köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-29
DROPS Design: ne-249
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-750-800-900 g litur 8907, þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 522: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5423.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 (= 8 útauknar lykkjur í hverri útaukningsumferð).
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kant með garðaprjóni í hálsi, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm á milli hverra.
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 76-76-80-86-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með Nepal. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), 13-13-14-16-17-18 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-2-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum, 28-28-30-32-36-38 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-4-6-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinum, 13-13-14-16-17-18 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-2-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan) = 94-94-98-106-118-130 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓFESTUNA!

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), 10-10-11-13-16-19 lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki), A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 20-20-22-26-32-38 lykkjur slétt (= bakstykki), A.1, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, prjónið 10-10-11-13-16-19 lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki) og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 fyrir laskalínu – sjá LASKALÍNA að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 17-20-22-24-25-26 sinnum. Eftir allar útaukningar eru 230-254-274-298-318-338 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón (án útaukningar) þar til stykkið mælist 18-21-23-25-26-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.

Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 37-40-43-47-51-55 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi), prjónið 64-70-76-84-92-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi) og prjónið þær 37-40-43-47-51-55 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 150-162-178-194-210-230 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú A.1 yfir 9 miðju lykkjur í hvorri hlið (undir ermum). Setjið 1 prjónamerki hér, stykkið er nú mælt héðan. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hvorri hlið (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út með 5 cm millibili alls 5 sinnum = 170-182-198-214-230-250 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-27-27-28-28 cm setjið fyrstu og síðustu 45-48-52-56-60-65 lykkjur á þráð, prjónið nú einungis yfir lykkjur á bakstykki (= 80-86-94-102-110-120 lykkjur).
Haldið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-35-35-35-36-36 cm (klauf mælist 8 cm) prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af.

Setjið lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan og 3 lykkjur garðaprjón að hlið. Þegar stykkið mælist 36-35-35-35-36-36 cm (klauf mælist 8 cm) prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af. Endurtakið á vinstra framstykki. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 46-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar – stykkið er nú mælt héðan! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT eftir 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 4-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-15-16-16-17 sinnum = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-38-36-35-35-35 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4-5-5-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 36-39-39-42-45-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið stroff, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið.
Haldið áfram með stroff í 7 cm, síðan er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-45-43-42-42-42 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Ti Ziana wrote:

Ho risolto lavorando gli aum a diritto nel filo tra le maglie prima e dopo il motivo. Si formano del piccoli fori simmetrici da entrambi i lati

24.12.2021 - 17:41

country flag Tiziana wrote:

Buongiorno,nella spiegazione degli aumenti x il raglan si dice di lavorare i gettati a ritorto,ma nella foto vedi che avete lasciato i buchetti dei gettati a lato del motivo.\r\nCosa è giusto?

23.12.2021 - 17:14

DROPS Design answered:

Buonasera Tiziana, i gettati vanno lavorati a rovescio ritorto sul ferro successivo: grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

26.12.2021 - 22:55

country flag Anne-Claire wrote:

Bonjour. Je tricote en taille L. A la fin de mes augmentations, j'ai bien 274 mailles. Mais au moment de mettre les mailles des manches en attente, si je compte 43m (devant droit) puis 56m (manche) je sépare les mailles en plein milieu de A1. Est-ce normal? Si c'est bien ça, j'aurai normalement 5m de A1 côté devant droit qui rejoindront 5m de A1 côté dos, ce qui me fera repartir avec 10m pour poursuivre A1, or le schéma est sur 9m... Je suis un peu perdue... Merci de votre aide!

12.11.2021 - 22:56

DROPS Design answered:

Bonjour Anne-Claire, vous divisez effectivement au niveau de A.1, autrement dit on garde 5 mailles de A.1 pour les devants/le dos et les 4 autres mailles pour les manches; si vous divisez sur un rang de A.1 avec 10 mailles, diminuez 1 maille au 1er rang de la manche pour bien conserver le bon nombre de mailles. Bon tricot!

15.11.2021 - 07:28

country flag Annika wrote:

I midten av A1: Skal jeg løfte første maske over på høyre pinne, strikke to masker rett og så løfte den første masken over dem slik at den felles? Når jeg har strikket vrang-kast-vrang fra vrangen, og snur - skal jeg strikke rett maske, rett kast og rett maske, eller skal kastet i midten strikkes vridd? Og så er det en runde uten kast/fellinger før jeg repeterer mønsteret, ikke sant?

