DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 308.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Queensland

Heklaður kjóll með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum, heklaður ofan frá og niður úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-12
DROPS Design: Mynstur e-270
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
700-750-800-900-1000-1050 g litur 05, ljós bláfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðla og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir kant á ermum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 308.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á öllum umferðum með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,9.
Í þessu dæmi er aukið út í ca 4. hverri lykkju – lesið ÚTAUKNING.
Ef fækka á lykkjum þá eru heklaðar ca 3. og 4. hver lykkja saman – lesið ÚRTAKA.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 114-118-124-128-132-136 aðeins lausar loftlykkjur með heklunál 3,5 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur (jafngildir 1 hálfum stuðli), síðan er heklaður 1 hálfur stuðull í hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð = 114-118-124-128-132-136 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 hálfum stuðli + 1 loftlykkju), hoppið yfir 1 hálfan stuðul, * heklið 1 hálfan stuðul í næsta hálfa stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 hálfan stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð = 114-118-124-128-132-136 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið síðan 1 stuðul í hvern hálfan stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju – JAFNFRAMT er aukið út um 29-25-30-26-33-29 stuðla jafnt yfir í umferð – lesið ÚRTAKA/AFFELLING og ÚTAUKNING = 143-143-154-154-165-165 stuðlar. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 hringinn (= 13-13-14-14-15-15 mynstureiningar með 11 lykkjur). Í síðustu umferð í A.1 er heklað í upphafspunkt 15 stuðla í hverja mynstureiningu, en í 5-5-6-10-7-11 mynstureiningu jafnt yfir í umferð er aukið út til 16 stuðla þannig að það verða 200-200-216-220-232-236 stuðlar í umferð. Stykkið mælist nú ca 7 cm frá uppfitjunarkanti. Síðan er berustykki heklað eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Heklið 1 stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul. Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að hekla lykkjurnar): Teljið 34-34-38-39-42-43 stuðla (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul, teljið 30 stuðla (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul, teljið 68-68-76-78-84-86 stuðla (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul, teljið 30 stuðla (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul. Nú eru 34-34-38-39-42-43 stuðlar eftir í umferð á eftir síðasta stuðli með prjónamerki í.
Heklið síðan stuðla hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu við hvert prjónamerki þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul + 2 loftlykkjur + 1 stuðul í hvern stuðul með prjónamerki í (= 4 stuðlar fleiri í umferð) = 204-204-220-224-236-240 stuðlar í umferð.
UMFERÐ 2: Um hvern loftlykkjuboga með 2 loftlykkjum er heklaður 1 stuðull + 2 loftlykkjur + 1 stuðull (= 8 stuðlar fleiri í umferð) = 212-212-228-232-244-248 stuðlar í umferð.
Endurtakið umferð 2 þar til heklaðar hafa verið alls 9-13-15-18-20-23 umferð með útaukningu (meðtalin útaukning í 1. umferð) = 268-300-332-360-388-416 stuðlar í umferð.
Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul, en um hvern loftlykkjuboga með 2 loftlykkjum eru heklaðir 2 stuðlar (= 8 stuðlar fleiri í umferð) = 276-308-340-368-396-424 stuðlar í umferð.
Heklið síðan stuðla án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 40-44-48-53-59-65 stuðla (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð = ½ bakstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 aðeins lausar loftlykkjur, hoppið yfir 58-66-74-78-80-82 stuðla (= ermi), heklið 80-88-96-106-118-130 stuðla (= framstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 aðeins lausar loftlykkjur, hoppið yfir 58-66-74-78-80-82 stuðla (= ermi) og heklið síðustu 40-44-48-53-59-65 stuðla í umferð (= ½ bakstykki). Klippið frá.
Fram- og bakstykki og ermar er heklað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 loftlykkjur undir ermi á annarri hlið á stykki og byrjið umferð hér.
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu loftlykkju, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), síðan er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju og 1 stuðull í hvern stuðul umferðina hringinn = 176-192-212-232-260-288 stuðlar. Haldið áfram hringinn með stuðlum. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 8-8-8-10-10-10 stuðla jafnt yfir = 168-184-204-222-250-278 stuðlar – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu = 160-176-196-212-240-268 stuðlar.
