DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 181-26
DROPS Design: Mynstur bm-040
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
650-750-800 g litur 37, ljós fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 tvíbrugðnir stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 mynstureining A.1 á að mælast 4,5 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð:
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. * Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni = 1 fastalykkja, heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), síðan eru heklaðir 15 tvíbrugðnir stuðlar um lykkjuna, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju = 16 tvíbrugðnir stuðlar. Dragið í endann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. Heklið síðan eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

SÓLFJÖÐUR:
1 sólfjöður = 2 tvíbrugðnir stuðlar, 2 loftlykkjur og 2 tvíbrugðnir stuðlar heklaðir í eina loftlykkju.

HEKLAÐ SAMAN:
Sjá mynsturteikningu A.6. Fækkið um 1 mynstureiningu þannig:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin. Heklið næsta tvíbrugðna stuðul í næsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin. Heklið næsta tvíbrugðna stuðul í síðasta loftlykkjubogann og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni. Í næstu umferð er hoppað yfir tvíbrugðnu stuðlana sem eru heklaðir saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. Ermar eru heklaðar í lokin.

HRINGPEYSA:
Heklið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með Baby Merino. Haldið síðan áfram eftir A.1 – ATH! Fyrsta umferðin í A.1 er útskýrð í galdrahring. Heklið 4 mynstureiningar af A.1b hringinn í hverri umferð. A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 28 einingar með tvíbrugðnum stuðlum / 56 tvíbrugðnir stuðlar í umferð.

Heklið frá 2. Umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), haldið áfram með A.2b umferðina hringinn (= 14 mynstureiningar). Heklið A.2 1 sinni á hæðina = 84 stuðlar/loftlykkjubogar.

Heklið frá 2. umferð í A.3 þannig: Heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), haldið áfram með A.3b umferðina hringinn (= 42 sólfjaðrir/tvíbrugðnir stuðlar). Heklið síðan frá A.2: 3. umferð 1 sinni og 4. umferð 4-5-6 sinnum (= alls 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum og tvíbrugðnum stuðlum).

HANDVEGUR:
Heklið næstu umferð eins og 4. umferð í A.2 (sólfjaðrir og tvíbrugðna stuðla), jafnframt er heklað þannig: Heklið fyrstu 5 mynstureiningarnar eins og áður (1 mynstureining = 1 tvíbrugðinn stuðull, 1 loftlykkjubogi, 1 sólfjöður, 1 loftlykkjubogi), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næsta tvíbrugðna stuðul, heklið 40-44-48 nýjar loftlykkjur, hoppið yfir næstu sólfjöður og næstu 5-6-7 mynstureiningar, (hoppið yfir alls 6-7-8 sólfjaðrir og 5-6-7 tvíbrugðnir stuðlar = handvegur), heklið eins og áður í næstu 20-18-16 mynstureiningar, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, heklið 40-44-48 nýjar loftlykkjur, hoppið yfir næstu sólfjaðrir og næstu 5-6-7 mynstureiningar, (hoppið yfir alls 6-7-8 sólfjaðrir og 5-6-7 tvíbrugðna stuðla = handvegur), heklið eins og áður í síðustu 5 mynstureiningum.

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 5. umferð í A.2, um loftlykkjubogana fyrir handveg eru heklaðar 6-7-8 mynstureiningar af A.2 (= 36-42-48 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra) = alls 42 mynstureiningar af A.2 (= alls 252 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra).

Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 10 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca í 4. hverri endurtekningu er heklað A.5b í stað A.4b)= 52 mynstureiningar af A.4.

Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 52 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir endurteknar 3-4-5 sinnum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum.

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 5. umferð í A.2 (= 312 stuðlar með 5 loftlykkjur á milli hverra).

Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 10 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca 5. hver endurtekning er hekluð í A.5b í stað A.4b til að auka út) = 62 mynstureiningar af A.4.

Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 62 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir endurteknar 3-4-5 sinnum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum.

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 5. umferð í A.2 (= 372 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra).

Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 10 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca 6. hver endurtekning er hekluð í A.5b í stað A.4b til að auka út) = 72 mynstureiningar af A.4.

Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 72 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir heklaðar 3-4-5 sinnum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum.

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 5. umferð í A.2 (= 432 stuðlar með 5 loftlykkjur á milli hverra).

Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 20 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca 3. hver endurtekning er hekluð í A.5b í stað A.4b til að auka út) = 92 mynstureiningar af A.4.

Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Hekli A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 92 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir endurteknar 3-4-5 sinum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum.

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið síðustu umferð í A.2 (= 552 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra). Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 120-130-140 cm að þvermáli.

ERMI:
Stykkið er heklað í hring frá handveg og niður. Byrjið mitt undir ermi: Í þeirri hlið þar sem hoppað var yfir sólfjaðrir: Heklið eins og síðasta umferð í A.2 EN einungis með 1 loftlykkju á milli stuðla, heklið síðan 36-42-48 stuðla með 1 loftlykkju á milli hverra frá annarri hlið á handveg = 72-84-96 stuðlar/loftlykkjur.

Heklið 2. umferð í A.4 = 12-14-16 mynstureiningar í kringum handveg. Heklið síðan 2. umferð í A.2. Haldið áfram með sólfjaðrir og tvíbrugðna stuðla eins og í 3. og 4. umferð í A.2. Þegar stykkið mælist 3 cm frá handveg er fækkað um 1 mynstureiningu undir ermi. Sjá mynsturteikningu A.6 og lesið HEKLAÐ SAMAN. Fækkið lykkjum til skiptis á undan og á eftir miðju undir ermi með 8 cm millibili, alls 6 sinnum = 6-7-8 mynstureiningar eftir í umferð. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 54-54-54 cm.
Heklið hina ermina á sama hátt, en byrjið í gagnstæðri hlið þannig að umferðin byrji mitt undir ermi.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull í loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = Heklið 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
symbols = Heklið 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar.
symbols = Heklið 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar.
symbols = Þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Teresa wrote:

I do not know how to crochet from a diagram. I really want to make this sweater. Can I get the pattern in a written form?

15.10.2020 - 05:33

DROPS Design answered:

Dear Teresa, we only have diagrams to this pattern, but you will get helped with this lesson explaining how to read crochet diagrams. Happy crocheting!

15.10.2020 - 09:14

country flag Anja wrote:

Hallo, ich bin gerade bei der Runde nach den Armausschnitten, die 5. Reihe von A2 ist erledigt (252 Stäbchen mit 5 Luftmaschen dazwischen). Ich komm jedoch in der Runde danach (A4b bzw. A5b) nicht auf die in der Beschreibung angegebenen 52 Rapporte. Bei den 252 Stäbchen/Luftmaschenbögen gehen sich nur 42 Rapporte aus (für 52 Rapporte würden 312 Stäbchen/Luftmaschenbögen benötigt). Ist die Beschreibung falsch oder die Grafik von A4/A5?

20.08.2020 - 20:58

DROPS Design answered:

Liebe Anja, Sie hatten 42 Mal A.2 in der Breite gehäkelt = 42 x 6 Stb in jedem A.2 = 252 Stb. Jetzt häkeln Sie A.4 (über 6 Stb = 1 Rapport von A.4) 32 Mal in der Runde aber gleichzeitig häkeln Sie A.5 (= über 6 Stb häkeln Sie 2 Rapporte von A.4) insgesamt 10 Mal bei der Runde. Dh ungefär so: (A.4 x 4, A.5) in der Runde häkeln. = jetzt haben Sie: 42 Rapporte von A.4 + 10 Rapporte (in A.5 zugenommen) = 52 Rapporte von A.4 in der Runde. Viel Spaß beim häkeln!

21.08.2020 - 08:12

country flag Adrian Canfield wrote:

I was just wondering if I could get some clarification on the sleeves. When it says, "...Decrease alternately before and after mid under sleeve every 8 cm / 3 1/8'', 6 times in total = 6-7-8 repetitions remain on round..." does that mean decrease once before the mid, do a round with no decreases, and then on the next round decrease after the mid? Or does it mean to decrease before and after the mid, then a round with no decreases.

05.08.2020 - 23:34

DROPS Design answered:

Hi Adrian, This means you decrease just once every 8 cm, so the first time before mid under sleeve, then work 8 cm and decrease again but this time after the mid under sleeve. A total of 6 decreases means you have then worked 48 cm. Hope this helps and happy crocheting!

06.08.2020 - 07:10

country flag Kirsten English wrote:

After the armholes, when I have 52 repetitions of A4&5, do I continue with 2nd round of A2 in every chain space, including fan? If so I will have way too many repetitions. I keep referring to the photos but I don't think they match this section of the pattern.

