DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 201-28
DROPS Design: Mynstur db-100
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-500-600 g litur 02, sumarengi
300-400-500 g litur 13, grár

HEKLFESTA:
4 mynstureiningar A.3b á breidd og 7 umferðir A.3b á hæðina = 10 x 10 cm.
1 heklaður ferningur mælist 16 cm x 16 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklaðir eru þríbrugðnir stuðlar í byrjun á umferð eru heklaðar 5 loftlykkjur í stað 3 loftlykkjur í byrjun á umferð.

RENDUR-1:
* Heklið 1 umferð með litnum grár, 1 umferð með litnumsumarengi *, heklið frá *-*.

RENDUR-2:
Umferð frá réttu (3 stuðlar + 1 loftlykkja): Sumarengi.
Umferð frá röngu (1 stuðull + 4 loftlykkjur): Grár.

LITASKIPTI:
Þegar mynsturteikningar A.1 og A.2 eru heklaðar eru heklaðar rendur í öðrum hvorum litnum hringinn. Til að sleppa við að klippa þráðinn frá eftir hverja umferð, er hægt að hekla þráðinn með þannig að hann fylgi með upp að næstu umferð.
Síðar í stykkinu þegar rendur eru heklaðar fram og til baka, verður að klippa þráðinn frá og festa eftir hverja umferð sem er hekluð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðir alls 12 ferningar. Fyrir framstykki eru heklaðir 4 ferningar saman sem mynda langa lengju. Fyrir bakstykki eru heklaðir 4 ferningar saman sem mynda ferning, síðan er heklað niður meðfram fram- og bakstykki og upp að öxl. Þegar fram- og bakstykki hafa verið hekluð til loka eru axlir saumaðar saman áður en heklað er áfram út í hvora hlið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Að lokum er kantur í hálsi heklaður og kantur að framan. Allt stykkið er heklað í röndum – sjá LITASKIPTI!

HEKLAÐIR FERNINGAR:
Heklið 4 loftlykkjur með grár með heklunál 5 og tengið saman í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið nú RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan og A.1 alls 4 sinnum hringinn í umferð (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 16 cm x 16 cm. Heklið alls 12 ferninga.

FRÁGANGUR Á FERNINGUM:
Bakstykki: Heklið 4 ferninga saman í einn stóran ferning – sjá mynd með svörtum línum. Leggið 2 ferninga með réttu að hvorum öðrum og heklið þá saman frá röngu í gegnum bæði lögin með litnum grár þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í lykkju í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í lykkju í hornið. Nú hafa verið heklaðir 2 ferningar saman. Heklið tvo aðra ferninga saman alveg eins. Heklið nú ferningana saman á lengdina þannig að það verða 2 ferningar á breidd og 2 ferningar á hæð þannig:
Festið enda með 1 fastalykkju í lykkju í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga í næsta ferning, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í lykkju í horni.
Hægra og vinstra framstykki: Heklið 4 ferninga saman í eina lengju þannig að það verða 4 x 1 ferningur – sjá teikningu með krossum. Leggið 2 ferninga með réttu að hvorum öðrum og heklið þá saman frá röngu í gegnum bæði lögin með litnum grár þannig:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju í lykkju í hornið, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í lykkju í hornið. Nú hafa verið heklaðir 2 ferningar saman.
Heklið hina ferningana saman þannig að þeir myndi langa lengju með 1 x 4 ferningum.
Heklið hitt framstykkið á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Heklið niður yfir bak þannig:
Byrjið með sumarengi og frá réttu. Festið þráðinn með 1 fastalykkju í hornið með hvítri stjörnu – sjá teikningu. Heklið RENDUR-2 og mynstur frá fyrstu umferð í A.3a til A.3c þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hverja og eina af næstu 11 loftlykkjubogum, endið með A.3c í lykkju í horni. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.3a – A.3c þar til stykkið mælist 26 cm frá ferning – stillið af að endað sé eftir umferð sem jafngildir 2. umferð í A.3a – A.3.
Heklið nú loftlykkjuboga niður meðfram hlið á umferð með A.3a frá röngu og með grár þannig: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2½ cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* jafnt yfir þar til heklaðar hafa verið 10 loftlykkjubogar meðfram hlið á bakstykki upp að fyrsta ferning (með hvítri stjörnu). Klippið frá og endurtakið í hinni hliðinni.
Heklið öxl á gagnstæðri hlið á 4 ferningunum þannig: Byrjið með litnum sumarengi og frá réttu. Festið enda með 1 fastalykkju í hornið með svartri stjörnu – sjá teikning.
Heklið RENDUR-2 og mynstur frá fyrstu umferð í A.3a – A.3c þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, heklið A.3b um hvern af næstu 11 loftlykkjubogum, endið með A.3c í hornið. Haldið áfram fram og til baka þar til öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina 1 sinni. Heklið nú vinstri öxl frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: A.3c, A.3b alls 3 sinnum, A.3a. Snúið og heklið síðustu umferð til baka frá réttu. Klippið frá og heklið hægri öxl frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Hoppið yfir 4 stuðlahópa fyrir hálsmáli og festið enda (grár) með 1 fastalykkju um næstu loftlykkju. Helklið A.3c, A.3b alls 3 sinnum, A.3a. Snúið og heklið síðustu umferð til baka frá réttu. Klippið frá. Nú er bakstykkið tilbúið.