Þegar stykkið mælist 12 cm frá skiptingu er aukið út um 12-12-12-14-14-14 stuðla jafnt yfir = 172-188-208-226-254-282 stuðlar.
Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu er aukið út um 12-12-12-14-14-14 stuðla jafnt yfir = 184-200-220-240-268-296 stuðlar.
Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu er aukið út um 14 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 198-214-234-254-282-310 stuðlar.
Þegar stykkið mælist 34 cm frá skiptingu er aukið út um 14 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 212-228-248-268-296-324 stuðlar.
Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm frá skiptingu (stykkið mælist nú ca 62-65-68-71-74-77 cm frá öxl) aukið út um 40-48-40-44-40-48 stuðla jafnt yfir = 252-276-288-312-336-372 stuðlar.
Heklið A.2 hringinn (= 21-23-24-26-28-31 mynstureiningar með 12 lykkjum). JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.2 er aukið út um 52-60-64-72-64-60 stuðla jafnt yfir = 304-336-352-384-400-432 stuðlar.
Heklið A.3 hringinn (= 19-21-22-24-25-27 mynstureiningar með 16 lykkjum).
Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 475-525-550-600-625-675 stuðlar í umferð. Nú er A.X heklið eins og útskýrt er í A.2 (= 2 umferðir). JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 30-28-39-25-36-34 stuðla jafnt yfir = 505-553-589-625-661-709 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð þannig: A.4A (= 6 lykkjur), heklið A.4B yfir næstu 492-540-576-612-648-696 stuðlana (= 41-45-48-51-54-58 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.4C (= 7 lykkjur). Þegar A.4 hefur verið heklað til loka er klippt frá og endi festur. Kjólinn mælist ca 92-95-98-101-104-107 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 loftlykkjur undir ermi á annarri hlið á stykki og byrjið umferð hér.
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu loftlykkju, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), síðan er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju og 1 stuðull í hvern stuðul umferðina hringinn = 66-74-84-88-92-96 stuðlar. Heklið 1 umferð með stuðlum þar sem fækkað er um 6-2-12-4-8-0 stuðla jafnt yfir = 60-72-72-84-84-96 stuðlar.
Heklið A.5 hringinn (= 5-6-6-7-7-8 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar eftir eru 3 umferðir í A.5 er skipt yfir á heklunál 3. Heklið A.5 til loka, klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 8 cm frá skiptingu.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.04.2018
KANTUR Í HÁLSI:..Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 hringinn (= 13-13-14-14-15-15 mynstureiningar með 11 lykkjur). Í síðustu umferð í A.1 er heklað í upphafspunkt 15 stuðla í hverja mynstureiningu, en í 5-5-6-10-7-11 mynstureiningu jafnt yfir í umferð er aukið út til 16 stuðla þannig að það verða 200-200-216-220-232-236 stuðlar í umferð. Stykkið mælist nú ca 7 cm frá uppfitjunarkanti. Síðan er berustykki heklað eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Heklið 1 stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul. Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að hekla lykkjurnar): Teljið 34-34-38-39-42-43 stuðla (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul, teljið 30 stuðla (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul, teljið 68-68-76-78-84-86 stuðla (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul, teljið 30 stuðla (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næsta stuðul. Nú eru 34-34-38-39-42-43 stuðlar eftir í umferð á eftir síðasta stuðul með prjónamerki í.
Heklið síðan stuðla hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu við hvert prjónamerki þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul + 2 loftlykkjur + 1 stuðul í hvern stuðul með prjónamerki í (= 4 stuðlar fleiri í umferð) = 204-204-220-224-236-240 stuðlar í umferð.
UMFERÐ 2: Um hvern loftlykkjuboga með 2 loftlykkjum er heklaður 1 stuðull + 2 loftlykkjur + 1 stuðull (= 8 stuðlar fleiri í umferð) = 212-212-228-232-244-248 stuðlar í umferð.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 7 loftlykkjur
symbols = heklið 4 stuðla um loftlykkjuboga (ekki á að hekla stuðlana saman)
symbols = heklið 2 stuðla saman í sömu lykkju þannig: Heklið 1 stuðul í lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (nú eru 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í sömu lykkju, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 3 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af 3 næstu lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á öllum þremur stuðlunum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 4 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af 4 næstu lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn á öllum fjórum stuðlunum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 1 picot: Hekli 3 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð

