Fading Sunset |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa og hálsklútur úr 2 þráðum DROPS Alpaca.
DROPS 197-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 3 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um efst á húfu): Byrjið á eftir prjónamerki og prjónið þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). RENDUR Í BERUSTYKKI: Rendurnar eru gefnar upp í cm, en ef prjónfestan þín er rétt á hæðina þá getur þú prjónað tvisvar sinnum þær umferðir sem gefnar eru í cm (2 cm = 4 umferðir, 3 cm = 6 umferðir o.s.frv.). Allar rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig: 2-3-3-3-4-4 cm með natur og ljós camel 2-2-2-2-2-3 cm með natur og gulgrænn 1-1-2-2-2-2 cm með natur og gallabuxnablár 5-5-6-6-6-7 cm með gallabuxnablár og ljós camel 2-2-2-3-3-3 cm með natur og appelsínugulur 3-4-4-4-5-5 cm með natur og ljós perlugrár 1-1-1-1-1-1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn 2-2-2-3-3-3 cm með ljós perlugrár og ljós camel RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Sentimetra mál sem er uppgefið á við um allar stærðir og rendur halda áfram í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig: 4 cm með ljós perlugrár og vínrauður 2 cm með ljós perlugrár og natur 3 cm með ljós perlugrár og gulgrænn 6 cm með ljós perlugrár og vatnagrár 2 cm með ljós perlugrár og natur 1 cm með ljós perlugrár og vínrauður 5 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur 2 cm með ljós perlugrár og ljós camel 1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn RENDUR Á ERMI Rendur halda áfram í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig: 7-7-7-6-6-5 cm með ljós perlugrár og natur 1-1-1-1-1-1 cm með ljós perlugrár og gulgrænn 4-4-4-4-3-3 cm með ljós perlugrár og vatnagrár 7-7-7-6-6-5 cm með ljós perlugrár og natur 1-1-1-1-1-1 cm með ljós perlugrár og vínrauður 4-4-4-4-3-3 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur 7-7-7-6-6-5 cm með ljós perlugrár og natur 1-1-1-1-1-1 cm með natur og gulgrænn 4-4-4-4-3-3 cm með natur og gallabuxnablár Prjónið síðan með ljós perlugrár og natur (= 2 þræðir) til loka. RENDUR Í HÚFU: Rendurnar eru gefnar upp í cm og á við um báðar stærðir. Ef prjónfestan þín er rétt á hæðina þá getur þú prjónað tvisvar sinnum þær umferðir sem gefnar eru í cm (2 cm = 4 umferðir, 3 cm = 6 umferðir o.s.frv.). Allar rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig: 3 cm með ljós perlugrár og gulgrænn 5 cm með ljós perlugrár og vatnagrár 2 cm með ljós perlugrár og natur 1 cm með ljós perlugrár og vínrauður 4 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur 2 cm með ljós perlugrár og ljós camel 1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn Prjónið síðan með ljós perlugrár og natur (= 2 þræðir) til loka. RENDUR Í HÁLSKLÚT: Rendurnar eru gefnar upp í cm. Allar rendur eru prjónaðar í garðaprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig: 2 cm með natur og ljós camel 2 cm með natur og gulgrænn 1 cm með natur og gallabuxnablár 5 cm með gallabuxnablár og ljós camel 2 cm með natur og appelsínugulur 3 cm með natur og ljós perlugrár 1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn 2 cm með ljós perlugrár og ljós camel 4 cm með ljós perlugrár og vínrauður 2 cm með ljós perlugrár og natur 3 cm með ljós perlugrár og gulgrænn 6 cm með ljós perlugrár og vatnagrár 2 cm með ljós perlugrár og natur 1 cm með ljós perlugrár og vínrauður 5 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur 2 cm með ljós perlugrár og ljós camel 1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn 4 cm með ljós perlugrár og natur. Endurtakið rendur til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Alpaca. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-84-84-90-96-102 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár + 1 þræði ljós brúnn (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan næstu umferð þannig: 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár + 1 þráð ljós camel (= 2 þræðir) og haldið áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-28-28-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 104-112-112-120-128-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki fyrir laskalínu í stykkið hér (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 18-20-20-22-24-26 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-40-40-44-48-52 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 18-20-20-22-24-26 lykkjur eftir í umferð á eftir síðustu lykkju með prjónamerki í (= ½ bakstykki). Prjónið RENDUR Í BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-18-20-22-24-26 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 