DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 181-8
DROPS Design: Mynstur ee-603
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

TASKA:
Mál:
Ummál: ca 92 cm
Hæð: ca 46 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150 g litur 21, bláfjólublár
150 g litur 23, móbrúnn
150 g litur 01, natur
100 g litur 15, dökk blár
100 g litur 47, ljós beige
100 g litur 48, beige

Taskan á myndinn er 438 g.

VESKI:
Mál:
Lengd: ca 15 cm
Hæð: ca 11 cm

Efni:
DROPS SNOW frá GARNSTUDIO (tilheyrir garnflokki E)
Notið afganga af þessum litum:
litur 21, bláfjólublár
litur 23, móbrúnn
litur 01, natur
litur 15, dökk blár
litur 47, ljós beige

Veskið á mynd er 66 g.

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 stuðlar og 6 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS TRÉTALA NR 511 - 1 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. 1 rúða = 1 stuðull.

LITAMYNSTUR (á við um tösku):
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul á undan litaskiptum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum. Ef næsta umferð byrjar á nýjum lit er síðasta keðjulykkjan hekluð með nýja litnum í lok umferðar. Þegar heklað er með mörgum litum í sömu umferð eru þræðirnir sem ekki er heklað með látnir liggja yfir lykkjum frá fyrri umferð, heklað er utan um þessa þræði svo að þeir sjáist ekki og fylgi með hringinn.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Fyrsti stuðull í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Byrjið umferð með 1 loftlykkju. Þessi umferð kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, frá botni og upp.

TASKA:
Heklið 5 loftlykkjur með Snow og litnum bláfjólublár með heklunál 4,5. Tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið síðan í hring og eftir mynsturteikningu A.1 (heklaðar eru 11 mynstureiningar af A.1 á breidd) – LESIÐ LITAMYNSTUR!
UMFERÐ 1: Heklið 11 stuðla um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1!
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 22 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðla í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 33 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af 2 fyrstu stuðlum, 2 stuðla í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 44 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5-11: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. heklaður er 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 121 stuðlar í umferð.
Heklið síðan í hring án útaukninga eftir mynsturteikningu A.2 (heklaðar eru 15 mynstureiningar af A.2 á breiddina), JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 stuðul LESIÐ ÚRTAKA! 120 stuðlar.
ATH! Í síðustu umferð í A.2 (merkt með ör í mynsturteikningu) eru ekki heklaðir stuðlar, heklið með litnum dökk blár þannig: 1 loftlykkja (kemur í stað 1 fastalykkju), * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla og heklið 1 fastalykkju í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda.

AXLARÓL:
Klippið 4 þræði af hverjum lit 120 cm = 24 þræðir. Leggið þræðina saman og hnýtið lausan hnút, skiljið eftir ca 12 cm af endunum fyrir hnútinn. Skiptið þráðunum í 3 hluta með 8 þræði í hverjum hluta. Fléttið þessa þrjá hluta saman þar til eftir eru ca 25 cm af endanum. Skiptið þráðunum upp í 2 hluta. Þræðið 2 hlutunum í gegnum töskuna (innan frá og út) í þriðju umferðina ofan frá, skiljið eftir 1 stuðul á milli hluta.
Hnýtið saman hlutana í hnút utan verðu á töskunni. Takið upp hnútinn í byrjun á fléttu og festið þennan enda á töskuna alveg eins nema í gagnstæðri hlið. Gerið aðra fléttu alveg eins og festið í hinni hliðinni á töskunni. Klippið þræðina svo að þeir verði jafn langir.

-------------------------------------------------------

VESKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp.

VESKI:
Heklið 21 loftlykkju með heklunál 4,5 með litnum bláfjólublár.
UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju í umferð þar til eftir er 1 loftlykkja (= 18 fastalykkjur), heklið 3 fastalykkjur í þessa lykkju. Heklið nú neðan á loftlykkjuumferðina (neðan á fastalykkjum sem voru heklaðar). Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju (= 18 fastalykkjur) og endið umferð með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Nú eru 42 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn dökk blár og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn móbrúnn og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn ljós beige og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn natur og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn ljós beige og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, skiptið yfir í litinn móbrúnn og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að miðju að framan á stykki, nú er gert eitt hnappagat þannig: Heklið 2 loftlykkjur og hoppið yfir 2 fastalykkjur.
Heklið síðan áfram með fastalykkjum umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að loftlykkjum, um loftlykkjurnar eru heklaðar 2 fastalykkjur, heklið síðan með fastalykkjum umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda.
Festið tölu innan í veskið í gagnstæðri hlið við hnappagatið.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði 40 cm af hverjum lit = 10 þræðir. Hnýtið endana saman á öðrum endanum (skiljið eftir ca 6 cm á undan hnútnum) og skiptið þeim í 3 hluta. Fléttið þræðina saman, dragið endann sem er ekki með hnút í gegnum fastalykkju umferðina í annarri hlið á veskinu. Takið upp hnútinn á hinum endanum, leggið alla þræðina saman og hnýtið hnút. Klippið þræðina þannig að þeir verði jafn langir.

