DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Fritid Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með fölsku klukkuprjóni, A-formi og stuttum japönskum umferðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-32
DROPS Design: Mynstur ai-131
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni (séð frá röngu) með fölsku klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS HORNATALA, köntuð NR 537: 5-5-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
2 umferðir séð frá röngu = 1 umferð séð frá réttu. Uppslátturinn í mynstri er ekki talinn með sem lykkja. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (= 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 11,7.
Í þessu dæmi þá er aukið út um 1 lykkju á eftir ca 12. hverja lykkju. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.

ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Prjónið og aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri alls).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu með ca 9-9-8½-8½-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður með klukkuprjóni. Berustykki skiptist upp fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka í sléttprjóni með kanti í klukkuprjóni. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, í sléttprjóni með kanti í klukkuprjóni.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 77-83-89-92-95-101 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 5,5 með Air.
Prjónið 2-2-2-4-4-4 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (1. umferð = frá röngu) JAFNFRAMT í 2. umferð er aukið út um 0-0-0-7-12-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 77-83-89-99-107-115 lykkjur.
Prjónið mynstur svona frá röngu (þ.e.a.s. mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2a ( 6-6-6-8-8-8 lykkjur) alls 11-12-13-11-12-13 sinnum, A.1a (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Athugið vel að þegar aukið er út í mynsturteikningu, að draga ekki í lykkjuna sem aukið er út í meira en nauðsynlegt er, það myndast lítið gat í þessari lykkju. Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 165-179-193-187-203-219 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.1b yfir A.1a og A.2b yfir A.2a (1. umferð = frá röngu). Þegar A.1b og A.2b hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 209-227-245-275-299-323 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20-20-20-24-24-24 cm frá uppfitjunarkanti. Endurtakið 2 síðustu umferðir í A.1b og A.2b þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti, passið uppá að endað sé með 1 umferð frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur og aukið út um 13-19-29-15-11-15 lykkjur jafnt yfir og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 222-246-274-290-310-338 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu skiptist stykkið upp fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 31-34-38-41-45-50 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 44-50-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi, 62-68-76-82-90-100 brugðnar lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 44-50-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi, 31-34-38-41-45-50 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki) = 150-162-178-194-210-230 lykkjur. Berustykki mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýrra lykkja í hvorri hlið á stykki (= 40-43-47-51-55-60 lykkjur á hvoru framstykki og 70-76-84-92-100-110 lykkjur á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 3-3-4-4-3-3 cm millibili alls 7-7-6-6-7-7 sinnum = 178-190-202-218-238-258 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-25-26-26-26-26 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum, er hægt að prjóna stuttar japanskar umferðir, þ.e.a.s. prjónaður er ávala kantur þannig að bakstykkið verði ca 9 cm lengri en framstykkið, einnig er hægt að sleppa þessum stuttu umferðum, þá verður framstykkið og bakstykkið jafn langt. Farið þá beint í að prjóna kantinn ef ekki er óskað eftir því að hafa bakstykkið lengra.

STUTTAR JAPANSKAR UMFERÐIR:
Byrjið frá réttu þannig:
Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-18-17-25-21-31 lykkjur, snúið stykkinu, setjið eitt prjónamerki (notið prjónamerki eða nælu) í þráðinn á dokkunni alveg við stykkið (prjónamerkið hangir frá röngu), takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 12-18-17-25-21-31 lykkjur, snúið stykkinu, setjið eitt prjónamerki í þráðinn á dokkunni alveg við stykkið (prjónamerkið hangir frá röngu), takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 19-25-24-32-28-38 lykkjur, snúið stykkinu, setjið eitt prjónamerki við þráðinn á dokkunni alveg við stykkið (prjónamerkið hangir frá röngu), takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 19-25-24-32-28-38 lykkjur, snúið stykkinu, setjið eitt prjónamerki við þráðinn á dokkunni alveg við stykkið (prjónamerki hangir frá röngu), takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónað er yfir 7 lykkjur færri í hvorri hlið (= alls 14 lykkjur) í hvert skipti sem snúið er við hefur verið prjónað ca 9 frá fyrsta prjónamerki. Klippið frá.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur að meðtöldum lykkjum með prjónamerkjum, takið lykkju með prjónamerki og setjið á vinstri prjón, takið prjónamerkið frá, prjónið þessa lykkju og næstu lykkju brugðið saman, endurtakið við öll prjónamerkin og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.

KANTUR:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 11 lykkjur jafnt yfir = 189-201-213-229-249-269 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (þ.e.a.s. mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 5 kantlykkjur að framan i garðaprjóni, A.3 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. mynstrið byrjar og endar eins) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað í ca 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn herði ekki á stykkinu, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum, eða sláið nokkrum sinnum uppá prjóninn á milli lykkja, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

ERMI:
Setjið 44-50-56-58-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýrra lykkja. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 7-9-11-13-13-14 sinnum = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 35-34-34-33-32-32 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist ca 59-60-61-62-63-65 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.09.2018
Leiðrétting: Stykkið er prjónað með klukkuprjóni (áður hálfu klukkuprjóni)

Mynstur

symbols = slétt frá röngu, brugðið frá réttu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni (brugðin lykkja frá röngu og slétt lykkja frá réttu) yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman frá réttu
symbols = prjónið 5 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir á hægri prjón, * sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Henny Nielsen wrote:

Drops 195-32 ønsker vejledning til at starte diagram str. xl er det øverst i venstre hjørne eller venstre nederste hjørne? Er ny i diagrammer strik. På forhånd tak

07.11.2023 - 16:44

DROPS Design answered:

Hej Henny, du starter altid diagrammerne i nederst højre hjørne og følger hver maske efterhånden som du strikker den. Næste pind er 2.pind i diagrammet :)

10.11.2023 - 15:08

country flag Paola Pastore wrote:

Buongiorno sto imparando a lavorare a maglia e siete il sito con le migliori proposte di modelli . Il mio problema è che non lavoro con i ferri circolari ma solo con quelli dritti . C'è un modo per trasformare gli schemi da ferri circolari a ferri dritti ? grazie

11.04.2019 - 17:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Al seguente link, trova indicazioni su come lavorare con ferri dritti lavori spiegati per ferri circolari. Può inoltre chiedere aiuto qui o per aiuti più personalizzati rivolgersi al suo rivanditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

11.04.2019 - 17:44

country flag Janna wrote:

In het patroon staat dat de pas wordt gemaakt in een halve patentsteek. Alleen de instructievideo van een halve patentsteek laat een heel ander manier van breien zien dan het telpatroon staat beschreven. Wat is nu de juiste manier?

25.08.2018 - 13:31

DROPS Design answered:

Dag Janna, Je kunt gewoon het (tel)patroon volgen. Ik vermoed dat er een foutje gemaakt is in de omschrijving en dat er bedoeld wordt dat het vest voor de helft uit patentsteek bestaat (in plaats van halve patentsteek), dus ik heb het doorgegeven aan designafdeling voor eventuele aanpassing.

29.08.2018 - 12:22

country flag Monique wrote:

Die Jacke sieht so kuschelig und bequem aus, die würde ich sehr gerne stricken. Muster und Schnitt sind toll!

13.07.2018 - 09:29