Squared Plum |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð tunika úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað í ferning frá miðju og út. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-31 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju framstykki/bakstykki og út í ferning. Síðan eru ermarnar heklaðar og neðsti hluti á fram- og bakstykki fram og til baka. Ermar eru heklaðar í hring ofan frá og niður. Allt stykkið er heklað með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). FRAMSTYKKI: Heklið ferning: Byrjið með heklunál 5,5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.2b alls 4 sinnum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2a/A.2b hefur verið heklað til loka á hæðina eru endurteknar 2 síðustu umferðirnar. Þ.e.a.s. í hvert skipti sem 2 síðustu umferðirnar eru heklaðar er pláss fyrir 2 stuðla hópa fleiri í hverri útaukningu í hverju af 4 hornum í ferningi. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 55-60-65-65-65-65 x 55-60-65-65-65-65 cm – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé eins og næst síðasta umferð í A.2a/A.2b. Heklið nú áfram í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S, M OG L: Heklið nú fram og til baka meðfram neðri kanti á framstykki þannig: Festið enda með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.3a, A.3b fram að næsta horni, A.3d um loftlykkjuboga í horni. Snúið og haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 6-4-4 raðir. Klippið frá og festið enda. Nú eru axlirnar heklaðar og hálsinn á gagnstæðri hlið á ferning þannig: Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 8-8-8 stuðlahópa í umferð (= hálsinn). Þ.e.a.s. setjið prjónamerkin um loftlykkju á ystu hlið á þessum 8-8-8 stuðlahópum. Byrjið frá röngu við stjörnu – sjá teikningu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.3a um loftlykkjuboga í horni, heklið A.3b fram að loftlykkju með fyrsta prjónamerki, heklið A.3c um loftlykkju með prjónamerki. Snúið og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning). Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir 8-8-8 stuðlahópa fyrir hálsmáli og heklið vinstri öxl frá röngu þannig: Heklið A.3e um loftlykkju með prjónamerki í, heklið A.3b fram að horni, heklið A.2d um loftlykkjuboga í horni. Haldið áfram fram og til bak svona þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning) – stillið af eftir hægri öxl. Framstykki er nú lokið, heklið síðan áfram frá bakstykki. STÆRÐ XL, XXL OG XXXL: Heklið nú út að hvorri hlið þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í einu horni og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.3a, A.3b fram að næsta horni, A.3d um loftlykkjuboga í horni. Snúið og haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 2-4-6 umferðir frá ferningi. Klippið frá og festið enda, heklið alveg eins á gagnstæðri hlið á ferningi. ATH: Passið uppá að byrjað sé frá röngu þannig að umferð með 4 loftlykkjum og 1 stuðli er heklað frá röngu og umferð með 3 stuðlum og 1 loftlykkju er hekluð frá réttu. Heklið nú meðfram neðri kanti á framstykki þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju um síðustu umferð í horni neðst á neðri kanti á framstykki og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.3e í horni (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni), heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem hekluð var út í hlið, haldið síðan áfram með A.3b fram að hinni hliðinni, heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem hekluð var út í hlið og endið með A.3c í horni (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni). Haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 6-6-8 umferðir frá ferningi. Klippið frá og festið enda. Heklið nú axlir og hálsmáli á gagnstæðri hlið á ferningi þannig: Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 8-10-10 stuðlahópa í umferð (= hálsmál). Þ.e.a.s. setjið prjónamerki um loftlykkju á ytri hlið við þessa 8-10-10 stuðlahópa. Byrjið frá röngu við stjörnu – sjá teikningu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.3e í hornið (ATH: heklið eins og um síðustu umferð í horni), heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð út að hlið, haldið síðan áfram með A.3b fram að loftlykkju með fyrsta prjónamerki, heklið A.3c um loftlykkju. Snúið og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning). Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir 8-10-10 stuðlahópa fyrir hálsmáli og heklið vinstri öxl frá röngu þannigl Heklið A.3e um loftlykkju með prjónamerki í, heklið A.3b fram að horni á ferning, heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð í hlið, endið með A.3c í horni (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni). Haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning) – stillið af eftir hægri öxl. Framstykkið er nú lokið, heklið síðan áfram frá bakstykki. BAKSTYKKI: Heklið alveg eins og framstykki, en þegar hekla á axlir og hálsmál, heklið fyrst 2 umferðir yfir allan heklaða ferninginn + yfir umferð sem var hekluð út á við á hvorri hlið (á við um stærð XL, XXL og XXXL) í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S, M, og L: Byrjið í horni frá röngu og heklið A.3a um loftlykkjuboga í horni, heklið A.3b fram að næsta horni, heklið A.3d um hornið. Heklið 1 umferð til baka frá réttu (= 2 umferðir). Setjið síðan 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 8-8-8 stuðlahópa og heklið öxl og hálsmál alveg eins og á framstykki, en endið þegar heklaðar hafa verið 2 umferð fyrir öxl (= alls 4 umferðir frá ferning). Klippið frá og festið enda. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Byrjið í horni frá röngu og heklið A.3e í hornið (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni og stykkið lítur ekki út eins og fyrsta umferð í A.3e), heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð út í hlið, haldið síðan áfram með A.3b fram að horni á ferning, heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð í hlið, endið með A.3c í hornið (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni og stykkið lítur ekki út eins og fyrsta umferð í A.3c). Heklið 1 umferð til baka frá réttu (= 2 umferðir). Setjið síðan 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 8-10-10 stuðlahópa og heklið öxl og hálsmál alveg eins og á framstykki, en endið þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir fyrir öxl (= alls 4 umferðir frá ferningi). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – saumið í ystu lykkjubogana frá röngu með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið eitt prjónamerki um loftlykkju eftir 6-6-7-7-8-9 hópa með stuðlum (3 stuðlar) niður frá axlasaumi hvoru megin við handveg = ca 15-15-18-18-20-25 cm frá axlasaumi og niður á framstykki í hvorri hlið (merkir handveg). Endurtakið á bakstykki. Heklið hliðarsaum saman í gegnum bæði lögin og frá röngu með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) þannig: Byrjið við prjónamerkin sem merkja annan handveginn og heklið 1 fastalykkju um loftlykkju, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* niður að hluta sem var heklaður fram og til baka neðst á tunikunni (= ca 8-5-5-8-8-10 cm klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. ERMI: Ermin er hekluð í hring frá handveg og niður. Byrjið mitt undir handveg við prjónamerki og heklið í hring frá umferð með ör með 1 þræðir Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) þannig: Heklið A.4, heklið 4-4-5-5-6-9 mynstureiningar A.5b upp að axlasaumi, heklið fyrsta stuðul í A.5b mitt í axlasaum og haldið síðan áfram þar til heklaðar hafa verið 4-4-5-5-6-9 mynstureiningar A.5b frá axlasaumi og það eru 2 stuðlahópar eftir á undan prjónamerki undir ermi, heklið A.6. Haldið svona áfram hringinn þar til A.4, A.5b og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina. Nú hefur fækkað um 2 stuðlahópa undir ermi = 10-10-12-12-14-16 stuðlahópar undir ermi. Nú er heklað áfram í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S og M: Heklið A.5a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), síðan er heklað A.5b alls 10-10 sinnum hringinn í umferð, heklið A.5c. Haldið svona áfram þar til ermin mælist alls 44-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er síðasta umferð í A.5b. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram hringinn frá umferð með ör í mynsturteikningu A.4, A.5b og A.6 eins og áður þar til mynsturteikning hefur verið hekluð 1-1-2-2 sinnum til viðbótar (alls 2-2-3-3 sinnum á hæðina frá handveg) = 10-10-10-12 stuðlahópa fyrir ermi. Heklið nú áfram þannig: Heklið A.5a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), síðan er heklað A.5b 10-10-10-12 sinnum hringinn á ermi, heklið A.5c. Þegar ermin mælist 41-39-38-36 cm frá handveg (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er síðasta umferð í A.5b, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk og festið enda með 1 fastalykkju í saum á öxl og heklið fyrst á framstykki, síðan á bakstykki þannig: UMFERÐ 1: Hoppið yfir fyrstu umferð, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) niður að fyrsta horni í hálsmáli (= 4 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja) um hverja af loftlykkjum meðfram síðustu umferð á ferning í hálsmáli (= 8-8-8-8-10-10 lofltykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) upp að axlasaum, (= 4 loftlykkjubogar), hoppið yfir fyrstu umferð á öxl/hálsmál á bakstykki, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) niður að fyrsta horni í hálsmáli (= 3 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja) um hverja af loftlykkjum meðfram síðustu umferð á ferning í hálsmáli (= 8-8-8-8-10-10 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) upp að axlasaum (= 3 loftlykkjubogar) = 30-30-30-30-34-34 loftlykkjubogar í kringum hálsmál. Haldið síðan áfram hringinn með A.7b hringinn í umferð (A.7a sýnir hvernig umferð byrjar og endar). Þegar allt A.7a/A.7b hefur verið heklað til loka á hæðina er klippt frá og endi festur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Gunvor Madsen wrote:
Superflotte farver og nytænkende. Den ville jeg gerne lave!
21.06.2018 - 12:51Ľudmila Hoffmanová wrote:
Beautifull. Please in Czech
06.06.2018 - 22:01Machefer wrote:
Pull granny
06.06.2018 - 21:35Brigitte wrote:
Superbe tenue décontractée.
06.06.2018 - 10:35Jo wrote:
This has to be my favourite
06.06.2018 - 00:54Maria Adele Castiglioni wrote:
Trovo che le sfumature di questo modello lo rendano molto particolare
05.06.2018 - 21:32