DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Casual Diamond Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í vinkil með köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-20
DROPS Design: Mynstur sk-013
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur B)
300-300-350-400-400-450 g litur 13, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

DROPS TALA NR 534: 5-5-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Upphækkunin er prjónuð í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki 74-78-78-84-84-88 lykkjur inn frá miðju að framan (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-11-12-12-12 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-22-24-24-24 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-33-36-36-36 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-44-48-48-48 lykkjur slétt. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-11-12-12-12 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónaðar hafa verið 12 umferðir garðaprjón.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Þegar A.a-mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, prjónið A.b-mynsturteikningu yfir A.a og A.b er endurtekið á hæðina. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Þar sem lykkjum fækkar og fjölgar í mynsturteikningu A.1b, A.3b, A.6b og A.7b, getur lykkjufjöldinn breyst miðað við þetta með 8 lykkjum, þar sem hefur fækkað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur), mínus kanta að framan (= alls 12 lykkjur = 118 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju í sléttprjóni þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur = 2 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= alls 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu með ca 8½-8½-7½-7½-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður í vinkil niður að handveg. Berustykkið skiptist í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka, áður en framstykkin og bakstykkin deilast og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig.
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 130-134-138-154-158-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 18-22-18-14-10-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 148-156-156-168-168-176 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, en þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.
Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýring að ofan.
Prjónið nú frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1a (= 6 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, A.3a (= 13 lykkjur), A.4a (= 11 lykkjur).
Vinstri ermi: Prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.5a (= 11 lykkjur), A.6a (= 13 lykkjur), 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, A.7a (= 10 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, A.3a yfir 13 lykkjur, A.4a yfir 11 lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur sléttprjón.
Hægra framstykki peysa: Prjónið A:5a yfir 11 lykkjur, A.6a yfir 13 lykkjur, 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, 1 lykkja sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, A.1a yfir 6 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón.
Prjónamerkin verða að vera í stykkinu til loka (= útauknings lykkjur).
Í næstu umferð frá réttu er aukið út þannig:
Aukið er út mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1a og A.3a til A.7a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b og A.3b að A.7b yfir A.1a og A.3a að A.6a. A.2 heldur áfram eins og áður.
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Fram- og bakstykki: Aukið er út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2, í annarri hverri umferð alls 8-9-13-15-19-22 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-9-9-8-8 sinnum (þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur á hvoru framstykki og 4 lykkjur á bakstykki þegar aukið er út).
Ermar: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir A.4 og A.5 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi) í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-35-37 sinnum. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð, eru 77-83-89-95-101-109 lykkjur á hvoru framstykki, 58-64-68-74-78-82 lykkjur á hvorri ermi og 142-154-166-178-190-206 lykkjur á bakstykki = alls 412-448-480-516-548-588 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 22-24-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, mælt mitt ofan á ermi.
Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón, 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, A.3b og A.4b eins og áður (= alls 29 lykkjur).
Vinstri ermi: Setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á band fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja.
Bakstykki: Prjónið A.5b og A.6b eins og áður (= alls 29 lykkjur), 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, 1 lykkja sléttprjón, A.7b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón, 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, prjónið A.3b og A.4b eins og áður (= alls 29 lykkjur).
Hægri ermi: Setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á band fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja.
Hægra framstykki: Prjónið A.5b og A.6b eins og áður (= alls 29 lykkjur), 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, 1 lykkja sléttprjón, A.1b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón og endið með 4 lykkjur garðaprjón = 312-336-360-392-416-448 lykkjur (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur á hvoru framstykki og 150-162-174-190-202-218 lykkjur á bakstykki).
Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú áfram þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Vinstra framstykki: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b eins og áður, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 2 lykkjur sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið mynstur eins og áður að lykkju með prjónamerki, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), A.7b eins og áður, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 2 lykkjur sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið mynstur eins og áður að lykkju með prjónamerki, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), A.1b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón og endið með 4 lykkjur garðaprjón.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.2.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður.
Þ.e.a.s. í 4. hverri umferð er aukið út um 8 lykkjur og fækkað um 8 lykkjur, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami, en mynstrið í hlið fækkar og hverfur og það verður meiri mynstur A.2.
Haldið áfram með mynstur (þegar ekki eru nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, endar kaðallinn og haldið er áfram í sléttprjóni yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur).
Endurtakið umferð 1 til 4 þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm mælt frá öxl og niður að horni.
Nú skiptist stykkið í næstu umferð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið mynstur eins og áður að prjónamerki, setjið síðan lykkjur á þráð 1 (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur settar á þráð 1).
Bakstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 75-81-87-95-101-109 lykkjurr (= hálft bakstykki), setjið þær síðan á þráð 2.
Prjónið mynstur eins og áður að prjónamerki, setjið síðan lykkjur á þráð 3 (= 75-81-87-95-101-109 lykkjur settar á þráð 3 = hálft bakstykki).
Hægra framstykki: Prjónið mynstur eins og áður út umferðina (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur).
Prjónið nú hvort stykki til loka fyrir sig, þ.e.a.s. hér byrjar klauf í hlið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b og 1 lykkja sléttprjón, setjið þær síðan á þráð (= 13 lykkjur og prjónið út umferðina = 68-74-80-88-94-102 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig:
Fækkið nú lykkjum hvoru megin á framstykki.
UMFERÐ (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður út umferðina (= 2 lykkjur felldar af í byrjun á umferð).
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar.

