DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Last Days of Autumn

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og rúlluðum kanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-2
DROPS Design: Mynstur z-828
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 2925, appelsínugulur

PRJÓNFESTA:
Stykkið kemur til með að teygjast þegar það er mátað, þess vegna eru 2 prjónfestur gefnar upp.
Prjónfesta 1:
Þegar stykkið liggur flatt: 25 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð (mælt í sléttu lykkju) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
Prjónfesta 2:
Þegar stykkið er mátað: 20 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð (mælt í slétta lykkju) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
Prjónfesta með sléttprjóni: 24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

PRJÓNFESTA:
Vegna áferðar í stykkinu kemur stykkið til með að teygjast þegar það er mátað, þess vegna eru gefnar upp 2 prjónfestur og 2 teikningar með máli.
Prjónfesta 1 og teikning með máli 1 á við þegar stykkið liggur flatt.
Það er þetta/þessi prjónfesta/mál sem stykkið á að hafa á meðan prjónað er.
Prjónfesta 2 og teikning með máli 2 er þegar stykkið er notað.
Prjónfestan á hæðina er gefin upp eftir sléttu lykkjunni, sem er prjónuð yfir 1 umferð færri en brugðnu lykkjunni, þar sem slétta lykkjan er lyft yfir á hægri prjón í annarri hverri umferð.
Þ.e.a.s. 24 umferðir á hæðina mælt í sléttu lykkjunni á 10 cm jafngildir 48 umferðir mælt í brugðnu lykkjunni á 10 cm á hæðina.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan eru prjónaðar slétt saman.
Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa uppslættinum og lykkjunni sem er prjónuð af prjóninum, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið aftur 1 lykkju slétt í lykkjuna og uppsláttinn sem var prjónaður *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 216 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 4,9.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman!
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (án uppsláttar, uppsláttur á milli lykkja er einnig lyft yfir), steypið yfir næstu 3 lykkjur á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman: steypið 1 lykkju slétt + 1 lykkja brugðið + 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) = 3 lykkjur án uppsláttar. Prjónið síðan: 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur) slétt saman, steypið síðan 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri + án uppsláttar).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónað berustykki með klukkuprjóni, síðan skiptist berustykkið upp fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Þar sem stykkið er prjónað með áferð þá kemur það til með að teygjast þegar það er mátað, það eru gefnar upp 2 PRJÓNFESTUR – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 108-112-116-124-132-136 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca.
Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Síðan er mynstrið prjónað þannig:
Umferðin byrjar ca við miðju að aftan.
Hálft bakstykki: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20-20-22-24-26-26 lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), A.1 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur.
Framstykki: Prjónið A.1 yfir næstu 38-40-42-46-50-52 lykkjur.
Vinstri ermi: Prjónið A.2 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur.
Hálft bakstykki: Prjónið A.1 yfir síðustu 18-20-20-22-24-26 lykkjur.
Í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð í sléttu lykkjuna) í A.2 er aukið út um 4 lykkjur í hverju A.2 (= alls 16 lykkjur, útaukning er teiknuð inn í mynsturteikningu), útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1.
Haldið áfram með mynstur svona á hæðina. Þ.e.a.s. aukið út alls 16 lykkjur í 8. hverri umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið A.1 og A.2 alls 12-13-14-15-16-18 sinnum á hæðina. Þ.e.a.s. nú hefur verið aukið út um 12-13-14-15-16-18 sinnum = 300-320-340-364-388-424 lykkjur.
Prjónið síðan með A.1 yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-31 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig:
Hálft bakstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 44-46-50-54-58-64 lykkjur.
Hægri ermi: Setjið næstu 64-68-72-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-14-14-14 lykkjur undir ermi.
Framstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 86-92-98-106-114-128 lykkjur.
Vinstri ermi: Setjið næstu 64-68-72-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-14-14-14 lykkjur undir ermi.
Hálft bakstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 42-46-48-52-56-64 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-204-216-240-256-284 lykkjur. Haldið áfram hringinn í mynstri. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, setjið 1 prjónamerki í miðju sléttu lykkjuna undir hvorri ermi (= ca í hlið). Í næstu umferð (stillið af að næsta umferð er 1 umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman), aukið út í lykkju með prjónamerki undir hvorri ermi – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-4-4-4-4 cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 216-228-248-272-288-316 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, stillið af að síðasta umferðin sé umferð án uppsláttar, prjónið stykkið áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð í sléttprjóni aukið út um 44-44-48-56-56-64 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-2 = 260-272-296-328-344-380 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-31-32-32-32-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið alls 3 umferðir. Prjónið síðan 1 umferð slétt áður en fellt er af með sléttum lykkjum.