232-256-272-296-320-344 lykkjur í umferð. Prjónið RENDUR Í BERUSTYKKI til loka. Stykkið mælist nú ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Í næstu umferð deilast lykkjurnar fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (haldið áfram með lit í síðustu rönd): Prjónið 35-38-41-45-49-53 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-52-54-58-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-58-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-38-41-45-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-180-196-216-232 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hlið á stykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu (rendurnar eiga nú að vera loknar), prjónið nú 1 umferð slétt með lit í síðustu rönd þar sem aukið er út um 22-28-30-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 174-192-210-228-252-270 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn með 1 þræði í litnum ljós perlugrár + 1 þræði natur (= 2 þræðir) þannig: 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með grófari prjónum). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-52-54-58-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-62-66-72-76 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-3-2-3-3 cm frá þar sem stykkið skiptist upp er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-3-3-2-2 cm millibili alls 9-11-11-12-14-14 sinnum = 34-36-40-42-44-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-37-36-34-32 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (úrtöku á nú að vera lokið). Haldið áfram með 1 þræði í litnum ljós perlugrár + 1 þræði natur (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-6-8-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 36-42-48-48-48-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með grófari prjónum). Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-36 cm frá þar sem stykkið skiptist upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. Fyrst er prjónað stroff sem síðar er brett uppá. Síðan er prjónað sléttprjón í röndum. Að lokum er dúskur festur efst á húfuna. HÚFA: Fitjið upp 90-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði ljós perlugrár (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10-10 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir (í S/M eru prjónaðar 14. og 15. hver lykkja slétt saman og í M/L eru prjónaðar 15. og 16. hver lykkja slétt saman) = 84-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og RENDUR Í HÚFU – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26 cm frá uppfitjunarkanti eru sett 6 prjónamerki í stykkið (prjónamerkin eru notuð þegar lykkjum fækkar og eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerki er sett í byrjun á umferð, síðan eru næstu 5 prjónamerkin sett með 14-15 lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 = 6 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum í báðum stærðum = 30-36 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem allar lykkjurnar eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 8-9 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 31-32 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 5 cm af stroffi. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 4 cm að þvermáli með öllum litum. Saumið dúskinn niður efst á húfu. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Allur hálsklúturinn er prjónaður í garðaprjóni og röndum. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 48 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði ljós perlugrár (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm eru prjónaðar RENDUR Í HÁLSKLÚT. Rendurnar eru endurteknar þar til stykkið mælist ca 156 cm, eða að óskaðri lengd. Skiptið yfir í 1 þráð í lintum natur og 1 þráð ljós perlugrár. Prjónið garðaprjón í 4 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Hálsklúturinn mælist ca 160 cm. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Anneke Kleppe wrote:
Ik kan haast niet wachten tot het patroon beschikbaar komt. Heel mooi! Simpel maar elegant.
25.07.2018 - 17:28Miranda wrote:
Schitterende kleuren. Deze zou ik absoluut willen breien!
15.07.2018 - 11:50Ines wrote:
Bela combinação de cores! Gosto muito!
12.06.2018 - 15:35Ingrid wrote:
Love it!
08.06.2018 - 11:25Sandra Balla wrote:
I love the colours chosen to knit this pattern. I would name it "Strips & Stripes" or even "Candy Canes" My Grand Daughter would love it when she goes skiing. Thank you.
06.06.2018 - 21:57Chantal wrote:
Un modèle superbe et un choix des coloris de très bon goût. L'ensemble est très classe. Félicitations.
05.06.2018 - 15:26