Mynstur

symbols = bláfjólublár
symbols = dökk blár
symbols = móbrúnn
symbols = ljós beige
symbols = natur
symbols = beige
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Marlaine DeForge wrote:

When on the increase round and changing colors , does the increase count as 1 or 2 stitches ? I’m counting the increase as 2 and the pattern isn’t lining up correctly. Thank you .

24.09.2021 - 02:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs DeForge, crochet the diagram increasing at the same time (the diagram shows the increased stitches): on first round in A.1 crochet 11 trebles with blue violet, then crochet 2 tr in each st (= 2 sts in each A.1), then inc in every other st (= 3 sts in each A.1) and so on. Hope this will help, happy crocheting!

24.09.2021 - 07:44

country flag Patrizia wrote:

Buongiorno vorrei fare questo modello ma con il filato paris mi aiutate per favore con quantitarivi del filato nelle tonalita del rosso ?(o avete per caso gia predisposto qualcosa voi?) vi ringrazio sin da ora per l'aiuto patrizia

29.05.2020 - 08:54

DROPS Design answered:

Buongiorno Patrizia. A questa pagina trova le indicazioni per la sostituzione dei filati. E’ riportato anche un esempio per sostituire un filato del gruppo E (eskimo) con Paris. Per un aiuto più personalizzato (anche per la combinazione dei colori) può rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

29.05.2020 - 09:23

country flag Patrizia wrote:

Buongiorno vorrei farte questa borsa ma con il filato paris e' possibile ?potrei avere problemi con le dimensioni (filato/uncinetto)?e i quantitativi come posso calcolarli?grazie per l'aiuto buona giornata e buon lavoro patrizia

29.05.2020 - 08:44

country flag Marinella Massaro wrote:

Grazie per la risposta . saluti, marinella

15.04.2019 - 19:47

country flag Marinella Massaro wrote:

Buongiorno , ora vivo in Argentina , nella Patagonia , ed essendoci basse temperature , lavoro solo la lana .Mi sono specializzata in Fair Isle , con ferri circolari , in genere . Sempre osservo gli schemi . Questo modello si potrebbe fare ai ferri , con gli aumenti inframezzati lungo i giri per lo schema A 1 e poi proseguire diritto con lo schema A 2 , o lo vedete troppo complicato ? Grazie Marinella

13.04.2019 - 16:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Marinella. In base alla sua esperienza, è possibile riprodurre ai ferri il motivo jacquard. Il risultato finale potrebbe però essere leggermente diverso per via della diversa dimensione tra un punto lavorato all’uncinetto ed uno lavorato ai ferri. Buon lavoro!

13.04.2019 - 16:21

country flag Baerfuss wrote:

Hallo, Danke für Ihre Antwort. Ich habe die Zunahmen genau so gemacht und es geht trotzdem nicht auf. Ich habe die ganzen Maschen sogar schon auf einem karierten Papier aufgezeichnet und komme auch so nicht hin, dass das Muster stimmt. Es ergibt die 99 Maschen, aber das Ende stimmt nicht.

03.09.2018 - 16:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Baerfuss, vielleich können Sie Markierer zwischen jedem Rapport einsetzen, so wird es einfacher jedes Rapport zu folgen and prüfen. Viel Spaß beim häkeln!

04.09.2018 - 10:49

country flag Anne Baerfuss wrote:

Hallo, ich bin dabei, mir dies Tasche zu häkeln. Nun bin ich bei Reihe 9 angelangt, aber mir geht das Muster nicht auf. Beginnt mit 1 Masche dunkelblau, dann 5 Maschen in blauviolett, 3 Maschen in dunkelblau, 5 Maschen in blauviolett etc. Am Ende der Reihe geht es dann aber nicht auf. Interpretiere ich etwas falsch? Ich bin da bei 3 Maschen in dunkelblau und dann bleibt mir noch genau eine Masche der Vorreihe übrig. Eigentlich sollte doch der Schluss dann 2 dunkelblaue Maschen sein, oder?

02.09.2018 - 22:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Baerfuss, vergessen Sie die Zunahmen nicht: bei der 9. reihe in A.1 haben Sie: 1 M in dunkelblau, 5 M in blauviolett, 1 M in dunkelblau und 1 Zunahme (= 2 M in dunkelblau). Viel Spaß beim häkeln!

03.09.2018 - 15:42

country flag Dorotea wrote:

Non mi è chiaro se nei giri da 5 a 11 bisogna usare il diagramma A1

14.10.2017 - 20:44

DROPS Design answered:

Buonasera Dorotea. Sì deve continuare a seguire il diagramma A.1 fino al giro 11. Buon lavoro!

14.10.2017 - 21:25

Jan wrote:

Most of your patterns specify if the terms are UK or US. This one does not. Which is this written in? I can guess, but I'd rather be sure. Thank you!

13.07.2017 - 22:55

DROPS Design answered:

Hi Jan, This pattern is found in both UK and US English, so you can choose, but if the one you are looking at has both cm and inch measurements it is US. If there are only cm measurements it is UK. Happy crocheting!

14.07.2017 - 08:52

Imene wrote:

I'm from Algeria, and i love your designs ❤️ Thank you for sharing them.

14.06.2017 - 19:00