DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 201-22
DROPS Design: Mynstur as-103
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
25-25-25-25-25-25 g litur 19, karrí
75-75-75-100-100-100 g litur 01, natur
25-25-25-25-25-25 g litur 12, daufbleikur
25-25-25-25-25-25 g litur 14, ljós grágrænn
25-25-25-25-25-25 g litur 13, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm á prjóna nr 6

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir perluprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Brushed Alpaca Silk 08, 01, 09, 12, 04.
B) DROPS Brushed Alpaca Silk 04, 01, 14, 02, 05.
C) DROPS Brushed Alpaca Silk 15, 01, 05, 13, 17.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum ljós grágrænn, 12-12,5-13-13-14-14,5 cm með litnum natur, 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum daufbleikur og prjónið síðan til loka með litnum gallabuxnablár = 12-12,5-13-13-14-14,5 cm.

RENDUR ERMI:
Prjónið 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí, 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí og 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí.

ÚRTAKA-1:
Prjónið 3 miðju lykkjur undir ermi slétt saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-1:
Prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju, en sleppið ekki þessari lykkju yfir á vinstri prjón. Prjónið 1 lykkju til viðbótar í sömu lykkju, en hún er prjónuð í aftari lykkjubogann á lykkjunni = 1 lykkja fleiri.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir neðst á ermum):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Sláið e.t.v. 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Við handveg skiptist stykkið í tvennt og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132-144-156-172-188-208 lykkjur á hringprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á prjón 6 og litinn grágrænn og prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT því sem prjónaðar eru RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 skiptist stykkið í tvennt og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 66-72-78-86-94-104 lykkjur. Prjónað er fram og til baka og í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir ermasaum = 2 lykkjur fleiri – sjá ÚTAUKNING-1 = 68-74-80-88-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 22-22-24-24-26-26 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umferð: 2 lykkjur alls 1 sinni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið laust af þær 21-24-26-30-33-38 lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 66-72-78-86-94-104 lykkjur. Prjónið eins og bakstykki, en fellið af fyrir hálsmáli þannig: Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur alls 2 sinnum og 1 lykkja alls 1 sinni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af þær 21-24-26-30-33-38 lykkjur sem eftir eru laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og natur og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-22-22-22-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 60-60-62-64-64-66 lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN og RENDUR-ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar RENDUR-ERMI hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litinn natur til loka.
Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1, úrtakan er endurtekin með 4-6-5-5-0-0 cm millibili alls 4-3-2-2-0-0 sinnum = 52-54-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-52-51-49-47-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og fellið af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Takið upp ca 55-55-60-60-65-65 lykkjur í kringum hálsmál með litnum gallabuxnablár á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin) í ca 2,5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.11.2021
Leiðrétting: Efnismagn hefur verið leiðrétt í öllum stærðum. Leiðrétting á röndum á fram-og bakstykki í stærð XL.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Stina Andersen wrote:

Er det riktig at XL kun skal ha 12 cm med disse fargene?? STRIPER BOL: Strikk 12-12,5-13-12-13,5-14 cm med lys grågrønn, 12-12,5-13-12-14-14,5 cm med natur, 12-12,5-13-12-13,5-14 cm med støvrosa og deretter strikkes ferdig med jeansblå = 12-12,5-13-12-14-14,5 cm.

16.03.2020 - 18:06

DROPS Design answered:

Hej Stina, du strikker det øverste af halsen færdig med sidst farve i striberne. God fornøjelse!

19.03.2020 - 13:58

country flag Katarzyna wrote:

Ile gram włoczki Brushed alpaca silk potrzeba na jednolity sweter ?

13.11.2019 - 17:46

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu! Na jednolity sweter będziesz potrzebować ok. 125-150-150-175-175-200 g włóczki Brushed Alpaca Silk, w zależności od tego, który rozmiar wykonujesz. Miłej pracy!

13.11.2019 - 18:03

country flag Kerstin wrote:

Kan man använda garnen Drops Alpaca och Kid-Silk (garngrupp A) till denna modell? Hur många nystan behövs i så fall om man stickar den enfärgad i storlek L ?