08.09.2021 - 22:56

DROPS Design answered:

Hei Annika. Ja, du feller 1 maske, som da ligger over de 2 rettmaskene (midten av A.1).Kastet på vrangen strikkes rett, lik hvordan masken før- og etter kastet strikkes. Du strikker 2 pinner uten at det "skjer" noe, altå kun rett og vrangmasker (blank firkant og firkant med et kryss). mvh DROPS design

15.09.2021 - 14:29

country flag Gerda Smets wrote:

Hallo, ik zou graag dit model op mijn breimachine breien, ik heb dus enkel het schema nodig, maar kan uit het schema niet opmaken hoe breed de mouw van onder is en hoe breed wanneer de raglan begint, bijvoorbeeld. Ik weet niet of u mij hiermee zou kunnen helpen. Ik zie heel veel mooie patronen op de website maar hierom kan ik ze jammer genoeg niet breien. vriendelijke groet Gerda

16.01.2021 - 23:38

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

Helaas zijn onze patronen alleen geschreven om met de hand te breien. Misschien kun je je vraag kwijt op een ander forum, voor bijvoorbeeld breimachines.

17.01.2021 - 11:41

country flag Jane wrote:

Hello. What is the difference between the jacket and the body? I always assume they are the same? Also in the second row of the jacket there is a section “=sleeve” what does that mean?

31.08.2020 - 17:04

DROPS Design answered:

Dear Jane, under "JACKET" you will find the beginning of the pattern = the yoke part, then under BODY you will find the end of the body part, ie after division for sleeves. In the 2nd paragraph under JACKET you can find description of all pieces from RS, ie from left front piece to right front piece, including sleeves and back piece. Read more about a pattern worked top down here. Happy knitting!

01.09.2020 - 08:48

country flag Robyn wrote:

In the jacket after casting on 76 stitches (M )and working 2 ridges I don’t understand the next row and when to work the increases. I understand that the front bands are the first and last 5 stitches. After that I’m completely lost. Do I knit 5 (band), knit 13, then increase somehow? And is this the row to do the first buttonhole on?

25.03.2020 - 09:08

DROPS Design answered:

Dear Robyn, yes the first buttonhole will be worked at the end of this row - see BUTTONHOLES. And work this row as follows: 5 front band sts, knit 13 sts increasing evenly 2 sts (= there are now 15 sts), (YO, K1) x 6 (= there are now 12 sts), K28 inc evenly 2 sts (= there are now 30 sts), (YO, K1) x 6 (= there are now 12 sts), K13 inc evenly 2 sts (= there are now 15 sts), 5 front band sts (work buttonhole), ie: 5+ 15+12+30+12+15+5=94 sts on the needle. Happy knitting!

25.03.2020 - 10:14

country flag Hanna Derkinderen wrote:

Gaat patroon A1 verder op de mouw of niet?

21.12.2019 - 09:42

DROPS Design answered:

Dag Hanna,

Nee, A.1 gaat niet verder op de mouw; je breit de mouw in tricotsteek in de rondte

26.12.2019 - 15:41

country flag Silvia wrote:

"A.1. Il diagramma mostra tutti i ferri del motivo, visti sul diritto del lavoro." Non ho capito se Il diagramma indica solo i giri al dritto o anche quelli a rovescio . Grazie per la risposta

06.09.2019 - 18:57

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, il diagramma mostra sia i ferri di andata che quelli di ritorno. Buon lavoro!

06.09.2019 - 19:13

country flag Anita wrote:

Hei! Etter å ha strikket A.1 opp til 230 masker i str S, står det i neste avsnitt: "Neste pinne strikkes slik fra vrangen: Strikk 37 masker, sett de neste 46 maskene på en tråd. Dette er greit, men er det riktig at mønsteret da splittes? Etter 46 masker på tråd skal det legges opp 6 nye masker. Disse kommer da mist i A.1. Stemmer det?

26.08.2019 - 19:37

DROPS Design answered:

Hei Anita. De 46 maskene du har satt på en tråd skal strikkes i glattstrikk når ermene senere skal strikkes. Sett en merketråd i midten av de 6 nye maskene du har lagt opp under hvert erme og strikk A.1 over de 9 midterste maskene i hver side (under ermene). God Fornøyelse!

23.09.2019 - 10:47