ERMI:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja af síðustu 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi =74-78-82-90-94-98 lykkjur. Prjónið mynstur hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, setjið 1 prjónamerki í miðju sléttu lykkju undir ermi. Í næstu umferð (stillið af að næsta umferð er umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman), fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-4-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 7-8-9-10-11-11 sinnum = 46-46-46-50-50-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-33-32-32-31-29 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að endað sé með 1 umferð án uppsláttar, prjónið ermina áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð í sléttprjóni er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 56-56-56-60-60-64 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-42-41-39-38-35 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Í næstu umferð er prjónað stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið alls 3 umferðir stroff. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 65-66-66-66-67-67 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.09.2018
Leiðrétting: Stykkið er prjónað með klukkuprjóni (áður hálfu klukkuprjóni)

Mynstur

symbols = brugðið
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = prjónið 5 lykkju í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni yfir og uppsláttinn sem prjónað var í yfir á hægri prjón, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur A.1.
symbols = prjónstefna
symbols = teikning 1 og teikning 2 – sjá útskýringu undir PRJÓNFESTA í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Last Days of Autumn

Marieke, Netherlands

Last Days of Autumn

Susana, Spain

Last Days of Autumn

Caroline, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (69)

country flag Michelev wrote:

Bonjour, je n’arrive pas à faire les augmentations 1 côtés dos et devant auriez-vous une vidéo ? Merci d’avance\r\nMichèle

17.05.2024 - 23:05

DROPS Design answered:

Bonjour Michèle, dans cette vidéo, nous montrons comment faire cette augmentation et comment tricoter le tour suivant. Bon tricot!

21.05.2024 - 12:10

country flag E Bou wrote:

Merci pour tous ces beaux modèles. J'ai terminé le dos/devant et le bord ne se met pas en place comme sur la photo. Il s'enroule de façon inesthétique sur au moins 5cm . Est-ce que le blocage va résoudre ce problème ? Merci pour votre réponse. Bien cordialement

14.04.2024 - 19:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bou, en le bloquant vous allez effectivement avoir un bord plat, notez que sur notre photo, le bas se retourne légèrement, à vous de choisir si vous le voulez complètement plat ou pas en plaçant des épingles au bord ou un peu plus haut, au choix. Bonnes finitions!

15.04.2024 - 08:22

country flag Raisa wrote:

Hei! Mitä tarkoittaa tarkemmin selitettynä kohta "Siirrä seuraavat 64-68-72-76-80-84 silmukkaa apulangalle hihaa varten ja luo hihan alapuolelle 10-10-10-14-14-14 silmukkaa." Miten nuo silmukat luodaan hihan alle?

04.03.2024 - 23:23

DROPS Design answered:

Nämä silmukat luodaan heti, kun silmukat on siirretty apulangalle, eli ne luodaan apulangan silmukoiden tilalle. Näiden silmukoiden kohdalta poimitaan myöhemmin silmukoita hihaa varten.

