DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Timeless Elegance

Peysa með gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður í A-formi úr DROPS Karisma. Stærð S-XXXL.

DROPS 181-34
DROPS Design: Mynstur u-811
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-700-750-800-900-1000 g litur 77, ljós eik

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu mynstureiningum með prjónamerki þannig: Prjónið allar brugðnar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Næstu umferð sem aukið er út, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan öllum brugðnu lykkjunum.
Uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar brugðið.
Aukið út til skiptis vinstra og hægra megin við hverja brugðnu mynstureiningu með prjónamerki.

BRUGÐIÐ (á við um fram- og bakstykki):
Til að brugðnu mynstureiningarnar dragist ekki saman of mikið er prjónuð 1 umferð slétt yfir allar brugðnar lykkjur í ca 6. hverri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynstureiningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er hvort stykki prjónað fyrir sig, fram og til baka niður að handveg, síðan eru stykkin sett saman á hringprjón og prjónað er í hring. Að lokum eru ermarnar prjónaðar.

FRAMSTYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, aukið er út og fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli og stykkið er sett saman.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 29-29-32-32-35-35 lykkjur á hringprjón 4 með Karisma. Prjónið frá réttu þannig: 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 19-19-21-21-23-23 lykkjur), 1 lykkja brugðið, 7-7-8-8-9-9 lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur í 5-5-6-6-7-7 cm, síðan byrja útaukningar fyrir hálsmáli: Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (prjóna á 3. lykkju sem fitjuð er upp brugðið frá réttu og slétt frá röngu, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni): 1 lykkja 3-3-4-4-5-5 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni = 34-34-38-38-42-42 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu og 1 umferð frá réttu, geymið stykkið.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 29-29-32-32-35-35 lykkjur á hringprjón 4 með Karisma. Prjónið frá réttu þannig: 7-7-8-8-9-9 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið.
Haldið áfram með þetta mynstur í 5-5-6-6-7-7 cm, síðan byrjar útaukning fyrir hálsmáli: Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig (prjóna á 3. lykkju sem fitjuð er upp brugðið frá réttu og slétt frá röngu, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni): 1 lykkja 3-3-4-4-5-5 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni = 34-34-38-38-42-42 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu.

FRAMSTYKKI:
Prjónið nú vinstri öxl saman við hægri öxl frá röngu þannig: Prjónið nú yfir vinstri öxl eins og áður, fitjið upp 15 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið inn 34-34-38-38-42-42 lykkjur frá hægri öxl á prjóninn frá röngu = 83-83-91-91-99-99 lykkjur.
Prjónið síðan frá réttu þannig: 2 lykkjur brugðið, * A.1, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, A.1, 2 lykkjur brugðið. Haldið áfram með þetta mynstur.
Þegar stykkið mælist 15-15-16-15-15-14 cm fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar þannig: 1 lykkja 3-3-3-4-4-5 sinnum, 2 lykkjur 0-2-2-3-4-5 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum = 95-103-111-123-135-147 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. Geymið stykkið og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, aukið er út og fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli og stykkið er sett saman.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl á framstykki þar til stykkið mælist 3 cm.
Fitjið síðan upp 1 nýja lykkju í lok næstu umferðar frá réttu = 30-30-33-33-36-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu og 1 umferð frá réttu. Geymið stykkið.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl á framstykki þar til stykkið mælist 3 cm.
Fitjið síðan upp 1 nýja lykkju í lok næstu umferðar frá röngu = 30-30-33-33-36-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu.

BAKSTYKKI:
Prjónið nú hægri öxl saman við vinstri öxl frá röngu þannig:
Prjónið yfir hægri öxl eins og áður, fitjið upp 23-23-25-25-27-27 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið inn 30-30-33-33-36-36 lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn frá röngu = 83-83-91-91-99-99 lykkjur. Prjónið mynstur og fitjið upp fyrir handveg eins og á framstykki = 95-103-111-123-135-147 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið allar lykkjur á sama hringprjón (án þess að prjóna þær) = 190-206-222-246-270-294 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Umferðin byrjar nú mitt undir annarri erminni.
Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig:
** Prjónið 8-12-12-18-20-26 lykkjur BRUGÐIÐ – sjá útskýringu að ofan, * A.1, prjónið 1 lykkju brugðið, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, A.1, prjónið 8-12-12-18-20-26 lykkjur BRUGÐIÐ **, prjónið frá **-** alls 2 sinnum.
Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 6 lykkjur fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5-5-5½-5½-6-6 cm millibili alls 9 sinnum = 244-260-276-300-324-348 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm frá prjónamerki (stykkið mælist alls 72-74-76-78-80-82 cm). Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Fitjið upp 55-55-60-60-65-65 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið allar 3 lykkjur brugðið saman til 2 lykkjur brugðið = 44-44-48-48-52-52 lykkjur.
Prjónið A.2 (= 6 lykkjur) og 38-38-42-42-46-46 lykkjur sléttprjón (miðja á A.2 er mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með því að hoppa yfir úrtöku í A.2.
Aukið svona út með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 15-17-18-20-20-22 sinnum = 74-78-84-88-92-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-42-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur mitt undir ermi. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka meðan felldar eru af lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 6 sinnum. Fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist 54 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 66-84 lykkjur meðfram kanti í hálsi á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Virginie Miani wrote:

Bonjour, je souhaiterais faire ce modèle mais dans une laine plus fine. Comment l'adapter ? Comment compter la quantité de laine ? Je vous remercie de votre réponse. Cordialement. Virginie

24.01.2024 - 11:05

DROPS Design answered:

BonjourMme Miani, vous devez vous baser sur votre propre tension, le point ajouré et le schéma des mesures pour tout recalculer. Pour la quantité de laine, elle va dépendre de votre échantillon, de votre taille, de l'aisance souhaitée, etc... Vous pouvez vous inspirer d'un modèle analogue correspondant à votre propre tension. Bon tricot!