07.07.2020 - 14:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs English, you work 1 repeat of A.2b over 1 repeat of A.4 from previous round, ie you had 52 repeats A.4 on previous round, you work now 52 repeats as before but following now A.2b (with A.2a at the beg of the round). Happy crocheting!

07.07.2020 - 15:32

country flag Kirsten English wrote:

Also having trouble after armholes. I have the 252 double crochets, but skipping 2 chain spaces looks gappy and doing 4b three times, then 5b gives me 43 repetitions. It just doesn't add up and it doesn't look like the photos. The photos look like you just skip one chain space. Can you clarify?

05.07.2020 - 23:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs English, not sure to understand completely what you mean - after you have worked the 2 chain spaces for armholes (skipping stitches), you then work the 5th row in A.2 around (= as before), in both chain-spaces for armhole (where you skipped 5-6-7 repetitions), work now 6-7-8 repetitions = 252 sts in total (with 5 ch-sts between each) and the round continue as if there weren't any "holes" for the armholes. Hope this will help :) Happy crocheting!

06.07.2020 - 09:13

country flag Anett wrote:

Har problem som flera andra med varvet a4b och där man ska virka a5b fördelat 10 ggr. Hur jag än tänker och försöker får jag inte 52 rapporter virkade när jag är klar. Jag får 32 a4 och 10 a5 enligt beskrivningen ska jag ha 52 a4 vad jag kan läsa. Vad är det som inte stämmer

09.04.2020 - 01:16

DROPS Design answered:

Hej Anette, jo men i A.5 har du 2 rapporter, så hvis du har 32 rapporter i A.4 og 10x2 rapporter i A.5, så bliver det ialt 52 rapporter :)

29.04.2020 - 09:39

country flag Sylvia Ritson wrote:

I love this pattern (Fairy Glass) and others like it. I was wondering if it would be possible to make it in a slowly graduating yarn (such as the Wolltraum My Melodyy range). I see it working well for the body, but not sure about the sleeves. If that wouldn't work for this pattern, is there a similar one that I could do this with?

09.11.2019 - 14:52

DROPS Design answered:

Dear Sylvia, please understand that we cannot advise you on using yarns other than the DROPS range. Generally with self striping / graduating yarns the colors on the sleeves will have a different rythm than on the bogy. Happy Crafting!

10.11.2019 - 11:26

country flag Sarah wrote:

I love the pattern but I do not understand the pattern, i need it in American English, I pressed the key for it to be converted , but nothing happen, i would like to have this pattern, how do I get it in english.

18.09.2019 - 08:24

DROPS Design answered:

Dear Sarah, click on the scrolling down menu below photo and choose US-English to get the pattern with US-crochet terminology and measurements in inches. Happy crocheting!

18.09.2019 - 10:13

country flag Kristin Blevins wrote:

So in other words, the next round after completing the arm hole paragraph of the pattern, and the 5th row of A2 is completed... will I work the next round similar to previous rounds with the exception of doing a repetition of A5, every 10 repetition? The diagram for A4. Which the pattern says to work 10 repetitions before a repetition of A5 is confusing. Not sure if it is worked like previous A2. Rounds or if I'm skipping more chain spaces

19.07.2019 - 18:59

Kristin Blevins answered:

I have figured it out. The chart for A.4 is wrong and should be corrected. The chart says to skip two chain spaces between each fan and TC. In order to get the correct stitch count you only skip one chain space.

20.07.2019 - 02:34

country flag Kristin L Blevins wrote:

I am having issues after the arm hole. Where the switch back and forth between A4, and A5. Is it supposed to be skipping loops, it seems to be a decrease. The chart appears to read: TC, ch2, skip 2 chain sp, then work fan, chain 2, skip 2 chain space, this we do 4 times and then work A5. TC, ch2, skip home chain space, work fan, ch2, TC in next chain sp, ch2, skip 1 chain, work fan. Then switch back to the A4 round. Am I reading this correctly?

18.07.2019 - 18:31

DROPS Design answered:

Dear MRs Blevins, working A.5b evenly instead of A.4b will increase the number of stitches = in each A.4b you have 1 tr + 1 fan and in each A.4b you will have 1tr,1 fan, 1 tr, 1 fan worked over the same number of stitches. Happy crocheting!

19.07.2019 - 07:39