Segovia |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með öldumynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Air eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 188-4 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem á að fækka yfir (t.d. 41 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 5,9. Í þessu dæmi þá er prjónuð ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er hvort stykki prjónað fyrir sig, fram og til baka niður að handvegi, síðan eru stykkin sett saman á hringprjón og prjónað er í hring. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón. FRAMSTYKKI: Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, aukið er út og lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli og stykkið er sett saman. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 18-19-20-22-24-26 lykkjur með 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk á hringprjón 10. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig – frá réttu: Prjónið mynsturteikningu A.1 (= 1 lykkja), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu) og 1 lykkja í garðaprjóni – lesið MYNSTUR að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.1 er lokið á hæðina. Nú eru 23-24-25-27-29-31 lykkjur í umferð. Setjið lykkjurnar á þráð, eða látið þær bíða á prjóni. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 18-19-20-22-24-26 lykkjur með 2 þráðum Air á hringprjón 10. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur) og A.2 (= 1 lykkja). Þegar A.2 er lokið á hæðina eru 26-29-30-34-38-42 lykkjur í umferð. FRAMSTYKKI: Setjið 23-24-25-27-29-31 lykkjur af vinstri öxl á sama hringprjón og hægri öxl = 49-53-55-61-67-73 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið nú þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur) alls 3 sinnum á breidd, 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu) og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá miðju A.3) eru fitjaðar upp 2-2-3-2-2-2 lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 53-57-61-65-71-77 lykkjur. Geymið stykki og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, aukið út og fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli og stykkið er sett saman. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 18-19-20-22-24-26 lykkjur með 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk á hringprjón 10. Prjónið 1 umferð slétt frá röng, síðan 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið mynsturteikningu A.6 (= 1 lykkja), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu) og 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.6 er lokið á hæðina. Nú eru 19-20-21-23-25-27 lykkjur í umferð. Setjið lykkjur á þráð, eða látið þær bíða á prjóni. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 18-19-20-22-24-26 lykkjur með 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk á hringprjón 10. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur) og A.7 (= 1 lykkja). Þegar A.7 er lokið á hæðina eru 30-33-34-38-42-46 lykkjur í umferð. BAKSTYKKI: Setjið 19-20-21-23-25-27 lykkjur frá hægri öxl á sama hringprjón og vinstri öxl = 49-53-55-61-67-73 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni,1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur) alls 3 sinnum á breidd, 1-0-1-1-1-1 lykkja brugðið (slétt frá röngu) og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp 2-2-3-2-2-2 lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 53-57-61-65-71-77 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið allar lykkjur á sama hringprjón (án þess að prjóna þær) = 106-114-122-130-142-154 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Umferðin byrjar í hlið. Haldið áfram með mynstur eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið mynstur þannig: 4-3-5-4-4-4 lykkjur brugðið, A.4 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), A.5 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), A.4 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), 8-6-10-8-8-8 lykkjur brugðið, A.4 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), A.5 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), A.4 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur) og 4-3-5-4-4-4 lykkjur brugðið. Þegar mynsturteikning er lokið á hæðina eru 132-140-148-156-168-180 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fitjið upp 35-37-39-39-43-45 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk á hringprjón 10. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 9-9-10-9-10-10 lykkjur brugðið (slétt frá röngu), A.3 (= 15-17-17-19-21-23 lykkjur), 9-9-10-9-10-10 lykkjur brugðið (slétt frá röngu) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 11-11-10-7-7-6 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum. Þegar útaukning hefur verið gerð eru 41-43-45-47-51-53 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 34-33-32-31-29-27 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-9-11-5-9-11 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 34-34-34-42-42-42 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið 1 umferð þar sem lykkjur (innan við kantlykkjur) eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18-18-18-22-22-22. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hægri axlasaum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsi er prjónaður fram og til baka á hringprjón. Prjónið upp frá réttu ca 50-50-50-54-54-58 lykkjur meðfram hálsmáli með 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið vinstri axlasaum og upp kant á hálsmáli (innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni). Saumið ermar í og saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Anna Auriemma wrote:
Buonasera io ho provato a seguire l'ho schema ma non viene il punto pavone come nel modello grazie
21.11.2021 - 18:59DROPS Design answered:
Buonasera, i diagrammi si leggono da destra a sinistra e dall'alto in basso: in quale punto ha riscontrato difficoltà? Buon lavoro!
21.11.2021 - 21:51Ginny wrote:
Question: (for M size) in the sleeve decreases before the ribbing you re supposed to k2together all stitches and 18 stitches are left.... How? Since from the previous dec row 34 are left... 34/2=17. Plus, there's a note that you should start the decreases after and before the edge stitches, so that leaves us with 32 to k2together. I should have 16 stitches at the end. What am I missing?
05.03.2018 - 00:39DROPS Design answered:
Dear Ginny, you will work 1 edge st, (K2 tog a total of 16 times), 1 edge st = 18 sts remain. Happy knitting!
05.03.2018 - 09:24Sanne Bøhvad wrote:
Er mønsterrappoerterne kun vist fra retsiden ?
21.02.2018 - 16:51DROPS Design answered:
Hej Sanne, du ser diagrammerne fra retsiden, men hver 2. pind strikkes fra retsiden og hver 2. fra vrangen. Sørg for at få mønsterpinden fra retsiden. God fornøjelse!
22.02.2018 - 08:33Ludmila wrote:
Will it also be in Czech? :-)
20.01.2018 - 21:09Doris wrote:
Das Wellenmuster mit der Air. Genial, sieht super aus und wird nicht so schwer. Bitte die Anleitung veröffentlichen!
19.12.2017 - 08:07