Love Story |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 188-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Þegar byrjað er á gatamynstri kemur stykkið til með að bylgjast í neðri kanti. Öll mál á lengdina er gerð þar sem boginn er minnstur. ÚRTAKA-1 (á við um pilsið á kjólnum): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 22,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 21. og 22. hver lykkja og 22. og 23. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á kjól og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út hvoru megin við prjónamerki í hliðum á kjól og hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að opi við miðju að framan, síðan er stykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Eftir úrtöku fyrir handveg er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. Ermar er prjónaðar í hring á stuttan hringprjón neðan frá og upp, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KJÓLL: Fitjið aðeins laust upp 247-266-285-323-342-380 lykkjur á hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 (= 13-14-15-17-18-20 mynstureiningar með 19 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Í umferð merktir með ör-1 í A.1 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri til að mynstrið gangi jafnt upp. Í umferð merktri með ör-2 í A.1 færist byrjun á umferð um 1 lykkju til vinstri. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 156-168-180-204-216-240 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 28 cm – lesið MÆLING, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 18-21-24-30-32-38 lykkjur, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 42-42-42-42-44-44 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 36-42-48-60-64-76 lykkjur og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 42-42-42-42-44-44 lykkjur. Nú eru 18-21-24-30-32-38 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-5½-5½-6-6 cm millibili alls 7-7-6-6-6-6 sinnum við hvert prjónamerki = 128-140-156-180-192-216 lykkjur. Fjarlægið öll prjónamerki. Þegar stykkið mælist 59-60-61-62-63-64 cm (nú hefur öll úrtaka verið gerð til loka) prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-8-0-4 lykkjur jafnt yfir = 128-140-156-172-192-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið), setjið 1 prjónamerki á eftir 32-35-39-43-48-53 lykkjur (= miðja að framan) og 1 prjónamerki á eftir 32-35-39-43-48-53 lykkjur (= í hlið), nú eru 64-70-78-86-96-106 lykkjur á milli prjónamerkja og bakstykki. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Klippið frá. Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjón frá prjónamerki við miðju að framan. Byrjið fyrstu umferð frá réttu við prjónamerki við miðju að framan og prjónið þannig: A.3B (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), 40-46-50-58-64-74 lykkjur sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 40-46-50-58-64-74 lykkja), prjónið A.3A (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), A.3B (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), 40-46-50-58-64-74 lykkjur sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 40-46-50-58-64-74 lykkja) og endið með A.3A (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá skiptingu = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 6-6-7-9-11-13 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni eru felldar af 6-6-8-12-16-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3-3-4-6-8-10 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Framstykkin og bakstykki er nú prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): = 31-34-37-39-42-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með A.3A við miðju að framan, sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Nú þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 29-31-32-33-34-34 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.3A við miðju að framan þar til stykkið mælist ca 84-87-90-93-96-99 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og stillið af þannig að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina ef það er mögulegt). Setjið fyrstu 7-8-8-9-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, en til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 31-34-37-39-42-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.3B við miðju að framan (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Nú þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 29-31-32-33-34-34 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3B við miðju að framan, sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist ca 84-87-90-93-96-99 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og endið í sömu umferð í A.3 eins og vinstra framstykki). Setjið fyrstu 7-8-8-9-10-10 lykkjur af þræði fyrir hálsmáli, en til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: = 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, sléttprjón og A.3A/A.3B við miðju að aftan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 58-62-64-66-68-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3A/A.3B við miðju að aftan, sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg þar til stykkið mælist 88-91-94-97-100-103 cm. Fellið nú af miðju 26-28-28-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður yfir axlalykkjur og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsi = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið aðeins laust upp 76-76-76-95-95-95 lykkjur á stuttan hringprjón 5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Prjónið síðan A.4 (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 19 lykkjum). ATH: Í umferð merktri með ör-3 í A.4 færist byrjun á umferð til um 2 lykkjur til vinstri til að mynstrið gangi jafnt upp. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 48-48-48-60-60-60 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20 cm – munið eftir MÆLING. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-2-12-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.2. Eftir A.2 er skipt til baka yfir á sokkaprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 25-25-25-26-26-26 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið út alls 7-9-9-11-12-14 sinnum í S: Í 4. hverri umferð, í M og L: Í 3. hverri umferð, í XL: Í annarri hverri umferð, í XXL: Til skiptis í hverri og annarri hverri umferð í XXXL: Í hverri umferð = 56-62-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-38-37-37-35-34 cm fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú ermakúpu fram og til baka á hringprjón, þ.e.a.s. haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-5-6-8 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð á hvorri hlið þar til stykkið mælist 45-45-45-46-46-47 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 46-46-46-47-47-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í – kantur í garðaprjóni meðfram handveg á að liggja utan á ermi (þ.e.a.s. látið kant í garðaprjóni liggja aðeins yfir kant meðfram ermakúpu). Saumið saman op við miðju að framan, neðan frá og upp þar til eftir eru ca 10 cm fyrir hálsmál (eða að óskaðri lengd) - saumið í ysta lykkjuboga á ystu lykkju svo að saumurinn verði flatur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að framan og prjónið upp frá réttu ca 72 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði Paris ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Festið litla tréperlu í hvorn enda á snúrunni. Gerið 2 skúfa og saumið niður einn skúf á hvorn enda á snúrunni, undir tréperlunni í hvorri hlið. 1 skúfur = Klippið 12 þræði Paris ca 11 cm. Klippið 1 þráð ca 25 cm til að sauma skúfinn með og leggið þennan þráð mitt í 12 þræðina. Leggið þræðina saman tvöfalda og hnýtið með nýjum þræði í kringum skúfinn (ca 1 cm frá toppi), festið vel og saumið skúfinn við snúruna eins og útskýrt er að ofan. Gerið hinn skúfinn alveg eins. Leggið snúruna með skúfunum saman tvöfalda og þræðið lykkjuna í gegnum eina lykkju efst í opið framan á kjólnum, dragið snúru endana í gegnum lykkjuna. Gerið alveg eins snúru með tréperlum og skúfum og festið efst í op í hinni hliðinni. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (58)
Christina wrote:
Jeg vil gerne strikke den i to farver. Ærmerne set fra neden og op til lige over hulkanten, samt nederst på kjolen til den bølgede kant mellem “juletræerne” - disse vil jeg gerne strikke i en kontrastfarve. Kan det regnes ud?
