Adventure Awaits |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Hekluð taska og veski með litamynstri úr DROPS Snow.
DROPS 181-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. 1 rúða = 1 stuðull. LITAMYNSTUR (á við um tösku): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul á undan litaskiptum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum. Ef næsta umferð byrjar á nýjum lit er síðasta keðjulykkjan hekluð með nýja litnum í lok umferðar. Þegar heklað er með mörgum litum í sömu umferð eru þræðirnir sem ekki er heklað með látnir liggja yfir lykkjum frá fyrri umferð, heklað er utan um þessa þræði svo að þeir sjáist ekki og fylgi með hringinn. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsti stuðull í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Byrjið umferð með 1 loftlykkju. Þessi umferð kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, frá botni og upp. TASKA: Heklið 5 loftlykkjur með Snow og litnum bláfjólublár með heklunál 4,5. Tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið síðan í hring og eftir mynsturteikningu A.1 (heklaðar eru 11 mynstureiningar af A.1 á breidd) – LESIÐ LITAMYNSTUR! UMFERÐ 1: Heklið 11 stuðla um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 22 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðla í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 33 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af 2 fyrstu stuðlum, 2 stuðla í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 44 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-11: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. heklaður er 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 121 stuðlar í umferð. Heklið síðan í hring án útaukninga eftir mynsturteikningu A.2 (heklaðar eru 15 mynstureiningar af A.2 á breiddina), JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 stuðul LESIÐ ÚRTAKA! 120 stuðlar. ATH! Í síðustu umferð í A.2 (merkt með ör í mynsturteikningu) eru ekki heklaðir stuðlar, heklið með litnum dökk blár þannig: 1 loftlykkja (kemur í stað 1 fastalykkju), * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla og heklið 1 fastalykkju í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda. AXLARÓL: Klippið 4 þræði af hverjum lit 120 cm = 24 þræðir. Leggið þræðina saman og hnýtið lausan hnút, skiljið eftir ca 12 cm af endunum fyrir hnútinn. Skiptið þráðunum í 3 hluta með 8 þræði í hverjum hluta. Fléttið þessa þrjá hluta saman þar til eftir eru ca 25 cm af endanum. Skiptið þráðunum upp í 2 hluta. Þræðið 2 hlutunum í gegnum töskuna (innan frá og út) í þriðju umferðina ofan frá, skiljið eftir 1 stuðul á milli hluta. Hnýtið saman hlutana í hnút utan verðu á töskunni. Takið upp hnútinn í byrjun á fléttu og festið þennan enda á töskuna alveg eins nema í gagnstæðri hlið. Gerið aðra fléttu alveg eins og festið í hinni hliðinni á töskunni. Klippið þræðina svo að þeir verði jafn langir. ------------------------------------------------------- VESKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp. VESKI: Heklið 21 loftlykkju með heklunál 4,5 með litnum bláfjólublár. UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju í umferð þar til eftir er 1 loftlykkja (= 18 fastalykkjur), heklið 3 fastalykkjur í þessa lykkju. Heklið nú neðan á loftlykkjuumferðina (neðan á fastalykkjum sem voru heklaðar). Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju (= 18 fastalykkjur) og endið umferð með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Nú eru 42 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn dökk blár og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn móbrúnn og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn ljós beige og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn natur og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn ljós beige og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn móbrúnn og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að miðju að framan á stykki, nú er gert eitt hnappagat þannig: Heklið 2 loftlykkjur og hoppið yfir 2 fastalykkjur. Heklið síðan áfram með fastalykkjum umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að loftlykkjum, um loftlykkjurnar eru heklaðar 2 fastalykkjur, heklið síðan með fastalykkjum umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda. Festið tölu innan í veskið í gagnstæðri hlið við hnappagatið. SNÚRA: Klippið 2 þræði 40 cm af hverjum lit = 10 þræðir. Hnýtið endana saman á öðrum endanum (skiljið eftir ca 6 cm á undan hnútnum) og skiptið þeim í 3 hluta. Fléttið þræðina saman, dragið endann sem er ekki með hnút í gegnum fastalykkju umferðina í annarri hlið á veskinu. Takið upp hnútinn á hinum endanum, leggið alla þræðina saman og hnýtið hnút. Klippið þræðina þannig að þeir verði jafn langir. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Regina wrote:
Praktische, grosse Tasche. Würde ich farblich passend zu ee-616 häkeln wollen (beides aus Eskimo).
07.06.2017 - 23:39