DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Summer Shells

Prjónuð peysa með laskalínu úr 1 þræði DROPS Snow, 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-5
DROPS Design: Mynstur ee-657
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-650-700-800-850 g litur 85, karrí

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-450-450-500-650-650 g litur 12, karrí

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 22, gulur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6 (A.4 og A.6 á við um stærð S, M og L). Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 29. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 28. og 29. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar á stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 56-58-60-64-64-68 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Snow, 1 þræði Wish eða 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-2-4-0-0-4 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚRTAKA = 56-56-56-64-64-64 lykkjur. Prjónið nú mynstur – veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð, þannig: * setjið eitt prjónamerki hér, A.1 yfir fyrstu 3-3-3-4-4-4 lykkjur, A.2 yfir næstu 14 lykkjur, A.3 yfir næstu 4-4-4-5-5-5 lykkjur (= bakstykki/framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.1 yfir næstu 3-3-3-4-4-4 lykkjur, A.3 yfir næstu 4-4-4-5-5-5 lykkjur (= ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu og sýna skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma. Haldið áfram með mynstrið í hring þannig: Aukið út hvoru megin við mynsturteikningu fyrir laskalínu (útaukningin er teiknuð inn í mynsturteikningu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið upp að umferð með ör í mynsturteikningu (sjá ör fyrir þína stærð), eru 192-200-216-232-248-256 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 29-30-33-35-37-39 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 55-57-61-65-69-71 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 41-43-47-51-55-57 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 55-57-61-65-69-71 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 41-43-47-51-55-57 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur undir ermar. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 118-122-134-142-154-158 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur í umferð hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð við prjónamerki í einni af hliðunum og prjónið mynstur með byrjun á umferð með stjörnu fyrir þína stærð í mynsturteikningu þannig:

Stærð S, M og L:
* 1-2-5 lykkjur slétt, A.4 yfir næstu 7 lykkjur, A.5 yfir næstu 42 lykkjur (= 3 mynsturteikningar með 14 lykkjum), A.6 yfir næstu 7 lykkjur, 2-3-6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.

Stærð XL, XXL og XXXL:
* 0-3-4 lykkjur slétt, A.5 yfir næstu 70 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 14 lykkjum), 1-4-5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.

Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist ca 19-20-19-19-19-19 cm – stillið af að endað sé eftir 5. eða 13. umferð í A.5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-24-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 142-146-160-170-184-190 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjón. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 41-43-47-51-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 45-47-53-57-63-65 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 4-4-6-6-8-8 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið mynstur með byrjun á umferð með stjörnu fyrir þína stærð í mynsturteikningu þannig:

Stærð S, M og L:
1-2-5 lykkjur slétt, A.4 yfir næstu 7 lykkjur, A.5 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.6 yfir næstu 7 lykkjur, 2-3-6 lykkjur slétt.

Stærð XL, XXL og XXXL:
0-3-4 lykkjur slétt, A.5 yfir næstu 56 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum), 1-4-5 lykkjur slétt.

Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist ca 19-19-17-15-13-12 cm – stillið af að endað sé eftir 5. eða 13. umferð í A.5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir = 54-56-64-68-76-78 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófara prjóna. Ermin mælist ca 23-23-21-19-17-16 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.02.2019
Leiðrétting á mynsturteikningu A.1 og A.2 í stærð S-M-L: úrtaka fjarlægð í umferð 35

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur snúnar brugðið saman
symbols = örin sýnir hvar í mynsturteikningu berustykki er tilbúið í mismunandi stærðum – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = stjarnan sýnir í hvaða umferð í mynsturteikningu á að byrja á í mismunandi stærðum – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Summer Shells

mariayawa, Norway

Summer Shells

Anna Korotkevich, Belarus

Summer Shells

NeedlesWLove, Portugal

Summer Shells

rktaylor1984, United States

Summer Shells

Anne, United States

Summer Shells sweater

Randa, Norway

Summer Shells

Mária, Slovakia

Summer Shells

Leena, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (201)

country flag Jen wrote:

This example doesn’t make sense to me, the instructions don’t indicate anywhere to repeat A3. I read it as A1+A2+A3 - it is not clear at all why you would repeat A3 *** In the pattern this can be written as follows: “work A.1, A.2, A.3 a total of 1-1-2-3-4 times”. This means that you first work A.1, then A.2 and finally you repeat A.3 a total of 1-1-2-3-4 times (depending on your size). It is ONLY A.3 that is repeated, A.1 and A.2 are worked 1 time each.