HÆGRA OG VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið nú 1 umferð upp að öxl, meðfram öðrum ferning á enda á lengju með 4 hekluðum ferningum. Byrjið með litnum sumarengi og heklið frá réttu þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í hornið, heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern og einn af næstu 5 loftlykkjubogum, endið með A.3c í hornið. Klippið frá og festið enda.
Heklið vinstra framstykki á sama hátt og hægra framstykki.

FRÁGANGUR Á ÖXL:
Saumið axlasauma. Byrjið sauminn lengst út á öxl og saumið lykkjur eina og eina inn að hálsmáli.

HÆGRI HLIÐ OG ERMI:
Byrjið með sumarengi og frá réttu. Festið enda með fastalykkju í horni með hring – sjá teikningu. Heklið RENDUR-2 og mynstur frá fyrstu umferð í A.3a – A.3c þannig:
Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern og einn af næstu 9 loftlykkjubogum, haldið síðan áfram með A.3b um hvern loftlykkjuboga meðfram hvorum af næstu 2 ferningum á bakstykki (= 12 mynstureiningar A.3b), heklið 3 mynstureiningar A.3b jafnt yfir upp að axlasaumi og 1 mynstureining A.3b í síðustu umferð á framstykki, haldið síðan áfram með A.3b í hvern loftlykkjuboga meðfram hverjum af ferningum á framstykki (= 24 mynstureiningar A.3b), endið með A.3c í hornið lengst niður á framstykki. Nú er1 mynstureining A.1a, 49 mynstureiningar A.3b og 1 mynstureining A.3c meðfram hlið á stykki).
Þegar allt A.3a – A.3c er lokið á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar alveg eins, nema í 2. umferð í mynsturteikningu eru 8 fyrstu stuðlarnir heklaðir sem þríbrugðnir stuðlar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, næstu 6 stuðlar sem tvíbrugðnir stuðlar, næstu 22 stuðlar eru heklaðir sem stuðlar eins og áður, næstu 6 stuðlar sem tvíbrugðnir stuðlar, síðustu 8 stuðlarnir sem þríbrugðnir stuðlar (3. umferð er hekluð eins og útskýrt er í mynsturteikningu).
Haldið svona áfram (þ.e.a.s. í 2. umferð í mynsturteikningu eru heklaðir þríbrugðnir stuðlar og tvíbrugðnir stuðlar í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er að ofan og 3. umferð er hekluð eins og áður) fram og til baka þar til stykkið mælist 13-17-25 cm lengst niðri á framstykki og bakstykki – stillið af að endað sé eftir 3. umferð í mynsturteikningu. Klippið frá.

Nú er ermin hekluð með byrjun frá röngu: Hoppið yfir fyrstu 15-15-14 stuðlahópana (= A.3a/A.3b). Festið enda (grár) með 1 fastalykkju um næstu loftlykkju, heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull um sömu loftlykkju (= A.3c), A.3b alls 19 sinnum, A.3c. Snúið og heklið 3. umferð til baka frá réttu – RENDUR-2 halda áfram eins og áður. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 48-50-52 cm frá ferningum – stillið af að endað sé eftir eina umferð frá réttu. Klippið frá.

VINSTRI HLIÐ OG ERMI:
Vinstri hlið og ermi er heklað á sama hátt og hægri hlið og ermi, en byrjað er frá réttu í horni neðst niðri á framstykki í stað bakstykkis – stillið af mál eftir hægri hlið og ermi.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá peysuna þannig að réttan liggi að réttu og heklið í gegnum bæði lögin frá röngu með litnum sumarengi þannig:
Byrjið neðst niðri á ermi með fastalykkju, * heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* undir ermi og niður meðfram hlið. Klippið frá. Endurtakið á hinni hliðinni.

