DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cressida

Heklað poncho með gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.

DROPS 188-27
DROPS Design: Mynstur w-697
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
900-1100-1300 g litur 29, ljós ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að miðju boga.

ÚRTAKA – HEKLIÐ 2 TVÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um loftlykkjuboga að neðan, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), hoppið yfir 1 fastalykkju og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um næsta loftlykkjuboga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Fyrst er aukið út við miðju að framan, miðju að aftan og hvoru megin við hvora öxl, síðan er einungis aukið út við miðju að framan og við miðju að aftan.

PONCHO:
Heklið 156-166-166 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið 3 loftlykkjur – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 5-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 25-27-27 sinnum = 130-138-138 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun á umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Setjið nú 6 prjónamerki frá byrjun á umferð þannig (án þess að hekla): Setjið 1 prjónamerki í 1. stuðul frá umferð (þ.e.a.s. í stuðul eftir 3 loftlykkjum = miðja að aftan), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 14 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= miðja að framan), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 14 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), nú eru 24-26-26 stuðlar á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð.

HEKLIÐ A.1 ÞANNIG:
Hekli 1. umferð þannig: Heklið * A.1A í fyrsta/næsta stuðul með prjónamerki í (= miðja að framan/miðja að aftan), endurtakið A.1C alls 12-13-13 sinnum, A.1D í næsta stuðul með prjónamerki í (= útaukning á öxl), endurtakið A.1E alls 7 sinnum, A.1D í næsta stuðul með prjónamerki í (= útaukning á öxl), A.1E alls 12-13-13 sinnum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum.
Heklið 2. umferð þannig: Heklið * A.1A (= miðja að framan/miðja að aftan), A.1B, endurtakið A.1C alls 12-13-13 sinnum, A.1D (= útaukning á öxl), endurtakið A.1E alls 7 sinnum, A.1D (= útaukning á öxl), A.1E alls 12-13-13 sinnum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið svona áfram til og með umferð 6-7-8 í mynsturteikningu A.1.
Nú eru 108-128-132 lykkjur á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 216-256-264 lykkjur + 2 miðju bogar í umferð).
Stykkið mælist ca 8-9-10 cm í heklstefnu (mælt beint niður frá öxl frá uppfitjunarkanti).

UMFERÐ MEÐ STUÐLUM:
Heklið 1 umferð með stuðlum, heklið (2 stuðla, 2 loftlykkjur, 2 stuðlar) um miðju boga og jafnið JAFNFRAMT úr stuðla fjölda þannig að fækkað/aukið sé þannig: S/M – XXL/XXXL: Aukið út um 1-1 stuðul meðfram hvorri hlið á milli miðju að framan/miðju að aftan (= alls 2-2 stuðlar) – lesið ÚTAUKNING.
L/XL: Fækkið um 7 stuðla meðfram hvorri hlið á milli miðju að framan/miðju að aftan (= alls 14 stuðlar) – lesið ÚRTAKA.
Nú eru 113-125-137 lykkjur á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 226-250-274 lykkjur + miðju bogar í umferð).
ATHG: Aukið ekki núna út hvoru megin við öxl, heldur einungis við miðju að framan og miðju að aftan á stykkinu!

HEKLIÐ A.2/A.3 ÞANNIG:
Heklið * A.3A (= miðju bogi), A.3B yfir 3 stuðla, A.2 (= 12 lykkjur) alls 9-10-11 sinnum á breidd, A.3C yfir næstu 2 stuðla *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Í 9. umferð er aukið út um 12-24-36 stuðla jafnt yfir hvoru megin við A.3A (þ.e.a.s. aukið út um 24-48-72 stuðla alls í umferð) = 145-169-193 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 290-338-386 stuðlar + miðju bogar í umferð) – lesið ÚTAUKNING.
Stykkið mælist ca 19-20-21 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti.

HEKLIÐ A.4/A.5 ÞANNIG:
Heklið * A.5A (= miðju bogi), A.5B, A.4 (= 24 lykkjur alls 6-7-8 sinnum á breidd, A.5C yfir næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 2 sinnum.
Þegar A.5 er lokið á hæðina hafa verið heklaðar 19 umferðir, haldið áfram með 20. umferð þannig: Heklið * A.5D, A.5E yfir 1 stuðul, A.5F alls 7 sinnum á breidd, A.4 (= 24 lykkjur) alls 6-7-8 sinnum á breidd, A.5F alls 7 sinnum á breidd, A.5B *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.4/A.5 er lokið á hæðina eru 211-235-259 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 422-470-518 stuðlar + 2 miðju bogar í umferð).
Stykkið mælist ca 46-48-48 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti.

