Alberta Autumn |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal úr DROPS Delight. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og sólfjöðrum.
DROPS 197-30 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. A.5a og A.6a sýna hvernig umferðin byrjar. ATH: Byrjun á umferð er teiknuð yfir hverja aðra í sömu mynsturteikningu jafnvel þó að heklað sé til skiptis í hægri og vinstri hlið á sjali og ekki yfir hverja aðra. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður. Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Delight og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Byrjið á umferð með stjörnu og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka, heklið áfram þannig: A.2a, A.2b og A.2c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 17 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 8 cm frá fyrsta loftlykkjuhring og niður mitt í sjali. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú mynstur frá réttu þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjubogann, A.3b um hvern af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3c um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjubogi á sjali), A.3b um hvern af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3d um síðasta loftlykkjubogann. Þegar A.3a til A.3d hefur verið heklað til loka á hæðina eru síðustu 4 umferðir í mynsturteikningu endurteknar 3 sinnum til viðbótar á hæðina. Stykkið mælist ca 37 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Nú er hekluð ein umferð með loftlykkjubogum frá röngu þannig: Heklið A.4a yfir A.3a, A.4b yfir A.3b, A.4c yfir A.3c, A.4d yfir A.3d. Nú eru 84 loftlykkjubogar í umferð. Setjið nú 12 merkiþræði í stykkið. Þetta er gert til að það verði einfaldara að auka út lykkjur jafnt yfir. Setjið merkin í stykkið þannig: Setjið fyrsta merkiþráðinn í lykkju á eftir 4 loftlykkjubogum, * hoppið yfir 7 loftlykkjuboga og setjið næsta merkiþráð í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, nú eru eftir 3 loftlykkjubogar í umferð. Heklið síðan með mynstri A.5b (A.5a sýnir hvernig umferðin byrjar og er hekluð sem viðbót við lykkjur í A.5b), JAFNFRAMT í umferð með ör er aukið út um lykkjur jafnt yfir þannig: ÖR-1: Aukið út um 2 fastalykkjur hvoru megin við merkiþráðinn með því að hekla 1 auka fastalykkju um hvorn af 2 loftlykkjubogum á undan og á eftir merkiþræði (= 48 lykkjur fleiri) = 300 fastalykkjur. ÖR-2: Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við merkiþráð með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 324 fastalykkjur. ÖR-3: Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við merkiþráð með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 348 stuðlar. ÖR-4: Aukið út um 2 stuðla hvoru megin við merkiþráð með því að hekla 1 auka stuðul um hvorn af 2 loftlykkjubogum á undan og á eftir merkiþræði (= 48 lykkjur fleiri) = 396 stuðlar. Heklið síðan þær umferðir sem eftir eru í mynsturteikningu. Stykkið mælist ca 51 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Nú eru 66 sólfjaðrir (= 33 mynstureiningar A.5b) í umferð. Brjótið niður síðustu umferð í A.5a/A.5b þannig að réttan liggi að réttu og heklið frá röngu um umferð með svörtum ferning í A.5b (= umferð með: 1 hálfur stuðull, 3 loftlykkjur o.s.frv.) þannig: Heklið fyrstu umferð í A.6b þannig (A.6a sýnir hvernig umferðin byrjar og er hekluð sem viðbót við A.6b): 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta hálfa stuðulinn, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta hálfa stuðul), heklið svona meðfram öllu sjalinu, JAFNFRAMT er aukið út um 2 loftlykkjuboga hvoru megin við merkiþræði með því að hekla 1 auka loftlykkjuboga í hvorn af 2 loftlykkjubogum á undan og á eftir hverjum merkiþræði (= 48 loftlykkjubogar fleiri) = 180 loftlykkjubogar. Haldið áfram fram og til baka með A.6a og A.6b þar til öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina og endið með 1 stuðul í ystu lykkju frá fyrri umferð. Þegar allt A.6a og A.6b hefur verið heklað til loka á hæðina eru 90 sólfjaðrir í umferð. Sjalið mælist ca 60 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Klippið og festið þræði. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Birgitte Skov wrote:
Looks like the Drops-Along already online :-)
07.06.2018 - 11:27Cokkie wrote:
Fijn zo zonder punt.
06.06.2018 - 01:42