DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 194-21
DROPS Design: Mynstur ai-130
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 15, fjólublá þoka

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (á við um hlið á framstykki/bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku í hálsi á framstykki):
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 lykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan 1 lykkju þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= lykkja færri) og endið með 1 lykkju slétt.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

KLUKKUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja garðaprjón,* 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið* , endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2: 1 lykkja garðaprjón,* sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 3: 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjunni slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru (meðtalinn uppsláttur), prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjunni slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 80-83-89-98-104-113 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 7 með Air.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið stykkið með sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona með 6-6-9-6-9-9 cm millibili alls 5-5-4-5-4-4 sinnum = 70-73-81-88-96-105 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-6-6-8 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum = 66-69-73-76-84-89 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 26-27-29-30-32-33 lykkjur af fyrir hálsmáli = 20-21-22-23-26-28 lykkjur eftir í hvorri öxl.
Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-44-46-46-48 cm = 66-69-73-76-84-89 lykkjur. Fellið nú af miðju 20-21-23-24-26-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-24-25-26-29-31 lykkjur eftir á hvorri öxl.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 20-21-22-23-26-28 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 44-47-47-50-50-53 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4 með Air.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stroffið mælist 7 cm, passið uppá að næsta umferð sé frá réttu, prjónið 1 umferð stroff eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 11-12-12-13-13-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 55-59-59-63-63-67 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 39 cm. Prjónið nú stykkið í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 5-7-4-5-2-3 lykkjur jafnt yfir = 50-52-55-58-61-64 lykkjur. Fellið af þegar ermin mælist 51-51-51-50-49-48 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 63 til 84 lykkjur á hringprjón 7 (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 3). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn yfir lykkjur í 2 cm.
Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Ana wrote:

Buenos días, en la espalda no me quedan 70 puntos después de disminuir 1 punto a cada lado 5 veces serían 20 los puntos disminuidos y me quedan 60 puntos, menos 4 puntos disminuidos en la sisa me quedan 56 cuando cierro 26 para el cuello me quedan solamente 10 puntos para los hombros, podéis decirme que estoy haciendo mal ? Muchas gracias.

06.02.2021 - 09:37

country flag Venche wrote:

Skal det virkelig strikkes vrangbånd på pinne 7 på bol og halskant, mens pinne 4 på ermer ?

25.01.2021 - 11:59

DROPS Design answered:

Hei Venche. Ja, det stemmer. Siden det er ballongermer på denne modellen, skal vrangborden på ermene være stramme. mvh DROPS design

27.01.2021 - 16:24

country flag Rosemarie Ambrose wrote:

I want to make the sweater in a worsted yarn. How do I convert to the proper gauge.? Knitting needle size 6 and 8. Please help if you can. Thank you.

09.01.2021 - 23:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ambrose, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - please contact the store where you bought the yarn for any individual assistance; thanks for your comprehension. Happy knitting!

11.01.2021 - 08:53

country flag Kathi wrote:

Hallo, meine Maschenprobe war mit 7mm viel zu klein, daher hab ich mit 8mm noch mal eine gemacht. Nun komme ich in der Breite mit 14 Maschen auf 9cm und in der Höhe mit den angegebenen 17 Reihen auf genau 10cm. Kann ich dann mit der 8mm Nadel Stricken oder soll ich noch eine dickere Nadel versuchen? LG, Kathi

09.01.2021 - 22:35

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, versuchen Sie zuerst, Ihre Maschenprobe zu waschen und flach liegend trocknen lassen (= genauso wie beim den fertigen Pullover), und prüfen Sie mal wieder die Maschenprobe, sollte es immer zu klein sein, dann versuchen Sie mit dickeren Nadeln - hier lesen Sie mehr über Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!

11.01.2021 - 08:52

country flag Marika VERGINIS wrote:

Liebes Drops Team! Ich verstehe in der Anleitung folgenden Part nicht: in dieser Weise alle 6 cm insgesamt 5 x abnehmen... vielen Dank Marika

09.12.2020 - 20:44

DROPS Design answered:

Liebe Frau Verginis, bei 8 cm haben Sie 1 Maschen beidseitig abgenommen (= total 2 Maschen bei dieser Reihe). Diese Abnahmen sollen Sie noch 4 Mal in jede 6. cm wiederholen (= 5 Mal insgesamt x 2 Abnahmen = 10 Maschen werden insgesamt abgenommen). Viel Spaß beim stricken!

10.12.2020 - 09:01

country flag Sarah P wrote:

I want to make the sleeves in English rib but straight without the baloon effect. Can you advice on stitches to Inc/decrease before the English rib a end of English rib to get a straight/normal sleeve right size sleeve ?

03.10.2020 - 15:16

DROPS Design answered:

Dar Sarah P, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - you can swatch to check the request width and calculate new amount of stitches you needo for the width you would like to have. You can also get helped and inspired from a pattern with sleeves like you like them to be. Happy knitting!

05.10.2020 - 09:24

country flag Dominika wrote:

Hei! Der det står: Når arbeidet måler 35-36-37-38-39-40 cm, felles det av 2-2-4-6-6-8 masker til ermehull på starten av de 2 neste pinnene = 66-69-73-76-84-89 masker. Jeg skjønte ikke helt hvordan dette skal gjøres. Jeg innså nå at jeg har brukt felletips 1 i to omganger slik man skulle gjøre tidligere. Men det er vel feil?

04.08.2020 - 21:15

DROPS Design answered:

Hei Dominica, Man skal felle av her (ikke som beskrevet i tips, men som man gjør når man feller av på slutten av stykket). God fornøyelse!

05.08.2020 - 08:09

country flag Lorjelyn Celis wrote:

Ik begrijp het niet hoe je de achterpand in een rondbreinaald moet doen en dan ook nog eens de voorpand apart ook in een rondbreinaald 7mm?

09.07.2020 - 22:59

country flag Weronica wrote:

Jeg er helt ny strikker.. hva betyr 1 maske rille? Skjønner ikke bæra 🤔

28.06.2020 - 19:04

DROPS Design answered:

Hei. Det betyr at du strikker den masken ret på retsiden och ret på vrangsiden när du strikker frem og tillbake. Mvh DROPS Design

29.06.2020 - 13:33

country flag Isabel Sweertvaegher wrote:

Klopt het dat de boord bij voor en achterpand met naald 7 mm is? Moet dit niet 4 mm zijn zoals bij de mouwen?

22.03.2020 - 19:14

DROPS Design answered:

Dag Isabel,

Voor het voor en achterpand brei je de boord met naald 7 mm. Bij de mouwen brei je de boord wel met 4 mm.

25.03.2020 - 11:14