22.10.2019 - 17:58

DROPS Design answered:

Hej. Ja du kan använda dessa garn till detta mönster, tänk bara på att det är viktigt att du får den stickfasthet som uppges i mönstret för att måtten ska bli riktiga. Jag har dessvärre ingen uppgift på hur mycket garn det går åt om man stickar den enfärgad. Du kan alltid räkna om utifrån den garnmängd som står i mönstret så får du iallafall inte för lite garn. Här kan du läsa mer om hur du byter ut ett garn mot ett annat. Lycka till!

23.10.2019 - 07:23

country flag Joan Bengtson wrote:

Jeg har strikket med 1tråd,Brushed Alpaca Silk,der bliver alt for meget garn i overskud?Det skal vel være 2tråde,den skal strikkes i,før det giver mening??

20.10.2019 - 17:01

DROPS Design answered:

Hei Joan. Denne modellen skal strikke med 1 tråd. Det er nok noen av fargene i noen av størrelsene som ligger helt på grensen mellom 1 og 2 nøster, og da har vi rundet opp slik at man ikke risikerer å få for lite garn. Men du en oversikt over hvor mange nøster du har igjen, hvilken farger og hvilken størrelse strikker du? Så skal vi få sett nærmere på dette. mvh DROPS design

21.10.2019 - 14:49

country flag Lone Sandner wrote:

Kan jeg strikke med dobbelt garn og stadig følge opskriften, evt. tykkere pinde / garnforbrug?

23.09.2019 - 12:11

DROPS Design answered:

Hei. Denne genseren er strikket med et garn fra garngruppe C. Du kan strikke denne genseren med 2 tråder fra garngruppen A (f.eks Kid-Silk, Alpaca). Bruk vår gankalkulator for å finne garnmengden og husk å overholde strikkefastheten. God Fornøyelse!

23.09.2019 - 14:56

country flag HELENE JENSEN wrote:

Skønt strik, jeg strikker str. Xxl strikfasthed passer. Men i lyserød og den lyse blå er der over et nøgle i overskud. Måske der også kommer det i den blå 🤔🤔 det må være en fejl i opskriften.

12.07.2019 - 22:04

country flag Marie wrote:

Doit-on tricoter fil simple ou double ? Merci pour votre réponse

17.05.2019 - 15:58

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, ce modèle se tricote avec un seul fil DROPS Brushed Alpaca Silk, vous devez avoir 15 m x 24 rangs au point de riz = 10 x 10 cm, ajustez la taille des aiguilles si besoin. Bon tricot!

20.05.2019 - 14:43

country flag Te-ying wrote:

Pour la taille S, il y a beaucoup trop de pelotes. 25g suffit pour les couleurs ; pour le coloris naturel, 75g (3 pelotes et il y aura largement assez). Pour les mailles à relever du col, avec 55 mailles, ma tête ne passait pas du tout. Très joli pull sinon !

24.04.2019 - 12:06

country flag Ørsina Christensen wrote:

Er i gang med denne opskrift men har alt for meget garn i overskud. har strikket på pind mindre. Er det meninger at den skal strikkes med 2 tråde. (det står der ikke i opskriften. f.eks. har kun brugt 1 nøgle af lysgrøn nr. 14. men i opskriften står der 50 gr. = 2 ngl.

01.03.2019 - 14:35

DROPS Design answered:

Hei Ørsina. Denne modellen skal strikke med 1 tråd. Det er nok noen av fargene i noen av størrelsene som ligger helt på grensen mellom 1 og 2 nøster, og da har vi rundet opp slik at man ikke risikerer å få for lite garn. God fornøyelse

06.03.2019 - 08:38

country flag Ørsina Christensen wrote:

Jeg vil gerne spøre om hvad jeg har gjort forkert. jeg har købt garn efter opskriften men har mange nøgler i overskud. når der står 50 gr har jeg købt 2 ng.(a25 g) men f.eks. den grågrønne nr. 14 skal jeg kun bruge den ene nøgle. og jeg har strikket det på pind 5 i stedet for 6. tlf. 40334332

01.03.2019 - 11:44