KANTUR NEÐST NIÐRI Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu neðst niðri á framstykki að miðju að framan og heklið með litnum sumarengi þannig:
Festið enda með 1 fastalykkju í lykkju í horni, heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern af næstu 5 loftlykkjubogum, heklið A.3b jafnt yfir 11-14-20 sinnum meðfram hlið á stykki fram að stykki á bakstykki sem heklað var niður yfir 4 ferninga að aftan, heklið A.3b alls 12 sinnum eins og áður yfir næstu 12 mynstureiningar á bakstykki, heklið A.3b alls 6 sinnum meðfram ferning og endið með A.3c um lykkju í horni. Nú er 1 mynstureining A.3a, 45-51-63 mynstureiningar A.3b og 1 mynstureining A.3c í umferð. Haldið áfram fram og til baka með 2 síðustu umferðum í mynsturteikningu (RENDUR-2 halda áfram eins og áður) þar til kantur mælist 4-8-12 cm frá ferningum á framstykki – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er heklaður fram og til baka í 1 hluta frá vinstra framstykki og saumað við hálsmál aftan í hnakka og hægra framstykki í lokin. Allur kantur í hálsmáli er heklaður með litnum sumarengi.
Byrjið frá réttu með 1 fastalykkju lengst inn við vinstri axlasaum (að hálsmáli) á vinstra framstykki og heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: A.4a, A.4b, A.4c (2. Umferð er hekluð frá réttu og 3. umferð er hekluð frá röngu). Haldið áfram fram og til baka svona og endurtakið síðustu 2 umferðirnar þar til heklaðar hafa verið 20 umferðir á hæðina. Heklið síðan 1 umferð til viðbótar að næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá. Saumið síðustu umferð sem var hekluð við kant efst á hægra framstykki og saumið kraga niður meðfram hálsmál aftan í hnakka (saumið með smáu spori svo að saumurinn verði ekki þykkur).

KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu með litnum sumarengi í horni neðst niðri á framstykki. Heklið 1 fastalykkju um neðstu umferð á kanti, heklið 4 loftlykkjur, 3 stuðlar um næsta umferð meðfram kanti (= A.3a), heklið 0-1-2 mynstureiningar A.3b jafnt yfir upp að fyrsta ferning, haldið síðan áfram með A.3b um hvern loftlykkjuboga meðfram hverjum af 4 ferningum á hægra framstykki (= 6 mynstureiningar A.3b meðfram hverjum af ferningum), haldið síðan áfram með 1 mynstureiningu A.3b um hverja af umferð meðfram kanti í hálsmáli (= 20 mynstureiningar), haldið síðan áfram niður yfir vinstra kant að framan á sama hátt og á hægri kanti að framan. Þegar allt A.3a til A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina er kanturinn tilbúinn. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.03.2019
Mynsturteikning A.4 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift (4 loftlykkjur + 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju). Fyrsta umferð byrjar við punkt á hring
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjuboga, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.

symbols = heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í lykkjuna, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.
symbols = heklið 2 þríbrugðna stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum næstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinn.
symbols = heklið 2 fjórbrugðna stuðla saman þannig: * Bregði bandinu 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann, sækið bandið, bregði bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni, bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni, bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina og dragið bandið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð, síðan er heklað með keðjulykkjum fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðir byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu loftlykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur upp að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = byrjið hér þegar heklað er niður yfir bol á bakstykki
symbols = byrjið hér þegar heklað er upp að öxlum á bakstykki
symbols = byrjið hér þegar hægri hlið og ermi er heklað
symbols = teikning sýnir hvernig 4 ferningarnir eru heklaðir saman fyrir bakstykki
symbols = teikning sýnir hvernig 4 ferningar eru heklaðir saman fyrir framstykki
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Nati wrote:

Hola, tengo la chaqueta casi terminada, pero no entiendo cómo hacer el cuello. Me parece que lo tengo que hacer por separado pero no entiendo cuánto de ancho y largo, vaya que no entiendo y creo que suelo entender bien los patrones, a la espera de respuesta, gracias anticipadas

19.08.2019 - 19:05

DROPS Design answered:

Hola Nati! Nos alegra que acabaste la chaqueta. Muestrala en facebook. Felicitaciones!

22.08.2019 - 17:26

country flag Gonny wrote:

Rechter kant en mouw. Het was moeilijk om het verhaal van de 3-dubbele stokjes, dubbele stokjes onderaan het vest te ontcijferen. De 22 stokjes in het patroon kon en kan ik nog steeds niet plaatsen. Ik begreep ook niet waar de extra lange stokjes voor dienden. Ik neem nu aan dat het bedoelt is om vorm in het vest te krijgen onderin. Klopt dit? Misschien kan dat erbij vermeldt worden, dat verklaart een hoop. Alvast bedankt!

