Visby Tunic |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Tuniku fyrir börn með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Eyrnabandi með marlitu norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 30-11 |
|||||||||||||||||||
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Tunika: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,5. Í þessu dæmi er aukið út til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð til skiptis ca 8. og 9. hver lykkja og 9. og 10. hver lykkja slétt saman. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með bleikur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-24-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. LEIÐBEININGAR -2 (á við um berustykki á tuniku): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili í einingu með einum lit á berustykki. LEIÐBEININGAR-3: Hægt er að prjóna tunikuna að óskaðri sídd. Ef hún á að vera síðari þá er haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið alveg eins og áður að óskuðu máli. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið þannig: Byrjið 10 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 20 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ---------------------------------------------------------- TUNIKA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan. HÁLSMÁL: Fitjið upp 76-78-80-82-84-86 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með bleikur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 umferðir slétt JAFNFRAMT er aukið út um 8-6-10-8-12-10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-84-90-90-96-96 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og prjónið UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar 0-2-0-2-0-2 sléttar umferðir með bleikur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-14-15-15-16-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 eru 126-126-135-135-144-144 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 10-16-18-18-20-26 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 136-142-153-153-164-170 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og aukið JAFNFRAMT út 8-14-15-15-16-22 lykkjur í umferð merktri með ör-2 í A.1= 144-156-168-168-180-192 lykkjur. Eftir að A.1 hefur verið prjónað er A.2 prjónað hringinn (= 12-13-14-14-15-16 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. Í umferð merktri með ör-3 (síðasta umferð í A.2) eru 192-208-224-224-240-256 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 14-10-6-10-6-2 lykkjur jafnt yfir þessa umferð (aukið út með grunnlit í mynsturbekk) = 206-218-230-234-246-258 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 16-17-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA: Prjónið með natur þannig: 29-31 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 45-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 58-62 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 45-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-31 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ÁRA: Prjónið með dökk bleikur þannig: 33-34-36-38 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 66-68-72-76 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 33-34-36-38 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). ALLAR STÆRÐIR: Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 128-136-144-152-160-168 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-8-8-8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og lesið allan kaflann um fram- og bakstykki áður en prjónað er áfram! STÆRÐ 2, 3/4, 5/6 og 7/8 ára: Prjónið A.3 hringinn (= 16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með dökk bleikur til loka. STÆRÐ 9/10 og 11/12 ára: Prjónið A.4 hringinn (= 20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með dökk bleikur til loka. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur færri). Aukið út í 8.-9.-8.-9.-8.-9. umferðir (ca 3. hvern cm) alls 8-8-10-10-12-12 sinnum í hvorri hlið = 160-168-184-192-208-216 lykkjur. ATH: Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar með dökk bleikur, þ.e.a.s. þegar aukið er út þá verða fleiri lykkjur með dökk bleikur á milli ”doppa” í A.4. Þegar stykkið mælist ca 25-28-31-34-37-40 cm frá skiptingu – lesið LEIÐBEININGAR-3, prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið síðan laust af. Tunikan mælist ca 42-46-50-54-58-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 45-47-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram! STÆRÐ 2, 3/4, 5/6 og 7/8 ára: Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið A.3 hringinn, en athugið að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í einni heilli mynstureiningu mitt undir ermi. Byrjið með 3.-2.-1.-8. hverja lykkju í A.3 og endurtakið A.3 hringinn eins langt og það gengur. Mynstrið verður samhverft mitt undir ermi og lykkja með prjónamerki mitt ofan á ermi á nú að passa við 4. lykkju í A.3. Eftir A.3 er prjónað sléttprjón með dökk bleikur. STÆRÐ 9/10 og 11/12 ára: Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið sléttprjón með dökk bleikur. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-2½-3½-3½-3½ cm millibili alls 7-8-9-8-9-10 sinnum = 37-37-37-41-41-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-19-23-27-31-34 cm frá skiptingu (úrtöku á nú að vera lokið), prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1 lykkju í öllum stærðum = 36-36-36-40-40-40 lykkjur. Prjónið A.5 hringinn (= 9-9-9-10-10-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). Á eftir A.5 er skipt yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn með dökk bleikum, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af. Ermin mælist ca 21-24-28-32-36-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. ---------------------------------------------------------- EYRNABAND: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Fitjið upp 108-124 lykkjur á hringprjón 2,5 með dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 98-112 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn (= 7-8 mynstureiningar með 14 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað með dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út með 10-12 lykkjur jafnt yfir = 108-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Aslaug Berget Alsaker wrote:
Har en kunde som er kommet inn og lurer på om dette mønstret er riktig. Hun lurer på om pil på A.2 står plassert feil? hun strikker str 7/8.
02.10.2017 - 11:22DROPS Design answered:
Hej, Man har 168 m på pinden efter A.1, tager ud ifølge A.2 (4mx14)= 56 + 10 m på sidste omgang i A.2 = 234 masker, så det stemmer. Da sidste omgang (med pilen) strikkes i kun én farve, så skal der bare tage ud i den ene farve (de andre størrelser tages der ud i en mønsteromgang). Har du yderligere spørgsmål så husk at markere det som et spørgsmål (ikke som generel kommentar), ellers ser vi som svarer det ikke og derfor svarer vi så heller ikke. God fornøjelse! :)
05.10.2017 - 08:17