Bring Spring Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR-1 (á við um berustykki og fram- og bakstykki): 10-11-12-12-12-13 cm með 1 þræði natur + 1 þræði ljós beige (= 2 þræðir). 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur + 1 þræði gulur (= 2 þræðir). 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur + 1 þræði bleikfjólublár (= 2 þræðir). 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur + 1 þræði fjólublár (= 2 þræðir). Prjónið síðan með 1 þræði natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið er út um alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum á að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju saman. RENDUR-2 (á við um berustykki og ermar): Haldið áfram þar til prjónaðir hafa verið alls 12-12-12-13-13-13 cm með 1 þræði natur + 1 þræði ljós bleikfjólublár (= 2 þræðir) frá fyrri randar umferð á berustykki. 12-12-12-13-13-13 cm með 1 þræði natur + 1 þræði fjólublár (= 2 þræðir). Prjónið síðan með 1 þræði natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Prjónaður er kantur meðfram miðju að framan og að lokum kantur í hálsi. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum og stroff kanti. BERUSTYKKI: 102-122-122-130-126-136 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði ljós beige (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerki er sett á eftir fyrstu 20-25-25-26-25-27 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 12-12-12-14-14-15 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 38-48-48-50-48-52 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 12-12-12-14-14-15 lykkjur (= ermi), nú eru 20-25-25-26-25-27 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR-1 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 21-23-24-26-28-30 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 270-306-314-338-350-376 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Ef þetta mál hefur ekki verið náð, prjónið áfram án útaukningar þar til náð hefur verið réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 43-47-49-53-56-61 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-60-60-64-64-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-96-104-110-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-60-60-64-64-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 43-47-49-53-56-61 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-214-230-246-266 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-42-42-46-50-54 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 220-244-256-276-296-320 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt * prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-60-60-64-64-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkjur í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-68-70-74-76-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og RENDUR-2. Þegar stykkið mælist 40-38-38-36-34-33 cm frá skiptingu (styttra máli í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 56-64-64-72-72-80 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 28-32-32-36-36-40 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma i veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 45-43-43-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 101-105-109-113-117-121 lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3,5 með 1 þræði natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 101-105-109-113-117-121 lykkjur meðfram hægra framstykki á hringprjón 3,5 með 1 þræði natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1 cm er fellt af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 13-15-17-14-15-15 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 9 cm frá kanti í hálsi. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er þegar fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum (séð frá réttu). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist eins og vinstri kantur að framan. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 112-132-132-140-136-146 lykkjur meðfram öllum kanti í hálsmáli á hringprjón 3,5 með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði beige (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 94-94-102-106-110-114 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca ½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan áfram þar til kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Emilia wrote:
Hur mycket väger koftan i storlek S -M - L?
07.10.2023 - 09:43DROPS Design answered:
Hej Emilia, Hvis du vil strikke den i 2 tråde i samme farve, kan du udgå fra natur x 2 :)
13.10.2023 - 14:16Ninon wrote:
Bonjour madame est ce possible de tricoter la manche mois bouffante?
22.04.2023 - 23:51DROPS Design answered:
Bonjour Ninon, fort probablement, il vous suffirait sans doute de diminuer au milieu sous la manche comme on le fait pour une manche traditionnelle. Vous pouvez vous aider à cette fin d'un modèle similaire de tension identique. Bon tricot!
24.04.2023 - 10:03Claudia wrote:
Hallo liebes Drops Team! Gibt es ein Video zur raglan Zunahme? Vielen lieben Dank
28.11.2021 - 15:34DROPS Design answered:
Liebe Claudia, diese Lektion zeigt, wie man einen Pullover von oben nach unten strickt, in diese Lektion werden die Umschläge (Raglanzunahmen) rechts verschränkt gestrickt, für diese Jacke stricken Sie die Umschläge bei der Rückreihe links, damit Löcher entstehen. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!
29.11.2021 - 07:56Hery wrote:
Bij het proeflapje staat dat je bij teveel steken een grotere naald moet nemen en bij te weinig steken een kleinere. Dit moet omgekeerd zijn. Bij teveel steken een kleinere naald en bij te weinig steken een grotere naald.
31.07.2020 - 10:01Yulia wrote:
Hi! BODY description says: "When the piece measures 30-30-31-30-30-30 cm from the division knit 1 row from the right side where you increase 34-42-42-46-50-54 stitches evenly spaced – read INCREASE/DECREASE TIP = 220-244-256-276-296-320 stitches." Please help me to understand why an increase is needed just before the end of the garment? Thank you!
23.09.2019 - 14:01DROPS Design answered:
Dear Yulia, The rib edge is more elastic and will contract slightly compared to, for example, stocking stitch. By increasing before the rib edge, you avoid a visible difference in width between the rib edge and the rest of the body. Happy knitting!
23.09.2019 - 15:23Mia wrote:
Tråkigt att inte få svar på min fråga om 200-9
25.05.2019 - 11:08DROPS Design answered:
Hej Mia. Om du lägger din fråga som "fråga" istället för "kommentar" så ser vi den mycket fortare och kan svara dig. Vi har inga uppgifter om detta, men jag tänker att eftersom hela koftan stickas med 1 tråd natur + 1 tråd annan färg så borde garnmängden bli det dubbla av natur om den stickas enfärgad. Lycka till!
27.05.2019 - 10:40Mia wrote:
Hur mycket garn går det åt om man gör koftan enfärgad?
15.05.2019 - 14:19Susanne wrote:
Er garnmængden beregnet ud fra den lange model? hvor meget skal der til den korte?
10.03.2019 - 20:37DROPS Design answered:
Hej Susanne, Der er kun én model, du finder garnforbruget øverst i opskriften som svarer til målene i måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
12.03.2019 - 14:06Denolf wrote:
Is kid's silk in kleur vanillegeel reeds te verkrijgen?
28.02.2019 - 15:16DROPS Design answered:
Dag Denolf,
Als het goed is, is deze gewoon verkrijgbaar. Je kunt je verkooppunt vragen of ze deze kleur op voorraad hebben.
07.03.2019 - 22:05Gloria wrote:
Come convertire il lavoro da ferri circolari (unico pezzo) a ferri tradizionali (davanti+dietro)? grazie e complimenti :)
11.02.2019 - 09:32DROPS Design answered:
Buongiorno Gloria. Il cardigan è lavorato dell'alto verso il basso. In questi casi l'uso dei ferri dritti è sconsigliato per il numero elevato di maglie con cui si lavora. Purtroppo non ci è possibile in questa sede adattare le istruzioni alla lavorazione dal basso verso l'alto e in parti separate. Può provare a rivolgersi al suo rivenditore Drops per un'assistenza così personalizzata. Buon lavoro!
11.02.2019 - 13:21