Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Blushing Beauty |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 2 þráðum úr DROPS Brushed Alpaca silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 47-47-53-59-65-71 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjóni nú 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið næstu umferð og fækkið lykkjum jafnt yfir í þessari umferð þannig – frá réttu: Prjónið 6-6-6-9-9-9 lykkjur í garðaprjóni – og fækkið um 1-0-1-1-1-1 lykkjur yfir þessar, * A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 1 lykkja í garðaprjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 6-6-6-9-9-9 lykkjur í garðaprjóni – og fækkið um 1-0-1-1-1-1 lykkjur yfir þessar = 45-47-51-57-63-69 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm (mælt meðfram lykkju í garðaprjóni á milli 2 mynstureininga af A.1) fellið af 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 39-41-45-51-57-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 42-44-46-47-49-51 cm – stillið af þannig að endað sé á eftir síðustu umferð í mynsturteikningu, prjónið A.2 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur) yfir A.1 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 13-13-15-15-15-15 lykkjur í umferð, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af miðju 9-9-11-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 15-16-17-20-23-26 lykkjur í hægri hlið á prjóni (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 15-16-17-20-23-26 lykkjur sem eftir eru með mynstri og 2 kantlykkjum í garðaprjóni við háls – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA = 14-15-16-19-22-25 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp alveg eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 40-42-44-45-47-49 cm. Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 11-11-13-13-13-13 lykkjur í umferð, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af miðju 7-7-9-9-9-9 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 16-17-18-21-24-27 lykkjur í hægri hlið á prjóni (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Haldið áfram fram og til baka yfir þær 16-17-18-21-24-27 lykkjur sem eftir eru með mynstri og 2 kantlykkjur í garðaprjóni við hálsmál, í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2 sinnum = 14-15-16-19-22-25 lykkjur í umferð, JAFNFRAMT er prjónað A.1 til og með síðustu umferð í mynsturteikningu, prjónið síðan A.2 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur) yfir A.1 til loka. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 17-17-20-20-20-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með 2 þráðum Air eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan 6 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 31-31-37-37-37-43 lykkjur (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem auknar eru út 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 33-35-37-39-41-43 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 10-11-11-12-12-12 lykkjur brugðið (slétt frá röngu), A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 10-11-11-12-12-12 lykkjur brugðið (slétt frá röngu) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 16-16-15-14-13-12 cm millibili alls 3 sinnum = 39-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 51-50-49-47-45-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í - saumið í ystu 2 cm í hvorri hlið á ermi þannig að þær passi inn í handveg, saumið síðan sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (50)
Marita wrote:
Hei, holder på å strikke bakstykket til denne genseren og har kommet hit i oppskriften: "Når arbeidet måler 34-35-36-37-38-39 cm (mål langs den ene masken i rille mellom 2 rapporter av A.1) felles det av 3 masker på starten av de neste 2 pinnene = 39-41-45-51-57-63 masker." Hvilken felleteknikk skal jeg bruke? Strikke masker sammen eller felle rett av? Og er det de tre første maskene i rillen? Sorry hvis det er dumt spørsmål, men jeg er litt fersk.
15.03.2018 - 17:35DROPS Design answered:
Hei Marita, Du skal felle rett av og de skal felles på starten av de neste 2 pinnene; så da er det rille-masker, ja. God fornøyelse!
16.03.2018 - 07:54Dawn Crighton wrote:
I really love this pattern, however I have never knitted with 2 strands. I would prefer a one strand alternative. Can you help please?
10.03.2018 - 14:05DROPS Design answered:
Dear Dawn, 2 strands of DROPS Air = 1 strand of DROPS Cloud and 2 strands DROPS Brushed Alpaca Silk = 1 strand DROPS Melody.