HEKLIÐ UMFERÐ 2 OG 3 Í A.1 ÞANNIG:
Byrjið um annan miðju boga og byrjið frá umferð 3 í mynsturteikningu.
Heklið * A.1A (= miðju bogi), endurtakið A.1C fram að næsta miðju boga (síðasta lykkjan er einungis hekluð yfir 1 lykkju í fyrstu umferð *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 4-8-10 umferðir.
Stykkið mælist ca 51-56-59 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti.

UMFERÐ MEÐ STUÐLUM:
Heklið 1 umferð með stuðlum og fækkið JAFNFRAMT um 7-5-5 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri hlið á milli miðju að framan/miðju að aftan (= alls 14-10-10 stuðlar) þannig: Heklið * (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) um miðju boga, síðan er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju fram að næsta miðju boga *, heklið frá *-* alls 2 sinnum = 209-245-269 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= 418-490-538 stuðlar + 2 miðju bogar í umferð). Klippið frá.

HEKLIÐ A.2/A.3 ÞANNIG:
Heklið * A.3A (= miðju bogi), A.3B yfir 3 stuðla, A.2 (= 12 lykkjur) alls 17-20-22 sinnum á breidd, A.3C yfir næstu 2 stuðla *, heklið frá *-* alls 2 sinnum.
Þegar A.2/A.3 er lokið á hæðina eru 229-265-289 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og miðju að aftan (= 458-530-578 stuðlar + 2 miðju bogar í umferð). Stykkið mælist ca 62-67-70 cm í heklstefnu frá uppfitjunarkanti.

KANTUR:
Heklið kant í lokin í kringum allt stykkið þannig: 1 keðjulykkja í fyrstu lykkju, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í keðjulykkju frá byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting undir PONCHO: Setjið nú 6 prjónamerki frá byrjun á umferð þannig (án þess að hekla): Setjið 1 prjónamerki í 1. stuðul frá umferð (þ.e.a.s. í stuðul eftir 3 loftlykkjum = miðja að aftan), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 14 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= miðja að framan), hoppið yfir 24-26-26 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), hoppið yfir 14 stuðla, setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul (= öxl), nú eru 24-26-26 stuðlar á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð.

HEKLIÐ A.1 ÞANNIG:
Hekli 1. Umferð þannig: Heklið * A.1A í fyrsta/næsta stuðul með prjónamerki í (= miðja að framan/miðja að aftan), endurtakið A.1C alls 12-13-13 sinnum, A.1D í næsta stuðul með prjónamerki í (= útaukning á öxl), endurtakið A.1E alls 7 sinnum, A.1D í næsta stuðul með prjónamerki í (= útaukning á öxl), A.1E alls 12-13-13 sinnum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum.
Heklið 2. umferð þannig: Heklið * A.1A (= miðja að framan/miðja að aftan), A.1B, endurtakið A.1C alls 12-13-13 sinnum, A.1D (= útaukning á öxl), endurtakið A.1E alls 7 sinnum, A.1D (= útaukning á öxl), A.1E alls 12-13-13 sinnum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið svona áfram til og með umferð 6-7-8 í mynsturteikningu A.1.
Nú eru 108-128-132 lykkjur á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 216-256-264 lykkjur + 2 miðju bogar í umferð).
Stykkið mælist ca 8-9-10 cm í heklstefnu (mælt beint niður frá öxl frá uppfitjunarkanti).

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 7 loftlykkjur
symbols = 8 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið 3 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í hvern og einn af 2 næstu stuðlum alveg eins, dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni.
symbols = byrjið hér = 1 umferð
symbols = þessi umferð er nú þegar hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Cressida

Lisa, Norway

Cressida

Sheila, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Stefania Hagen wrote:

Grazie intanto per questo immenso regalo che fornite a noi "amanti dei lavori manuali" Volevo poi sottoporvi un dubbio che mi è venuto alla ruga 16 dello schema A.5C. Mi pare di notare (terzo simbolo dell'inizio riga) una doppia catenella che manca nella sua parte speculare (fine di A.5B). Ho deciso di NON metterla, cioè di prendere come buona la riga 16 dello schema A.5B. Ma se è un errore nel modello, forse vale la pena correggerlo. Grazie ancora e glad hækling ♥️

07.02.2024 - 17:22

DROPS Design answered:

Buonasera Stefania, abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design. Buon lavoro!

17.03.2024 - 20:50

country flag Lisa wrote:

Hei, jeg tror det er en skrivefeil under A.4/A.5 for størrelse L. Det står at du skal ha 235 staver mellom luftmaskebuene, men når jeg kom til det partiet i oppskriften hadde jeg 225 staver i mellom luftmaskebuene. Jeg tror ikke jeg har heklet feil i forkant av dette. Jeg ville satt stor pris på om dere rett opp i feilen.

