Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= litur rústrauður | |
= litur kórall | |
= litur natur | |
= í þessari umferð er hekluð gataumferð til að þræða snúruna í gegn – sjá útskýringu í uppskrift |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Hush Hush |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Paris með litamynstri og skúfum, hekluð í hring frá miðju á botni og upp úr.
DROPS 186-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. LITAMYNSTUR: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum. Þegar heklað er með mörgum litum í umferð með stuðlum er heklað þannig: Heklið síðasta stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn á þeim lit sem ekki er heklað með látinn liggja yfir lykkjur frá fyrri umferð og heklað er utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og sé alltaf til taks, þráðurinn fær nú að fylgja með hringinn. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. 1 rúða = 1 stuðull ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju á botni og upp. TASKA: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum kórall og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan stuðla og mynstur í hring þannig: * A.1, A.2 *, heklið *-* 6 sinnum í umferð – Lesið LITAMYNSTUR og HEKLLEIÐBEININGAR: UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-8: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 96 stuðlar. UMFERÐ 9: Haldið áfram að hekla í hring, en án útaukningar og heklað er eftir A.3 (= 6 mynstureiningar hringinn í umferð). Í umferð með stjörnu er hekluð gataumferð þannig: * 1 stuðull í hvern af 3 fyrstu/næstu stuðlum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Haldið áfram þar til A.3 hefur verið heklað til loka. Klippið frá og festið enda. TVINNUÐ SNÚRA OG SKÚFAR: 1 tvinnuð snúra = klippið 6 þræði í litnum natur ca 280 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna út og inn í gataumferðina á töskunni og endið með að hnýta báða endana saman í einn stóran hnút. Gerið 2 stóra skúfa fyrir skraut með litnum natur þannig: 1 skúfur = klippið 50 þræði í litnum natur ca 14 cm. Klippið einn þráð 20 cm, hnýtið hnút utan um miðju á 50 þráðunum. Leggið þræðina saman í tvennt við hnútinn, vefjið þræði 4 sinnum hringinn ca 1,5 cm niður af brotinu og hnýtið hnút. Klippið frá þannig að skúfurinn verði jafn neðst. Gerið annan skúf alveg eins. Heklið nú skúfana saman með 2 þráðum í litnum natur þannig: Festið endann með einni keðjulykkju um bandið efst á einum af skúfunum, heklið 24 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju um þráðinn efst á hinum skúfnum. Festið endana á hvorum skúf. Deilið tvinnuðu snúrunni í tvennt þannig að hægt verið að draga annan skúfinn í gegn. Skúfarnir eru nú festir með því að loftlykkjur á milli skúfa liggja klemmdar í tvinnuðu snúrunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (25)
Murielle Mage wrote:
Bonjour, je fais ce sac avec le coton Paris et crochet n°3 mais le fond forme un bol. Mon nombre de mailles correspond bien .. je ne peux pas augmenter mes augmentations sans etre en décalage avec le corp du sac est-ce mon crochet qui est trop petit ??? \r\nQue dois-je faire ? \r\nMerci
11.04.2024 - 23:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Mage, attention à votre tension en largeur mais aussi en hauteur, veillez à bien avoir les 20 brides et 11 rangs = 10 x 10 cm non seulement lors de l'échantillon mais également quand vous crochetez le fond. Essayez de ne pas trop tirer vos brides en hauteur si besoin. Bon crochet!
12.04.2024 - 08:24Anette wrote:
Hej Jag virkar en väska i flerfärgvirkning, virkar runt. Hur får jag ett fint avslut där varvet börjar och slutar? Tack Anette❤
07.02.2024 - 18:32DROPS Design answered:
Hei Anette. Når du avslutter med 1 kjedemaske i 3. luftmaske drar du ut tråden og da kan du prøve å sy enden slik at den legger seg pent over 1. stav (toppen av staven) på begynnelsen av omgangen (pass på at den ikke er for løs eller for stam), og deretter festes tråden på baksiden av vesken. mvh DROPS Design
16.02.2024 - 09:38Valéria wrote:
Azt hiszem, hogy a fonal mennyisége és száma össze lett cserélve: -17 gramm a 100 sz. törtfehér színből Köszönöm a javítást! :)
25.07.2023 - 09:06Linda wrote:
Dankjewel voor dit prachtig patroon
27.09.2021 - 15:07Nathalie wrote:
Bonjour, Merci pour ce modèle. Je le trouve très agréable à faire. Cependant, je suis arrivée au rang ajouré et je ne trouve pas les explications. Peut-être ai-je mal vu mais je trouve pas les explications pour ce rang. Pouvez-vous m'aider ?
12.07.2021 - 23:16DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, le rang ajouré se crochète ainsi: *1 bride dans chacune des 3 premières brides/des 3 brides suivantes, 1 maille en l'air, sautez 1 bride*, et répétez de *-* tout le tour, ainsi vous sautez chaque 4ème bride que vous remplacez par 1 maille en l'air. Bon crochet!
13.07.2021 - 07:58Chiara wrote:
I cannot find the diagram. Could you please help me?
15.03.2021 - 22:12DROPS Design answered:
Hi Chiara, Drops are having temporary problems loading images, but will be up and running again soon. The diagrams will then be at the bottom of the pattern. Happy crafting!
16.03.2021 - 08:03Angi wrote:
Hallo ich verstehe das nicht was bei runde 5-8 gemeint ist wie soll ich da Zunähmen
10.04.2020 - 13:22DROPS Design answered:
Liebe Angi, genauso wie zuvor, dh bei der 5. Runde häkeln Sie: * je 1 Stäbchen in die ersten 3 Stäbchen, 2 Stäbchen in das nächste Stäbchen *, bei der 6. Runde * je 1 Stäbchen in die ersten 4 Stäbchen, 2 Stäbchen in das nächste Stäbchen *, und so weiter, dh es ist immer 1 Stäbchen mehr zwischen 2 Stäbchen in das nächste Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!
14.04.2020 - 10:30Louise wrote:
I dont understand A1 and A2, wich one of them are the pattern being used ? Drops pattern explainatons are very very difficult, you explain just half of everything
17.02.2020 - 15:42DROPS Design answered:
Dear Louise, both diagrams are worked, ie you repeat all the round: (A.1, A.2) - Read more about crochet diagrams here. Happy knitting!
17.02.2020 - 16:00رحاب wrote:
اهلا عاوزة اتعلم
08.12.2019 - 10:33DROPS Design answered:
Hi, if you need some help, scroll down to the bottom of the page (after diagram to the bag), you will find some relevant videos to that pattern as well as some links that could be helpful. Please contact your yarn Store for any further individual assistance. Happy crocheting!
09.12.2019 - 09:12Sadiah wrote:
Hi genau, das was ich gesucht habe von der grösse her. Hättest du auch dieselbe Anleitung ohne Muster? also unifarben? die musteranleitung verwirrt mich ein bisschen:) danke für die rückmeldung.
04.10.2018 - 02:05DROPS Design answered:
Liebe Sadiah, für eine unifarbige Tasche häkeln Sie von dem Boden einfach wie in der schriflichen Anleitung (also mit der Zunahmen bis es 96 Stb gibt), dann ab 9 Runde weiter ohne Zunahmen häkeln: die 23 Reihen in A.3 (die Reihe mit den Löchern aber nicht vergessen). Viel Spaß beim häkeln!
04.10.2018 - 10:21