08.08.2019 - 13:31

DROPS Design answered:

Dag Gonny,

De eerste en laatste driedubbele stokjes en de dubbele stokjes die daarnaast zitten zijn inderdaad bedoelt om vorm (A-lijn) te creëren in het werk. Van de steken die daar tussenin zitten haak je de stokjes als normale stokjes en dit zijn dus die 22 stokjes.

10.08.2019 - 16:02

country flag Annika Hammer wrote:

Hej! Förstår inte alls hur jag ska virka halskanten. Tycker första meningen under denna rubrik är väldigt svår att förstå: Ska jag börja vid vänste axelsöm, och virka den lilla snutten ner mot framkant på framstycket, eller virkar jag mot nacken (bakstycket)? Ska jag inte virka runt hela halsen? Var ska jag sy? Annika

05.08.2019 - 22:22

DROPS Design answered:

Hej Annika, du börjar vid vänster axelsöm, virkar den lilla snutten ner mot framkant på framstycket och fortsätter fram och tillbaka som en lång remsa på 20 varv. Nu syr du kortsidan mot höger halskant och hela långsidan längs nacken. Lycka till :

03.10.2019 - 14:16

country flag Constance Geeve wrote:

Even voor de zekerheid.... dit stukje tekst onder het kopje Rechtervoorpand en mouw gaat over de toer aan de verkeerde kant met grijs toch? "Als A.3a – A.3c helemaal zijn gehaakt in de hoogte, herhaal dan de laatste 2 toeren op dezelfde manier, maar op de 2e toer in de telpatronen haakt u de eerste 8 stokjes als driedubbele stokjes enz." Mvg Constance

11.06.2019 - 00:21

DROPS Design answered:

Dag Constance,

Bij de mouw begin je met zomerheide en haak je STREPEN-2, dus om en om zomerheide en grijs. A.3 heeft 3 toeren, dus als je A.3 een keer in de hoogte hebt gebreid, dan zou de laatste toer zomerheide moeten zijn. Dus waar staat Als A.3a – A.3c helemaal zijn gehaakt in de hoogte, zou je dan weer met grijs moeten beginnen.

13.06.2019 - 09:06

country flag Birgit Rittsteiger wrote:

Hallo, ich würde so gerne diese Jacke häkeln, kenn mich aber bei dieser Anleitung leider gar nicht aus. Gibt es da vielleicht eine genaue Anleitung zu kaufen? Mit freundlichen Grüßen Birgit Rittsteiger

09.05.2019 - 11:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rittsteiger, lesen Sie die Anleitung durch - hier lesen Sie mehr über Diagramme - sollten Sie Fragen haben, stellen Sie sie gerne hier - Ihr DROPS Laden wird Ihnen auch mal gerne weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim häkeln!

09.05.2019 - 13:52

country flag Marie Engblom wrote:

Undrar vad ” v ” på andra varvet betyder i diagrammet A4a? Mvh Marie

11.04.2019 - 21:52

DROPS Design answered:

Hei Marie. Det ble gjort en rettelse i A.4a den 19.03.2019 der V-en på 2. rad ble endret til en T = 1 fastmaske. Kan det være denne v-en du sikter til? God fornøyelse

12.04.2019 - 07:45

country flag Mary Ann wrote:

Are the numbers at the bottom of the diagram of the entire sweater flat - the number of stitches or clusters? They don’t add up. Please help so I can finish this. Darling sweater but poorly written pattern.

10.04.2019 - 17:03

DROPS Design answered:

Dear Mary Ann, the numbers in the measurment chart are matching the measurements of piece in cm taken flat from side to side - read more about sizing here. There might be hundred ways to write and format patterns, you may just try to read it again with new eyes - read more about crochet diagrams here - for any question you are welcome to ask your question here and for any individual assistance, please contact the store where you bought the yarn - even per mail or telephone. Happy crocheting!

11.04.2019 - 09:51

country flag Cheryl Wieger wrote:

Could you please explain how to work the collar. The pattern doesn't tell how many repeticions of A4, B4, or C4.What part of the collar do you sew to right side?

04.04.2019 - 02:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wieger, you crochet 21 rows in A.4 a-b-c: the last 2 rows a total of 20 times + 1 more time the row 2. The right side of collar (seen from RS) = A.4a (= the shortest part of collar) will be then sewn along the neckline. Happy crocheting!

04.04.2019 - 09:52

country flag Rosy wrote:

Non è facile per un principiante seguire queste istruzioni. Dovreste mettere istruzioni passo passo. Comunque grazie

27.03.2019 - 08:55

country flag Fabie74 wrote:

Bonsoir, Merci Drops Design pour votre réponse. J’ai fait des recherche sur les modèle existants en crochet. Et aparament le V correspond à: v = 1 maille serrée autour de la maille en l'air/de l'arceau. Bien cordialement

18.03.2019 - 22:35