18.08.2023 - 23:16

DROPS Design answered:

Hei Lisa. Takk for din tilbakemeldig. Oppskriften er videresend til design avd. slik at de kan dobbeltsjekke/regne. Kommer det en rettelse, vil det vises i oppskriften (rød link). mvh DROPS Design

21.08.2023 - 11:09

country flag Lisa wrote:

Hei, jeg tror det er en skrivefeil under A.4/A.5 for størrelse L. Det står at du skal ha 235 staver mellom luftmaskebuene, men når jeg kom til det partiet i oppskriften hadde jeg 225 staver i mellom luftmaskebuene. Jeg tror ikke jeg har heklet feil i forkant av dette.

18.08.2023 - 23:12

country flag Emily wrote:

Hi! I’ve been trying to do the size small for this pattern but I’m having a count issue when I get to the end of A.1. It says there should be 108 stitches from each end but I keep ending up with 112! I’ve pulled out and counted before this point with no issues and I’ve redone it twice to make sure Im doing it correctly. I’m not quite sure what I’m doing wrong. Any ideas of what might be causing the count issue?

03.06.2023 - 01:45

country flag Donnell Boyd wrote:

I have completed Row 1 and Row 2. Does "Continue to and with 6th-7th-8th round in diagram A.1." Does the 6th-7th-8th round pertain to size (S/M - L/XL - XXL/XXXL), or do I complete all 8 rounds in diagram A.1 no matter what size I'm making? Also, do I work Row 3 through 8 like this: A1A (mid-back), A1B, A1C, (to 1st shoulder marker)A1D, A1E, A1D (2nd shoulder marker), A1E, A1F (to mid front) then repeat?

17.12.2022 - 16:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Boyd, yes correct, you will work the 6th round in S/M, the 7th round in L/XL and the 8th round in larger size. And correct, work row 3 to 6-7-8 with diagrams as described, ie as explained on 2nd round. Happy crocheting!

19.12.2022 - 10:38

country flag Mme Marechal wrote:

Bonjour je suis au 9eme rang tours de brides en taille L je ne comprends pas 14 brides entre l arceau et l epaule

04.10.2022 - 12:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Maréchal, parlez-vous du paragraphe TOURS EN BRIDES:? Si tel est bien le cas, vous devez crocheter en brides comme indiqué, mais en même temps, diminuer 7 brides le long de chaque côté, autrement dit, crochetez 7 fois 2 brides écoulées ensemble entre l'arceau du milieu dos et celui du milieu devant et 7 fois 2 brides écoulées ensemble entre l'arceau du milieu devant et celui du milieu dos (= vous diminuez 14 brides au total sur ce tour). Cette leçon pourra vous aider à répartir vos diminutions. Bon crochet!

04.10.2022 - 13:28

country flag Joy wrote:

Hej Jeg er i gang med at hækle cressida og har den store udfordring, at jeg ikke ved hvilken stangmaske i A.1A jeg skal erstatte med de tre luftmasker, når jeg er nået til en ny omgang. Er det den første stangmaske i A1A ? Det ser bare meget underlig ud 😉

09.08.2022 - 20:52

DROPS Design answered:

Hej Joy, ja det stemmer, det er første stangmaske som erstattes af 3 luftmasker :)

10.08.2022 - 08:07

country flag Jenny wrote:

This section... WORK A.2/A.3 AS FOLLOWS - I cannot get the stitch count to match. The 9th round should be for XXXL size and says to increase by 36 stitches evenly between the mid-front and mid-back. I've confirmed the 137 stitches prior to starting, so I should be increasing by 36 stitches. However, that equals 173 stitches, the pattern states 193 stitches? Please advise which is right, as I am currently out. Thanks Jenny

25.04.2022 - 15:06

DROPS Design answered:

Dear Jenny, you need to also include the increases in diagrams A.3B and A.3C; this way you obtain the 193 stitches. Happy crocheting!

25.04.2022 - 21:43

country flag Gwennie Campbell wrote:

Hi, In the instructions you state after crocheting A4 and A5 I should have 235 double crochet and 2 chain spaces for size L/XL. Shouldn't it say 225 double crochet between chain spaces and 450 in total? I don't see anywhere that I should increase. A5E has 7, A5F has 3x7=21, A4 has 24x7=168, A5F has 3×7=21 and A5G has 8. Added together is 225. Did I miss something?

19.03.2022 - 02:12

country flag Suzanne wrote:

Hoi! Supermooie poncho! Ik ben er aan begonnen en liep ook vast bij het plaatsen van de markers. In de beschrijving mist er volgens mij echt een stap. Als dit symmetrisch moet worden, zou ik ook 26 stokjes overslaan verwachten van mid front naar shoulder. Nu staan er 14 (in de XXL versie). In het antwoord op een mevrouw op 22.19.2019 staat het anders die hou ik nu aan. Hoop dat dat klopt :-)

16.03.2022 - 16:37