08.03.2021 - 14:44

DROPS Design answered:

Dear Jen, let's take size S as an example, you will work: A.1, A.2, A.3 (= front/back piece), marker, A.1, A.3 (sleeve). In this size, A.1 is worked over 3 sts, A.2 over 14 sts and A.3 over 4 sts. On the first row, you increase 1 st in each A.1 + in each A.3 for the raglan, so that you will have at the end of this round: A.1 = 4 sts, A.3 = 6 sts (A.2 = still 14 sts) = you have increased 8 sts in the round in total = 56+8=64 sts on needle. Hope this will help. Happy knitting!

08.03.2021 - 16:03

country flag Jen wrote:

Row 1 - do you start with increase? - Increase, purl two together, increase (3 stitches) OR is is knit 1, increase, purl two together, knit one (4 stitches) This diagram is not clear at all.

08.03.2021 - 14:24

country flag Jen wrote:

For example. - A1 first row you start with 3 stitches and increase to 4. Row 2 says you increase to 4 - meaning there are no increases even though the diagram shows there is. What am I missing?

08.03.2021 - 14:19

country flag Jen wrote:

No I’m sorry I have started and re-started this about a dozen times and there are alwayyyyys extra stitches after each round. And the extra stitches just increase the further along I get. I am following the pattern exactly as directed. I can’t be the only one who has had this problem, I’m almost ready to give up. Do better instructions exist?

08.03.2021 - 14:13

country flag Christine Marjeram wrote:

I am just about to order the circular needles which I have never used befor, and am confused about the different length needed. I need to work in a larger needle size of 10mm so I will up the 8mm to a 9mm and the 9mm to a 10mm. Is this correct? But, why the different length? Great pattern and wool by the way. Just discovered it. Great customer service as well: I'm impressed. Cheers. Christine from the UK.

08.03.2021 - 10:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marjeram, if you need needle size 10 mm to get the tension, then you will have to use 9 mm and 10 mm, correct. You will use the 40 cm needle to start with then continue with the 80 cm needle when you have worked enough increases to fit the needle. Happy knitting!

08.03.2021 - 10:24

country flag Jen wrote:

I've got an issue with having extra stitches on every round. I've started over a million times and the stitches shown in the diagram are less than what I get on my needles. My only guess is that the diagram doesn't account for all stitches, just the raglan increase shaping which I am following.

07.03.2021 - 04:23

DROPS Design answered:

Dear Jen, diagrams are showing all stitches, including raglan increases in A.1 and A.3 - just work: *A.1, A.2, A.3 (= front/back piece), A.1, A.3 (= sleeve)* and repeat from *-* for the 2nd half of round and continue like this following diagrams to the arrow for your size. Do not work extra stitches/yarn overs than the one shown in diagrams. Hope this will help. Happy knitting!

08.03.2021 - 08:32

country flag Jennifer wrote:

Hi there! Silly question but I’m assuming the blank rows between patterned rows mean knitting the entire round not just x numbered stitches as indicated. Also - diagram A.6 does the star indicate where to start and moving upwards like the other diagrams?

01.03.2021 - 13:44

DROPS Design answered:

Dear Jennifer, the "blank" squares refer to stitches that should be knitted from the right sight. When you see a whole row of blank stitches, then the whole row should be knitted. Also yes, the star refers to the point where the pattern shoul dbe started for different sizes.

01.03.2021 - 14:36

country flag Andrea Turkalo wrote:

On the diagrams, are the blank squares knit stitches or purl stitches ? No where in the directions is this indicated. In the diagram legend this is not indicated.

25.02.2021 - 14:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Turkalo; the blank squares are knitted (= stitches in stocking stitch, always knitted from RS since we work here in the round) - see 1st symbol under diagram key. Happy knitting!

25.02.2021 - 15:32

country flag Francesconi wrote:

Bonjour, Je souhaite savoir avec quel choix de laine a été tricoté ce modèle ? La drops snow est une laine spécialement faite pour le feutrage, non ? Merci d'avance pour votre réponse. Bien cordialement Isabelle

14.02.2021 - 10:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francesconi, Ce pull a été tricoté en DROPS Snow sur la photo, si cette laine est spécialement idéale pour le feutrage, elle fait également de merveilleux ouvrages bien chauds, qui ne seront pas feutrés, tout comme ce pull par exemple. Bon tricot!

15.02.2021 - 08:56

country flag Martine Kriesch wrote:

In de legenda van het patroon staat de mindering over 4 steken (piramide) niet toelicht. Ik hou naar de mindering hierover 1 steek over, maar dat moeten er 2 zijn?

08.01.2021 - 10:47

DROPS Design answered:

Dag Martine,

De 'piramide' is eigenlijk 2 symbolen naast elkaar, namelijk 2 gedraaid averecht samen en dan 2 averecht samen. Je mindert dus die 4 steken naar 2 steken.

09.01.2021 - 09:21