Nova Scotia Cardigan |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Peysa með Fana mynstri, hringlaga berustykki og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-21 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 7,8. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Í umferðum þar sem annað hvort eru renndur eða mynsturborðar er prjónað með lit í rönd eða grunnlit í mynsturborða einnig yfir 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2 (á við um prjónfestu): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. Fellt er fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm, fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu með ca 8-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-98-102-102-110-114 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt,2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar kantur í hálsi mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 9-11-13-13-11-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 103-109-115-115-121-127 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum ljós perlugrár. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð og endið á umferð merktri með ör í réttri stærð), þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-16-17-17-18-19 mynstureiningar 6 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og 2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 283-301-319-353-373-393 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 14-16-17-20-21-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður, mælt við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (lesið mynsturteikningu frá vinstri að hægri frá röngu): 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-16-17-19-20-22 mynstureiningar 18 lykkjur) og aukið jafnframt út 0-0-0-2-0-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 283-301-319-355-373-409 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru prjónaðar 0-0-2-0-2-0 umferðir sléttprjón með litnum ljós perlugrár. Stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Skiptið nú lykkjunum upp fyrir fram- og bakstykki og ermum og næsta umferð er prjónuð frá réttu með litnum ljós perlugrár þannig: Prjónið 44-46-48-55-58-66 lykkjur slétt og aukið út um 0-1-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-81-83-97-105-121 lykkjur slétt og aukið út um 2-2-6-2-4-0 lykkjur jafnt yfir (= bakstykki), setjið næstu 60-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 44-46-48-55-58-66 lykkjur sem eftir eru slétt og aukið út 0-1-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað síðan hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 181-193-209-229-253-281 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 sléttum kantlykkjum að framan í hvorri hlið með litnum ljós perlugrár. Setjið 1 prjónamerki 48-51-55-60-66-73 lykkjur inn frá hvorri hlið (= framstykki, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið = 85-91-99-109-121-135 lykkjur á bakstykki) – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. PRJÓNIÐ NÚ MYNSTUR OG AUKIÐ JAFNFRAMT ÚT. LESIÐ ALLT MYNSTRIÐ OG ÚTAUKNINGU ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: ÚTAUKNING. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Aukið svona út með 4½-3½-3-3-2½-3 cm millibili alls 6-7-8-8-9-8 sinnum = 205-221-241-261-289-313 lykkjur. MYNSTUR: Prjónið A.3 alls 5 sinnum á hæðina. Prjónið síðan með litnum ljós perlugrár til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum með hringprjón 4,5 frá réttu. Öll peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-70-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með ljós perlugrár = 68-72-80-84-88-92 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós perlugrár. PRJÓNIÐ NÚ MYNSTUR OG JAFNFRAMT FÆKKIÐ LYKKJUM. LESIÐ ALLT MYNSTRIÐ OG ÚRTÖKU ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: MYNSTUR: Prjónið A.3A hringinn. Þegar A.3A hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina er stykkið prjónað áfram með ljós perlugrár til loka. ÚRTAKA: Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-14-17-18-19-20 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-36-34-33-31-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm (öll ermin mælist 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu) felli laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með sokkaprjón 4,5. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Helgard wrote:
Can I get this pattern in a German translation?
31.01.2020 - 16:48DROPS Design answered:
Hi Helgard, If you click on the language box below the photo you can choose German. Happy knitting!
03.02.2020 - 07:29Pirkko wrote:
Could you please correct the requirement of yarn of this pattern? I am knitting the size M and still have the sleeves to knit. There is only abt. 20 grams of the base colour left so I have to buy more. On the other hand I have one whole skein (plus more) left of the colour for the star pattern, which is not used at all for the sleeves. The colour for the narrow stripes seems to be about right. I like the design of this cardigan very much and enjoy knitting it.
28.10.2019 - 10:30Hanne Jensen wrote:
Hvordan laver jeg 6 kantmasker. Står ved halskanten
25.09.2018 - 08:57DROPS Design answered:
Hei Hanne. Du legger opp masker som vanlig (masketallet inkluderer disse kantmaskene), så strikker du en omgang vrang. Videre strikkes mønsteret som forklart, men de ytterste 6 maskene i hver side strikkes i riller hele veien (altså de strikkes rett fra både retten og vrangen). Slik får du 1 stolpe i riller i hver side = åpningen på jakken. God fornøyelse
25.09.2018 - 10:09Marianne wrote:
Fantastisk idé med forskellige farvekombinationer! Bare der var det på flere modeller!
16.02.2018 - 14:39Jannie De Fondaumiere wrote:
Garnforbruget er fuldstændig fejlberegnet. Jeg måtte købe 2 ekstra nøgler af grundfarven (og det blev så ikke samme indfarvning), mens der blev hhv 2og 1 nøgler tilovers af de øvrige farver..... Herudover blev bærestykket uforholdsmæssigt langt ift resten af trøjen Min strikkefasthed passede hele vejen.
08.01.2018 - 18:19Malin Strömberg wrote:
Min svärmor har stickat denna fina modell (fast o andra färger) men garnåtgången verkar varit helt felberäknad. Det fattades minst två nystan av grundfärgen och det blev över av de färgerna som utgör ränder och stjärnor. På vår kofta blev det lite egen design av ärmarna utifrån vad som fanns kvar av garnerna. Så ska man göra denna kofta rekommendera att ha fler nystan av grundfärgen o färre av randfärgerna. Mvh
26.12.2017 - 14:59DROPS Design wrote:
Colour combinations shown are: A) DROPS Karisma 72, 45, 50 B) DROPS Karisma 72, 21, 16 C) DROPS Karisma 71, 40, 64 D) DROPS Karisma 77, 55, 54 E) DROPS Karisma 55, 11, 56 F) DROPS Karisma 55, 52, 54
27.09.2017 - 10:21