KANTUR (hægra framstykki):
Kanturinn er prjónaður fram og til baka.
Takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram kanti að neðan frá réttu í ystu lykkjubogana á hringprjón 3,5 og setjið til baka 13 lykkjur af þræði við miðju framan á prjóninn = ca 58-62-66-70-76-80 lykkjur.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Ef kanturinn að neðan með garðaprjóni herðir á stykkinu verður að taka upp fleiri lykkjur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjurnar af þræði 1 á hringprjóninn (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur).
Í 1. umferð (= frá röngu) er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Í næstu umferð frá réttu eru prjónaðar 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b og 1 lykkja sléttprjón, setjið þær síðan á þráð (= 13 lykkjur), fellið af næstu 2 lykkjur og prjónið út umferðina = 66-72-78-86-92-100 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig:
Fækkið nú lykkjum í hvorri hlið á framstykki.
UMFERÐ (= frá röngu): Prjónið mynstur út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju garðaprjón (= alls 3 lykkjur færri).
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar.

KANTUR (vinstra framstykki):
Kanturinn er prjónaður fram og til baka.
Setjið til baka 13 lykkjurnar af bandi við miðju að framan á hringprjón 3,5 og takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram kanti að neðan frá réttu í ystu lykkjubogana á hringprjón 3,5 = ca 58-62-66-70-76-80 lykkjur.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Ef kantur að neðan með garðaprjóni herðir á stykkinu verður að taka upp fleiri lykkjur.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Setjið til baka 75-81-87-95-101-109 lykkjur af þræði 2 á hringprjóninn (= hálft bakstykki).
Í 1. umferð (= frá röngu) er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í sléttprjóni og hálft A.7b, setjið síðustu lykkjur á þráð án þess að prjóna þær = 68-74-80-88-94-102 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig:
Fækkið nú lykkjum hvoru megin á bakstykki.
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkja garðaprjón (= alls 3 lykkjur færri).
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið mynstur út umferðina eins og áður.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Setjið til baka 75-81-87-95-101-109 lykkjurnar af þræði 3 á hringprjóninn (= hálft bakstykki).
Setjið fyrstu lykkjur á þráð (frá röngu): 1 lykkja sléttprjón og hálft A.7b og prjónið út umferðina = 68-74-80-88-94-102 lykkjur eftir á prjóni.
Prjónið síðan þannig:
Fækkið nú lykkjum í hvorri hlið á bakstykki.
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður út umferðina (= 2 lykkjur felldar af í byrjun á umferð).
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar.

KANTUR (bakstykki):
Kanturinn er prjónaður fram og til baka.
Takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram kanti að neðan frá réttu í ystu lykkjubogana á hringprjón 3,5 fram að lykkjum á þræði (= ca hálft bakstykki), setjið til baka lykkjur af þræði við miðju að aftan á prjóninn og takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram afgang af bakstykki = ca 104-112-120-128-140-148 lykkjur.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Ef kantur með garðaprjóni að neðan herðir á stykki verður að taka upp fleiri lykkjur.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Setjið 58-64-68-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-76-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-12-12-12 lykkja (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermarnar skiptust frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 11-12-14-17-19-19 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-36-34-33-32-30 cm frá þar sem ermarnar skiptust frá fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 41-40-38-37-36-34 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan var felld af áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónið 3 lykkjur, lyftið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjurnar þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Anette wrote:

Wenn ich nach dem Bündchen oben in einer Hinreihe mit dem Muster beginne, ist das doch das rechte Vorderteil! In der Anleitung ist vom linken Vorderteil die Rede. Wo liegt mein Denkfehler? Vielen Dank vorab schon für Ihre Antwort!

01.03.2023 - 20:00

DROPS Design answered:

Liebe Anette, die Jacke wird von oben nach unten gestrickt, so strickt man bei Hin-Reihen zuerst die Maschen vom linken Vorderteil, dann der linke Ärmel, das Rückenteil, der rechte Ärmel und das rechte Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!

02.03.2023 - 10:44

country flag An Vermeulen wrote:

Waar kan ok een video vinden voor de raglanmouwen van damesvest Drops 194 T20 521 LESLIE

25.08.2022 - 09:18

DROPS Design answered:

Dag An,

Er is niet speciaal voor dit vest een video gemaakt, maar er zijn wel video's gemaakt voor de verschillende technieken die in dit patroon gebruikt worden. Je vindt ze onderaan bij het patroon. Laat even weten waar je specifiek tegenaan loopt bij de raglan, zodat we kunnen kijken of we je daarbij kunnen helpen.

25.08.2022 - 11:27

country flag Mickan wrote:

Tycker det skulle varit enklare att följa mönsterrapporterna om de var skrivna i text. Ska man spegelvända mönsterrapporterna vid något tillfälle?