symbols = umferð 1 byrjar hér
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Queensland

Renata, Australia

Queensland

Mart-Mari Breedt, South Africa

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Ratna wrote:

Hi -- is there a size chart that I am missing -- finished chest size measurement of S, M, L, etc?

27.02.2023 - 04:40

DROPS Design answered:

Dear Ratna, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the measurements in the chart - that's the easiest way to find your size - read more here. Happy crocheting!

27.02.2023 - 11:11

country flag Gail wrote:

Disregard my previous query, I have gone back to row 2 of A1 and realised that I put some stitches into the incorrect space.

25.08.2022 - 03:10

country flag Gail wrote:

Neck query: Second last row of neck, my stitch count is correct - 143 stitches for second size, but I only have 11 repeats. When I do the last row of A1, I definitely do not get 200 hundred stitches. I really cannot see where I’ve gone wrong. Please help.

25.08.2022 - 02:49

DROPS Design answered:

Dear Gail, read A.1 bottom up, ie start A.1 over 11 stitches and repeat 13 times the diagram in width over the 143 sts. On the last row in A.1 you will increase to 15 sts in each A.1 x 13 repeats = 195 sts and increase evenly 5 sts on last row = 195+5=200 sts. Happy crocheting!

25.08.2022 - 09:39

country flag Mirja Eenmaa wrote:

Why do the beginning of round chain 4 stitches alternate between A4a and A4c if the pattern is crochet in round? They should all be in A4a as that is where the round begins! Right now it looks like the chart is to be read back and forth

17.08.2022 - 22:18

country flag Marie wrote:

Hej !håller på med klänningen o tycker det inte blir så snyggt med varvbyte mitt bak så undrar om ni har nåt tips eller är det bara o gilla läget ?

28.07.2022 - 10:07

DROPS Design answered:

Hej Marie, det findes lidt forskellige videoer hvordan man undgår hak ved varvbyte. Her ser du hvordan vi gør: Virka runt med stolpar

04.08.2022 - 09:50

country flag Kate Grant wrote:

I'm struggling to understand A4 and where each row finishes and the next one starts. Could you please clarify ?

21.07.2022 - 22:45

DROPS Design answered:

Dear Kate, at the beginning of the row/ round you work A.4A once. Then, repeat A.4B, when you reach the last stitch of A.4B return to the first one and work A.4B again. Repeat A.4B until 7 stitches remain in row/ round. Then, work A.4C once over these 7 stitches. Happy knitting!

24.07.2022 - 17:26

country flag Uta Grosse wrote:

Hallo, wird immer von der rechten Seite gehäkelt oder nach jeder Runde gewendet.?

30.03.2022 - 15:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grosse, dieses Kleid wird in Runden (immer von der rechten Seiten) gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

30.03.2022 - 16:18

country flag Marie M wrote:

Leider verstehe ich den Rechenweg noch immer nicht. Ich starte mit 236Stäbchen. An jeder Markierung nehme ich 2Stäbchen zu (=8Stäbchen je Runde). Am Ende von Runde 1 also 244Stäbchen. Somit in R2 = 252Stb. R3 = 260, usw. Ich verstehe nicht, wie in Runde 1 lediglich 4Stäbchen zugenommen werden wenn es je Ecke 2 Stäbchen Zunahme sind?\r\nKönnen Sie das bitte genauer erklären?\r\nDanke und viele Grüße

16.11.2021 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Marie M, wenn Sie in 1 Masche (1 Stb, 2 Lm, 1 Stb) häkeln, nehmen Sie nur jeweils 1 Stb (= Mal 4 = 4 Stb in der Runde), aber wenn Sie dann um den Luftmaschenbogen 1 Stb, 2 Lm, 1 Stb häkeln, dann nehmen Sie jeweils 2 Stb (einfach weil Sie um den Luftmaschenbogen und nicht in einer Masche häkeln), ist das klarer?

17.11.2021 - 07:59

country flag Marie M wrote:

Ich bin gerade bei der Passe angekommen und habe auch schon markiert. Allerdings brauche ich jetzt Hilfe! Es steht in Runde 1 an jeder Markierung 1Stb 2LM 1Stb bedeutet eine Zunahme von 2 Stäbchen je Ecke also in der Runde 8Stb. Am Ende wären es ja bei XXL dann aber 244 anstatt 240 wie in der Anleitung. Ebenfalls in den Folgerunden. Können Sie mir das bitte erklären, wie es richtig gemacht wird?\r\nDanke und viele Grüße

15.11.2021 - 22:14

DROPS Design answered:

Liebe Marie M, vor der 1. Runde haben Sie 232 M, dann häkeln Sie 1 Stb+2 Lm+1 Stb in je 1 Masche x 4 (= 4 Zunahmnen ) = 236 Stb; dann häkeln Sie 1 Stb + 2 Lm + 1 Stb um den Luftmaschenbogen = 2 Stb werden jeweils zugenommen = 8 Stb insgesamt = 236+8=244 Stb. Viel Spaß beim häkeln!

16.11.2021 - 09:26

country flag Malin Johansen wrote:

Hei. Jeg er kommet til berestykket der jeg skal sette inn fire merker. Jeg har bare 231 masker etter A1 mønster (lager størrelse xxxl), men jeg greier ikke å forstå hvor jeg har glemt å øke.. har økt i omgang 3 og i siste stmaskerad i A1..

29.09.2021 - 22:33

DROPS Design answered:

Hej Malin. När A.1 är heklet 1 gang på höjden så ska du ha 15 staver i hver rapport, men i 11 av dessa ska du öka så att du har 16 staver istället. Dvs att du har totalt 15 rapporter på omgangen och 4 av dessa består av 15 staver och 11 av dessa består av 16 staver. (4 x 15) + ( 11 x 16) = 236 staver. Hoppas det är till hjälp. Mvh DROPS Design

30.09.2021 - 10:38