Hello Yellow |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum, gatamynstri, laskalínu og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 187-4 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugði'*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki eru prjónuð í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Cotton Merino. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð (umferðin byrjar við miðju að aftan) þannig: Prjónið 17-18-19-21-22-24 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING (= hálft bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum (= 12 lykkjur fleiri = ermi), 34-36-38-42-44-48 lykkjur og aukið út um 3-1-3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið frá *-* alls 12 sinnum (= 12 lykkjur fleiri = ermi) og endið með 17-18-19-21-22-24 lykkjur slétt og aukið út um 2-0-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 122-122-130-134-142-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, allur uppsláttur er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu í næstu umferð þannig: Prjónið 15-15-19-19-19-23 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= hálft bakstykki = 1 lykkja fleiri), A.1a (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 18-18-14-16-20-16 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), A.2a (= 6 lykkjur) (= ermi), A.3a (= 6 lykkjur), útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu), A.4a (= 4 lykkjur) yfir næstu 4-4-8-8-8-12 lykkjur, A.4b (= 4 lykkjur), A.5 (= 3 lykkjur = miðja á framstykki), A.6a (= 4 lykkjur), endurtakið A.6b (= 4 lykkjur) yfir næstu 4-4-8-8-8-12 lykkjur, A.7a (= 6 lykkjur, útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu) (= framstykki), A.1a yfir næstu 6 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 18-18-14-16-20-16 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), A.2a yfir næstu 6 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri) og endið með 16-16-20-20-20-24 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) (= 2 lykkjur fleiri í hverri mynstureiningu A.1a og A.2a = 8 lykkjur fleiri). Fyrir laskalínu hefur verið aukið út: 2 lykkjur á hvorri ermi og bakstykki og 1 lykkja í A.3a og A.7a (= framstykki) = 8 lykkjur útauknar í laskalínu = alls 16 lykkjur útauknar í umferð) = 138-138-146-150-158-166 lykkjur. Útaukni uppslátturinn hvoru megin við A.1 og A.2 er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið nú áfram fyrir laskalínu JAFNFRAMT er mynstur prjónað, lesið báða kaflana áður en prjónað er áfram: MYNSTUR: Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b yfir A.1a og A.2b yfir A.2a. Mynsturteikning A.1b og A.2b er endurtekið á hæðina. Gataumferð í A.3a, A.4, A.6 og A.7a færast til við miðju að framan og mætast í mynsturteikningu A.5 (= miðja að framan) þar sem þeim fækkar, þ.e.a.s. það verða færri og færri gataumferðir jafnóðum sem fækkar í A.5. Mynsturteikning A.4 til A.6 eru endurteknar á hæðina. Þ.e.a.s. það verðu 1 lykkju færri í hverri mynstureiningu af A.4a og A.6b á breiddina í hvert skipti sem A.4 og A.6 er endurtekið á hæðina. Þegar A.3a og A.7a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b yfir A.3a og A.7b yfir A.7a. Gataumferðin fækkar í A.5 eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og mynstri eins og áður. Þegar öllum gataumferðum er lokin og þær horfið er prjónað garðaprjón yfir lykkjur í A.3, A.5 og A.7. LASKALÍNA: Aukið nú út fyrir laskalínu þannig: ATH: Fyrstu 12 útauknings umferðir fyrir laskalínu eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.3a og A.7a á framstykki, en aukið er út á hvorri ermi og á bakstykki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 og A.2 (= 2 lykkjur fleiri á bakstykki, 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi, 1 lykkja fleiri í A.3a og 1 lykkja fleiri í A.7a = alls 8 lykkjur útauknar). Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar slétt, svo að það myndist gat. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 21-25-27-30-33-36 sinnum (fyrsta útaukningin er útskýrð að ofan. Þegar aukið hefur verið út alls 12 útauknings umferðir hefur A.3a og A.7a verið prjónað 1 sinni á hæðina, útaukning fyrir laskalínu er ekki lengur teiknuð inn í mynsturteikningu, en haldið áfram að auka út eins og á bakstykki = alls 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð). Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 298-330-354-382-414-446 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1c yfir A.1b og A.2c yfir A.2b (athugið hvaða umferð sé byrjað á miðað við mynstur, þ.e.a.s. kaðall heldur áfram eins og áður og gataumferðin er prjónuð hvoru megin við hvern kaðal). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 20-23-24-27-29-31 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir hverja mynsturteikningu A.1c og A.2c (= alls 8 lykkjur færri) = 290-322-346-374-406-438 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón yfir A.1c og A.2c. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 40-44-48-53-59-65 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 64-72-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur, prjónið 81-89-97-107-119-131 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 64-72-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur og endið með 41-45-49-54-60-66 lykkjur (= hálft bakstykki) = 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Prjónið A.6 (= 6 lykkjur) yfir miðju lykkjur í hlið undir hvorri ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki), þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar inn í mynstur og sléttprjón. Þegar gatamynstrið á framstykki hefur verið prjónað til loka er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni með A.8 undir hvorri ermi. Þegar stykkið mælist 31-30-31-30-30-30 cm (eru ca 218-230-250-266-290-314 lykkjur í umferð) frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4 og prjónaðar 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið af með 1 númeri grófari prjónum. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna. Setjið 64-72-76-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki undir ermi = 72-80-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-4.-4.-3.-2.-2. hverri umferð alls 6-8-8-8-8-8 sinnum = 60-64-68-72-76-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-14-14-11-9-7 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er prjónað þannig: Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2-1-0-2-1 lykkjur sléttprjón, * 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 0-2-1-0-2-1 lykkjur, prjónið 0-2-1-0-2-1 lykkjur sléttprjón = 70-74-79-84-88-93 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2-1-0-2-1 lykkjur sléttprjón, * 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 0-2-1-0-2-1 lykkjur, prjónið 0-2-1-0-2-1 lykkjur sléttprjón = 80-84-90-96-100-106 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2-1-0-2-1 lykkjur sléttprjón, * 8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 0-2-1-0-2-1 lykkjur, prjónið 0-2-1-0-2-1 lykkjur sléttprjón = 90-94-101-108-112-119 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist alls 34-31-31-28-26-24 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki (uppslátturinn í fyrstu umferð er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.9 hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-0-1-0-0-1 lykkju = 90-94-102-108-112-120 lykkjur. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, fellið af með sléttum lykkjum. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Ermin mælist alls 37-34-34-31-29-27 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (91)
Rouvier wrote:
J'adore !
11.12.2017 - 19:18