DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Blush

Prjónuð peysa í klukkuprjóni og mynstri sem færist til úr DROPS Snow. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-22
DROPS Design: Mynstur ee-640
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
650-700-750-850-950-1000 g litur 36, bláfjólublár

PRJÓNFESTA:
9 lykkjur á breidd og 10 umferðir á hæð (talið í sléttri lykkju frá réttu) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 kantlykkju með garðaprjóni (= alls 2 lykkjur fleiri).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 78-84-90-96-108-114 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 9 með Snow. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 53-57-61-65-73-77 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 2 lykkjur) yfir næstu 12-14-16-18-22-24 lykkjur, A.2 (= 26 lykkjur), A.1 yfir næstu 13-15-17-19-23-25 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þ.e.a.s. mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 48-50-50-52-52-54 cm (nú eru eftir ca 10-10-12-12-14-14 cm), prjónið A.1 yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. mynstur heldur áfram beint upp án tilfærslna).
Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 11-11-11-15-15-15 lykkjurnar af fyrir hálsmáli með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og uppslátt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 1 lykkja) = 21-23-25-25-29-31 lykkjur á hvorri öxl.
Lykkjan næst hálsmáli á hvorri öxl á nú að vera brugðin lykkja frá réttu.
Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Í næstu umferð frá hálsmáli (= frá réttu) er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, takið uppslátt og 1 lykkju slétt af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja brugðið, steypið uppslætti og óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 17-19-21-21-25-27 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af. Uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman og fellt af og brugðna lykkjan er felld af brugðið.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir (uppslátturinn er ekki talin sem lykkja), prjónið brugðnu lykkju, uppsláttur og slétta lykkju slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 78-84-90-96-108-114 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 9 með Snow. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 53-57-61-65-73-77 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til eftir eru 1 lykkja og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þ.e.a.s. mynstur byrjar og endar með 1 lykkju slétt í klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (nú eru eftir ca 4 cm), fellið af miðju 19-19-19-23-23-23 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og uppslátturinn og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 1 lykkja) = 17-19-21-21-25-27 lykkjur á hvorri öxl. Lykkjan næst hálsi á hvorri öxl á nú að vera brugðin lykkja frá réttu. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni næst hálsi þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af í næstu umferð frá réttu. Uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman og felld af og brugðin lykkja er felld af brugðið.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og hægri öxl.

ERMI:
Fitjið upp 35-35-38-38-41-41 lykkjur á hringprjón 9 með Snow.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 10 cm, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju og 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 8-9-9-10-10-11 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 45-44-43-42-38-37 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í (= ca 19-20-21-22-23-24 cm niður frá axlasaumum) og saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar til eftir eru ca 12 cm (= klauf).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Takið upp ca 44 til 56 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, takið e.t.v. upp fleiri lykkjur), stillið af að lykkjurnar séu deilanlegar með 2.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið alls 2 umferðir, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.09.2018
Leiðrétting: Stykkið er prjónað með klukkuprjóni (áður hálfu klukkuprjóni)

Mynstur

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju brugðið yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (= frá röngu).
symbols = uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (= frá réttu).
symbols = prjónið 3 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn og prjónið sléttu lykkjuna og uppslættina slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur, uppslátturinn talinn með (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = steypið sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt. Prjónið saman: Prjónið 1 lykkju brugðna, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 3 lykkjur, meðtalinn uppsláttur), steypið uppslættinum og sléttu lykkjunni sem var steypt yfir á hægri prjón yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 2 lykkjur færri).
symbols = prjónið 1 uppslátt, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 uppslátt, 1 lykkja slétt (= 5 lykkjur, meðtalinn uppsláttur) lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag MARCEAU wrote:

Bonjour, Je ne trouve pas le modèle de diagramme A1 ! Suis-je bigleuse ou bien ? Merci d'avance

13.01.2024 - 21:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marceau, le diagramme A.1 se trouve à côté du schéma des mesures, c'est un petit diagramme dessiné sur 2 mailles et 4 rangs. Bon tricot!

15.01.2024 - 09:20

country flag MICHELA GHEDINA wrote:

Stò eseguendo il lavoro con ferri normali. Non riesco ad eseguire il falso punto inglese, potete spiegarmi come fare? ho guardato il tutorial ma è diverso...

18.11.2022 - 22:01

DROPS Design answered:

Buonasera Michela, quale passaggio le risulta difficile?. Buon lavoro!

24.11.2022 - 19:56

country flag Janine Pickhover wrote:

This has to be the most badly written pattern I have ever read! truly appalling. I write patterns for a living and simply could not decipher it! I'm not sure if it has lost something in translation but NEVER again will I buy Drops yarns to use with Garnstudio patterns. awful!

02.02.2022 - 18:34

country flag Ulla wrote:

Vil trøjen få det samme udtryk hvis man laver den i brushed alpaca silk for at den ikke skal være så tung.

16.09.2021 - 11:48

country flag Lucía wrote:

Muchas gracias! 👍

26.01.2021 - 18:24

country flag Lucía wrote:

Falta el diagrama A1

25.01.2021 - 20:47

DROPS Design answered:

Hola Lucia, esta a la derecha del esquema de medidas. Buen trabajo!

25.01.2021 - 20:53

country flag Katrin wrote:

Die Abnahme an der linken Schulter vorn ist mir unverständlich. Wenn ich im falschen Patent nach oben stricke, wie soll ich dann in der Hinreihe abnehmen.

02.04.2020 - 19:09

DROPS Design answered:

Liebe Katrin, an der linken Schulter stricken Sie die Hinreihe wie folgt: stricken Sie die Maschen wie zuvor bis noch 3 Maschen übrig bleiben, stricken Sie die 2 nächsten Maschen rechts zusammen, und schliessen Sie mit 1 Randmasche krausrechts. Die Rückreihe wie zuvor stricken und diese 2 Reihen insgesamt 4 Mal wiederholen (= 4 Abnhamen). Viel Spaß beim stricken!

03.04.2020 - 07:37

country flag Jeanette wrote:

Could this be knitted in single strand worsted? If so. what adjustments would be needed? Thank you

27.01.2020 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Jeanette, if you use a thinner yarn the tension will be completely different, then pattern should have to be entirely recalculated in width (number of stitches) and height (number of rows). For this kind of adjustement you are welcome to contact the store where you bought the yarn or any knitting forum. Happy knitting!

28.01.2020 - 10:34

country flag Marjo Bodewes wrote:

Goedenavond, In het telpatroon A2 staat bij de 4e pen een ster. In de beschrijving komt deze niet voor Kunt u mij vertellen wat deze ster betekent. Alvast mijn dank,

29.09.2019 - 19:21

DROPS Design answered:

Dag Marjo,

Deze staat uitgelegd naast de ster bij de lijst met symboolverklaringen.

03.10.2019 - 16:24

country flag Veronique wrote:

Bonjour, Pourquoi des fausses cotes anglaises ? Le faire en vraies cotes anglaises changerait quoi? et faire le dos et le devant en circulaire eviterait de faire les coutures de cotés...

02.06.2019 - 18:21

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique, c'est ainsi que la styliste a conçu ce modèle, vous pouvez naturellement tout à fait le modifier à votre guise. Bon tricot!

03.06.2019 - 10:17