01.06.2018 - 12:49DROPS Design answered:
Hej Christina, det har vi desværre ikke nogle regnestykker på, men den sidste farve kan jo let regnes ud, når du er klar med den første, så du kan evt vente med at købe farve nr 2. God fornøjelse!
04.06.2018 - 09:32Rahel wrote:
Liebes Drops-Team, ich bin mittlerweile beim Oberteil des Kleides, aber ich denke dass es in der Anleitung einen Fehler hat. Nach dem Muster A.2 steht dass man in hin- und rückrunden stricken soll, aber dann wäre ja der Ausschnitt viel zu lang ? Sollte man nicht erst nach dem Abketten für die Armlöcher in hin- und rückrumden stricken ? Vielen Dank fürs abklären
17.04.2018 - 21:01DROPS Design answered:
Liebe Rahel, so wird es gestrickt, dann wird es mitte vorne zusammengenäht. Viel Spaß beim stricken!
27.04.2018 - 15:12Reix wrote:
Bonjour, concernant ce modèle, je suis en train de faire A1. J\'en suis au tour avec la flèche 1 ou il faut décaler le début du tour de 2 mailles à gauche pour que le motif tombe juste. J\'ai regardée votre vidéo sur le décalage en début de rang mais je ne comprend pas trop. Si vous pouviez m\'aiguillier un peu. Merci Françoise
06.04.2018 - 12:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Reix, au rang avec la flêche 1, glissez les 2 premières mailles du tour sans les tricoter, placez votre marqueur de début de tour ici et répétez A.1 tout le tour. Au tour avec la flèche 2, glissez la 1ère m du tour sans la tricoter, déplacez le marqueur de début de tour et répétez le diagramme en largeur. Bon tricot!
06.04.2018 - 14:07Isabel Ramos wrote:
Olá! Sugiro que corrijam a receita no seguinte trecho: "VESTIDO: Tricota-se de cima para baixo, em redondo na agulha circular até à fenda do decote...". Na verdade, tricota-se de baixo para cima. Adoro todas as receitas de vocês. Obrigada.
29.03.2018 - 06:06Reix wrote:
Bonjour, pourrais je avoir les explications du modèle avec des aiguilles doubles et non circulaires. Merci
23.03.2018 - 13:52DROPS Design answered:
Bonjour Reix! Consultez notre lecon sur ce sujet ICI. Bon travail!
23.03.2018 - 15:05Reix wrote:
Bonsoir, j'aimerai savoir combien de pelotes il me faut pour tricoter le modèle DROPS 188-3 en taille 40 (L). Merci de votre réponse
20.03.2018 - 19:12DROPS Design answered:
Bonsoir, il vous faut 21 pelotes (1050 g de laine Paris). Bon tricot!
20.03.2018 - 20:23Risha T wrote:
So, I am in row 29/30 of the patter A.1 and I don't get rid of the feeling that my holes from row 29 are not symmetric to the holes from row 27. They seem to be pushed towards the right so that the second knitted hole is tilted towards the right and directly above the second hole from row 27. Shall it look like that? I recounted the stitches already and looked for mistakes, but the previous ones are symmetric. Could it be that you have to replace the beginning of row 29 also by one stitch?
17.03.2018 - 12:26DROPS Design answered:
Dear Risha T, when you are working the row with the arrow in A.1 you should fist displace the beg of round 2 sts to the left so that pattern fit - see written pattern. On arrow-2 you will displace beg of round 1 st to the left. Happy knitting!
19.03.2018 - 09:25Charlotte Jensen wrote:
Fik læst forkert. Selvfølgelig skal den strikkes på rundpind. Beklager. Jeg glæder mig til at komme igang.
01.02.2018 - 20:15DROPS Design answered:
Så bra. God fornøyelse, det er en lekker kjole du har valgt å strikke :)
02.02.2018 - 06:56Charlotte Jensen wrote:
Er det muligt at strikke nederdelen på rundpind istedet.
01.02.2018 - 20:12DROPS Design answered:
Hei Charlotte. Ja, den skal strikeks på nederdelen. God Fornøyelse!
02.02.2018 - 06:55Teresa wrote:
Zrobie sobie taka sukienke koniecznie
30.01.2018 - 06:09