05.03.2024 - 17:24

country flag Miriam wrote:

Hallo, ich bin gerade an der Stelle, wo am Ärmel das erste Mal abgenommen werden soll. Nur leider ist bei mir die rechte Masche mit dem Markierer genau da, wo die Runde anfängt. Habe ich da etwas falsch gemacht? Ich habe noch mal alles überprüft und glaube eigentlich, dass es so richtig sein müsste. Aber dann kommt es mit dem Muster nicht hin, weil die Maschen vor dem Markierer ja noch anders (mit Umschlägen) gestrickt werden... Viele Grüße, Miriam

21.02.2024 - 10:14

DROPS Design answered:

Liebe Miriam, die Abnahmenrunde so anpassen, damit die rechten Maschen zusammen mit ihrem Umschlag gestrickt werden, aber die Abnahmen beginnen 3 Maschen davor, dh die 2 letzten Maschen der Runde (die Runde wo man die Umschläge machen soll) + die erste Masche (= die mit der Markierung) abheben, dann die 2 nächsten Maschen rechts zusammen stricken und die abgehobenen Maschen über die gestrickte Masche ziehen, die Markierung in dieser Masche einsetzten. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2024 - 14:59

country flag Germana wrote:

Salve, ho avviato i 108 punti iniziali con i ferri circolari da 80, ma risultano troppo lunghi, quelli da 40 sono troppo corti, siete sicuri che le indicazioni siano corrette?

04.02.2024 - 20:48

DROPS Design answered:

Buonasera Germana, può lavorare con i ferri da 40 cm fino a raggiungere il numero di maglie necessario per lavorare con gli 80 cm. Buon lavoro!

25.02.2024 - 16:35

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Ma question porte sur les diminutions. Comment glisser les jetées ? Comment passer les 3 mailles glissées ainsi que les jetés par-dessus les mailles tricotées ensemble ? Merci d'avance.

28.01.2024 - 10:37

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Ma question porte sur les diminutions. Comment glisser les jetées ? Comment passer les 3 mailles glissées ainsi que les jetés par-dessus les mailles tricotées ensemble ? Merci d'avance.

28.01.2024 - 10:32

DROPS Design answered:

Bonjour Berbett, glissez les jetés en même temps que la maille à laquelle ils appartiennent, autrement dit, quand vous devez glisser 1 maille mais que c'est une maille avec jeté, glissez cette maille et son jeté (qui ne comptent que pour une maille). Pour passer les 3 mailles glissées par-dessus, vous pouvez insérer l'aiguille gauche de gauche à droite dans ces 3 mailles glissées et les passer par-dessus les mailles tricotées ensemble , ou bien les passer une par une, si c'est plus simple pour vous. Bon tricot!

29.01.2024 - 12:11

country flag Paulette KRENTNER wrote:

Bonsoir, je ne vois pas les explications concernant les fausses côtes anglaises. Je vous est adressé également un message concernant les aiguilles circulaires doit-on mesurer entièrement les aiguilles plus le câble pour avoir par exemple des aiguilles 80 cm pour faire ce joli pull. Merci de me répondre.🌺🧚‍♀️

17.01.2024 - 17:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Krentner, le point fantaisie est expliqué ici sous forme de diagramme, vous retrouvez les diagrammes A.1 et A.2 à droite du schéma des mesures, sous la manche. La longueur d'une aiguille circulaire se mesure en général d'une pointe à l'autre. Bon tricot!

18.01.2024 - 08:36

country flag Germana wrote:

SAlve, i ferri a doppia punta di quale lunghezza devono essere? grazie

05.01.2024 - 22:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Germana, deve utilizzare la misura con cui lavora più comodamente. Buon lavoro!

07.01.2024 - 12:57

country flag Susanna wrote:

Vorrei sapere se avete un video che spiega come fare le diminuzioni per le maniche. Come si fa a calare sul giro dove la maglia gettata e la maglia diritto vengono lavorate insieme . Se devo calare ai lati del segnapunti significa che ne calo due a fine ferro e gli altri due all’inizio del successivo ? Grazie

19.02.2022 - 16:57

DROPS Design answered:

Buonasera Susanna, si, deve diminuire le maglie all'inizio di un ferro e all'inizio dell'altro. Buon lavoro!

05.03.2022 - 22:15