01.06.2022 - 17:50

DROPS Design answered:

Hej Mickan, nej du skal "bare" følge diagrammerne, du behøver ikke spejlvende dem :)

02.06.2022 - 10:59

country flag Rita wrote:

Wie nehme ich die 8 Maschen unter dem Arm zu?

04.12.2021 - 20:35

DROPS Design answered:

Liebe Rita, das Bild 11) in dieser Lektion zeigt wie diese Maschen angeschlagen werden und wie man weiterstrickt. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2021 - 07:58

country flag Carine wrote:

Bonjour, Je suis à la séparation Devant gauche, Dos et Devant droit. Je vois que le dos est aussi séparé en deux (75 mailles en deux fois), y a-t-il une fente au milieu du dos? On ne voit pas le dos sur les photos. Merci

18.08.2021 - 13:18

DROPS Design answered:

Bonjour Carine, on n'a pas de fente au milieu dos, mais pour conserver la bonne forme, on doit continuer chaque côté séparément en diminuant de chaque côté (parties en pointillés dans le schéma). Bon tricot!

18.08.2021 - 14:39

country flag Christine Ivory wrote:

Is there a photo showing the finished back? I'm unsure how it should look when completed.

21.05.2021 - 11:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ivory, we do not have any photo for the back piece, it looks almost like front piece but without the front band stitches/edges. Happy knitting!

21.05.2021 - 11:34

country flag Mickan wrote:

Koftan är fin. men mycket omständig läsning av mönsterpartierna. Stickar man från höger från rätsidan och från vänster från avigsidan, När man har gjort ökningar ? Dessutom om man väljer drops air som är ett mycket tunn spunnet garn är det inte lätt om man gör fel. Svårt att fånga upp maskor. Storlek M, Rapport A2 har 2 maskor och man ska sticka 3, hur stickar man dessa då från avigsidan?

18.03.2021 - 18:30

DROPS Design answered:

Hej Mickan. Ja det stämmer att du stickar diagrammen från höger till vänster från rätsidan och från vänster till höger på avigsidan. När det står att du ska sticka 3 maskor av A.2 stickar du diagrammet 1 gång i sin helhet (2 maskor) och sedan stickar du 1:a maskan från höger från rätsidan och sedan motsvarande maskor från avigsidan. Mvh DROPS Design

24.03.2021 - 11:58

country flag Bernard Anne wrote:

Bonjour  J'ai essayé pleins de tuto mais le résultat n'est pas concluant. Il s'agit des augmentations qu'il faut faire dans la maille avec le marqueur. Augmentation2 dans les explications 

26.10.2020 - 09:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, pour l'augmentation 2 on tricote 3 fois la même maille: en faisant 1 m end, 1 jeté, 1 m end dans la même m, vous allez donc augmenter 2 mailles et tricoter donc ces mailles en A.2 au rang suivant (si vous trouvez que ce jeté fait un trou, essayez de le tricoter torse) - (sur l'envers, lisez le diagramme de gauche à droite) - les mailles de A.2 + les augmentations doivent se suivre = vous devez toujours avoir alternativement 1 maille point mousse, 1 maille jersey. Essayez de tricoter un échantillon que de A.2 en faisant les augmentations de chaque côté pour bien comprendre comment vous devez les tricoter. Bonne continuation!

26.10.2020 - 11:59

country flag Bernard Anne wrote:

Bonjour je reviens vers vous car j'en suis toujours au même point.  Dans la vidéo elle tricote le jeté en torse alors que sur les explications on dit de ne pas tricoter les jetés torse au rang suivant! En plus ce qui me contrarie c'est que j'ai un trou. Donc quand j'aurai terminé mes augmentations il n'y aura plus le même motif. Que puis-je faire ? En attendant une réponse je vous remercie 

26.10.2020 - 09:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, certains jetés de ce modèle se tricotent torse (= 5ème symbole) et d'autres (= 4ème symbole) vont se tricoter normalement, tout va donc dépendre de quel niveau vous en êtes et de ce que vous devez faire. Le petit trou laissé par le jeté quand on augmente s'estompe bien souvent progressivement, si vous préférez utiliser une autre technique pour augmenter, n'hésitez pas, tester sur un échantillon vous permettra de mieux vous rendre compte du rendu et de choisir si besoin. En revanche, vous devez toujours tricoter les mailles comme indiqué, quelles augmentations vous posent problème?

26.10.2020 - 09:46

country flag Bernard wrote:

Merci de votre réponse mais pourquoi ma maille n'est pas pareille ? Par exemple la 1 dans le 1er marqueur est jolie elle est en Jersey mais la 2ème dans le 2ème n'est pas du tout pareille donc ce n'est pas jolie

28.09.2020 - 11:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, cette vidéo montre comment tricoter cette augmentation, avec une version du jeté tricoté torse - dans ce modèle, on ne tricote pas le jeté torse. Pour une assistance plus personnalisée, contactez votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone, en voyant votre ouvrage, même en photo, ils pourront probablement plus facilement vous aider. Bon tricot!

28.09.2020 - 12:35