Fairy Glass |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð hringpeysa með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-26 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð: Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. * Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni = 1 fastalykkja, heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), síðan eru heklaðir 15 tvíbrugðnir stuðlar um lykkjuna, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju = 16 tvíbrugðnir stuðlar. Dragið í endann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. Heklið síðan eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. SÓLFJÖÐUR: 1 sólfjöður = 2 tvíbrugðnir stuðlar, 2 loftlykkjur og 2 tvíbrugðnir stuðlar heklaðir í eina loftlykkju. HEKLAÐ SAMAN: Sjá mynsturteikningu A.6. Fækkið um 1 mynstureiningu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin. Heklið næsta tvíbrugðna stuðul í næsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin. Heklið næsta tvíbrugðna stuðul í síðasta loftlykkjubogann og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni. Í næstu umferð er hoppað yfir tvíbrugðnu stuðlana sem eru heklaðir saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. Ermar eru heklaðar í lokin. HRINGPEYSA: Heklið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með Baby Merino. Haldið síðan áfram eftir A.1 – ATH! Fyrsta umferðin í A.1 er útskýrð í galdrahring. Heklið 4 mynstureiningar af A.1b hringinn í hverri umferð. A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 28 einingar með tvíbrugðnum stuðlum / 56 tvíbrugðnir stuðlar í umferð. Heklið frá 2. Umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), haldið áfram með A.2b umferðina hringinn (= 14 mynstureiningar). Heklið A.2 1 sinni á hæðina = 84 stuðlar/loftlykkjubogar. Heklið frá 2. umferð í A.3 þannig: Heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), haldið áfram með A.3b umferðina hringinn (= 42 sólfjaðrir/tvíbrugðnir stuðlar). Heklið síðan frá A.2: 3. umferð 1 sinni og 4. umferð 4-5-6 sinnum (= alls 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum og tvíbrugðnum stuðlum). HANDVEGUR: Heklið næstu umferð eins og 4. umferð í A.2 (sólfjaðrir og tvíbrugðna stuðla), jafnframt er heklað þannig: Heklið fyrstu 5 mynstureiningarnar eins og áður (1 mynstureining = 1 tvíbrugðinn stuðull, 1 loftlykkjubogi, 1 sólfjöður, 1 loftlykkjubogi), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næsta tvíbrugðna stuðul, heklið 40-44-48 nýjar loftlykkjur, hoppið yfir næstu sólfjöður og næstu 5-6-7 mynstureiningar, (hoppið yfir alls 6-7-8 sólfjaðrir og 5-6-7 tvíbrugðnir stuðlar = handvegur), heklið eins og áður í næstu 20-18-16 mynstureiningar, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, heklið 40-44-48 nýjar loftlykkjur, hoppið yfir næstu sólfjaðrir og næstu 5-6-7 mynstureiningar, (hoppið yfir alls 6-7-8 sólfjaðrir og 5-6-7 tvíbrugðna stuðla = handvegur), heklið eins og áður í síðustu 5 mynstureiningum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 5. umferð í A.2, um loftlykkjubogana fyrir handveg eru heklaðar 6-7-8 mynstureiningar af A.2 (= 36-42-48 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra) = alls 42 mynstureiningar af A.2 (= alls 252 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra). Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 10 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca í 4. hverri endurtekningu er heklað A.5b í stað A.4b)= 52 mynstureiningar af A.4. Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 52 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir endurteknar 3-4-5 sinnum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 5. umferð í A.2 (= 312 stuðlar með 5 loftlykkjur á milli hverra). Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 10 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca 5. hver endurtekning er hekluð í A.5b í stað A.4b til að auka út) = 62 mynstureiningar af A.4. Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 62 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir endurteknar 3-4-5 sinnum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 5. umferð í A.2 (= 372 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra). Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 10 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca 6. hver endurtekning er hekluð í A.5b í stað A.4b til að auka út) = 72 mynstureiningar af A.4. Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Heklið A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 72 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir heklaðar 3-4-5 sinnum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 5. umferð í A.2 (= 432 stuðlar með 5 loftlykkjur á milli hverra). Heklið frá 2. umferð í A.4 þannig: Heklið A.4a, haldið áfram með A.4b, en 20 sinnum jafnt yfir í umferð (= ca 3. hver endurtekning er hekluð í A.5b í stað A.4b til að auka út) = 92 mynstureiningar af A.4. Heklið frá 2. umferð í A.2 þannig: Hekli A.2a, haldið áfram með A.2b umferðina hringinn = 92 mynstureiningar af A.2. Í næstu umferð er heklað áfram frá 3. umferð í A.2a og A.2b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina eru þessar umferðir endurteknar 3-4-5 sinum til viðbótar = 6-7-8 umferðir með sólfjöðrum/tvíbrugðnum stuðlum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið síðustu umferð í A.2 (= 552 stuðlar með 5 loftlykkjum á milli hverra). Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 120-130-140 cm að þvermáli. ERMI: Stykkið er heklað í hring frá handveg og niður. Byrjið mitt undir ermi: Í þeirri hlið þar sem hoppað var yfir sólfjaðrir: Heklið eins og síðasta umferð í A.2 EN einungis með 1 loftlykkju á milli stuðla, heklið síðan 36-42-48 stuðla með 1 loftlykkju á milli hverra frá annarri hlið á handveg = 72-84-96 stuðlar/loftlykkjur. Heklið 2. umferð í A.4 = 12-14-16 mynstureiningar í kringum handveg. Heklið síðan 2. umferð í A.2. Haldið áfram með sólfjaðrir og tvíbrugðna stuðla eins og í 3. og 4. umferð í A.2. Þegar stykkið mælist 3 cm frá handveg er fækkað um 1 mynstureiningu undir ermi. Sjá mynsturteikningu A.6 og lesið HEKLAÐ SAMAN. Fækkið lykkjum til skiptis á undan og á eftir miðju undir ermi með 8 cm millibili, alls 6 sinnum = 6-7-8 mynstureiningar eftir í umferð. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 54-54-54 cm. Heklið hina ermina á sama hátt, en byrjið í gagnstæðri hlið þannig að umferðin byrji mitt undir ermi. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (45)
Marja wrote:
Super mooi!!
03.07.2017 - 10:31Ina Isendam wrote:
This is very nice :-)
02.07.2017 - 19:55Marie Anne wrote:
Ce pull doit etre tres agreable à porter, tres leger, tres joli coloris
30.06.2017 - 21:58Dea wrote:
Sicuri sia "knitting"? A me sembra "crocheting"...
02.06.2017 - 11:16Karin wrote:
Modern lace KNITTING at its finest and most creative! It looks like crochet, but for those of us who prefer 2+ needle points to 1 hook, this pattern is a must.
02.06.2017 - 00:01