DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spring Peach

Prjónuð peysa með v-hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Air.

DROPS 186-9
DROPS Design: Mynstur ai-102
Garnflokkur C + C eða E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 20, bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 lykkjur og 14 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 47-47-53-59-65-71 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð og lykkjum er fækkað jafnt yfir í þessari umferð þannig – frá réttu:
Prjónið 6-6-6-9-9-9 lykkjur í garðaprjóni – og fækkið um 1-0-1-1-1-1 lykkjur yfir þessar, A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 1 lykkja brugðið frá réttu (brugðið frá röngu), 11-11-13-13-15-17 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið frá réttu (brugðið frá röngu), prjónið A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 6-6-6-9-9-9 lykkjur í garðaprjóni – og fækkið um 1-0-1-1-1-1 lykkju yfir þessar = 45-47-51-57-63-69 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm (mælt meðfram annarri lykkjunni í garðaprjóni við hlið á A.1) fellið af 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 39-41-45-51-57-63 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 42-44-46-47-49-51 cm – passið uppá að enda eftir síðustu umferð í mynsturteikningu, prjónið A.2 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur) yfir A.1 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 13-13-15-15-15-15 lykkjur í umferð, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir með garðaprjón eru felldar af miðju 9-9-11-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 15-16-17-20-23-26 lykkjur frá hægri hlið á prjóni (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóninum.
Haldið áfram fram og til baka yfir þær 15-16-17-20-23-26 lykkjur sem eftir eru með mynstri og 2 kantlykkjur í garðaprjóni við háls – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA = 14-15-16-19-22-25 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp alveg eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 37-39-40-42-43-45 cm.
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 19-20-22-25-28-31 lykkjur eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt, takið 1. lykkjuna yfir 2. lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 18-19-21-24-27-30 lykkjur eins og áður. Setjið 19-20-22-25-28-31 lykkjur frá hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóninum.
Fækkið nú lykkjum fyrir v-hálsmáli og jafnframt er skipt um mynsturteikningu, þ.e.a.s. þannig: Haldið áfram fram og til baka yfir 19-20-22-25-28-31 lykkjur sem eftir eru með mynstri eins og áður með 2 lykkjur garðaprjón við miðju að framan – þegar prjónuð er 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-5-5 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 1 sinni = 14-15-16-19-22-25 lykkjur í umferð – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 42-44-46-47-49-51 cm – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu, prjónið A.2 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur) yfir A.1 til loka. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Fellið síðan laust af.
Prjónið áfram yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og á vinstri hlið, en spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Setjið lykkju sem felld var af við miðju að framan á vinstri prjón og prjónið þá lykkju slétt saman við næstu lykkju á vinstri prjón (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist "hak" neðst á v-hálsmálinu), prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli eins og í vinstri hlið. A.1 er skipt út með A.2 eins og í vinstri hlið.

ERMI:
Fitjið upp 17-17-20-20-20-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hið) á hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan 6 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 31-31-37-37-37-43 lykkjur (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 33-35-37-39-41-43 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 10-11-11-12-12-12 lykkjur brugðið (slétt frá röngu), A.1 (= 11-11-13-13-15-17 lykkjur), 10-11-11-12-12-12 lykkjur brugðið (slétt frá röngu) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 16-16-15-14-13-12 cm millibili alls 3 sinnum = 39-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 51-50-49-47-45-43 cm
(styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í - saumið í ystu 2 cm í hvorri hlið á ermi þannig að ermin passi í handveg, saumið síðan sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Spring Peach

Laura, Germany

Spring Peach

Emilie, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Eva Pap De Pesteny wrote:

I beskrivningen står C + C vilket borde betyda att man stickar med 2 härvor garn tillsammans. Stämmer verkligen garnåtgång 300 g för stlk S, eller betyder det 600 g?

12.10.2022 - 14:30

DROPS Design answered:

Hej Eva, ja hvis du strikker i DROPS Air og holder strikkefastheden på 10 masker på 10 cm, så stemmer det med 300 gr :)

16.12.2022 - 15:13

country flag CAROLE wrote:

Bonjour ! Pour réaliser ce modèle Spring Peach, je veux utiliser la Big Mérino au lieu de la Drops Air. Dois-je aussi tricoter ensemble 2 fils de Big Mérino ? Pour une taille XL, j'ai compter qu'il me faudrait 16 pelotes. Est-ce correct ? Merci d'avance pour votre réponse.

28.08.2022 - 20:37

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, vous pouvez effectivement remplacer 2 fils Air par 2 fils Big Merino - pensez à bien vérifier votre échantillon et à adapter la taille des aiguilles si besoin pour que les mesures soient justes. Utilisez notre convertisseur pour obtenir la nouvelle quantité nécessaire. Bon tricot!

29.08.2022 - 09:00

country flag Vero wrote:

Serait il possible d avoir les explications de ce modèle ou des autres(même style) afin de le réaliser avec des aiguilles "normales" et non circulaires svp ? Merci

28.04.2022 - 21:26

DROPS Design answered:

Bonjour Vero, on utilise ici des aiguilles circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez par conséquent utiliser des aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées (attention à votre tension). Découvrez ici - pour une prochaine fois - comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

29.04.2022 - 08:23

country flag Jenny wrote:

Ich habe den Pulli in Größe S rund gestrickt. Trotz das die Maschenprobe stimmt habe ich mit den angegebenen 300g locker ein Knäuel zu wenig. Nun hoffe ich, dass ich keinen Farbunterschied erhalten werde beim nachbestellen.

24.03.2022 - 20:50

country flag Ejongenburger wrote:

Vraag ik wil dit patroon maken van katia alaska maat xl hoeveel heb ik nodig?

15.10.2020 - 22:05

country flag Ejongenburger wrote:

Vraag

15.10.2020 - 22:02

country flag E Jongenburger wrote:

Ik wil dit patroon maken van katia alaska hoeveel kluwen heb ik nodig

15.10.2020 - 22:01

country flag E Jongenburger wrote:

Dit patroon maken van katia alaska.Hoeveen kluwen heb ik nodig?

15.10.2020 - 21:59

country flag Katharina Faust wrote:

Um die einzelnen Teile zusammenzunähen, wird der Faden, so wie beim Stricken, doppelt genommen oder reicht es hier mit einem einfachen Faden zu arbeiten? Vielen Dank.

02.12.2019 - 11:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Faust, es könnte etwas zu dick mit 2 Fäden zusammenzunähen, versuchen Sie mit nur 1 Faden. Viel Spaß beim fertigstellen!

02.12.2019 - 13:24

country flag Maria Steinsvik wrote:

Det må være noe feil i oppskriften. På str S får man to masker for lite dersom man skal felle 1 m etter de seks første m og de seks siste m på første p etter vrangbord. (6+1+11+1+11+1+11+1+6=49 m FØR felling, og ikke 47 som det står i oppskriften), Deretter står det jo at man skal fortsette mønsteret slik, dvs at det felles to flere masker enn det økes. Jeg har rekt opp noen ganger her nå...

20.09.2019 - 18:20