25.01.2024 - 08:08

country flag Wilma Strijbosch wrote:

Vermoedelijk is dit patroon vertaald. Het woord 'rechter' als in rechter schouder, wordt vertaald als 'goed'. Dit is zo verwarrend: Brei over de linker schouder zoals hiervoor, zet 15 nieuwe steken op voor de hals, brei de 34-34-38-38-42-42 steken aan de goede kant tot aan de naald op de verkeerde kant = 83-83-91-91-99-99 steken. Ik moest het vaak lezen voordat ik snapte wat er moest gebeuren.

19.06.2023 - 16:35

country flag Aurélie wrote:

Bonjour, je commence le tricot par l'épaule droite et je ne comprends pas les augmentations a effectuer, pouvez vous m'éclairer? La 3 ème maille montée est en fait la 3 ème augmentation ? Merci

03.05.2021 - 13:45

DROPS Design answered:

Bonjour Aurélie, quand on tricote les épaules, on monte les mailles de l'encolure (ces mailles doivent être montées pas augmentées) mais effectivement ce sera bien la 3ème montée à la fin du 3ème rang sur l'endroit. Bon tricot!

03.05.2021 - 13:50

country flag Helle Petersen wrote:

Jeg er meget i tvivl, om hvor mærke trådene skal sættes når de4 skal tages. Jeg opfatter det som om at der skal tages ud i hulmønstetet. Passer det?

10.06.2019 - 15:53

DROPS Design answered:

Hei Helle. Merketrådene settes i vrangpartiene mellom A.1. Du strikker 8-12-12-18-20-26 masker vrang, A,1, 1 maske vrang, sett merketråd her. Så strikker du igjen 8-12-12-18-20-26 masker vrang, A,1, 1 maske vrang, sett merketråd her osv. Det settes altså 3 merketråder på forstykket, og 3 merketråder på bakstykket. Videre øker du vekselsvis på slutten og starten av vrangpartiene med merketråd (les ØKETIPS). God fornøyelse

11.06.2019 - 07:38

country flag Inge wrote:

Liebes Drops- Team, leider verstehe ich nicht (Schulter rechts), was " die 3. Masche die angeschlagen wird" ist. Ist damit die 3. letzte Masche gemeint? Danke für ihre Hilfe.

22.11.2018 - 10:17

DROPS Design answered:

Liebe Inge, für den Hals werden 1 M 3 x und dann 2 M 1 x angeschlagen. Diese Maschen werden so gestrick; die 2 neuen Maschen glatt rechts, die 3. Masche glatt links und die 2 letzten Maschen glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!

22.11.2018 - 11:08

Eliana Sullivan wrote:

The instructions forthe right shoulder say Purl 2, A1, P1 etc, then "continue this pattern." Should I purl the Purl 2 and Purl 1 on the wrong side as well? Also, are the yarn overs meant to be knitted on the wrong side? I would normally purl them in a UK pattern. Thanks!

03.10.2018 - 10:41

DROPS Design answered:

Dear Eliana, the first row tells you how to set the pattern, from then you should follow the diagrams. Between the patterned columns the P stitches are reversed stockinett, that are purled on the RS and knitted on the WS. Happy Knitting!

03.10.2018 - 11:38

country flag Maria Van Gils wrote:

Hej, när jag satt ihop axlarna och börjat sticka framstycket så står det att jag ska öka under 6 varv, totalt 10 maskor, när arbetet mäter 16 cm. Det går inte ihop med att jag då ska ha ökat från 91-111 maskor (20 maskors ökning) eller att arbetet då ska vara ca 20 cm, efter endast 6 varvs ökning. Hur ska jag göra? Mvh Maria

10.03.2018 - 11:25

DROPS Design answered:

Hej, du ska öka i båda sidorna, då ökas det alltså totalt 20 maskor under 12 varv.

15.03.2018 - 14:33

country flag Maria Van Gils wrote:

Hej, när jag satt ihop axlarna och börjat sticka framstycket så står det att jag ska öka under 6 varv, totalt 10 maskor, när arbetet mäter 16 cm. Det går inte ihop med att jag då ska ha ökat från 91-111 maskor (20 maskors ökning) eller att arbetet då ska vara ca 20 cm, efter endast 6 varvs ökning. Hur ska jag göra? Mvh Maria

10.03.2018 - 08:14

Deirdre wrote:

Hello, I'd love to knit this pattern, but it appears to be missing sizing information. Can you point me to the measurements for the sizes listed, please?

04.01.2018 - 20:22

DROPS Design answered:

Dear Deirdre, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measurements for each size taken flat from side to side. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizeing here. Happy knitting!

05.01.2018 - 08:42

country flag Gabriela wrote:

Schlicht und edel - weniger ist mehr! Ein echter Eye-catcher

01.07.2017 - 05:45