Aster Jacket |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð, gatamynstri og vösum. Stærð S – XXXL.
DROPS 194-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju með garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að fitjaðar hafa verið upp lykkjur fyrir hálsmáli og kant að framan (= þegar fyrsta umferð í A.2 hefur verið prjónuð). Fellið síðan af 4-4-4-4-4-4 næstu hnappagöt með 26 umferðir á milli gata, þ.e.a.s. fellið af fyrir hnappagati í hvert skipti sem byrjar er á nýrri gataumferð í A.2 (= 5-5-5-5-5-5 hnappagöt). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Prjónað er ofan frá og niður á hringprjóna. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal eða Air. Prjónið 1 umferð frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 15-15-15-17-17-17 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og kant að framan í lok umferðar = 41-43-45-47-49-51 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið yfir fyrstu 15-15-15-17-17-17 lykkjur og mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur, A.2 (= 25 lykkjur), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram fram og til baka svona (í 21. umferð í A.2 er fækkað um 1 lykkju = 24 lykkjur í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-1-3-4 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni (alls 6-6-8-8-12-14 lykkjur fleiri fyrir handveg) = 46-48-52-54-60-64 lykkjur. Nýjar lykkjur er prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið áfram fram og til baka svona þar til allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Endurtakið síðan síðustu 26 umferðir í A.2 (þ.e.a.s. frá umferð merktri með ör í mynsturteikningu) 3 sinnum til viðbótar á hæðina. Þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Prjónið síðan áferð (A.1) yfir allar lykkjur og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal eða Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 15-15-15-17-17-17 nýjar lykkjur fyrir háls og kant að framan í lok umferðar = 41-43-45-47-49-51 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 (= 25 lykkjur), prjónið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið áfram fram og til baka svona (í 21. umferð í A.3 er fækkað um 1 lykkju = 24 lykkjur í mynstureiningu). Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-1-3-4 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni (alls 6-6-8-8-12-14 lykkjur fleiri fyrir handveg) = 46-48-52-54-60-64 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið áfram fram og til baka svona þar til allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Endurtakið síðan síðustu 26 umferðir í A.3 (þ.e.a.s. frá umferð merktri með ör í mynsturteikningu) 3 sinnum til viðbótar á hæðina. Aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Prjónið síðan áferð (A.1) yfir allar lykkjur og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: Hægri öxl. Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal eða Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. Vinstri öxl: Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal eða Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 26-28-30-30-32-34 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á vinstri öxl, fitjið upp 21-21-21-25-25-25 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á hægri öxl = 73-77-81-85-89-93 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli er prjónað brugðið). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-1-3-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni (alls 5-5-7-7-11-13 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið á stykki – ATH: Fitjið upp 1 lykkju færri fyrir handveg í hvorri hlið á bakstykki en á framstykki til að mynstrið gangi jafnt upp í hlið á fram- og bakstykki) = 83-87-95-99-111-119 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Fitjið upp 19-23-25-27-27-27 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal eða Air. Prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1. Haldið áfram fram og til baka svona, JAFNFRAMT í lok hverrar umferðar eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkja 0-0-0-0-4-5 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 47-51-53-55-59-61 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Þegar fitjaðar hafa verið upp allar lykkjur er sett eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-5-4-4-3-3 cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 33-35-37-37-39-41 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 44-44-43-43-41-39 cm frá prjónamerki (styttri ermi í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASAR: Fitjið upp 29 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal eða Air. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til vasinn mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. Prjónið annan vasa á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkant. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkantinn á ermum og innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið saum undir erum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni. Staðsetjið vasann meðfram hliðarsaumi og 4 cm frá affellingarkanti neðst niðri á framstykki og saumið við framstykkið með því að sauma lykkjurnar eina og eina með smáu ósýnilegu spori. Endurtakið á hinu framstykkinu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 74-86 lykkjur frá réttu á stuttan hringprjón 6. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með brugðnum lykkjum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Zabeth wrote:
Très beau gilet qui semble moelleux. Le point ajouré qui longe la bande de boutonnières de chaque côté est élégant. Sans oublier les deux poches, très pratiques pour y loger ses mains lorsqu'il fait froid ou tout simplement y mettre un mouchoir. J'aime bien aussi l'encolure arrondie.
27.06.2018 - 21:22Marianne Stahl wrote:
Smuk blå lang trøje i mit yndlings garn
14.06.2018 - 19:11