DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Flamenco

Prjónuð aðsniðin peysa með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.

DROPS 187-6
DROPS Design: Mynstur as-091
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-175- 175-200-225 g litur 07, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 176 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,9.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
* Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið að næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið að næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 4 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 lykkjur færri í umferð).

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
* Prjónið að fyrsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál):
Fækkið fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 5 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-188-204-224-248-268 lykkjur á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 30-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 146-158-170-186-206-222 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: * Prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 33-39-45-53-63-71 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinum. Fækkið nú um 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm = 130-142-154-170-190-206 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-23-23 cm aukið út 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm = 146-158-170-186-206-222 lykkjur. Setjið 2 ný prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 73-79-85-93-103-111 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm skiptist stykkið við nýju prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 73-79-85-93-103-111 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður og fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða = 75-81-87-95-105-113 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 25-25-27-27-29-31 lykkjur, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af miðju 15-15-17-17-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 30-33-35-39-43-46 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram yfir 30-33-35-39-43-46 lykkjur sem eftir eru með 5 lykkjur garðaprjón við hálsmál að aftan, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – lesið ÚRTAKA-2 = 29-32-34-38-42-45 lykkjur á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Fellið síðan laust af – lesið AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 73-79-85-93-103-111 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón eins og áður og fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða = 75-81-87-95-105-113 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 36-37-38-40-41-42 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 11 lykkjur í umferð, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 37-40-43-47-52-56 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið 1. lykkju yfir 2. lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 36-39-42-46-51-55 lykkjur slétt.
Setji 37-40-43-47-52-56 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 37-40-43-47-52-56 lykkjur sem eftir eru með 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-6-6-7-7 sinnum og eftir það í 4. hverri umferð alls 3-3-3-3-3-4 sinnum = 29-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Fellið síðan laust af.
Prjónið síðan yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og í vinstri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Setjið lykkju sem var felld af við miðju að framan á vinstri prjón og prjónið lykkjuna slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist “hak” neðst í v-hálsmálinu), prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 31-34-37-41-46-50 lykkjur í sléttprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir 37-40-43-47-52-56 lykkjur með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan, sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-9-9-10-11 sinnum = 29-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 6 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 35-37-39-42-44-46 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 35-37-39-42-44-46 lykkjur (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju) = 70-74-78-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat. Þegar stykkið mælist 9 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með 5½-5½-4½-4-3½-3 cm millibili alls 8-8-9-10-10-11 sinnum = 54-58-60-64-68-70 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 50-50-49-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.01.2022
ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 6 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 35-37-39-42-44-46 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.03.2024
Efnismagn hefur verið leiðrétt í stærð M, L, XXL og XXXL. Uppskriftin hefur verið yfirfærð og leiðrétti, leiðrétting í V-hálsmáli.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Mireille wrote:

Bonjour, j’aimerai faire ce pull, j’aime beaucoup ce grand décolleté mais plusieurs personnes se sont retrouvés avec un col trop étroit. Cela a t-il été corrigé dans les instructions ?

09.05.2024 - 07:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, la dernière correction faite date de mars 2024, et concerne les tailles M à XXXL - si vous avez imprimé les explications auparavant; n'hésitez pas à les imprimer à nouveau. Bon tricot!

10.05.2024 - 08:22

country flag Laubeova Kristyna wrote:

This sweater is definitely not what’s on picture. V- neck is much higher !

19.11.2023 - 17:12

country flag Karin Almström wrote:

Hej, fick svar att det stämmer med 125 g till Flamenco i Stl S men det är ju ORIMLIGT! skulle alltså 5 garnnystan räcka till en långärmad tröja? Ringde två slumpmässigt utvalda återförsäljare och frågade om åtgång till en långärmad V-ringad tröja i stl S och fick svaret av båda 8-9 nystan. Vad gäller?

10.11.2023 - 11:57

country flag Karin Almström wrote:

Hej, stämmer verkligen den angivna garnåtgången 125 g för flamenco i storlek S?

06.11.2023 - 11:43

DROPS Design answered:

Hej Karin, ja det stemmer :)

09.11.2023 - 15:05

country flag Sophia wrote:

Picture shows nothing like garter stich. Your descriptions are becoming very lousy, I can\'t trust them anymore.

14.01.2023 - 23:30

country flag Irene wrote:

Bij de rechterkant van het voorpand moet ik een afgekante steek midden voor op de linkernaald zetten. Hoe werkt dat? Ik kan er niets over vinden. Bij voorbaat dank voor jullie reactie!

27.06.2022 - 12:08

DROPS Design answered:

Dag Irene,

Het is de bedoeling dat je de afgekante steek (dus de afgekante steek die gelijk naast de eerste steek van de eerste steek op de linker naald zit) op de linker naald zet en deze gelijk samen breit met de eerste steek.

12.07.2022 - 21:25

country flag Gitte Meisner wrote:

Hej Jeg bøvler med ærmet på denne. Kan det passe at der skal slås 38 masker op til ærmer. Det passer jo ikke med rib 2 ret/2 vrang. Kan slet ikke få det til at passe…

08.01.2022 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Gitte, det har du ret i, det skal slåes 40 masker op i de 2 største størrelser og der skal kun tages 4 og 6 masker ud i de 2 størrelser - tak for info :)

13.01.2022 - 12:24

country flag Barbara wrote:

It’s a nice sweater, however, the knitted piece looks completely different than the picture. It’s see through (the pictured sweater looks like it was knit with 2 strands), the neckline is a lot higher and the amount of yarn used is also more (I had to order 2 extra balls of yarn to finish it, which I found very annoying since I always have almost a whole ball left when I follow your patterns). Maybe this pattern should be checked and corrected if I’m not the only one who noticed these.

02.12.2021 - 12:42

country flag Chiki wrote:

Hallo, klopt het dat het patroon met 1 draad gebreid wordt. Op de foto lijkt het dicht gebreid. Bij mij is het met naald 5,5 te doorzichtig ondanks dat ik strak brei. Hoe kan ik het breien dat je er niet doorheen kan kijken. Ik hoor het graag.\r\nGroet, Chiki

12.09.2021 - 01:41

country flag Ida wrote:

Hei. Jeg sliter litt med denne oppskriften, og har noen spørsmål. Har kjøpt angitt garn og strikkepinner i 5,5 lengde 80 cm. Men når jeg legger opp antall masker, går det ikke opp til endene av pinnene. Er det ok å bruke 60 cm? Skal den strikkes i enkelt eller dobbelt garn?

06.08.2021 - 19:09

DROPS Design answered:

Hei Ida, Ja, du kan bruke 60 cm pinner. Hele plagget er strikket med enkelt garn. God fornøyelse!

09.08.2021 - 09:58