11.03.2018 - 16:26Kari wrote:
Hei.Jeg vil strikke "Blushing Beauty". For str. XXL står det jeg trenger 450 g = 9 nøster a 50 g i Drops Air. I Drops Brushed Alpaca Silk for str. XXL 250 g = 10 nøster a 25 g. Er dette riktig oppfattet...? Det skal strikkes med to tråder, Bruker jeg to nøster omgangen, en tråd fra hvert nøste...? Hvorfor er det så stor forskjell på vekten en trenger av disse to garnene..? Hvor finner jeg størrelses tabell...?Mvh. Kari Haraldsen
08.03.2018 - 12:16DROPS Design answered:
Hei Kari. I oppskriften står det at du skal bruke DROPS Air eller DROPS Brushed Alpaca Silk, 2 tråder Air ELLER 2 tråder Brushed Alpaca Silk. Air nøste kommer som 50 gram og er 150 meter langt, mens et Brushed Alpaca Silk nøste kommer som 25 gram og er 140 meter langt, altså veier Air nøste neste dobbelt så mye som et Brushed Alpaca Silk nøste. Denne genseren (XXL) trenger man 450 gram/9 nøster DROPS Air (9 nøster x 150 meter = 1350 meter). Skal du bruke DROPS Brushed Alpaca Silk, trenger du 250 gram/10 nøster (10 nøster x 140 meter = 1400 meter). Målskisse med cm mål finner du nederst på oppskriften. God Fornøyelse!
08.03.2018 - 13:25Åse wrote:
Kan genseren strikkes rundt og ikke frem og tilbake?
06.03.2018 - 18:48DROPS Design answered:
Hei Åse. Vi har dessverre ikke mulighet til å skrive om oppskriften slik at den kan strikkes rundt, men du må gjerne selv tilpasse oppskriften slik at du kan strikke den rundt. God Fornøyelse!
08.03.2018 - 09:54Kari Haraldsen wrote:
Hei.Jeg vil strikke "Blushing Beauty". For str. XXL står det jeg trenger 450 g = 9 nøster a 50 g i Drops Air. I Drops Brushed Alpaca Silk for str. XXL 250 g = 10 nøster a 25 g. Er dette riktig oppfattet...? Det skal strikkes med to tråder, Bruker jeg to nøster omgangen, en tråd fra hvert nøste...? Hvorfor er det så stor forskjell på vekten en trenger av disse to garnene..? Hvor finner jeg størrelses tabell...?Mvh. Kari Haraldsen
05.03.2018 - 22:22Jenny wrote:
Hei! Skal armene syes sammen før de syes fast i bolen? Eller syr jeg sømmen på innsiden av armen til slutt?
23.02.2018 - 11:53DROPS Design answered:
Hei Jenny. Ved sammensying er det lett å få en pen søm dersom du først syer skuldersømmen , deretter syer ermene til ermhullet og tilsist syes ermene sammen med start nederst ved hånden - opp til under ermhullet og ned sidesømmen. Go fornøyelse :)
24.02.2018 - 23:39Anita Hansen wrote:
Ok takk. Da kommer det neste jeg lurer på. Står strikk 9 masker i rille men hvis en av dem felles blir det 8 igjen. Skal man da strikke en til så det blir 9 eller blir det 8. Synes dette er dårlig forklart. Neste omgang vlir det da 8 eller 9 som strikkes i rillen?
21.02.2018 - 22:13DROPS Design answered:
Hej igen Anita, Nu fortsætter du så med de 8 masker rille, da vil maskeantallet stemme med det som står under din størrelse i opskriften. God fornøjelse!
22.02.2018 - 08:19Anita Hansen wrote:
Jeg syns det er veldig uklart når det står strikk 8 masker i rille og fell 1 maske over disse. Hva menes konkret? Felle en etter eller den siste av de ni?
21.02.2018 - 12:33DROPS Design answered:
Hej Anita, det er en af disse 9 som skal felles. Det kan du gøre ved at strikke de 2 midterste masker sammen. God fornøjelse!
21.02.2018 - 14:28Bettina wrote:
Der må være fejl i garnmængden? Den springer fra 250 til 375 gram mellem de to største størrelser. Den sidste skulle nok være 275 gram?
19.02.2018 - 18:24DROPS Design answered:
Hej Bettina, du har helt ret og det skal vi få rettet med det samme. Tak for info! God dag! :)
20.02.2018 - 10:49Bourgraff wrote:
Bonjour vous parlez souvent d'aiguille circulaire est il possible de le faire sur aiguille droite merci
17.01.2018 - 21:23DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bourgraff, ce modèle se tricoter en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez donc également le tricoter sur aiguilles droites, mais pensez à bien conserver la bonne tension (les mailles seront plus serrées). Vous trouverez ici plus d'infos sur l'utilisation des aiguilles circulaires. Bon tricot!
18.01.2018 - 09:11